Morgunblaðið - 08.05.1997, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997 6
FRETTIR
JENNÝ LOVÍSA
EIN ARSDÓTTIR
Elskuleg tengdamóðir
mín verður áttatíu og
fimm ára á morgun,
9. maí. Af því tilefni
vil ég senda þér af-
mæliskveðju, í blaðinu
þínu - Morgunblaðinu
—, úr farfuglasöngn-
um í sveitinni.
Jenný Lovísa Ein-
arsdóttir, fæddist 9.
maí 1912 á Grund í
Miðneshreppi, dóttir
Einars Jónssonar frá
Ysta-Skála undan
Eyjafjöllum og konu
hans Önnu Soffíu
Jósafatsdóttur frá Litlu-Asgeirsá í
Vestur-Húnavatnssýslu. Hún ólst
upp með systrum sínum þeim Þor-
björgu, f. 5.8. 1894, d. 12.7. 1960,
og Jóhönnu f. 13.8. 1917, d. 20.1.
1997. Þær systur lifðu ungar sorg-
ina er bróðir þeirra Jóhann Kristinn
dó aðeins 12 ára gamall. Jenný
kynntist því strax í æsku hvernig
baráttan var háð fyrir lífinu í sjáv-
arþorpi og í því þjóðfélagi sem þá
var bændaþjóð. En hún hefur einn-
ig fengið að lifa þá tíð er brotist
var úr torfkofum í steinhús, vegir
lagðir, ár brúaðar, hafnir byggðar,
sjá vélknúin skip sigla að landi í
stað kúttera, bifreiða- og flugsög-
una alla.
Jenný fæddist inn í vorið - vorið
í íslensku þjóðlífi þegar þjóðin end-
urheimti sjálfstæði sitt á Þingvöll-
um og fékk að finna til er Miðnes-
heiðin varð miðstöð hers á íslandi.
Utsýnið til hafsins var dagleg
sjón stúlkubarnsins og unglingsins
sem snemma kynntist því ógnar-
afli sem hafið býr yfir og þeir ein-
ir skilja og þekkja sem við það eru
aldir upp.
Jenný gekk ung í hjónaband
með Einari Hauki Jónssyni, og
reistu þau sér heimili í Hvammi í
Sandgerði. Þar lifðu þau saman
og eignuðust fjögur börn, Jónu
i Margréti, f. 21. 10. 1930, d. 23.
3. 1931, Önnu Margréti, f. 28.4.
1932, Einarínu Sigurveigu, f. 29.4
| 1934, og Hauk, f. 16.8. 1935. En
lífið er ekki alltaf dans á rósum.
Einar Haukur fellur frá um aldur
fram 23.3.1935 ogeftirsiturekkj-
an unga með þrjú börn á framfæri.
Ungur skipstjóramenntaður
Garðbúi Árni Þorsteinsson, f.
14.11 1908, d. 10.3. 1986, kemur
inn í líf Jennýjar og ástin blómstr-
í ar. í eigið hús á Suðurgötu 16 í
< Keflavík er flutt í desember 1942.
, Þar bætast við systkinahópinn
I Guðný Helga, f. 1.11. 1937, Þor-
björg Ágústa, f. 1.11. 1937, d.
^auléttar
* SplendestO
< seiðenSticker
b 1 ú s s u r
Öduntu,
TÍSKUVERLSUN
v/Nesveg. Seltj.. s. 561 1680
10.4. 1955, Inga Ey-
gló, f. 27. 12 1938,
Þorsteinn, f. 16. 9.
1940, Brynja, f. 17.10.
1944, Guðrún, f. 26.
10. 1948, og Árni, f.
30.8. 1957. Og ekki
er að sökum spyrja
barnabörnin orðin 28
og barnabarnabörnin
40.,
Á meðan Árni dró
björg í bú stóð eigin-
konan ein og með sinn
stóra barnahóp að
fæða, klæða og annast
uppeldisskyldur heim-
ilisins. Langar fjarvistir eigin-
mannsins hafa ekki aðeins verið
honum erfiðar heldur og konu
hans og börnum. Þannig hefur líf
sjómannafjölskyldna verið og mun
enn verða svo lengi sem land okk-
ar verður byggt.
Oft hefur sá sem þetta ritar
verið héralegur um ævina, en þá
hvað mest er við Guðný kona mín
komum til Jennýjar og Árna að
tilkynna trúlofun okkar. Sunnu-
dagur var og okkur boðið til stofu
í hádegisverð. Orðræður urðu ekki
miklar yfir sunnudagssteikinni og
gæti ég ímyndað mér að húsmóðir-
in hafi haldið að Guðný sín hefði
lofast daufdumbi. Ferðum mínum
fjölgaði í kjallarann á Suðurgötu
16 og ég fékk smám saman málið.
