Morgunblaðið - 24.12.1996, Blaðsíða 1
295. TBL. 84. ÁRG.
Deilan um Hebron
Auknar
líkur á
sáttum
Kaíró, Jerúsalem. Reuter.
DENNIS Ross, samningamaður
Bandaríkjanna í Miðausturlönd-
um, sagði í gær að Palestínumenn
og Israelar hefðu færst nær sam-
komulagi um brottflutning ísra-
elskra hersveita frá borginni Hebr-
on á Vesturbakkanum.
Ross reyndi að miðla málum
milli samningamanna ísraela og
Palestínumanna um helgina og fór
síðdegis í gær til Kaíró til þess
að gera egypskum ráðamönnum
grein fyrir gangi viðræðnanna.
Takmark Bandaríkjamanna var
að leysa deiluna um hersveitirnar
í Hebron fyrir jól. Amr Moussa,
utanríkisráðherra Egyptalands,
ræddi við tvo samningamenn Pal-
estínumanna í gær áður en hann
hitti Ross og að fundunum loknum
sagðist hann telja að samkomulag
gæti náðst mjög bráðlega. Gert er
ráð fyrir að Bandaríkjamenn og
Egyptar ábyrgist samkomulagið.
Netanyahu tekur
þátt í viðræðunum
Það þótti til marks um að mál-
um hefði miðað talsvert í gær-
morgun að Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Israels, gekk til
liðs við samningamennina eftir
hádegi og tók þátt í viðræðunum.
Tækist að höggva á alla hnúta var
ráðgert að Netanyahu og Yasser
Arafat, forseti sjálfstjórnarsvæða
Palestínumanna, hittust og undir-
rituðu samningana.
ísraelar áttu að vera á brott
með sveitir sínar sl. sumar og af-
henda Palestínumönnum þá yfir-
ráð í um 80% borgarinnar. Tafir
urðu á því eftir kosningarnar í
ísrael, einkum vegna krafna Net-
anyahus um að gerðar yrðu sér-
stakar ráðstafanir til að tryggja
öryggi um 400 gyðinga, sem búa
meðal 100.000 araba í Hebron.
Óttast átök
í Belgrad
Belgrad. Reuter.
PAVLE patríarki, yfirbiskup rétt-
trúnaðarkirkjunnar í Serbíu, var-
aði í gær stjórnvöld og leiðtoga
stjórnarandstöðunnar við því að
deila þeirra gæti leitt til vopnaðra
átaka.
Patríarkinn hvatti stjórnarand-
stöðuna til að aflýsa mótmæla-
fundi sínum í Belgrad í dag vegna
fyrirhugaðs fjöldafundar Sósíal-
istaflokks Slobodans Milosevic for-
seta. Flokkurinn stefnir að því að
400.000 manns mæti á fundinn,
sem verður um hundrað metrum
frá mótmælafundi stjómarand-
stæðinganna. Óttast er að átök
hefjist milli hópanna og að stjórn-
in noti tækifærið til að lýsa yfir
neyðarástandi og kveða mótmælin
niður með valdi.
96 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Friður úti
á Norður-
Irlandi?
Belfast. Reuter.
EINN af leiðtogum mótmæl-
enda á Norður-Irlandi reyndi
í gær að draga úr ótta manna
við að sprengjutilræði við ka-
þólikka og frammámann í
röðum lýðveldissinna boðaði
upphafið að nýjum átökum í
landinu.
Gary McMichael, leiðtogi
Lýðræðisflokks Ulsters,
sagði, að sprengjutilræðið í
fyrradag þýddi ekki, að úti
væri um tveggja ára gamalt
vopnahlé skæruliða mótmæl-
enda. Kvaðst hann telja, að
þá hefði það verið tilkynnt
formlega. Lýðræðisflokkur
Ulsters er pólitískur armur
skæruliðahóps, er kallar sig
Varnarsamtök Ulsters og eru
þau bönnuð.
