Morgunblaðið - 08.05.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997 33
Sönghátíð
Hrunamanna
SÖNGHÁTÍÐ Hruna-
manna verðurí Félags-
heimilinu á Flúðum í Bisk-
upstungum í kvöld klukk-
an 21.. Koma þar fram
bæði kórar, einsöngvarar
og hljóðfæraleikarar. Ed-
ith Molnár hefur haft veg
og vanda af að æfa mörg
þau atriði sem þarna eru
á dagskrá. Hún stjórnar
nú mörgum kórum, svo
sem Vörðukórnum, ný-
stofnuðum karlakór,
barnakór og kór aldraðra
og koma fjórir ólíkir kórar
sem hún stjórnar fram á
sönghátíðinni. Undirleik-
ari er Míklós Dalamay.
Eiríkur Ágústsson er í
þremur af fyrmefndum
kóram. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að
hann hefði mest lítið sinnt
kórstarfi þar til nú, síðan
hann söng í ýmsum skóla-
kórum á námsárum sínum. Hann
ólst upp við ríka tónlistarhefð í Birt-
ingarholti, en afi hans var Sigurður
Ágústsson. Lög eftir Sigurð verða
m.a. sungin á sönghátíðinni og
einnig lög eftir Loft Lofts-
son sem lengi var tónlist-
arkennari þar eystra. Ei-
ríkur Ágústsson er rækt-
unarstjóri hjá Flúðasvepp-
um, en sinnir kórstarfinu
þtjú kvöld í viku og starf-
ar auk þess að margvís-
legum félagsmálum í sinni
sveit. Um hundrað manns
eru í kórstarfi í Hrana-
mannahreppi og nágrenni
og hefur sönglífið í sveit-
inni tekið mikinn ijörkipp
á undanförnum tveimur
árum. Að sögn Eiríks eru
nokkuð margir í mörgum
kórum og hefur fólkið
haft hina mestu ánægju
af þessu starfi þótt flest
af þessu fólki hafi lítið eða
ekkert lært í tónlist. Guð-
mundur Gils Einarsson í
Auðsholti hefur samið
marga af þeim textum
sem sungnir eru við erlend
lög á hátíðinni. Sönghátíð Hruna-
manna var haldin í fyrsta skipti í
fyrra og þótti takast svo vel að
ástæða væri til að hafa sönghátíð
líka í ár.
Eiríkur
Ágústsson
Edith
Molnár
Slæðudag-
ar í Sneglu
listhúsi
ÁRLEGIR slæðudagar i Sneglu
listhúsi verða 2.-23. maí. Þarna
verður til sýnis og sölu það nýj-
asta í hönnun á silkislæðum og
sjölum eftir sjö textíllistakonur
listhússins. Listakonurnar eru
Björk Magnúsdóttir, Erna Guðm-
arsdóttir, Helga Pálína Brynj-
ólfsdóttir, Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir, Ingiríður Óðinsdóttir,
Jóna Sigríður Jónsdóttir og Þur-
íður Dan Jónsdóttir.
Snegla er opin virka daga frá
kl. 12-18 og kl. 10-14 á laugar-
dögum.
SLÆÐUR og sjöl verða til
sýnis í Sneglu listhús.
Vortónleikar Kvennakórs Reykjavíkur
Morgunblaðið/Ásdís
MARGRÉT Pálmadóttir segist vilja veita Kvennakór Reykjavíkur frelsi, hann sé kominn á legg og
því sé kominn tími til að hún dragi sig í hlé.
KVENNAKÓR Reykjavíkur
heldur vortónleika í Langholts-
kirkju á morgun, föstudag, kl.
20.30 og á laugardaginn og
sunnudaginn kl. 17. Þetta er í
fimmta skipti sem kórinn heldur
vortónleika og hefur Margrét
Pálmadóttir, sem er stofnandi
kórsins, verið stjórnandi á öllum
þeirra. Þetta er hins vegar í síð-
asta sinn sem Margrét stjórnar
kórnum að sinni en hún hyggst
draga sig í hlé frá starfsemi
hans.
