Morgunblaðið - 08.05.1997, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997 65
BRÉF TIL BLAÐSIINIS
Erfitt próf o g
ósanngjarnt
MESSURI DAG
Frá Hörpu Hrund Berndsen og
Herborgu Drífu Jónasdóttur:
VIÐ ERUM í hópi þeirra fjölmörgu
unglinga sem þreytti samræmnt
próf í stærðfræði mánudaginn 28.
apríl síðastliðinn.
Eins og fram hefur komið var
prófið mun lengra en á síðustu
árum. Prófið var samtals 28 blað-
síður og höfðum við þijár klukku-
stundir til umráða. Dæmi eru um
það að margir nemendur hafí ekki
náð að ljúka prófínu á tilteknum
tíma og erum við í hópi þeirra. Við
getum fullyrt að meirihluti nem-
enda í okkar skóla er óánægður
með þetta próf og eru dæmi um
það að fólk hafi setið grátandi yfir
prófinu áður en próftíma lauk og
jafnvel þurft að skilja eftir allt upp
i sex óunnar blaðsíður. Við spyijum:
„Er það eðlilegt?" Ekki nóg með
það að fólk sé búið að leggja hart
að sér í allan vetur til þess að ná
góðri einkunn á þessu prófi heldur
bitnaði þetta líka á enskuprófinu
sem var daginn eftir, þvi margir
voru svo miður sín yfir stærðfræði-
prófinu að þeiri gátu ekki einbeitt
sér nóg til að læra undir enskupróf-
ið.
Frá Marjatta ísberg
í SUNNUDAGSBLAÐI Morgun-
blaðsins (4. maí) reyna semjendur
samræmdra prófa í stærðfræði að
bera af sér sakirnar með því að
skella skuldinni á stærðfræðikenn-
arana sjálfa. Þeir spyija: „Er
kannski tímabært fyrir stærðfræði-
kennara að líta í eigin barm og
skoða í hvaða farvegi stærðfræði-
kennslan er? Er e.t.v. of mikil
áhersla lögð á þjálfun tækniatriða,
í stað þess að efla skilning á við-
fangsefninu?"
Mér finnst þetta sýna vanda ís-
lenska kerfisins í hnotskum: Eng-
inn virðist vita, hvað hinir gera.
Og eiga börnin að gjalda þess? Próf-
semjendur virðast vilja prófa í því,
sem þeir telja að eigi að kenna í
grunnskóla, ekki í því sem í raun
og veru er kennt. Það er sem sé
algjört sambandsleysi milli skóla-
stiga. Hvernig á slíkt góðri lukku
að stýra?
Mín skoðun er sú, að próf sem
sett eru fyrir nemendum í lok 10.
bekkjar eigi að endurspegla inni-
hald kennslunnar — ekki það sem
prófsemjendur vilji að sé innihald
Frá Unnsteini Jónssyni
GREIN þessa skrifa ég vegna bréfs
sem mér barst í dag frá skattstjóra
Norðurlandsumdæmis eystra. Þar
er það lagt fyrir mig að leggja fram
kvittanir vegna lána, sem fram
koma á eyðublaði vegna vaxta-
gjalda með skattframtali mínu
1997.
Það er vandalaust að leggja
fram umbeðnar kvittanir. Það sem
undrar mig mest er að starfsmenn
skattstjóra þurfi og eyði tíma sín-
um í að biðja um svona gögn.
Aður en kom að því að fylla út
skattframtal 1997 kom yfirlit frá
Landsbanka íslands og Húsnæðis-
stofnun ríkisins yfir þau húsnæðis-
lán sem ég greiddi af á síðasta
ári. Við útfyllingu skattframtals
þurfti síðan að handfæra allar upp-
lýsingar af þessu yfirliti yfir á
eyðublað vegna vaxtagjalda, en
Fjöldi krakka er búinn að eyða
offjár í aukatíma í stærðfræði og
náð sér jafnvel upp í ágætis ein-
kunn sem er síðan fokin út í veður
og vind vegna þess að þeir sem
sömdu prófið gerðu mistök.
