Morgunblaðið - 08.05.1997, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1997 35
LISTIR
AÐSENDAR GREINAR
Finnskur barnabókahöf-
undur í Norræna húsinu
FINNSKI barnabókahöfundurinn Ir-
melin Sandman Lilius er gestur
Norræna hússins um næstu helgi.
Laugardaginn 10. maí kl. 12 verður
dagskrá ætluð börnum og ungling-
um og þá les hún á sænsku úr barna-
bókum sínum.
Sunnudaginn 11. maí kl. 16 verð-
ur hún fyrirlesari í fyrirlestarröðinni
„Orkanens eje“ og talar þar um
nýjustu bók sína „Hand i hand“, sem
hún skrifaði ásarnt systur sinni
Heddi Böckman. Á undan fyrirlestr-
inum syngur telpnakór frá Ábo í
Finnlandi, sem er á ferð hér á landi.
Irmelin Sandmann Lilius segist
hafa skrifað fyrir börn, en bætir við
að mörgum börnum líki það sem hún
skrifar. Hún hefur samið bækur af
ýmsu tagi, ljóðabækur, smásögur,
skáldsögur og barnabækur. Hún
myndskreytir einnig bækurnar. Af
Vortónleikar
Hreims
Húsavík. Morgunblaðið.
Karlakórinn Hreimur í Suður-Þing-
eyjarsýslu hélt sína árlegu vortón-
leika í Húsavíkurkirkju um síðustu
helgi að Ioknu miklu og f|ölbreyttu
vetrarstarfi. Kórinn skipa um 45
söngmenn frá Húsavík, Bárðardal,
Mývatnssveit og sveitum þar á milli,
sem sýnir að söngvararnir leggja
mikið á sig til æfinga. Stjórnandi
Hreims er Robert Faulkner og píanó-
undirleikari er kona hans, Juliet
Faulknar, ásamt Aðalsteini ísfjörð,
sem leikur á harmoníku. Einsöngv-
arar með kórnum eru Ásmundur
Kristjánsson, Baldur Baldvinsson,
Einar Hermannsson og Sigurður
Þórarinsson.
Söngskráin var ijölbreytt og kórn-
um vel tekið af fjölmörgum áheyr-
endum. Kórinn fyrirhugar söngferð
í júní um Dali og Snæfellsnes.
Skálholts-
kórinn til Vest-
mannaeyja
SKÁLHOLTSKÓRINN fyrirhugar
söngferð til Vestmannaeyja nú um
helgina. Hann syngur á tónleikum í
Félagsheimilinu, laugardaginn 10.
maí kl. 17 ásamt Mosfellskórnum.
Meginhlutverk Skálholtskórsins
er að syngja við kirkjulegar athafnir
í Skálholtsdómkirkju, en hann hefur
þó einnig lagt talsverða áherslu á
flutning veraldlegrar tónlistar í
bland, segir í tilkynningu.
Stjórnandi Skálholtskórsins er
Hilmar Örn Agnarsson.
Finnskur
stúlknakór
á Islandi
HÉR á landi er nú staddur YMCA
stúlknakórinn frá Turku í Finnlandi.
Stúlkurnar, sem eru á aldrinum
17-22 ára, eru hér í boði Kórs Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði og munu
á næstu dögum halda tónleika m.a.
fyrir menntskælinga á Laugarvatni
barnabókum hennar má nefna
„Tomteluvan", „Kubb Karagg“,
„Bonades bát“, „Apelsintradshuset",
„Observatoriet" og „Löpande orm-
en“.
Sögupersónur hennar eru litlar
telpur sem leita á vit ævintýranna
frá heimilum sínu til þess að upplifa
allt hið dularfulla sem bíður á næsta
leiti; skóginn, ána eða hafið. í nátt-
úrunni búa ýmsar kynjaverur sem
vekja ímyndunaraflið hjá börnunum.
„Hand i hand“ kom út hjá Schildts
útgáfunni í Finnlandi 1996. Bókin
fjallar um æsku þeirra systra og rifja
þær upp minningar frá stríðsárunum
í Finnlandi.
Irmelin Sandmann Lilius er fædd
14. júlí 1936. Hún giftist 1957
finnska myndhöggvaranum Carl-
Gustav Lilius og eiga þau eina dótt-
ur.
og syngja á tónleikum Vörðukórsins
í Aratungu.
I dag, fimmtudag, syngur kórinn
í messu í Víðistaðakirkju kl. 11 og
heldur síðan sína eigin tónleika í
kirkjunni kl 20 sama kvöld. Sunnu-
daginn 11. maí heldur kórinn loka-
tónleika sína hér á landi í Listasafni
Sigutjóns Ólafssonar kl. 20.30.
Á efnisskrá kórsins er að finna
negrasálma, madrígala og kirkjuleg
verk svo og finnsk og lappnesk þjóð-
lög. Kórinn er hér undir stjórn Ara
Hynyen.
Tónleikar á
Hvamms tanga
ÁRNI Arinbjarnarson, organisti
Grensáskirkju, heidur orgeltónleika
í Hvammstangakirkju 8. maí, upp-
stigningardag, kl. 21.
