Morgunblaðið - 07.12.1991, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
Af fundi kaþólskra blaðamanna
eftir Torfa Ólafsson
Umræðufundur Evrópudeildar
Alþjóðasambands kaþólskra blaða-
manna var haldinn í Fribourg í Sviss
25.-29. september sl. Sátu fundinn
um það bil 180 fulltrúar frá flestöll-
um Evrópulöndum, þ.á m. Austur-
Evrópulöndunum, sem nú gátu rætt
málin eins og þeim fundust þau
liggja fyrir án þess að eiga á hættu
kárínur heima fyrir ef þeir fetuðu
ekki flokkslinuna. Þó sagði einn
þeirra í ræðu: „Við erum ekki ennþá
lausir við óttann.” Undimtaður sat
fund þennan af hálfu ísiands.
Verulegur hluti umræðnanna var
helgaður vandamálum þeirra landa
sem nú eru laus undan oki kommún-
ismans og eru smám saman að beij-
ast til þess frelsis sem Vestur-Evr-
ópuþjóðir njóta og fóru fundarmenn
fram á aðstoð til þess að byggja
upp kirkjulega starfsemi. „Við eig-
um ekki einu sinni til leturbönd í
ritvélarnar okkar,” sagði rúmenski
fulltrúinn. Vesturlandamenn gætu
hjálpað þeim til að þjálfa fólkið
sögðu þeir og tileinka sér þá tækni
sem nú er almenn á Vesturlöndum.
„Eigum við von á nýju „barni” eða
verður fósturlát úr „þessu”? sagði
séra Laszio Lukas frá Ungverja-
landi.” Sala kaþólskra blaða og bóka
er líka erfiðleikum bundin'í löndum
þar sem fólk á ekki einu sinni pen-
inga fyrir mat,” sagði sá rúmenski.
Austanmenn sögðu líka kunn-
áttuleysi og skipulagsleysi meðal
trúaðra í löndum þeirra vera slíkt
að þótt þeim væri gefín heil prent-
smiðja kynnu þeir hvorki að hag-
nýta sér hana né vinna efni til að
prenta. Ástandið hjá þeim væri sam-
bærilegt við ástandið í þriðja heimin-
um.
Rætt var um breytingarnar sem
eru að verða í Evrópu. Um það mál
ræddi m.a. Paul Poupard, formaður
Menningarráðs páfagarðs. Sagði
hann m.a. að Evrópa, sem hefði
borið sár kommúnismans, væri nú
að bíða tjón vegna neysluhyggjunn-
ar. Eina leiðin fyrir Evrópu til að
finna sál sína að nýju væri að upp-
götva á ný hinar kristnu rætur sínar.
Anton Fellner, formaður kaþólska
blaðamannasambandsins í Austur-
ríki, hvatti menn til að leita sann-
leikans án afláts í hveiju máli og
láta ekki stjórnast af tilfmningum
eða öðrum annarlegum hvötum.
„Hlaupið ekki á fund presta, biskupa
eða páfa til þess að spyija, hvað
þið megið segja, heldur leitið sann-
leikans eftir bestu getu og segið
hann eins og hann er en hafið í öllu
hliðsjón af kristinni trú. Ef við erum
aðeins málpípur biskupanna okkar
trúir okkur enginn.’’
Fyrrnefndur Laszlo Lukas sagði
að tími væri til kominn að gagnrýna
samfélagsmál í Evrópu frá kristi-
legu sjónarmiði. Kaþólskir menn
væru ekki alltaf á eitt sáttir um,
að hve miklu leyti þeir mættu gagn-
rýna kirkjuna. Einn tékknesku full-
trúanna líkti kirkjunni í landi sínu
við glerhús og bað menn að fara
gætilega með steina í námunda við
hana. Aðalritstjóri kaþólska dag-
blaðsins í Fribourg, la Liberté, sem
á 120 ára afmæli á þessu ári, sagði
það vera höfuðatriði að kaþólskir
blaðamenn væru ekki „rödd hús-
bóndans”. Hann vitnaði til orða
Danneels kardínála í Malines-Bruss-
el, sem sagði í ræðu sem hann flutti
í júní sl., að blaðamenn væru boð-
berar frelsis. Þegar þeir hagnýttu
sér frelsið gæti það stundum vaidið
kirkjunni vanda en kirkjan væri
nógu sterk til þess að þola sannleik-
ann.
Tilkynnt var að á næsta hausti
yrði þing alþjóðasambandsins haldið
í smáborg skammt frá Sao Paulo í
Brasilíu.
Síðasta daginn var ekið með
Torfi Ölafsson
„Austanmenn sögðu líka
kunnáttuleysi og skipu-
lagsleysi meðal trúaðra í
löndum þeirra vera slíkt
að þótt þeim væri gefin
heil prentsmiðja kynnu
þeir hvorki að hagnýta
sér hana né vinna efni til
að prenta.”
fundargesti um Fribourg-kantónu
og þeim kynnt þetta undurfagra
land.
Höfundur er formnður félags
kaþólskra leikmanna.
