Morgunblaðið - 08.05.1997, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SVONA, ekkert ojbarasta nú eig-a allir að taka lýsið sitt. Hvað eru þið mörg?
Lægstu tilboð undir
kostnaðaráætlun
KRÓKSVERK ehf. á Sauðárkróki
átti lægsta tilboð í efnisvinnslu fyr-
ir Vegagerðina á Norðurlandi vestra
þegar í útboði en tilboð voru opnuð
í vikunni. Hljóðaði tilboðið upp á
tæpar 35,6 milijónir kr. en kostnað-
aráætlun verkkaupa var 47,7 millj.
Þrjú önnur fyrirtæki buðu í verkið
og voru tilboð þeirra öll undir kostn-
aðaráætlun.
Einnig voru opnuð tilboð í fjóra
verkþætti við viðhald á slitlagi vega
í Reykjanesumdæmi. Kostnaðar-
áætlun einstakra verkefna var frá
24 millj. til rúmlega 32 millj. kr.
Loftorka hf. í Reykjavík átti lægsta
tilboð í I. og II. verkhluta eða um
22,5 millj. kr. og 27 millj. kr. sem
var nokkuð undir kostnaðaráætlun í
báðum tilvikum. Malbikunarstöðin
Hlaðbær Colas í Hafnarfírði átti
lægsta boð í III. verkþáttinn en boð
þess hljóðaði upp á um 28,1 millj.
kr. og átti það einnig frávikstilboð
að upphæð rúmlega 26,9 millj. Til-
boðin voru undir kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar. SEES ehf. í Njarð-
vík átti iægsta boð í IV. verkþáttinn
og bauð rúmar 23,9 millj. kr., sem
var einnig undir kostnaðaráætlun.
y GRIP SHIR skiplar
Fjallahjólabúdin
Threshold 97 bemsuða , .
G.A.PETURSSON ehf
Afsláttur allt að 20% af 1936 árgerðinni. Faxafeni 14 • Sími 568 5580
SHIMANO
bremsur/gírar
MIKID ÚRVAL FYLGIHLUTA DPIÐ FRÁKL. 9-18 LAU. 10 - 1B
RAÐGREIÐSLUR
Kaup á listaverkum
Mikilvægt að fá
sér fræðiráðgj öf
David Battie
LISTAVERKA-
FALSANIR hafa
verið stundaðar
frá örófi alda, dæmi eru
um falsaðar papýrusrullur
í Egyptalandi tvö þúsund
árum fyrir Krists burð.
Ráðið sem Battie gefur
fólki er að versla fyrst og
fremst við viðurkennd fyr-
irtæki þegar keypt eru
listaverk og antikmunir.
Dýra hluti á ekki að kaupa
af ókunnum eða lítt þekkt-
um seljanda án þess að
fá sérfræðing til að skoða
umræddan hlut. Einnig er
mikilvægt að fá kvittun
frá sölumanni og láta þar
tilgreina hver bjó hlutinn
til, hvenær það var gert,
úr hveiju gripurinn er og
í hvemig ástandi.
„Við höfum hitt hér fólk sem
fór til útlanda og keypti eitthvað,
vonaði hið besta en veit nú að það
gerði mistök. Svona er þetta um
allan heim,“ segir Battie. „Tii
Sotheby’s kemur oft fólk í von
um að það sé með dýrmæti í
höndunum en þá kemur í ljós að
um eftirlíkingu er að ræða.“
- Hvers vegna er fólk svona
hrekklaust?
„Þetta er undarlegt en oft er
það svo að fólk fer í utanlandsferð
og rekst á eitthvað spennandi,
grip sem það vill eiga til minja.
Fólk er í leyfi og er að njóta lífs-
ins, því líður vel og mótstöðuaflið
er minna en ella. Sölumennirnir á
staðnum vefja því um fíngur sér.
Bretar kaupa oft teppi á Indlandi
eða í Mið-Austurlöndum á verði
sem er helmingi hærra en greitt
er fyrir sömu vöru í breskum stór-
mörkuðum. Jafnframt er þetta
mun hærra verð en það þyrfti að
greiða fyrir antikteppi sem auk
þess fellur ekki í verði.“
- Nú eru oft miklir fjármunir í
húfi þegar fjallað er um listaverk.
Er eitthvað gert á alþjóðavett-
vangi gegn Iistaverkafölsunum?
„Það er ekkert hægt að gera.