Tónleikarnir eru á vegum Tónlist-
arfélags Vestur-Húnvetninga sem
var stofnað 1991, en félagið hefur
það markmið að halda eina tónleika
í mánuði, þ.e. frá september til maí,
alls níu tónleika á ári. Þessir tónleik-
ar eru áttundu tónleikar starfsársins.
í kirkjunni er 13 radda pípuorgel frá
Bruno Christensen og sonum 1985.
Árni leikur m.a. verk eftir Sveel-
inck, Buxtehude, Jón Þórarinsson
og Bach.
Vorsýning
MHÍ í Lista-
skólahúsinu
VORSÝNING Myndlista- og hand-
íðaskóla, MHÍ, verður opnuð í List-
skólahúsinu, Laugarnesvegi 91, laug-
ardaginn 10. maí kl. 14. Þar sýna
útskriftarnemar lokaverkefni sín.
Á þessu vori verða brautskráðir
52 nemendur eftir þriggja ára nám
við einhveija af sérdeildum skólans.
Sýningarstjóri er Anna Eyjólfsdóttir
myndhöggvari.
I tilefni sýningarinnar kemur út
sýningarskrá með efni frá útskrift-
arnemum og verður hún til sölu á
sýningunni. Hana hannaði Haukur
Már Hauksson, nemandi í grafískri
hönnun, ásamt ritnefnd nemenda í
MHÍ.
Sýningin stendur til 19. maí og
er opin daglega frá kl. 14-19.
SYSTURNAR Irmelin Sand-
man Lilius og Heddi Böckman.
Irmelin Sandmann Lilius hefur
hlotið margar viðurkenningar og
verðlaun fyrir bækur sínar, m.a.
Litteraturfrámj andets barnbokspris
1969, Astrid Lindgrenspriset 1976,
Statens barnkulturpris 1985, Stat-
ens litteraturpris 1987, Svenska
Akademins pris 1987 og 1985 Ny-
grenska stiftelsens stipendium.
Bækur hennar hafa verið þýddar
á 15 tungumálum.
Líkön af Sví-
þjóðarbátum
„FÖÐURLAND vort hálft er hafið“
er yfirskrift á sýningu sem opnuð
verður í anddyri Norræna hússins
föstudaginn 9. maí kl. 17.
Hér er um að ræða sýningu á
skipslíkönurn af Svíþjóðarbátum sem
komu til íslands fyrir hálfri öld.
Einnig eru sýnd líkön af eldri og
yngri skipum sem áttu sinn frægðar-
feril og ljósmyndir sem tengjast haf-
inu piýða sýninguna. Líkönin gerði
Grímur Karlsson, skipstjóri í Njarð-
vík, en hann á mikið safn af skipslík-
önum sem hann hefur gert.
Eftir heimssyijöldina síðaðri voru
um 50 skip sérsmíðuð fyrir Íslend-
inga í Svíþjóð og að auki keyptu
íslendingar 30 skip af Svíum, sem
höfðu verið smíðuð fyrir heimamark-
að. „Koma Svíþjóðarbátanna fyrir
hálfri öid átti stóran þátt í einum
mestu framförum sem orðið hafa
fyrr og síðar til bættra lífskjra á
íslandi. Við hvern Svíþjóðarbát eða
bát af svipaðri stærð höfðu 25
manns atvinnu, þ.e.a.s. við veiðar,
þjónustu og vinnslu aflans. Það hafa
því 2.000 manns haft atvinnu ein-
ungis af Svíþjóðarbátunum," segir í
kynningu.
Súningin í anddyri Norræna húss-
ins stendur til 10. júní og er opin
daglega kl. 9-19, nema sunnudaga
frá kl. 12-19. Aðgangur er ókeypis.
Br. >£] 1
|p' -
L
If M
SIGMAR Vilhelmsson og Erla
Sigurbergs við verk sín.
Málverkasýning
í Grindavík
ERLA Sigurbergs og Sigmar Vil-
helmsson opnuðu sýningu í Kvenfé-
lagshúsinu (Kvennó) í Grindavík 1.
maí sl. Erla sýnir verk unnin með
olíu, en Sigmar sýnir vatnslita-,
pastel- og blekmyndir. Sýningin er
opin virka daga kl. 17-20 og laugar-
daga og helgidaga kl. 15-20 og lýk-
ur henni nk. sunnudag, 11. maí.
Hekla Björk á
Næstu grösum
HEKLA Björk Guðmundsdóttir
kynnir olíumálverk sín á matstofunni
Á næstu grösum, Laugavegi 20B.
Verkin sem hún sýnir nú einkenn-
ast einna helst af íslensku sauðkind-
inni og lóu litlu á grænni grund.
Opið er á Næstu grösum mánu-
daga til föstudaga frá kl. 11.30-14
og 18-22, laugardaga frá kl.
17.30-22 og sunnudaga frá kl.
18-22.
