Morgunblaðið - 08.05.1997, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Lesendur spyija
Eru bleikiefni í þvotta-
efnum mjög skaðleg?
LESANDI hringdi og vildi fá
upplýsingar um hvort farið væri
að nota önnur efni í stað klórs í
þvottaefni. Hann sagði að klór
væri umhverfisskaðlegur en var
að velta fyrir sér hvort þessi
nýju efni væru það líka.
Svar: Bryndís Skúladóttir hjá
Hollustuvernd ríkisins segir að
efnin sem notuð eru í stað klórs
séu aðallega vetnisperoxíð, natr-
íumperkarbónat, natríumvetn-
issúlfít, natríumsúlfít og natr-
íumperbórat. „Öll þessi efni eru
vel þekkt og hafa lengi verið
notuð. Þau brotna auðveldlega
niður í náttúrunni og eru að
ryðja sér til rúms aftur vegna
þess að þau hafa lítil áhrif á
umhverfið. Þau eru mun æski-
legri en t.d. klórsambönd sem
geta leitt til myndunar hættu-
legra efnasambanda. Natríum
súlfít og natríumvetnissúlfít geta
þó haft óbein umhverfisáhrif þar
sem þau auka brennisteinsstyrk
í umhverfinu.
^rmaginn
vandamál?
Silicol oi hottuiuicH)t ticotiotm
soih vihiuif <)ot|n öþjogihdum i
ihíHjii ih) styrkii bíiiutvofi
likiiin.fhs otj t>olh.
SíHcoi voikoi tjotjh brjotsviön,
nnbit, voujum mnt^n^joi ihclum,
viiultj.intji, ujípþombu
og bæði niðurgangi og harðlífi.
Silicol hentar öllum!
Silicol hjálpar
Vinsælasta heilsuefnið i Þýskalandi, Sviþjóð
og Bretlandi!
Silicol er hrein nóllúruofuró ón hliðorverkona.
Fæst í apótekum.
AUGLYSING
Er Garpur hollasti
ávaxtadrykkurinn
á markaðinum?
ÞEGAR Mjólkursamsalan
markaðssetti ávaxta- og
mysudrykkinn Garp árið
1992 vakti hann strax mikla
athygli, ekki aðeins fyrir
bragðið og hollustuna, heldur
einnig fyrir skemmtilega og
áhugaverða fróðleikspunkta
á umbúðunum.
Fram að því hafði
vöruþróun sjaldan
eða aldrei tekið jafn
langan tíma hjá
Mjólkurbúi Flóa-
manna - en útkoman
varð líka - alveg ein-
stakur drykkur.
Nú þegar íþróttir;
keppnisíþróttir,
þolfimi, vaxtarrækt
og annað, eru í
brennidepli og neysla
innfluttra orku-
drykkja í algleym-
ingi er fyllsta ástæða til að vekja
athygli fólks á ný á Garpi,
þessum ágæta, íslenska íþrótta-
drykk.
Þótt hljótt hafi verið um Garp
hin seinni ár, vann hann sér
strax fastan sess á íslenskum
markaði enda var þar kominn
hollari og næringarríkari ávaxta-
drykkur en áður þekktist. Þar
gerði mysan útslagið enda er í
henni flest af því besta sem
mjólkin hefur að bjóða.
Börn og unglingar geta valið
úr ótrúlegu úrvali alls konar
drykkja. Bæði á heimilum og í
skólum geta þau
valið um mjólk,
kókómjólk, ýmsa
ávaxtadrykki og
vatn. En þar sem
foreldrarnir sjá að
mestu um innkaup
heimilisins móta þeir
að miklu leyti smekk
og neysluvenjur
barna sinna. Einmitt
þess vegna er ástæða
til að minna á Garp.
Eins og fyrr segir
sameinar hann kosti
ávaxtasafa og mjólk-
ur, hann nærir og svalar í senn
og óhætt er að fullyrða að hann
er einn hollasti ávaxta-
drykkurinn á markaðinum.
Garpur fæst í eins lítra og
250 ml fernum með sogröri.
Verðið er 120 kr. og 38 kr.
NEYTENDUR
Hækkun á gasverði
Verð á gasi hefur hækkað
um 15% að meðaltali
VERÐ á gasi hefur að meðaltali
hækkað um 15% að undanförnu.
Sem dæmi má nefna að áfylling á
9 kg gashylki sem notuð eru með
gasgrillum hefur frá síðasta ári
hækkað um 15-35,8% en alls eru
um 60.000 gashylki af þeirri stærð
í umferð hér á landi.
