Morgunblaðið - 08.05.1997, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VILTU V§Rí)A SKOKKARI?
og ná þér upp úr vetrardvaIanu m
Sumardagskrá Hlaupahóps Máttar
hefst meö kynningarfundi og skokki
mánudaginn 12. maí, kl. 18.00.
Gamiir félagar og þeir sem lagst hafa
í vetrardvala eru hvattir til aö mæta.
Ath. Sérstakur byrjendahópur, þar
sem lögö veröur áhersla á gætilega
þjálfun, fræöslu og síöan útskrift í Hlaupahópinn
Sumarkort sem gildir til 10. September.
Verö kr. 9.900,* (þ.e. ca. 2.475,- á mán.)
Sumarkort fyrir skólafólk
Verö kr. 7.500,- (kr. 1.875,- á mán.)
Kortin eru aögangskort í leikfimi og tækjasali.
Tilboöið gildir til 20. maí.
Grafarvogsbúar!
/AATUR OG HRiJFING
hefst 15. maí
Hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.
6 vikna námskeiö
3x í viku
Frjáls mæting aö auki.
Þolfimi, pallar, styrktaræfingar, fitubrennsla,
útivist - kraftganga.
Fræöslufyrirlestrar um mataræöi og hreyfingu.
Uppskriftir - Ráöleggingar í einkaviötölum.
Allt þetta og góöur félagsskapur fyrir aöeins kr.
7.900,-
LISTIR
Skál í (lyftu)botn
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
GUÐBRANDUR Guðbrandsson t.h. og Páll Friðriksson.
LEIKLIST
Bifröst
GRÆNA LYFTAN
LEIKFÉLAG SAUÐÁR-
KRÓKS Á SÆLUVIKU
Gamanleikrit eftir Avery Hopwood
í nýrri þýðingu Þórunnar Magneu.
Leikstjóri: Þórunn Magnea. Leik-
mynd: Þórunn Magnea. Ljós og hljóð:
Einar Þorbergsson og Óðinn Arnar-
son. Leikendur: Guðbrandur Guð-
brandsson, PáU Friðriksson, Svan-
hildur Guðmundsdóttir, Hrönn
Pálmadóttir, Ingvar Páll Ingvarsson,
Júliana Ingimarsdóttir, Ingibjöm
Reynisson, Baldur Smárason. Bif-
röst, Sauðárkróki 1. maí.
Á SÆLUVIKU í fyrra sýndi Leik-
félagið á Sauðárkróki ágætt frum-
samið verk eftir höfund í héraði, Jón
Ormar Ormsson, þar sem róið var á
heimamið og skerpt á sögulegri vit-
und Skagfirðinga með leik og söng
í fjölmennri uppsetningu. Sú sýning,
fyrir utan að vera vel uppsett og
skemmtileg, hentaði anda Sæluvi-
kunnar mjög vel því samfélagsleg
skírskotun hennar var fjölþætt og
sterk. Á Sæluviku í ár kveður við
allt annan tón enda gamalreyndur
breskur farsi í boði. Hér er stefnt
að því einu að kitla hláturtaugarnar
svo um munar og eftir viðbrögðum
áhorfenda að dæma tókst það mæta-
vel um kvöldið 1. maí. Formúlan
fyrir þessu er kunnugleg: Misskiln-
ingur á misskilning ofan. Konur
misskilja karla og karlar konur í
gríð og erg og ekki batnar það þeg-
ar brennivíni er hellt ótæpilega ofan
á allt saman.
Það næst skelfilegasta sem hent
getur nokkurn mann er að reyna að
vera fyndinn á sviði og enginn hlær
að. Það skelfilegasta er að lenda í
því fyrir framan sveitunga sína. í
upphafi gætti í fari leikenda aðeins
óttans við þessi skelfilegu örlög og
skal engan undra, en þótt Svanhild-
ur Guðmundsdóttir og Ingvar Páll
Ingvarsson hafi verið örlítið hikandi
í fyrstu (Ingvar mætti brosa minna
en vera þess í stað ástríðufyllri) leið
ekki á löngu þar til þeim bættist liðs-
auki og þá fór allt á fullt skrið og
leikhópurinn náði geðslagi áhorf-
enda kyrfílega á sitt vald.