í GREIN minni um
Maístjörnu Halldórs
Laxness vék ég að vin-
áttu skáldsins og Vil-
mundar Jónssonar
læknis. Athvarfi og
skjóli er jafnan stóð
opið ungum og um-
deildum rithöfundi.
Síðan sagði í grein
minni: „Það vekur því
undrun að lesa kafla í
ritsafni Vilmundar þar
sem hann fer niðrandi
orðum um stíl Hall-
dórs, og hæðist að
ýmsu í ritverki hans.“
Þórhallur Vilmund-
arson benti mér á að þessi ummæli
sem birt eru í ritsafni Vilmundar á
bls. 308-309 I bindi séu tilvitnun
í bréf Þórbergs Þórðarsonar. Það
er hverju orði sannara og skal hafa
það, sem sannara reynist. Hinu má
þó ekki gleyma að ekki fer milli
mála að Vilmundur er sjálfur höf-
undur að skrá er hann nefnir
„Nokkrar persónulegar stíltegundir
og birt er á bls. 307 í I bindi rit-
safnsins. Þar segir um 15 stílteg-
undir sem greindar eru:
I bréfi til Stefáns Einarssonar
prófessors í Baltimore 29. júní
1953, sem birt var í Helgarpóstin-
um 28. ágúst 1981, segir Þórbergur
Þórðarson, að Vilmundur Jónsson
sendi honum stílfræði eftir sig á
hjálögðu blaði. Með fylgir listi yfir
stíltegundir og höfunda. Eru stíl-
tegundirnar hinar sömu og hér að
framan voru taldar, en höfundar
nokkru færri en hér. Þórbergur
lætur að ósk Vilmundar fylgja
nokkrar skýringar á sumum stíl-
heitunum og hefur þær að nokkru
eftir Vilmundi. Þórbergur segir:
„Vilmundur landlæknir sendir
þér á hjálögðu blaði stílfræði sína.
Hún er ekki mikil fyrirferðar. En
þess eru dæmi í bókmenntum og
vísindum, að fáorðar hugsanir hafa
opinberað mikil sannindi, jafnval
valdið aldahvörfum. Höfundurinn
hefir mælzt til þess, að ég léti fylgja
lítilsháttar útlistanir á þeim stílheit-
um, sem ekki skýra sig sjálf svo
greinilega, að af hljót-
ist uppljómun með les-
andanum.
Af þessu má sjá að
Vilmundur er hvata-
maður að samantekt
Þórbergs um nefndar
stíltegundir, sem gerð
er „að ósk Vilmundar"
og Þórbergur segist
hafa þær „að nokkru
eftir Vilmundi".
Margt styður þá til-
gátu að Vilmundur
hafi skemmt sér hið
besta er hann las út-
listanir Þórbergs gerð-
ar „að ósk Vilmundar".
Eg hvet alla til þess að lesa ritsafn
Vilmundar. Hann var hverjum
manni skemmtilegri. Ég minnist
margra stunda er hann kom í aðset-
Af þessu má sjá, segir
Pétur Pétursson, að
Vilmundur var hvata-
maður að samantekt
Þórbergs um nefndar
stíltegundir.
ur Alþýðublaðsins og staldraði við
stundarkorn. Ég starfaði þar um
skeið sem auglýsingastjóri. Vil-
mundur var fjölfróður, gamansam-
ur, fyndinn og stundum meinhæð-
inn. Áhugi hans á félags- og menn-
ingarmálum var einlægur. Afköst
hans, skrif og störf á vettvangi
heilbrigðis- og stjórnmála fyrnast
eigi. Hann var Þórbergi innblástur
og Halldóri Kiljan hlíf og skjöldur,
en þakka má Margréti (Mömmu-
göggu) fyrir húsagann sem hún
setti á Þórberg. Annars hefði hann
eytt öllum dögum í að skemmta
Vilmundi og minna orðið um afköst
á ritvelli.
Höfundur er Pétur Pétursson
fyrrv. þulur.
Stökktu til
Costa del Sol
28. maí í 14 daga
frá kr. 29.932
Síðusm
s&tiu
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð
þann 28. maí til Costa del Sol. Þú
tryggir þér sæti í sólina og 5 dögurn
fyrir brottför færðu að vita á hvaða hóteli þú gistir.
Á Costa del Sol fmnur þú glæsilegasta aðbúnað á Spáni
og heillandi mannlíf sem er engu líkt og þú nýtur rómaðrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
29.932
Verð kr.
M.v. hjón með 2 börn í íbúð,
28. maí, 14 nætur, flug, gisting,
ferðir til og frá flugvelli, skattar.
Vikulegtflug
í allt sumar.
'jSpY' 11P ^
m 'ý' m
39.960
&
r
Verð kr.
M.v. 2 í íbúð, 14 nætur, 28. maí.
7
HEIMSFERÐIR
19V2 C 1997.
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 562 4600
Morgunblaðið/Silli.
KARLAKÓRINN Hreimur ásamt sljórnandanum Robert Faulkner
í Húsavíkurkirkju.
Fáein orð um
stíltegundir
Pétur Pétursson.