Það eru engin alþjóðalög gegn
fölsunum enda ekkert rangt við
það í sjálfu sér að búa til falsað
verk. Vandræðin byija ekki fyrr
en einhver reynir að telja fólki trú
um að verkið sé ósvikið, þá er
um lagabrot að ræða.
Þetta er á hinn bóginn sjaldan
það sem gerist. í gær kom til
mín maður með innrammað mál-
verk með risastórum merkimiða,
á honum var nafn Renoir. Þetta
var velþekkt verk eftir hann.
Maðurinn hafði keypt
þetta í Danmörku fyrir
sem svarar 10.000
krónur íslenskar,
minnir mig, og þegar
ég skoðaði það komst
ég að raun um að þetta var ekki
annað en venjuleg eftirprentun.
Eg er viss að kaupmaðurinn
sagði alls ekki að þetta væri
málverk eftir Renoir, þetta er svo
augljóst. Hélt fólkið virkilega að
það væri að kaupa ósvikið Renoir-
málverk fyrir 10.000 krónur?
Vísvitandi falsanir eru afar
sjaidgæfar, oftast eru það eftirlík-
ingar og eftirprentanir sem vaida
erfiðleikum þótt ekki hafí verið
ætlunin að blekkja neinn. Smíðað-
ur er stóll í 18. aldar stíl, ofið
teppi þar sem líkt er eftir 19. ald-
ar vefnaði, máluð mynd í anda
Viktoríutímans. Sérfræðingur sér
yfírleitt hvað er um að vera eða
lætur að minnsta kosti ekki
blekkjast til lengdar.
Það eru gefín út alþjóðleg vott-
orð sem fylgja viðurkenndum
listaverkum á uppboðum og þá
þ- Bretinn David Battie sótti
Island heim í liðinni viku en
hann hefur unnið í þrjá áratugi
hjá uppboðsfyrirtækinu Sothe-
by’s og er sérfræðingur í post-
ulínsgripum og glerlist. Hann
er vel þekktur í Bretlandi fyrir
þátttöku sína í vinsælum sjón-
varpsþáttum BBC þar sem fólk
getur fengið sérfræðinga til
að meta antikmuni og önnur
listaverk. Battie er kvæntur, á
þrjár dætur og varð nýlega afi.
Aðalstarf Batties núna er að
flytja fyrirlestra þar sem hann
ræðir m.a. hvernig fólk geti
reynt að komast hjá því að
kaupa köttinn í sekknum, einn-
ig hefur hann ritað um þessi
efni. Falsanir á listaverkum
hafa verið mjög til umræðu
undanfarin ár og fullyrt hefur
verið að málverk sem sögð eru
eftir þekkta, íslenska listmál-
ara séu í reynd falsanir.
hefur ferill verksins verið vand-
lega rakinn."
- Hvað nota sérfræðingar eink-
um til að ganga úr skugga um
að verk sé ósvikið?
„Það er mjög sjaldgæft að nota
þurfi einhvers konar tæknilegar
greiningar eða prófanir á efni í
listaverkum. Það eru fyrst og
fremst augu sérfræðingsins og
önnur skilningarvit ásamt reynslu
sem koma að gagni.
Þetta á enn frekar við þegar
meta skal húsgögn. Þá er einnig
mikilvægt að taka vel eftir öllum
vísbendingum og smáatriðum, t.d.
öllum merkjum um slit.
Tökum sem dæmi 18.
aldar hægindastól.
Fólk hvílir handleggina
á örmunum og þeir
slitna, það á að vera
hægt að sjá örlítil merki neðst
þar sem fólk hefur rekið hælana
í stólinn. Það er í reynd ekki
hægt að falsa þessi ummerki."
- Getur ekki verið að sumir vilji
lifa áfram í sælli fáfræði, halda
áfram að trúa því að gripur sé
ósvikinn og mikils virði?
„Það er sennilega rétt en mann-
skepnan er svo furðuleg, hún vill
vita sannleikann hvað sem það
kostar. Ég verð að viðurkenna að
við gerum mikið af því að valda
fólki vonbrigðum. Fjölskylda get-
ur staðið í þeirri trú að gripur sé
allt að 200 ára gamall. Þá bendi
ég á að það stendur „Made in
England” á botninum, merkingar-
aðferð sem var fyrst notuð 1902.
Það er huggun harmi gegn að
við gleðjum stundum fólk þegar
í ljós kemur að það á verðmætari
hluti en það gerði ráð fyrir.“
Gerum miksð
af því að valda
vonbrigðum