„Mitt viðhorf er það að stofn-
andi fyrirbæris eins og kórs eigi
ekki að starfa lengur með honum
en í fjögur til sex ár; þá er hann
búinn að gera það sem hann get-
ur og á að leyfa öðrum að kom-
ast að. Maður verður eiginlega
of ráðandi eftir svona mörg ár
og kórinn verður að fá tækifæri
til að þroskast áfram. Það er
kominn tími til að veita kórnum
frelsi, hann er kominn á Iegg og
því tími til kominn að ég dragi
mig í hlé. Það mun því önnur
kona taka við kórstjórninni
næsta vetur, Sigrún Þorgeirs-
dóttir, söngkona og eðlisfræðing-
ur. Hún er yngri en ég og mennt-
uð í öðrum heimshluta líka, það
Síðustu
tónleikar
Margrétar
að sinni
er í Bandaríkjunum, og mun því
væntanlega koma með nýja
strauma inn í kórstarfið. En þótt
ég sé að draga mig í hlé vona
ég auðvitað að kórinn muni kalla
á mig aftur við eitthvert tæki-
færi.“
Margrét segist munu sakna
Kvennakórs Reykjavíkur. „Það
verður að segjast eins og er að
þessi kór hefur hlotið langmesta
athygli allra kvennakóra hér á
íslandi fyrr og síðar. Samt var
hann ekki sá fyrsti, það var til
Kvennakór Slysavarnafélagsins
og Suðurnesja og fleiri áður en
við fórum af stað. Kvennakópr
Reykjavíkur hefur verið sérstak-
ur, til dæmis að því leyti að í
honum hafa aldrei verið færri
en 120 konur á hverjum tíma og
þess má geta að á tónleikunum
um helgina koma fram á fjórða
hundrað kvenna. Þetta hefur því
verið mjög skemmtilegur tími.“
Margrét segist vitanlega ekki
vera hætt að starfa í tónlist eða
með kórum. „Ég segi ekki alveg
skilið við Kvennakór Reykjavík-
ur því ég mun halda áfram að
stjórna litlum hópum á hans veg-
um og einnig einbeita mér að
barnastarfi. Ég mun svo halda
áfram að starfa með konum í
kórum, bæði með formlegum
kórum og óformlegum hópum.
Næsta vetur mun ég starfa með
Vox Feminae sem ég stofnaði
reyndar samtímis Kvennakór-
Reykjavíkur en hans bíða mörg
og spennandi verkefni."
Einsöngvarar tónleikanna um
helgina vera Björk Jónsdóttir,
Jóhanna Linnet, Jóhanna Þór-
hallsdóttir og Signý Sæmunds-
dóttir. Gestir tónleikanna eru
aðrir sönghópar sem starfa und-
ir merki Kvennakórs Reykjavík-
ur; Léttsveit Kvennakórs Reykja-
víkur, Vox Feminae, Senjorítur,
Kórskóli Kvennakórs Reykjavík-
ur og Stúlknakór Reykjavík-
Eldað að ítölskum hætti
KVIKMYNDIR
Kringlubíó
VEISLAN MIKLA (BIG
NIGHT) ★ ★ ★
Leikstjóri Stanley Tucci og Camp-
bell Scott. Handrit Joseph Tropiano
og Stanley Tucci. Kvikmyndatöku-
stjóri Ken Kelsch. Tónlist Gary Di
Michaele. Aðaileikendur Stanley
Tucci, Tony Shalhoub, Isabella Ross-
elini, lan Holm, Minnnie Driver,
Campell Scott. 107 mín. Bandarísk.
The Samuel Goldwyn Company
1996. ‘
SÚ ÁNÆGJULEGA staðreynd
að Veislan mikla er sýnd á almenn-
um sýningum er enn ein staðfest-
ingin á því að við erum kvikmynda-
þjóð. Er þess fullvis að þessi litla
en athyglisverða smámynd hefur
hvergi komist inná jafnlítinn mark-
að og hér og efa það reyndar stór-
lega að hún hafi verið keypt til
dreifingar á almennum sýningum
víðast hvar utan Bandaríkjanna.
Innkaupastjórar íslenskra kvik-
myndahúsa hafa margoft sannað
að þeir eru með á nótunum og
okkur, gestunum, sé treystandi.
Sjálfsagt fá þeir launað fyrir
áhættuna í mörgum tilvikum og
vonandi verður raunin sú hvað
snertir Veisluna miklu.
Umfjöllunarefnið er listrænn
metnaður og mannleg samskipti.
