Morgunblaðið - 08.05.1997, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Þorsteinn Pálsson um innlimun Schengen-samningsins í Evrópusambandið
Með yfirþjóðlegn valdi væri
þátttaka Islands úr sögunni
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra segir að innlimun Scheng-
en-samningsins í stofnsáttmála
ESB muni flækja málin varðandi
aðild íslands að samstarfinu. Verði
niðurstaðan sú að vegabréfasam-
starfið heyri undir yfirþjóðlegar
stofnanir ESB, hafi það sennilega
í för með sér að þátttaka íslands
sé úr sögunni. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra segir bæði kosti
og galla við að Schengen verði hluti
af ESB, en innlimunin geti falið í
sér tækifæri til áhrifa fyrir ísland.
Morgunblaðið greindi frá því í
gær að samningamenn á ríkjaráð-
stefnu ESB hefðu færzt nær sam-
komulagi um innlimun Schengen í
sambandið eftir að Bretar hefðu
látið af andstöðu sinni. í tillögu
Hollands um þetta efni er gert ráð
fyrir að gert verði sérstakt sam-
komulag við ísland og Noreg um
Halldór Ásgrímsson telur tækifæri til
áhrifa felast í sameiningn Schengen og ESB
aukaaðild þeirra að breyttu sam-
starfi.
„Þetta flækir stöðu málsins. Það
hefur alltaf verið ljóst að kæmi til
þessa, yrði erfiðleikum háð að að-
laga samninga okkar þeirri nýju
stöðu,“ segir Þorsteinn Pálsson.
„Það getur hins vegar skipt mjög
miklu máli hvernig ESB-ríkin haga
þessari ákvörðun. Ef ákvörðunin
verður sú að færa vegabréfasam-
starfið undir fyrstu stoð bandalags-
ins og þar með yfirþjóðlegt vald,
sýnist mér að þátttaka íslands sé
úr sögunni. Hins vegar kunna að
vera möguleikar á áframhaldandi
samstarfi ef samstarfið fellur undir
þriðju stoðina. Það þarf hins vegar
að skoða nánar og ekki er hægt
að fullyrða um það á þessu stigi.“
Þorsteinn segir að sér þyki trú-
legt að norrænu aðildarríkin í ESB
reyni að tryggja að ísland og Nor-
egur sjái sér áfram fært að taka
þátt í Schengen-samstarfinu. Um
það sé þó ekkert hægt að segja
fyrirfram.
Leið til betra samstarfs
án aðildar að ESB
Áformað er að taka samstarfs-
samning íslands við Schengen-ríkin
til meðferðar á Alþingi á komandi
hausti. „Við verðum sjálfsagt að
endurmeta það í ljósi nýrra að-
stæðna, ef þær verða fyrir hendi í
haust,“ segir Þorsteinn.
Halldór Ásgrímsson segir að í
tillögu Hollands sé ekki tekið á
samstarfs- og stofnanavandanum,
sem komi upp að því er varðar ís-
land og Noreg. „Þetta fer mikið
eftir því með hvaða hætti þessi mál
koma inn undir væng ESB, hvort
þau verða í þriðju eða fyrstu stoð,“
segir Halldór.
Hann segir að það hafi bæði
kosti og galla að Schengen-sam-
starfið verði hluti af ESB. „Gallarn-
ir eru þeir að gera þyrfti sérstakan
nýjan samning um aðkomu okkar
að málinu innan ESB. Kosturinn
er hins vegar sá að með þessu
næðum við meira samstarfi við
æðstu stig Evrópusambandsins en
hingað til hefur verið kleift. Mér
finnst ástæðulaust að örvænta um
málið á þessu stigi. Ég tel að í því
geti falizt tækifæri til að ná betra
samstarfi við Evrópusambandið án
þess að ganga í það,“ segir Halldór.
Torgsala
og útimark-
aður í mið-
borginni
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt að leyfa torgsölu í
Vallarstræti og útimarkað á Ing-
ólfstorgi.
í tillögum borgarskipulags sem
samþykktar voru þannig að
borgarskipulagi og Þróunarfélagi
Reykjavíkur var falið að útfæra
reglur um torgsölu er lagt til að
heimiluð verði torgsala í Vallar-
stræti frá mánudegi til föstudags
aðilum sem ekki reka fyrirtæki en
sami aðili fái aðeins einum sölubás
úthlutað og verði settir skilmálar
um vöruval. Sölutjöld verði í eigu
borgarinnar og innifalin í leigu. Á
Ingólfstorgi verði heimilaður
útimarkaður um helgar þar sem
einstaklingum og verslunum verði
heimilað að leigja sölubás.
í greinargerð með tillögunni
segir að markmiðið með götu- og
torgsölu sé að laða að og efla
mannlíf í miðborginni auk þess sem
hún geti verið vettvangur til að
kynna heimilis- og listliðnað og
stuðla að meiri verslun ferða-
manna. Mikilvægt sé að gera kröf-
ur um útlit bása og söluvagna og
að vöruval sé í þeim gæðaflokki
að það veki áhuga á íslensku hand-
verki og framleiðslu.
„Ekki er mælt með að tekin
verði upp götusala eins og tíðkuð
hefur verið í Austurstræti og versl-
anir í nágrenninu áttu í samkeppni
við enda hafa verslunareigendur í
miðborginni mótmælt slíkri starf-
semi,“ segir í bréfí borgarskipu-
lags.
