Morgunblaðið - 15.12.1988, Qupperneq 84
T-Töfóar til 11 fólks í öllum EndurskiirgÉ
imtttfftitijftaii í skamnrál
starfsgreinum!
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Þj óðhagsstofiiun:
3.000 manns með yfir
160 þúsund í laun
UM 3.000 einstaklingar eru að
jafhaði með 160 þúsund krónur
eða meir í mánaðarlaun sam-
kvæmt upplýsingum sem
Kvennalistinn fékk hjá Þjóð-
hagsstofhun og unnar voru upp
úr skattaskýrslum fyrri ára þar
sem launatölur voru framreikn-
aðar.
Kvennalistinn bað fyrir helgina
um upplýsingar frá fjármálaráðu-
neyti og Þjóðhagsstofnun til að
kanna hvaða tekna ríkissjóður gæti
aflað með sérstöku skattþrepi á
hátekjur. Var m.a. reiknað út hvaða
tekjur sérstakur skattur á tekjur
yfír 160 þúsund gæfí, og Þórhildur
Þorleifsdóttir þingmaður Kvenna-
listans sagði við Morgunblaðið að
samkvæmt þeim útreikningi bæri
hátekjuskattur lítinn árangur vegna
þess hve fáir lenda í hátekjuþrepinu.
„Þetta rýrir þó ekki trú okkar á
hátekjuþrep, en beinir þeim mun
frekar sjónum okkar að fram-
kvæmd skattalaganna og innheimt-
unni. Því ef maður á að trúa því
að það séu ekki meira en þijú þús-
und einstaklingar sem hafí yfir 160
þúsund krónur í tekjur á mánuði,
þá förlast manni mikið sýn og skiln-
ingur á umhverfí sínu. Það er opin-
bert leyndarmál að það séu milljarð-
ar, sem ekki er komið höndum á,
bæði í óbeinum sköttum og beinum.
Og því spyr maður sig hvaða sparn-
aður það sé í ríkisrekstri, að hafa
ekki efni á því að stórherða svo
skatteftirlit og framkvæmd laga að
þessir peningar náist inn,“ sagði
Þórhildur Þorleifsdóttir.
„Sá fjórði, Þvörusleikir, var
fjarskalega mjór . . .“
9
DAGAR
TIL JÓLA
NÍU DAGAR eru til jóla og
í dag, fimmtudag, kemur
jólasveinninn Þvörusleikir til
byggða.
Þvörusleikir heimsækir Þjóð-
minjasafnið klukkan 11 í dag.
Hraðfiystihús
Keflavíkur:
Skipaskiptin
við Skagfirð-
inga staðfest
STJÓRN Hraðfrystihúss
Keflavikur hf. staðfesti í gær
samning um sölu á Aðalvik KE
og Bergvík KE og kaup á Drang-
ey SK, að sögn Olafs Jónssonar
varastjórnarformanns hrað-
frystihússins. Ólafur _ sagðist
reikna með að stjórnir Útgerðar-
félags Skagfirðinga og Fiskiðju
Sauðárkróks tækju afstöðu til
samningsins í þessari viku.
„Samkvæmt samningnum fáum
við 375 milljónir króna fyrir Að-
alvík og Bergvík en kaupverð
Drangeyjar er 300 milljónir króna.
Skiptin fara fram um næstu ára-
mót,“ sagði Ólafur Jónsson í sam-
tali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Þorkell
Nýtt „ Óskabarn “ íhöfti
Laxfoss, hið nýja vörufiutningaskip Eimskipafélags íslands, við
Kleppsbakka í Sundahöfn í gær, en þá kom skipið í fyrsta skipti
til landsins. Laxfoss er næststærsta skip íslendinga. Aðeins systur-
skip Laxfoss, Brúarfoss, er stærra og í næstu viku kemur það
tíl Iandsins í fyrsta skipti. Sex tveggja manna farþegaklefar eru
í sitthvoru skipinu. Hægt verður að kaupa far með skipunum
eftir áramótin hjá ferðaskrifstofunni Úrvali, að sögn Þorkels
Sigurlaugssonar hjá Eimskipum. sjá miðopnu.
Bráðabirgðalög-
in voru samþykkt
BRÁÐABIRGÐALÖG ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar um aðgerðir
í efiiahagsmálum sem sett voru í apríl síðastliðnum voru samþykkt
í efri deild Alþingis í gærkvöldi. Allar breytingartillögur stjórnarand-
stöðunnar við frumvarpið voru felldar, utan tillaga Borgaraflokks-
ins um að afherna bann við verkföllum. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra lýsti því óvænt yfir á þriðjudagskvöld að ríkissljórn-
in styddi þessa breytingu. Þá samþykkti deildin einnig bráðabirgða-
lög ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar frá því í haust.
Óvissa hefur ríkt um hvort bráða-
birgðalögin nytu nægilegs stuðn-
ings í deildinni, þar sem Skúli Alex-
andersson hefur viljað hafa fyrir-
vara um samþykki sitt. Þá hefur
breytt afstaða ríkisstjómarinnar
valdið miklum deilum og drógust
umræður nokkuð á langinn af þeim
sökum.
Sjálfstæðismenn sögðu að breyt-
ingartillaga Borgaraflokksins væri
markleysa. Yfírlýsing forsætisráð-
herra breytti afstöðu sjálfstæðis-
manna til laganna og vildu þeir
afnema öll ákvæði sem bindu kjara-
samninga. Breytingatillaga Borg-
araflokksins var samþykkt með at-
kvæðum allra viðstaddra þing-
manna. Þá var samþykkt að kjara-
samningar yrðu bundnir til 15. febr-
úar næstkomandi, en í upphaflegu
lögunum var gert ráð fyrir að þeir
yrðu bundnir til 10. apríl.