Ein er sú stund mér minnisstæð-
ari en aðrar. Ég kom í hádegi,
hafði skroppið til Reykjavíkur árla
dags að kaupa nýjustu bók Hall-
dórs Laxness, Gerplu. Jenný var
að sjóða salta grásleppu og við
settumst tvö að snæðingi. Ég í
fyrsta sinn að bragða á þessu lost-
æti, sem alltaf síðan hefur verið
einn af eftirlætisréttum mínum.
Eftir að hafa lokið við að borða
tók ég upp bókina og var þá sem
álagahamur færi af tengdamóður
minni tilvonandi, því svo áköf varð
hún í að líta í bókina að án henn-
ar fór ég út úr húsinu, en hún las
hana í einni striklotu sem eftir var
dagsins. Ný og áður óþekkt hlið á
tengdamóður minni kom í ljós mér
til mikillar ánægju.
Það ætla ég að flestum finnist
auðvelt fyrir þann sem tekur sér
penna í hönd á merkum tímamót-
um tengdamóður sinnar að hripa
til hennar nokkrar línur og lýsa
manngerð hennar. Eftir 40 ára
hjúskap með dóttur hennar sýnist
undirrituðum að Jenný búi yfir
þeim mannkostum sem eftirsóttir
ættu að vera hverri manneskju.
Hún elskar heimilið sitt og kærir
sig ekki um breytingar. Hún vill
fá að vera í friði enda treður hún
ekki öðrum um tær. Tryggð og
hollustu hennar við fjölskylduna
og vini er viðbrugðið. Kjarkurinn
í baráttu við örlögin kallar ekki
fram tár eða sjálfsvorkunn. Þolin-
mæðin og styrkurinn eins og
tíminn sjálfur, sem minnir á djúpt
og dimmblátt hafið sem hún hefur
haft fyrir augum sér allt frá æsku-
árunum.
Jenný mín, hafðu kærar þakkir
fyrir samfylgd liðinna ára og megi
góður Guð gefa þér að dagurinn
í dag verði þér bjartur og fagur
og reisn þín öll með sama hætti
áfram sem hingað til.
Höskuldur Goði.
NEMENDUR Suðurhlíðarskóla með fernur undan
mjólk og ávaxtasafa.
Suðurhlíðarskóli orð-
inn vistvænn skóli
NEMENDUR Suðurhlíðarskóla hafa
í vetur reynt að stuðla að framhalds-
lífí mjólkurferna eins og landsmenn
voru hvattir til að gera. Komið var
fyrir kassa og skærum í hverri stofu
og nemendur opnuðu síðan sínar
femur og skoluðu áður en þeir komu
þeim fyrir í kassanum. Reynt var að
láta sem minnst fara fyrir fernunum
og þegar kassinn var síðan orðinn
fullur var innihaldið látið í plastpoka.
Öllum endurvinnanlegum pappír
var síðan safnað í annan kassa. Hluti
af pappírnum verður notaður til
pappírsgerðar í skólanum en hinu
ALÞÝÐUBANDALAG, Alþýðu-
flokkur, Kvennalisti og Þjóðvaki
standa fyrir sameiginlegri ráð-
stefnu laugardaginn 10. maí í Borg-
artúni 6 undir yfirskriftinni ísland
á næstu öld.
í nóvember 1996 skipuðu flokk-
arnir fulltrúa í nefnd sem ætlað var
að kanna möguleika á nánara sam-
starfi og samvinnu flokkanna innan
sveitarstjórna, verkalýðshreyfingar
og á Alþingi.
Undanfarna mánuði hefur nefnd-
in unnið að því að skipuleggja ráð-
BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjargar
og Slysavarnafélags íslands í sam-
vinnu við Ferðafélag íslands stend-
ur fyrir námskeiði fyrir almenning
um notkun áttavita og landakorta
dagana 12. og 13. maí nk.
Námskeiðið fer fram I húsi
Ferðafélagsins, Mörkinni 6, og
hefst kl. 20 báða dagana. Námið
er bæði bóklegt og verklegt.
„Allir þeir sem ferðast um há-
lendið að sumri eða vetri til eru
hvattir til að mæta því kunnátta í
UPPSTIGNINGARDAGUR, fimmtu-
dagurinn 8. maí, er dagur aldraðra
í kirkjum landsins. í Bústaðakirkju
verður dagurinn með hefðbundnu
sniði. Guðsþjónusta verður kl. 14 og
þar predikar frú Áslaug Friðriksdótt-
ir. Lestrar verða í umsjón Áslaugar
Gísladóttur en hún hefur leitt starf
aldraðra í Bústaðakirkju frá upphafi.
verður skilað til Sorpu með mjólkur-
fernunum.
Þetta framtak hefur gengið mjög
vel og nemendur yfirleitt verið mjög
jákvæðir gagnvart því.
Stefnt er að því að koma upp
safnkössum fyrir matarúrgang
þannig að hægt verði að sýna börn-
unum hvernig unnt er að nýta af-
gangana og gera úr þeim næringar-
ríkan jarðveg.