■
'mHéP-'s u
Slökkt með
jakkanum
HLYNUR Aðalsteinsson, að-
stoðarslökkviliðsstjóri á Þing-
eyri, gekk vasklega fram við
að slökkva sinubruna í hlíðum
Sandafells I vikunni, rétt fyrir
ofan efstu hús bæjarins. Hann
kom fyrstur á vettvang og tók
með sér kúst sem hann ætlaði
að nota við verkið. Þegar það
dugði ekki greip hann til jakk-
ans en allt kom fyrir ekki, eld-
urinn breiddist út. Fljótlega
komu fleiri til hjálpar og loks
slökkviliðsbíll staðarins og
tókst þá að ráða niðurlögum
sinueldsins. Eldurinn hafði
kviknað við fikt barna.
Morgunblaðið/Golli
Lélegar
skipateikn-
ingar
ÁSTA Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, Þingflokki jafnaðar-
manna, segir að teikningar
af skipum sem berast til Sigl-
ingastofnunar séu stundum
svo lélegar að starfsmennirnir
neyðist til að hanna skipin að
nýju að_ hluta eða jafnvel öllu
leyti. Ástæðuna segir Ásta
vera þá að engar hæfniskröf-
ur séu gerðar til skipahönn-
uða. „Það er augljóst að þessi
staða samræmist ekki lögum
um Siglingastofnun, þar sem
hún sinnir bæði hönnuninni
og eftirliti með henni, og þarf
þannig að meta eigin verk,“
sagði þingmaðurinn við utan-
dagskrárumræður á Alþingi í
gær.
Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra svaraði því til að
þriggja manna starfshópur
ynni að því að setja reglur um
þessi málefni. „Ég vissi ekki
að skipaverkfræðingar og aðr-
ir hönnuðir skipa gætu gengið
í smiðju til Siglingastofnunar
og beðið hana að yfirfara verk-
ið fyrir sig og láta laga sigl-
ingagalla. Það er fróðlegt og
gott að vita að það eru hæfir
menn sem vinna við þá stofn-
un,“ sagði ráðherrann.
Tvær millj.
til heyrnar-
lausra
ÁKVEÐIÐ var á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær að veita
tvær milljónir króna til að
auka þjónustu við heyrnar-
lausa. Var félagsmálaráðu-
neytinu falið að ráðstafa fénu.
Jafnframt er þeim tilmæl-
um beint til starfshóps, sem
forsætisráðherra skipaði fyrir
nokkru til að fara yfir verka-
skiptingu ráðuneyta í þágu
fatlaðra, að skoðuð verði sér-
staklega málefni heyrnar-
lausra.
Afdrif lífeyrisfrumvarps gætu ráðist á morgun
ASÍ og VSÍ útfæra hug-
myndir um breytingar
EKKI tókst að afgreiða frumvarpið
um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða úr efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis á
fundi nefndarinnar í gærmorgun.
Fulltrúar ASÍ, VSÍ og Samtaka
áhugafólks um lífeyrissparnað
komu á fund nefndarinnar og gerðu
athugasemdir við þær málamiðlun-
artillögur sem kynntar voru sl.
mánudag.
Að sögn Vilhjálms Egilssonar,
formanns nefndarinnar, má reikna
með að í ljós komi á næsta fundi
nefndarinnar á morgun hvort frek-
ari breytingar verða gerðar á frum:
varpinu vegna athugasemda ASÍ
og VSÍ og hver afdrif málsins verða.
Önnur nálgun
„Fulltrúar ASÍ og VSÍ spurðu
hvort vilji væri til þess að þeir könn-
uðu aðra nálgun á ákvæðum um
lágmarkstryggingu, þannig að lág-
markið yrði skilgreint út frá trygg-
ingaverndinni en ekki út frá ið-
gjaldsgreiðslunni. Við tókum því vel
og þeir eru að skoða hvort þeir
geta sett fram hugmyndir um
breytingar á frumvarpinu með ein-
földum hætti sem gengju í þessa
átt,“ sagði Vilhjálmur. Hann kvaðst
þó vonast til að þrátt fyrir breyting-
ar ættu grundvallaratriðin sem fól-
ust í málamiðlunartillögunni að
standa.
Glæsilegt úrval af sumarjökkum frá
SKILA, ETAGE OG
TOKKA TRIBE
ÚTILÍF
GLÆSIBÆ ÁLFHEIMUM 74 ■ SÍMI681 2922
Ýtt á eftir viðræðum um
sjávarútvegsmál við Rússa
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir íslenzk stjórnvöld
hafa gengið eftir því við stjóm
Rússlands að tvíhliða viðræður ríkj-
anna um sjávarútvegsmál, sem
samþykkt hefur verið að efna til,
hefjist fljótlega. Að sögn Halldórs
er Jóhann Siguijónsson sendiherra,
aðalsamningamaður íslands í fisk-
veiðimálum, á leið til Moskvu til að
leitast við að ýta á eftir upphafi
viðræðnanna.
Halldór nefndi þetta mál m.a. í
samtali við Jevgení Prímakov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, er þeir
hittust á ráðherrafundi Evrópuráðs-
ins í Strassborg í fyrradag. Halldór
og Prímakov samþykktu á fundi í
Rússlandi í nóvember að efna til
tvíhliða viðræðna um samskipti ríkj-
anna á sviði sjávarútvegsmála og
um lausn fiskveiðideilna. Slíkar við-
ræður hafa enn ekki hafizt.
„Okkur fmnst að þetta mætti
ganga hraðar," segir Halldór. „Það
hefur verið nokkur óvissa í sjávarút-
vegsmálum í Rússlandi vegna
mannabreytinga í sjávarútvegsráð-
inu og hugsanlegra skipulagsbreyt-
inga.“