Egill Jónsson þingmaður Sjálf-
stæðisflokks og Skúli Alexanders-
son þingmaður Alþýðubandalags
viku báðir úr þingdeildinni þegar
atkvæði voru greidd um breyting-
artillögur við bráðabirgðalögin. Við
þriðju umræðu var þingdeildin full-
skipuð og frumvarpið samþykkt
með 11 atkvæðum gegn 10.
Sjá ummæli sjálfstæðismanna
á bls. 2 og þingsíðu á bls. 64.
Tollstjóri afiiam neyðarleyfi þriggja aðila:
Var að koma í veg fyrir imsnotkun þeirra
BJÖRN Hermannsson tollstjóri í
Reykjavík afnam í síðustu viku
svokölluð neyðarleyfi hjá þrem-
ur innflutningsaðilum. Sam-
kvæmt reglum um neyðarleyfi
mega viðkomandi farmflytjend-
ur afgreiða sjálfir innflutning
sinn en verða að setja fullnægj-
andi tryggingar fyrir tollum og
farmgjöidum. Gjöldin á síðan að
greiða innan 20 daga fra'því að
varan er sótt. Björn segir að í
þessum þremur tilfellum hafi
uppgjör dregist í marga mánuði
og hafi hann verið að koma í veg
fyrir þessa misnotkun á Ieyfun-
um.
Ýmsir vöruflokkar falla undir
neyðarleyfín. Er um að ræða hluti
sem ekki þola bið i tollgeymslum
eins og blóm og lifandi jurtir eða
hluti sem þarf að afgreiða strax
eins og lyf. Einnig falla hlutir eins
og varahlutir í skip og flugvélar
undir neyðarleyfi.
„Ég afnam þessi neyðarleyfí til
þess að viðkomandi gerðu upp
skuldir sínar. Tveir þessara aðila
hafa þegar gert það og von er á
uppgjöri frá þeim þriðja," segir
Bjöm Hermannsson. „Hinsvegar vil
ég taka fram að þótt neyðarleyfín
væru afnumin átti það ekki að leiða
til neinna vandræða. Hægt er að
greiða þessi gjö|d fyrirfram og fá
þannig vöm sína úr tolli strax og
hún berst.“
Þórarinn V. Þór-
arinsson:
Gengisfelling
er í aðsigi
Forsenda spár
Seðlabankans um
atvinnulífíð á
næsta ári
„EF EINHVER getur sannfært
mig um að eitthvað annað geti
falist í þessu en gengisfelling,
þá er ég alveg tilbúinn að hlusta
á það,“ segir Þórarinn V. Þórar-
insson framkvæmdastjóri VSI
um spá Seðlabankans um efiia-
hagsþróun á næsta ári. Sú spá
er meðal gagna sem unnið er
með í viðræðum um lækkun
vaxta á lánum lífeyrissjóðanna
til húsnæðislánakerfisins. I
spánni er gert ráð fyrir að hjól
atvinnulífsins fari að snúast aft-
ur af fullum krafti snemma á
næsta ári.
„Seðlabankinn segir í sinni spá,
að iðgjaldatekjur lífeyrissjóðanna
vaxi um 18%,“ segir Þórarinn. „Þar
er gert ráð fyrir að atvinnuþátttaka
aukist frá því sem var á síðasta ári
og hefur aldrei verið meiri. Því er
og spáð að iðgjaldatekjur af yfir-
vinnu vaxi svo mjög að það verði
ekki um neinn samdrátt í yfirvinnu
að ræða, heldur þvert á móti.
Það er viðurkennt af talsmönnum
Seðlabankans í þessum viðræðum
að inni í áætluninni sé við það mið-
að að gripið verði til efnahagsráð-
stafana sem geri það að verkum
að hjól atvinnulífsins komi til með
að snúast af fullum þrótti á næsta
ári. Ég kann enga aðra leið heldur
en þá að gengið verði að færa til
nýs grundvallar, gengi íslensku
krónunnar. Það er óhjákvæmileg
försenda þessarar spár.“
Þórarinn segir að þetta verði
óhjákvæmilega til þess að verðbólga
verði talsvert meiri á næsta ári en
spáð hefur verið.
Hann var spurður hvort umrædd-
art efnahagsráðstafanir þýði geng-
isfellingu. „Ef einhver getur sann-
fært mig um að eitthvað annað
geti falist í þessu en gengisfelling,
þá er ég alveg tilbúinn til þess að
hlusta á það. Mér er bara ekki kunn-
ugt um að til sé neitt það hókus
pókus sem geti komið í staðinn fyr-
ir það.“
70% verð-
munur á
Snáka-
höllinni
TÖLUVERÐUR verðmunur er á
leikföngum og spilum á milli
verslana, samkvæmt verðkönnun
Verðlagsstofnunar. í leikföngum
var mesti verðmunurinn á Snáka-
Cöllinni í leikfangaseríunni
„Masters of the Universe", eða
70% á milli ódýrustu og dýrustu
búðarinnar.
Ódýrasta Snákahöllin kostaði
2.869 kr. en sú dýrasta 4.900 og
er því rúmlega 2.000 kr. munur þar
á. Algengur verðmunur var
30-50%. .
í spilakönnuninni var mesti verð-
munurinn á Útvegsspilinu, 73%.
Ódýrasta Útvegsspilið kostaði 900
krónur en dýrasta 1.560 krónur.
Sjá verðkönnun bls. 46.