Suðurhlíðarskóli er grunnskóli
aðventista í Reykjavík og í vetur er
þar 51 nemandi í fyrsta til níunda
bekk.
stefnu um velferðarkerfið þar sem
horft yrði til framtíðar. Nefndin
hefur kallað til fólk sem skoðað
hefur þau mál frá ólíkum hliðum,
til að flytja erindi sem síðan verður
spurt út úr.
Undir Iok ráðstefnunnar munu
forystumenn flokkanna ásamt full-
trúa frá Kvennalista svara spurn-
ingum ráðstefnugesta undir stjórn
Sigmundar Ernis Rúnarssonar
fréttamanns. Ráðstefnan hefst kl.
9 og lýkur kl. 17. Ráðstefnugjald
er 500 kr.
notkun áttavita og landakorta er
grundvallaratriði í öruggri ferða-
mennsku, hérna gefst mönnum
tækifæri til að læra byrjunaratriðin
og/eða að rifja upp þau atriði sem
þeir eru farnir að ryðga í,“ segir í
fréttatilkynningu.
Þátttökugjald er 1.800 kr. og er
fræðslurit um notkun áttavita inni-
falið í þátttökugjaldinu.
Menn skrái sig á skrifstofu
Ferðafélagsins í síðasta lagi fyrir
hádegi mánudaginn 12. maí.
Starfínu sinnir hún í sjálfboðavinnu
ásamt tíu konum sem annast alla
umgjörð starfsins.
Eftir guðsþjónustuna verður
handavinnusýning þar sem fólki gefst
kostur á að sjá margt fagurra manna
sem unnir hafa verið í starfinu í vet-
ur. Þá verður boðið upp á kaffiveit-
ingar.
Fuglaskoð-
unarferð á
Suðurnes
HIN árlega fuglaskoðunarferð Hiní
íslenska náttúrufræðifélags og
Ferðafélags íslands suður á Garð
skaga og víðar um Reykjanesskagí
verður farin laugardaginn 10. ma
nk. Nú eru hánorrænu farfuglarnii
á ferðinni frá vetrarstöðvum sínum
í Evrópu til varpstöðvanna í Græn-
landi og Kanada: Rauðbrystingur,
tildra, sanderla, margæs o.fl. Auk
þess eru íslenskir far- og staðfuglai
þarna á sveimi svipað og venjulega.
Leiðsögumenn verða að vanda þeir
fuglafræðingar Gunnlaugur Péturs-
son og Gunnlaugur Þráinsson.
Lagt verður upp frá Umferðar-
miðstöðinni, austanverði, Mörkinn
6, kl. 10 en stefnt er að endurkomu
fyrir kvöldmat. Þátttaka í ferðinn
er öllum opin, en skráning fer fran
við brottför. Venjulegir gönguskói
eiga að duga í ferðina en fólk ei
minnt á að hafa með sér sjónauka,
nesti og skjólföt, því að ennþá er
árla vors.
ÁRTÚNSSKÓLI
Afmælis-
hátíð
Artúnsskóla
Í TILEFNI af tíu ára afmæli Ár-
túnsskóla verður afmælishátíð hald-
in í skólanum fimmtudaginn 8. maí.
Skólinn verður opinn frá kl.
10-16 þar sem nemendur sýna
verk frá liðnum vetri. Einnig munu
nemendur koma fram með stutt
atriði, leikrit og söng. Seldar verða
veitingar og grillað ef veður leyfir.
Fræðsla um
ofvirk börn
NÁMSKEIÐ fyrir foreldra á vegum
barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans og Foreldrafélags
misþroska barna verður á barna-
og unglingageðdeild Landspítalans,
Dalbraut 12, laugardaginn 10. maí
frá kl. 8.50-16.25 og sunnudaginn
11. maí kl. 9.30-13.
Flutt verða erindi og einnig verð-
ur hópvinna. Skráning hjá Guðríði
Guðbjartsdóttur, barna- og ungl-
ingageðdeild Landspítalans.
LEIÐRÉTT
Röng föðurnöfn
í fréttatilkynningu í Mbl. í gær var
sagt frá hátíð harmonikunnar sem
haldin verður í Glæsibæ á laugar-
dagskvöld. Harmonikuleikararnir
Jóna Einarsdóttir var sögð Guð-
mundsdóttir og Matthías Kormáks-
son var sagður Þormóðsson.
Ráðstefna um Island
á næstu öld
Námskeið í notkun áttavita
Dagur aldraðra í Bústaðakirkju
800
Fiölmörg fvrir-
TÆKI OG VERSLANIR
FERDJR TIL
ÚTLANDA
bjóða þér að hringja ókeypis og panta
eða spyrjast fyrir um vörur og þjónustu.
Nýttu þér þá þjónustu
sem býðst í gegnum
8oo númerin. PÓSTUR OG SÚVIIHF