Þar er ekki síst fyrir að þakka
framlagi Guðbrands Guðbrandsson-
ar í hlutverki Billys Bartletts sem á
að vera svo litlaus karakter og leiðin-
legur að liggur við hjartastoppi. Að
minnsta kosti þykist Svanhildur
Guðmundsdóttir sem eiginkona hans
sjá sér þann kost vænstan að puðra
sér burt úr sambúðinni við hann
áður en hún verður dauðastirðnun
að bráð. Guðbrandur brá sér í fjögur
gervi á Sæluvikusýningunni í fyrra,
en hér lætur hann sér nægja eitt
og skilar því með sóma. Hann er
með afbrigðum kvikur á sviði og
snar og kemur þeirri kennd vel til
skila að kunna ekki sitt rjúkandi
ráð. Það væri gaman að sjá hann
túlka tilvistarlega einsemd trúðsins.
Þau Hrönn Pálmadóttir, sem Blenny
Wheeler, ná vel saman í leik sínum
þegar þau „detta í það“, enda hlógu
áhorfendur hvað hæst þá og, af
skiljanlegum ástæðum, öllu hærra
þeir reyndari en ungir.
Leikfélag Sauðárkróks hefur
starfað af krafti í vetur, sett upp
þrjár leiksýningar, leiklestur og
haldið skemmtidagskrár. Með
Grænu lyftunni býður félagið áhorf-
endum ágæta afþreyingu. En leik-
félagið sett líka á svið Pétur Gaut
og sýndi hann á Sæluviku.
Guðbrandur Gíslason
Töfrar plastsins
„VERKUNUM er ætlað að yfirpoppa
og afhjúpa óþol gerandans gagnvart
gjaldþroti miðilsins. Þau framkalla
plestnar klisjur sem hver um sig
uppfyllir þó eitt af frumskilyrðum
myndverksins; að lifa sjálfstæðu
lífi,“ segir Helgi Sigurðsson hug-
verkasmiður um plastsýningar sem
hann opnar á Mokka föstudaginn
9. maí. Helgi hefur starfað sjálf-
stætt sem teiknari og grafíkhönn-
uður þar sem tölvur hafa skipað stór-
an sess. Helgi segist vilja seilast úr
stafrænu umhverfí sínu til að kanna
þá mótsögn er felst í sköpun mynd-
verka nú þegar uppjausn allra for-
sendna vofir yfír. „Á sama tíma og
ég veiti þessari sköpunarþörf útrás
stunda ég eins konar fjölbragða-
glímu við mótsagnarkennd viðhorf,"
segir Helgi. „Myndlist sem boðberi
nýrra strauma virðist hæpin nú þeg-
ar mögulegt er að flytja þrívíðan
veruleikann yfír upplýsinganetið og
ofgnótt myndefnis á öllum sviðum
heijar á og situr um skilningarvitin."
Um plast segir Helgi: „Það er
kynlaust, lyktarlaust og karakter-
laust en býr samt yfir miklum töfr-
um.“
Sýning Helga á Mokka stendur
til 6. júní. Mokka er opið frá kl.
9.30-23.30 alla daga nema sunnu-
daga frá kl. 14-23.30.
VERK Helga á Mokka.
Hvaö heitir þú? - hverra manna ertu?
Er ættarmót í
UPPSIGLINGU?
Á stóru ættarmóti er tilvaliö að næla nöfn
þátttakenda í barm þeirra. ( Múlalundi færð þú
bamnmerki fyrir þetta eða önnur tilefni. Einnig
fást þar plastmöppurnar þægilegu fyrir
Ijósmyndirnar.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 562 8501 eða 562 8502.
Múlalundur
Vinnustofa S(BS
Símar 562 8501 og 562 8502