ótrúlega
4X4
hagstæðu verði
Búnaöur
Vél 2600CC. 115HÖ bensín.
Samlæsing á hurðum.
ÍÚtvarp m/segulbandi.Tregðulæsing
' Rafstýrðar rúðuvindur.
' Háþrýstiþvottur á aðalljósum.
1 Hæðarstilling og
upphitað bilstjórasæti.
TROOPER
I
CREW CAB
Bunaöur
. Vél 2300CC. 110HO. 5 glra.
/Aflstýri. Tregðulæsing.
/Vönduð innrétting. 5" upphækkun.
I Gúmmibrettakantar.
' Gangbretti úr áli.
B.F. Goodrich 32* dekk. Álfelgur.
Svört grínd á framstuðara og
Ijóskastarar. Wam M6000 spil.
■
'
Frá 1.782.000 stgr.
á götuna
ekki innifalið í veröi.
/ISUZU bílarnirerumjög þægilegir íakstri.mjúkir og rúmgóðir.j
' Láttu ekki vetrarfærðina hafa áhrif á ferðaáætlanir þínar.
/ Tryggðu þér og fjölskyldunni traustan ISUZU bíl.
Takmarkað magn bíla
Ókeypis skoðun árlega
lUUÍsvrffuj
HÖFÐABAKKA 9 SÍMAR 670000 / 674300
Mannréttinda-
brot á öryrkjum?
eftir Sigurð Þór
Guðjónsson
Tveir af ágætustu baráttumönn-
um fyrri rétti öryrkja hafa látið til
sín taka undanfarið. Jóhann Pétur
Sveinsson formaður Sjálfsbjargar
hefur mótmælt auknum lyfjakostn-
aði þeirra. Og Arnór Helgason for-
maður Oryrkjabandalags Islands tel-
ur þá ákvörðun Borgarstjórnar
Reykjavíkur, að sambýli geðsjúkra
við Þverársel verði að fá leyfi bygg-
inganefndar borgarinnar fyrir starf-
semi sinni, vera skerðingu á mann-
réttindum fatlaðra.
Ég vil vekja athygli á mannrétt-
indabroti, sem sérstaklega bitnar á
öryrkjum, en virðist því miður hafa
skotist framhjá þessum valinkunnu
mönnum, sem og öllum almenningi.
Vorið 1989 samþykkti alþingi ein-
róma viðbótarákvæði við læknalög
frá 1988, og afnam þar með vissan
rétt sjúklinga til aðgangs að sjúkra-
skrám. Var sú lagasetning andstæð
túlkun umboðsmanns alþingis.
Landlæknir hefur oft lýst því yfir
opinberlega að þetta sé mann-
réttindabrot á sjúklingum. Og á ráð-
stefnu sem Rauð krossinn efndi til
í Reykjavík 4. maí síðastliðinn um
mannréttindi, sagði Ragnar Aðal-
steinsson hæstaréttarlögmaður, að
„ekki verði séð að þingmenn hafi
gert sér neina grein fyrir því, að
með breytingunni var lögfest
ákvæði, sem brýtur gegn Mannrétt-
indasáttmála Evrópu eins og hann
hefur verið túlkaður af Mannrétt-
indadómstól Evrópu”.
En ekki vakti þetta neinar umræð-
ur né önnur viðbrögð í þjóðfélaginu.
Engar ályktanir gerðar af þeim er
helst láta málefni öryrkja og ann-
arra sjúklinga til sín taka.
Hvers vegna lætur sig enginn
neinu varða, þó fram komi á ráð-
stefnu virtustu alþjóðasamtaka
heims um líknarmál og mannrétt-
indi, að alþingi hafi sett lög, er
stangist ekki aðeins á við anda
Mannréttindasáttinála Evrópu, held-
ur eins og hann hefur beinlínis verið
túlkaður af Mannréttindadómstóln-
um?
Hér véla ekki um málin „nöldrar-
ar” eða menn með „þráhyggju”.
Þetta snertir auðvitað enga meira
Sigurður Þór Guðjónsson
„Fór mannréttindaráð-
stefna Rauða krossins
framhjá öllum? Eða eru
sum mannréttindi
óæðri öðrum? Þetta eru
áríðandi spurningar
sem knýja á um svör.”
en öryrkja því mannréttindi eru þar
með brotin á þeim flestum hér á
landi.
Hvernig í ósköpunum stendur þá
á því að Óryrkjabandalagið, Sjálfs-
björg og öll önnur samtök og félög
sjúklinga á íslandi, láta eins og þau
viti ekki af þessu? Sömuleiðis læknar
sem eru þó sífellt að veija rétt sjúkl-
inga í blöðunum. Þó mót.mælir Ör-
yrkjabandalagið harðlega mann-
réttindaskerðingu á sjúklingum
varðandi sambýli í Þverárseli. Og
fleiri samtök sjúklinga eru að sigla
í kjölfarið.
Fór mannréttindaráðstefna Rauða
krossins framhjá öllum? Eða eru sum
mannréttindi óæðri öðrum? Þetta eru
áríðandi spurningar sem knýja á um
svör.
Höfundur er riihöfundur.