Morgunblaðið - 08.05.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
BOLFISKUR hf. í Bolungarvík sérhæfir sig í vinnslu rússafisks.
Ketill Helgason í Bolungarvík vill leigja frystihús Fáfnis
Rússafiskur uiminn?
Raforku-
verð til
húshitun-
ar lækkar
STJÓRN Veitustofnana Reykja-
víkurborgar hefur ákveðið að þeir
íbúar á veitusvæðinu sem kynda
með raforku, greiði sama verð
fyrir húshitun og væru þeir með
hitaveitu. Þetta þýðir 60% lækkun
rafmagnsverðs til þeirra sem ekki
eiga kost á að kynda hús sín með
heitu vatni, segir í frétt frá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur.
Þetta nær til rúmlega 250 orku-
kaupenda, einkum þá sem búa í
útjaðri svæðisins, t.'d. á Kjalarnesi
þar sem hitaveita hefur ekki verið
lögð og mun niðurgreiðslan kosta
Rafmagnsveituna 6,3 milljónir
króna á þessu ári.
Notkun allt að 30 þúsund kíló-
vattstunda á ári verður niður-
greidd í rafhitun íbúðarhúsnæðis
og lækkar kílóvattstund úr 2,82
krónum í 1,12 krónur, án virðis-
aukaskatts. Frá 1. maí síðastlið-
inn þurfa þessir 250 neytendur
því að greiða 33.600 krónur fyrir
30.000 kílóvattstundir af raforku
til húshitunar í stað 84.600 króna
áður.
„EF þetta gengur upp munu Þing-
eyringar njóta góðs af því þróunar-
starfi sem hér hefur farið fram,“
segir Ketill Helgason, fram-
kvæmdastjóri Bolfisks hf. í Bolung-
arvík en hann hefur áhuga á að
leigja frystihús Fáfnis hf. á Þing-
eyri til að vinna rússafisk.
Bolfiskur og fleiri aðilar hafa
hug á að stofna fyrirtæki á Þing-
eyri til að leigja frystihús Fáfnis.
Stjórn Fáfnis vildi taka tilboði fyrir-
tækisins en helstu lánardrottnar
og Byggðastofnun töldu betra fyrir
atvinnulíf staðarins að leysa fyrst
til sín helstu eignir Fáfnis. Ketill
segir að ef áætlanir Byggðastofn-
unar ganga eftir og samkomulag
næst um yfirtöku eigna Fáfnis
muni hann sækjast eftir að fá eign-
irnar til að hrinda áformum sínum
í framkvæmd. Það ætti síðan eftir
að koma í ljós hvort þau hlytu náð
fyrir augum þessara
stofnana.
Bolfiskur hefur síð-
ustu þijú árin þróað
vinnslu á frystum rús-
safiski og hafa afurð-
irnar m.a verið mark-
aðssettar í Bandaríkj-
unum á vegum sölu-
fyrirtækisins Norfisk
hf. í Reykjavík.
Hægt að byrja um
miðjan mánuð
Ketill segir að
áformin á Þingeyri
gangi út á það að
byggja fyrirtækið
þannig upp að það geti
borið sig eingöngu á
vinnslu rússafisks og ef annað hrá-
efni fengist yrði það hrein viðbót.
„Við höfum hráefni, vinnsluaðferð
og markað fyrir afurð-
irnar. Annað þarf ekki
til að starfrækja frysti-
hús,“ segir Ketill og
bendir á að ekki þurfi
að íjárfesta í skipi og
kvóta til þess að koma
vinnslunni af stað.
Bolfiski hf. hefur
gengið vel að afla sér
hráefnis og hefur
varla fallið niður dag-
ur í vinnslunni undan-
farin þrjú ár. Hráefni-
söflunin hefur verið
erfiðari nú síðustu vik-
ur en Ketill segir að
það sé tímabundið
ástand. Hann fær
farm um miðjan mán-
uðinn og segir að hann gæti farið
beint á Þingeyri til að hefja vinnslu
þar.
Ketill Helgason fram-
kvæmdastjóri Bol-
fisks hf.
