Morgunblaðið - 08.05.1997, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
102. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997
Gagnrýni á Sviss í bandarískri skýrslu um nasistagullið
Bandaríkj astj órn
sökuð um linkind
Washington, Berne. Reuter.
í BANDARÍSKRI skýrslu, sem
gefin var út í gær, eru stjórnvöld í
Sviss gagnrýnd fyrir að hafa keypt
stolið gull af þýskum nasistum í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Stjórnvöld í
Bandaríkjunum eru þar einnig
gagnrýnd fyrir að hafa ekki lagt
nógu hart að Svisslendingum að
skila gullinu eftir að stríðinu lauk.
Skýrslan er afrakstur sjö mánaða
rannsóknar og þar kemur fram að
hluti þess gulls, sem nasistar stálu
af gyðingum, hafí verið bræddur og
seldur til Sviss ásamt gulli sem nas-
istar stálu í löndunum sem þeir her-
námu í stríðinu. Stjórnvöld í Sviss
hafí vitað að nasistar hafi stolið gulli
í hemámslöndunum en hins vegar
séu engar sannanir fyrir því að
Svisslendingar hafi vitað að þeir
hafí tekið við gulli sem stolið var af
gyðingum.
Skýrsluhöfundamir, Stuart
Eizenstat, aðstoðarviðskiptaráð-
herra Bandaríkjanna, og William
Stanley, helsti sagnfræðingur
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
segja að svissnesk stjómvöld hafi
verið mjög ósveigjanleg í samninga-
viðræðum við bandamenn um gullið
eftir að stríðinu lauk. Þau hafi í
fyrstu borið á móti því að hafa keypt
stolið gull af nasistum og síðan neit-
að að skila því á þeirri forsendu að
bandamenn hefðu engan lagalegan
rétt til að gera tilkall til þess.
Bandarísk stjórnvöld á þessum
tíma voru einnig gagnrýnd fyrir að
sýna Svisslendingum of mikla lin-
kind. „Það er engum vafa undirorp-
ið að meðal háttsettra embættis-
manna skorti stuðning við harða af-
stöðu af hálfu Bandaríkjastjómar í
viðræðunum við hlutlausu löndin,“
segir í skýrslunni.
Svisslendingar greiddu rúmar 58
milljónir dala í gulli til nefndar sem
bandamenn stofnuðu eftir stríðið. í
skýrslunni er áætlað að á þessum
tíma hafí Svisslendingar haft undir
höndum stolið nasistagull að verð-
mæti 305-409 milljónir dala.
Varfæmisleg viðbrögð
Viðbrögð Svisslendinga við
skýrslunni voru varfærnisleg og
Flavio Cotti, utanríkisráðherra
Sviss, kvaðst fagna henni sem mik-
ilvægum lið í því að upplýsa málið.
Hann sagði hins vegar að svo virt-
ist sem skýrsluhöfundarnir hefðu
ekki gert sér grein fyrir sögulegu
samhengi málsins og þeirri erfiðu
stöðu sem Sviss hefði verið í sem lít-
ið og hlutlaust land, umkringt
Möndulveldunum í síðari heims-
styrjöldinni. Ráðherrann bætti við
að í skýrslunni kæmi ekkert fram
sem réttlætti að samningaviðræður
yrðu hafnar að nýju um málið.
Skýrsluhöfundarnir gagnrýndu
einnig önnur hlutlaus ríki fyrir við-
skipti við þýska nasista, þeirra á
meðal Argentínu, Portúgal, Spán,
Svíþjóð og Tyrkland.
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, meðal kvenna
í þingmannahópi Verkamannaflokksins.
Blair ávarpar þingmenn
með vamaðarorðum
BRESKA þingið kom saman
fyrsta sinni í gær eftir stórsig-
ur Verkamannaflokksins í kosn-
ingunum 1. maí og var byrjað á
því að endurkjósa Betty Boot-
hroyd forseta neðri deildarinn-
ar. Tony Blair, forsætisráð-
herra Breta, ávarpaði þing-
menn Verkamannaflokksins og
sagði að þeir yrðu að sýna
kjósendum að þeir verðskuld-
uðu traust þeirra.
Blair bauð 418 manna þing-
flokk flokksins velkominn með
loforðum um að stjóm sín væri
staðráðin í að efna gefin heit,
en boðaði um leið aðgát. „Við
emm þjónar almennings," sagði
hann. „Ef þið gleymið því mun
fólkið brátt sýna ykkur að það
sem kjósendur geta gefið geta
þeir tekið.“
■ Hague og Dorrell/21
Mobutu í Gabon
Mikið
mannfall
í Zaire
Kinshasa. Reuter.
MOBIJTU Sese Seko, forseti Zaire,
fór í gær til Gabon til fundar við
leiðtoga nokkurra Afríkuríkja og
fregnir hermdu að mannskæðir bar-
dagar hefðu geisað á vegi sem
liggur til Kinshasa, höfuðborgar
Zaire.