Viðbragða Breta beðið
Tilræðið var við Eddie
Copeland, 25 ára gamlan bar-
áttumann gegn yfirráðum
Breta í Norður-írlandi, og
slapp hann lífs en særðist
nokkuð. Hefur enginn lýst til-
ræðinu á hendur sér en flestir
telja, að með því hafi skæru-
liðar mótmælenda verið að
hefna árásar á lögreglumann
sl. föstudag.
Þegar írski lýðveldisherinn
braut vopnahléið var Sinn
Fein, pólitískum armi hans,
neitað um aðiid að friðarvið-
ræðunum á N-írlandi og er
þess nú beðið hvort viðbrögð-
in verða þau sömu gagnvart
mótmælendum. Kom ekkert
fram um það í gær hjá Sir
Patrick Mayhew Norður-
Irlandsmálaráðherra þegar
hann fordæmdi sprengjutil-
ræðið.
225 gíslum sleppt úr bústað sendiherra Japans í Lima
Skæruliðamir halda enn
140 mönnum í gíslingu
Reuter.
SKÆRULIÐAR Tupac Amaru-
hreyfingarinnar í Perú héldu enn
140 gíslum í híbýlum japanska
sendiherrans í Lima í gær eftir
að hafa sleppt 225 mönnum kvöld-
ið áður. Ekkert benti til þess að
skæruliðarnir yrðu við kröfu Al-
bertos Fujimoris, forseta Perú, um
að þeir legðu niður vopn og létu
alla gíslana lausa.
Rúmlega þúsund ættingjar,
fréttamenn og embættismenn
fögnuðu gíslunum sem gengu út
úr byggingunni í fýrrakvöld. Menn-
irnir voru þreytulegir en í sjöunda
himni yfír því að vera lausir úr
gíslingunni eftir að hafa verið í
haldi skæruliðanna í fimm daga.
Á meðal þeirra sem voru leystir
úr haldi voru sendiherrar Bólivíu,
Guatemala, Honduras, Panama,
Venezuela og Kúbu, erindrekar frá
Bólivíu, Evrópusambandinu, Sam-
einuðu þjóðunum, Bretlandi, Spáni
og Þýskalandi og að minnsta kosti
sjö bandarískir embættismenn.
Japanski sendiherrann, Mori-
hisa Aoiki, var enn í haldi skærul-
iðanna í gær og á meðal annarra
sem eru í byggingunni eru stjórn-
arerindrekar frá Rómönsku-Amer-
íku, um 30 kaupsýslumenn frá
Japan og embættismenn frá Perú,
þeirra á meðal tveir ráðherrar og
yfirmaður þeirrar deildar lögregl-
unnar sem berst gegn hermdar-
verkahreyfingum. Alberto Fuji-
mori, sem er sonur japanskra inn-
flytjenda, ræddi við gíslana á
sjúkrahúsinu en fór þaðan án þess
að ræða við fréttamenn. Bróðir
hans, Pedro Fujimori, er enn í
haldi skæruliðanna.
Sérsveitir sagðar
í viðbragðsstöðu
Skæruliðarnir sögðust hafa
ákveðið að sleppa mönnunum í til-
efni af jólahátíðinni en sögðu að
hinir gíslarnir yrðu ekki látnir
lausir nema stjórnin féllist á að
sleppa 400 félögum þeirra úr fang-
elsi. Fujimori hafnaði þeirri kröfu
algjörlega þegar hann flutti ræðu
til þjóðarinnar í fyrradag. Hann
sagði að ekki kæmi til greina að
sleppa fólki, sem dæmt hefði verið
fyrir morð og hryðjuverk. Japönsk
stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi
við afstöðu Fujimoris.
Her Perú hefur lagt drög að
áætlun um árás á bygginguna og
sérsveitir frá Bandaríkjunum,
Bretlandi og Þýskalandi eru í við-
bragðsstöðu i Lima, að sögn heim-
ildarmanna innan lögreglunnar í
borginni. Um 900 lögreglumenn
hafa umkringt bygginguna síðustu
daga.
■ Skiptust á um svefnpláss/24