Morgunblaðið - 24.12.1996, Page 60

Morgunblaðið - 24.12.1996, Page 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ JÓLAMYIMDIR KVIKMYNDAHÚSANIMA SAMBIOIN Hringjarinn og Lausnargjaldið SAMBÍÓIN stækka enn veldi sitt um hátíðirnar þegar þau taka við rekstri nýs kvik- myndahúss sem risið hefur í Kringlunni og munu þá hafa yfir fjórum kvikmyndahúsum í Reykja- vík að ráða. Helstu jólamyndir Sambíóanna eru gamanmyndin Jack, Disney-teiknimyndin Hringj- arinn frá Notre Dame, spennu- myndin „Ransom“ og um áramótin verður spennumyndin „Unfor- gettable" frumsýnd. Hefð er orðin fyrir því hjá Sam- bíóunum að frumsýna á annan í jólum nýjustu teiknimyndina frá Walt Disney-fyrirtækinu með ís- lensku tali og einnig því enska. Hringjarinn er 34. Disney-teikni- myndin í fullri lengd og byggð eins og kunnugt er á verki franska rithöfundarins Victors Hugos sem kom út árið 1831 þegar höfundur- inn var aðeins 28 ára. Eitthvað stóð í Disney-mönnum að kvik- mynda söguna sem er mjög sorg- leg og átakanleg en létu slag standa þegar gerðar höfðu verið talsverðar breytingar á henni. Sú ákvörðun var tekin í upphafi að kroppinbakurinn Quasimodo yrði miðdepill sögunnar eins og hann hafði verið í öðrum kvikmyndaút- gáfum hennar. Tom Hulce og Ðemi Moore fara með hlutverk kroppinbaksins og Esmeröldu hinnar fögru í myndinni en í is- lensku talsetningunni eru hlutverk þeirra í höndum Felixar Bergsson- ar og Eddu Heiðrúnar Backmans. Með önnur hlutverk fara Bríet Héðinsdóttir, Pálmi Gestsson og Hjálmar Hjálmarsson en leikstjóm talsetningarinnar var í höndum Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur og þýðinguna annaðist Þrándur Thoroddsen. í meðfömm Disney-höfundanna varð Quasimodo góðlundaður og indæll og þar með nokkuð ólíkur þeim Quasimodo sem Hugo hafði ; huga. Hans var mun illúðlegri og hafði litla þörf fyrir að eiga samskipti við umheiminn enda heymarlaus eftir allar hringing- arnar. Disney gaf honum heyrnina aftur en vildi ekki gera hann bein- línis fallegan. Quasimodo þróaðist á löngum tíma. „Stundum leit hann út eins og illa vaxinn ungl- ingur og stundum eins og einn af dvergunum sjö“ er haft eftir Kirk Wise, sem stjórnaði gerð myndar- innar ásamt Gary Trousdale en þeir höfðu áður gert Fríðu og dýr- ið. Höfundamir segja að þrátt fyr- ir breytingarnar hafi þeir náð anda sögunnar sérstaklega í umfjöllun sinni um þá sem eru utangarðs í samfélaginu. Jack eftir Francis Ford Coppola er jólamynd Sambíóanna og Há- skólabíós. í henni fer Robin Willi- ams með aðalhlutverkið en hann hefur það erfiða hlutskipti að leika tíu ára strák sem þjáist af öldmn- arsjúkdómi svo hann lítur út fyrir að vera fertugur. Honum hefur verið haldið frá fólki en þegar hann byijar í skóla kynnist hann mörgum vinum og fær nýja sýn á lífið sem hjálpar honum að komast í gegnum erfiðleikana og sitt stutta lífshlaup. Nýjasti spennutryllirinn með Mel Gibson heitir „Ransom“ eða Lausnargjald og er leikstýrt af Ron Howard er gerði síðast „Apollo 13“. Hann verður fmm- sýndur í Sambíóunum á annan í jólum í hinu nýja kvikmyndahúsi Sambíóanna í Kringlunni. Spenntryllirinn segir frá því þegar ungum syni bandarísks milljóna- mærings er rænt og faðirinn gríp- ur til örþrifaráða til að endur- heimta hann úr klóm mannræn- ingjanna. „Hann er moldríkur ná- ungi sem býr við öll hugsanleg lífs- þægindi,“ er haft eftir Gibson. „Hann á fallega eiginkonu, ástrík- an son, honum gengur mjög vel í viðskiptum og gæti hugsað sér að fara út í pólitík í framtíðinni. Og hann nýtur alls þessa. Þetta er líf- ið.“ Svo gerist það einn sólríkan morgun að tíu ára gamall sonur hans hverfur úr Miðgarði í New York. „Fyrir foreldra er það versta martröð sem hægt er að hugsa sér,“ heldur leikarinn áfram. „Hann er skelfingu lostinn og hann fær að þjást en hann bregst ekki við á neinn hefðbund- inn hátt.