Erfiðar aðstæður við björgun Þjóðverja
Nístingskuldi
og mjög hvasst
ERFIÐAR aðstæður torvelduðu
björgun tveggja Þjóðverja af
Vatnajökli á mánudag og þurftu
þeir ásamt björgunarmönnum sín-
um, starfsmönnum Jöklaferða á
Höfn, meðal annars að ganga í
blindbyl og miklum kulda í á sjötta
tíma.
„Frostið var svo mikið að vélsleð-
arnir stöðvuðust um kílómetra frá
þeim stað sem við sóttum Þjóðveij-
ana á og við gengum ríflega tíu
kílómetra í erfiðu færi. Við sukkum
í snjóinn og það var gaddgrimmdar-
frost. Kuldinn var svo mikill að það
ísaði framan í okkur,“ segir Sigur-
steinn Brynjólfsson sem sótti ferða-
langana ásamt félaga sínum, Þór-
arni Oiafssyni.
Sigursteinn segir að ekki hafi
tekið langan tíma að finna mennina
en þegar halda hafi átt til baka
hafi vélarnar stöðvast og meðal
annars frosið í blöndungi. „Þarna
var bijálað rok og skafrenningur,
þannig að skyggnið var ekki meira
en um metri. Eg hugsa að vindstig-
in hafi verið um níu og með vind-
kælingu hafi frostið verið um þtjá-
tíu stig,“ segir Sigursteinn.
Þeir báru farangur Þjóðveijanna
fyrir utan skíðabúnað og juku klyfj-
arnar á erfiðleikana. Skömmu fyrir
klukkan 21 komust þeir í skála
Jöklaferða. Í sama mund hafi
björgunarsveitarmenn frá Höfn í
Hornafirði komið að og aðstoðað
við að koma mönnum til byggða.
Þjóðverjunum varð að eigin sögn
ekki meint af volkinu fyrir utan
fyrsta stigs kal á höndum. Þeir
komu hingað til lands 1. maí og
hyggjast dveljast til 18. maí næst-
komandi. Þeir eru 26 ára og 32
ára gamlir og hafa talsverða
reynslu af fjalla- og jöklaferðum,
meðal annars í austurrísku Ölpun-
um þar sem sá eldri þeirra, Andre-
as Stark, hefur starfað sem leið-
sögumaður. „Þetta var erfitt
ævintýri og ég átti ekki von á að
erfiðleikarnir yrðu svona miklir í
ljósi reynslu minnar. En veður
breytist hér miklu hraðar en á þeim
slóðum sem ég þekki til og jökull-
inn var erfiður viðureignar," segir
Stark.
„Á tveggja tíma fresti þurftum
við að fara út úr tjaldinu til að
moka snjó frá innganginum svo
að hann lokaðist ekki. Snjórinn var
mikill og tjaldið var að kikna und-
an þunganum," segir hann. „Þetta
var hræðilegt en ég held ekki að
við höfum verið í tvísýnu. En ef
við hefðum hins vegar ekki óskað
aðstoðar hefðum við án efa verið
að stofna öryggi okkar í voða og
hjálparbeiðnin byggðist á því
mati.“
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
íslendingar að
öllum líkindum úti
ÍSLENDINGAR taka að öllum lík-
indum ekki þátt í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva þegar
hún verður haldin í næsta skipti á
Englandi. Þetta er mat Sigurðar
Valgeirssonar dagskrárstjóra Sjón-
varpsins. Enn hefur þó ekki borist
endanleg niðurstaða frá skrifstofu
keppninnar.
„Ég held að það sé alveg öruggt
að við séum úti. Það er árangur
fimm síðustu ára sem gildir og þessi
fimm ár hafa íslensku keppendurnir
hafnað neðarlega," sagði Sigurður.
Skráning Vaxtarsjóðsins hf.
á Verðbréfaþingi íslands
Samþykkt hefur verið að skrá Vaxtarsjóðinn hf.
á Verðbréfaþingi íslands. Nafnverð hlutafjár
Vaxtarsjóðsins hf. er 250.000.000 kr.
Skráningarlýsingu og allar upplýsingar um
Vaxtarsjóðinn hf. má nálgast hjá Verðbréfa-
markaði íslandsbanka hf., Kirkjusandi,
sími 560 8900 og hjá Fyrirtækjaþjónustu
íslandsbanka, Kirkjusandi, sími 560 8000.
ISLANDSBANKI