Bræðurnir Secondo (Stanley Tucci)
og Primo (Tony Shalhoub)_ eru
veitingamenn sem flytja frá Ítalíu
til New Jersy til að kynna Band-
ríkjamönnum það besta í elda-
mennsku síns heimalands. Það
hefur ekki gengið eftir. Primo er
listamaður í eldhúsinu og vill ekk-
ert slá af kröfum matargerðarlist-
arinnar sem viðskiptavinir hans
bera ekki minnsta skynbragð á -
en vilja sitt skyndijukk. Bróðir
hans, þjónninn Secondo, reynir að
fá hann til að opna augun fyrir
þessum augljósu staðreyndum, því
ekki þarf annað en að líta yfir
götuna, þar sem landi þeirra, Pasc-
al (Ian Holm), rekur veitingastað
sem jafnan er troðfullur útúr dyr-
um. Munurinn er sá að Pascal eld-
ar það sem fólkið viil (og Primo
kallar óæti) en Primo það sem
hann vill að fólkið borði. Áð undir-
lagi Pascals halda þeir svo mikla
sælkeraveislu, hún er síðasta
tromp bræðranna í baráttunni um
viðskiptavininn.
Það leynir sér ekki hvers vegna
þessi dvergvaxna mynd náði ótrú-
Íegum og óvæntum vinsældum í
heimalandinu. Að hætti ítalskra
matargerðar er myndin búin til úr
fyrsta flokks hráefni, er metnaðar-
full, listræn, rómantísk, ástríðu-
full, holl og góð og síðast en ekki
síst, bragðið einkar ánægjulegt og
skilur eftir góðar minningar. Á
yfirborðinu snýst allt um mat og
matargerðarlist, Veislan mikla
fjallar þó engu að síður um þjóða-
reinkenni, hefðir, uppeldi og lífs-
stíl. Primo vill engu breyta. Sec-
ondo er maður tækifæranna, sér
þau í nýju umhverfi og vili virkja
þau. Báðir eru þeir frábærlega vel
leiknir, en leikurinn er eitt aðals-
merki þessarar hlýju og skemmti-
iegu myndar. Það hefur verið gam-
an að fylgjast með Tucci, eftir að
maður kom fyrst auga á hann í
smáhiutverki í gamanmyndinni
góðu Small Change. Ekki alls fyrir
löngu átti hann svo stjörnuleik í
The Kiss of Death, annarri gæða-
mynd. Um þessar mundir fer hann
með hlutverk í nýjustu gamanmynd
Woody Allens og fyrstu mynd
Danny (Trainspotting) Boyle í
Bandaríkjunum, sem sagt á grænni
grein. Hann stendur sig ekkert síð-
ur í handritshöfundar- og leik-
stjórnarhlutverkinu, þar sem hann
nýtur hjálpar Campbelis Scott, son-
ar George C. Myndin er afar vel
mönnuð hvort sem er framan eða
aftan við tökuvélarnar og það er
mikið gaman að sitja til borðs með
þessum úrvalsmannskap.
Sæbjörn Valdimarsson
Prentvilla ?
\ \ ■■ ■
Aldeilis ekki og nú bjóðum við enn betri verð í BT. Tölvum
Pentium 133 megariða
HP 400 litaprentari
Athugið, takmarkað magn !
HP 690 iitaprentari
Athugið, takmarkað magn !
Frábær eins hylkja litaprentari
600 x 600 pát i svörtu
600 x 300 pát í lit
Prentar 4 bls á mín í svörtu
Prentar 2 blf
Nettur og fyrirfBrðariitill
Tilbað á föstudag
10.990 kr
HtQiV/wwwJmoluitrJs
B.T. Tölvur
16 mb innra minni
2 mb skjaknrt
12 hraða geisladrif
25 watta hátalarar
Lyklabarð og mús
5 frabærir islenskir leikir
Windnws 55 fylgir með
Frábær tvaggja hylkja litaprentari
600 x 600 pát í svörtu
600 x 300 pát i lit
Prentar 5 bls á min í svörtu
Prentar 2.5 bls á min i lit
Tekur Ijósmyndahylld
GransásvBgur 3 -108 Reykjavík
Sími: 588 5900 - Fax : 588 5305
Opnunartími virka daga : 10:00 -19:00
Opnunartími laugardaga : 10:00 -18:00
133 mhz Intel örgjörvi
Intel Tritan II430VX kubbas.
PT2006 FIC móðurbarð
1280 mb harður diskur
16 bita hljóðknrt
14' hágæða litaskjár
99.990 kr