Gasfélagið ehf. er sameiginleg
eign allra olíufélaganna. Fyrirtækið
sér um að tappa á gashylki fyrir
öll olíufélögin svo og afgreiða gas
til álversins í Straumsvík. Gasfélag-
ið ehf. tók til starfa í fyrra og lagð-
ar voru niður tvær gasbirgðastöðv-
ar hjá Skeljungi og Olíufélaginu hf.
sem ekki uppfylltu tilskildar reglur.
Fram að þeim tíma
höfðu olíufélögin
verið með aðskilinn
rekstur en sameiginlegan innflutn-
ing á gasi.
Þórir Haraldsson stjórnarfor-
maður Gasfélagsins ehf. segir að
hækka hafi þurft þjónustugjöld á
gasi vegna þess að þurft hafi
að endurbyggja og bæta
gasgeymslur á íslandi.
Fyrir voru gamlar
stöðvar sem voru úr-
eltar og því var ráðist ' -
I þessa byggingu.
„Hefðu fyrirtækin ,
ekki sameinast og
byggt tvær aðskildar ;
stöðvar hefði kostn- f
aðurinn orðið allt að j
tvöfaldur," segir Þór- j
ir. „Kostnaðurinn við
byggingu stöðvarinn-
ar nam um 280 milljón-
um króna. Mjög stór hluti
af þessum kostnaði er vegna þeirra
öryggiskrafna sem gerðar eru til
starfsemi sem þessarar í dag,“ seg-
ir hann.
Flutningskostnaður um
helmingur gasverðs
Þórir segir að sá farmur af gasi
sem fluttur var síðast til landsins
sé 9% dýrari en sá sem fluttur var
til landsins á sama tíma í fyrra.
„Flutningskostnaður á gasi er mjög
mikill því þetta er sérliæfður flutn-
ingur og fá skip sem geta siglt með
þessa vöru. Okkur telst til að flutn-
ingskostnaðurinn sé um helmingur
Morgunblaðið/PorKeil
gasverðsins. Við erum einnig að
reyna að ná fram hagræðingu með
því að skoða dreifingarkerfið á gasi
innanlands því það er mikill kostn-
aður fólginn í flutningi kútanna fram
og til baka.“ Þórir segir að til lengri
tíma megi því ímynda sér að takist
að ná hagræðingu í rekstri. „Við
eigum að minnsta kosti ekki eftir
að sjá miklar verðhækkanir á þjón-
ustugjöldum í framtíðinni.“
í maí í fyrra kostaði áfylling á 9
kg gashylki 1.715 kr. hjá Skeljungi
og Olíufélagi Islands en kostar
1.979 og 1.990 krónur um þessar
mundir. Hækkunin hjá Skelj-
ungi og Olíuverslun Is-
lands nemur því um
15% á þessari stærð
kúta. Hjá Olíufélaginu Essó
kostaði gashylki af þessari
stærð 1.465 krónur í apríl í
fyrra en 1.990 krónur núna.
I því tilfelli nemur hækkun-
in 35,8%. Verðið hækkaði
í maí 1996 upp í svipað
verð og hjá hinum olíufé-
lögunum eða í rúmar
i.700 krónur og síðan
aftur nýlega.
Hvar er
samkeppnin?
Um þessar mundir
munar ellefu krónum á
hæsta og lægsta verði
milli bensínstöðva á áfyll-
ingum 9 kg gashylkja.
Gashylkið sjálft kostar
alls staðar 1.000 krónur.
í fyrra nam verðmunur-
inn hundruðum króna á
áfyllingu.
- Þýðir þessi sameig-
inlega stöð að verðsam-
keppni er úr sögunni?
„Þessi sameiginlega
stöð þýðir ekki að verðs-
amkeppni sé úr sögunni.
Það er olíufélaganna að
ákveða álagningu. Ef félög-
in kjósa að draga til sín viðskipta-
vini með lágu gasverði geta þau
það. Ég er ekki í neinum vafa um
að þessi sameiginlega stöð er
grunnurinn að því að ekki þurfti
að hækka þjónustugjald á gasi enn
meira en raun ber vitni. Verð á því
magni sem fer á kútana hefði þurft
að hækka mun meira ef gasstöðv-
arnar væru tvær.“
VIÐ EIGUM AFMÆLI
25°Á
O 9.-17. maí
afsláttur
Gólfteppi
Mottur
Dreglar
Gólfflísar
Veggflísar
Gólfdúkar
Linoleum
LÆKKAÐ
VERD
Gegnfieilt eikarparket,
stafa~ og mosaikparket
Opið virka daga frá kl 9 til 18
laugardaga frá kl. 10 til 13
TEPPABOÐIN
Suðurlandsbraut 26 Sími: 568 1950
stofnað 1974