“ Það sem maðurinn ger- ir er að tvöfalda tveggja milljóna króna lausnargjaldið og bjóða það hveijum sem getur gefið upplýs- ingar sem leitt geta til þess að mannræningjarnir og sonur hans finnist. Allt er það mjög gegn vilja eiginkonu hans og alríkislög- reglunnar. Með önnur hlutverk í myndinni fara Rene Russo, Delroy Lindo, Gary Sinise og Lili Taylor, sem fór með skemmtilegt hlutverk í Á köldum klaka. Leikstjórinn How- ard hefur á síðustu árum orðið einn vandaðasti fagmaður Holly- wood-kvikmyndanna og sent frá sér góðar afþreyingarmyndir svo hann er nú orðinn einn vinsælasti leikstjórinn vestra. Hann er fyrr- um barnastjarna úr ameríska sjónvarpinu sem tók að leikstýra bíómyndum í upphafi níunda ára- tugsins og gerði nokkar mjög vin- sælar myndir eins og „Splash" og „Cocoon". Honum hefur einnig vegnað vel á þessum áratug en besta myndin hans fram til þessa er geimferðarævintýrið um för Apollo 13. til tunglsins og hvern- ig áhöfn tunglferjunnar var bjarg- að aftur til jarðar eftir að bilun gerði vart við sig. Þá sýna Sambíóin spennu- myndina „Unforgettable“ um ára- mótin. Henni er leikstýrt af John Dahl og er með Lindu Fiorentino í aðalhlutverki en síðast þegar þessi tvö unnu saman varð útkom- an film-noir tryllirinn „The Last Seduction". Ray Liotta leikur á móti Lindu í þessari mynd sem byggist á vísindaskáldskap og seg- ir frá manni sem getur séð fyrir sér minningar myrtrar eiginkonu sinnar með hjálp nýjustu tækni og reynir með því að hafa upp á morðingja hennar. REGNBOGINN Jólahasar ARNOLD Schwarzenegger fer með aðalhlutverkið í jólamynd Regnbogans, Jólahasar, en hann leikur sérlega upptekinn föður sem gleymir að kaupa jólagjöf handa syni sínum þar til á síðustu stundu. Drengur- inn vill hið vinsæla leikfang, Túrbómanninn, sem er næstum því ófáanlegt svo skömmu fyrir jól og Arnold fer af stað og lend- ir í furðulegustu ævintýrum í jólainnkaupunum. Onnur jóla- mynd bíósins er talsetta teikni- myndin Svanaprinsessan og einn- ig sýnir Regnboginn myndina lteyk með Harvey Keitel um há- tíðirnar. Bæði Jólahasar og Svanaprinsessan eru einnig í Laugarásbíiói. Leikstjóri Jólahasars eða „Jingle All the Way“ er Brian Levant, sem áður gerði Steinald- armennina, en framleiðandi er Chris Columbus („Mrs. Doubtf- 5re“, „Home Alone“). Með önnur hlutverk í myndinni auk Arnolds fara Sinbad, Rita Wilson, James Belushi og Phil Hartman. Sinbad leikur óðan póstmann sem kepp- ir við Arnold um síðasta Túrbo- manninn i borginni, en hann er í nákvæmlega sömu aðstöðu og tröllið úr Ölpunum og ætlar að kaupa leikfangið handa syni sín- um. Aðrir sem á vegi Schwarzen- eggers verða eru m.a. jólasveinn, sem Belushi leikur, harðjaxl úr lögreglunni og nágranninn Ted, sem Hartman leikur og er hinn fullkomni heimilisfaðir. Stundum sleppir Schwarzen- egger því að leika í spennutryll- um og tekur upp léttara hjal og reynir með því að höfða til breið- ari hóps kvikmyndahúsagesta. Sú þróun hófst með Tvíburum árið 1988 og hélt áfram með Leikskólalöggunni og svo „Juni- or“, en allar myndirnar gerði hann með Ivan Reitman. Jólahas- ar er af sama meiði og þessar gamanmyndir, austurríska vöðvafjallið er sett í annað um- hverfi og kringumstæður en áhorfendur eiga að venjast og úr því gert grín og glens. Reykur eða „Smoke“ er af ailt öðrum toga. Hún var sýnd hér á Kvikmyndahátíð Reykjavíkur í haust og segir af verslunarstjóra sem Keitel leikur er kynnist nokkrum New York-búum. Á meðal þeirra er rithöfundur sem hefur ekki sett penna á blað síð- an kona hans lést af slysförum, svartur táningur sem breytir nafni sínu og einkennum þegar hann hittir nýtt fólk, maður sem reynir að byrja nýtt líf og kona sem birtist eftir margra ára fjar- veru ogtilkynnir fyrrum kær- asta sínum að þau eigi dóttur sem sé í hættu stödd. Með hlutverk í myndinni fara auk Keitels, William Hurt, Forr- est Whitaker og Stockard Chann- ing en leikstjóri er Wayne Wang. JÓLAHASAR; Sinbad og Schwarzenegger keppa um Túrbómanninn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.