Um 200 óbreyttir borgarar og
100 hermenn úr liði beggja fylkinga
í stríðinu í Zaire biðu bana í átök-
um á vegi nálægt bænum Kenge,
250 km austur af Kinshasa.
Nelson Mandela, forseti Suður-
Afríku, kvaðst treysta því að
Laurent Kabila, leiðtogi uppreisn-
armanna, myndi standa við loforð
sín um að stöðva sóknina í átt að
Kinshasa. Kabila sagði hins vegar
að uppreisnarmennirnir stefndu að
því að leggja höfuðborgina undir
sig. „Hermönnum ber að sækja
fram.“
„Hlébarðinn búinn að vera“
Mobutu, sem hefur stjómað
Zaire í þrjá áratugi, er haldinn
krabbameini og virtist þreytulegur
þegar hann kom ásamt konu sinni
til Libreville, höfuðborgar Gabons.
Þúsundir manna söfnuðust saman á
götum Kinshasa til að fylgjast með
því þegar Mobutu var ekið til flug-
vallarins í fylgd bryndreka og
margir þeirra sögðust vona að hann
sneri aldrei aftur. „Hlébarðinn er
búinn að vera og kemur ekki aftur,“
sagði einn þeirra og vísaði til upp-
nefnis forsetans, sem er oft með
húfu úr hlébarðaskinni.
Einvígi Dimmblárrar
og Kasparovs
Samið um
jafntefli
New York. Reuter.
JAFNTEFLI vai-ð í fjórðu skákinni
af sex í einvígi ofurtölvunnar
Dimmblárrar og Garrí Kasparovs
heimsmeistara í gærkvöldi og stað-
an í einvíginu er jöfn.
Kasparov var með svart og beitti
Prybl-vöminni, sem kennd er við
tékkneska alþjóðameistarann Jos-
eph Prybl, og samið var um jafntefli
eftir flókið endatafl.
Skákskýrandinn Mike Valvo
sagði að Kasparov hefði augljóslega
breytt skákstfl sínum í einvíginu við
tölvuna og væri ekki jafnsókndjarf-
ur og hann er vanur.
Kvikmyndahátíðin
í Cannes 50 ára
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í
Cannes í Frakklandi hófst í
gær og þess var minnst að 50
ár eru liðin frá því hún var
haldin í fyrsta sinn. Þeir sem
skipuleggja hátíðina urðu að
breyta dagskránni á síðustu
stundu þar sem kínversk
stjórnvöld neituðu að Ieyfa
kínverska ieiksljóranum Zhang
Yimou að taka þátt í keppninni
um Gullpálmann þótt mynd
hans hefði verið valin. Hins
vegar verður ekki hætt við
sýningu myndar eftir íranska
leikstjórann Abbas Kiarostami
þótt stjórnvöld í Iran hafi lagst
gegn því að myndin yrði sýnd
á hátíðinni. „Kvikmyndahátíðin
í Cannes var stofnuð [árið
1939] til að vega upp á móti
hátíðinni í Feneyjum sem var
undir áhrifum frá nasistum,“
sagði franska leikkonan Isa-
belle Adjani, formaður dóm-
nefndar hátíðarinnar, þegar
hún var spurð um þrýsting
Kínveija og írana. Fyrsta
kvikmyndahátíðin var fyrir-
liuguð í september 1939 en
henni var frestað vegna inn-
rásar Þjóðveija í Pólland og
hún haldin í fyrsta sinn 1947.
Á myndinni eru liðsmenn Lýð-
veldisvarðarins við hátíðarhöllina
í Cannes.
Reuter
■ Kasparov missti niður/59
Lögreglan
beitir netbyssum
London. The Daily Telegraph.
LÖGREGLAN í New York hef-
ur fengið hugmynd að nýju vopni
úr teiknimyndabókum um
Kóngulóarmanninn til að kló-
festa glæpamenn sem reyna að
flýja. Lögreglan hyggst síðar í
mánuðinum taka í notkun byssu
sem skýtur neti yfir glæpamenn-
ina.
Lögregluyfirvöld í Frakklandi
og Bretlandi hafa einnig fengið
að prófa byssuna og eru sögð
hafa sýnt henni mikinn áhuga.
Bandaríski herinn fjármagnaði
hönnun vopnsins ásamt lögregl-
unni og íhugar að beita því við
friðargæslu í heiminum.
„Þetta er mjög líkt netum
Kóngulóarmannsins," sagði Arn-
is Mangolds, sem stjómar verk-
efninu. „Netið er inni í 37 mm
byssukúlu sem er á stærð við
filmuhylki. Það opnast rétt áður
en það lendir á manninum og
stöðvar hann.“ Dugi þetta ekki
til að handsama glæpamennina
eru til tvær aðrar gerðir af net-
unum. Önnur þeirra er gegnsýrð
lími og hin veldur raflosti sem
dregur mátt úr glæpamönnunum.