í grein sem Morgunblaðið birti
sl. sunnudag, þ.e. 4. maí, reyna
höfundar prófsins að svara fyrir sig
og þar kemur einnig fram að þess-
ir sömu aðilar sömdu prófið í fyrra.
Við höfum verið að fara yfir og
vinna próf síðastliðinna ára og að
okkar mati er þetta próf ekki sam-
bærilegt þeim sem við höfum skoð-
að. Þar sem þessir sömu aðilar
sömdu bæði prófið í ár og í fyrra
hljóta þeir að sjá verulegan mun á
lengd þessara tveggja prófa og
verða að gera sér grein fyrir því
að ef prófið er lengt verður tíminn
að vera í samræmi við það.
Við vitum fyrir víst að við tölum
örugglega fyrir flesta jafnaldra
okkar og skaðinn er skeður og þetta
verður aldrei bætt að fullu, en við
vonumst til þess að eitthvað rót-
tækt verði gert í þessu máli.
HARPA HRUND BERNDSEN,
HERBORG DRÍFA JÓNASDÓTTIR.
Nemendur 10. bekkjar Hagaskóla.
kennlunnar. Annað er algjört virð-
ingarleysi gagnvart þeim þúsundum
nemenda, sem þreyta prófin. Eða
getur virkilega einhver heilvita
maður hugsað, að annað gæti verið
réttlætanlegt?
Ef menn greinir á um hvað og á
hvaða hátt eigi að kenna í grunn-
skóla, þá á að leysa þann ágreining
fyrr.
Það fer ekki á milli mála, að
samræmdu prófin í stærðfræði á
þessu ári voru of löng, miðað við
úrlausnartímann. Mér er sama,
hvort orsökin sé í vitlausu innihaldi
kennslunnar eða hjá prófsemjend-
um. Það bitnar alveg nákvæmlega
eins á nemendum. Og það er aldrei
hægt að bæta nemendum þetta að
fullu, hvaða reikningsaðferð sem
er notuð. Það eina sem ég vona er
að menn læri af reynslunni — og
tali saman og samræmi aðgerðirn-
ar. Ef við höldum bara áfram að
hártogast getum við aldrei náð
sömu færni og Singapúre-menn,
drögumst enn meira aftur úr.
MARJATTA ÍSBERG,
móðir barns í 10. bekk; kennari við
Holtaskóla í Keflavík.
það eyðublað þarf að fylgja skatt-
framtali.
Það sem undrar mig hvað mest
í þessu öllu er að það þurfi að vinna
hlutina svona í því tölvuvædda
þjóðfélagi sem við búum í í dag.
Af hveiju er yfirlit yfir greiðslur
húsnæðislána ekki líka sent til við-
komandi skattstjóra? Þá væri t.d.
nóg fyrir framteljanda að merkja
við í reit á skattframtali að yfirlit
sé rétt, ef yfirlit væri ekki rétt eða
vantaði á það t.d. lántökukostnað
þá þyrfti framteljandi að fylla út
eyðublað vegna vaxtagjalda.
Mín skoðun er sú að það hljóti
að vera hægt að nota tölvukerfin
við að safna saraan svona upplýs-
ingum og nota mannaflann frekar
til að reyna að finna þá sem svíkja
undan skatti.
UNNSTEINN JÓNSSON,
Smárahlíð 5L, Akureyri.
Guðspjall dagsins:
Ég er hinn sanni'vínviður.
(Jóh. 15)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Bjarni Arason syngur einsöng.
Að guðsþjónustu lokinni býður
Safnaðarfélag Ásprestakalls
eldri borgurum til samsætis í
safnaðarheimili Áskirkju. Ein-
söngur, kór og almennur söng-
ur. Kirkjubíllinn ekur. Árni Berg-
ur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Ræðumaður frú
Áslaug Friðriksdóttir. Sýning á
munum úr starfi aldraðra. Kirkju-
kaffi. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 14.
Sr. Tómas Guðmundsson, fyrr-
verandi sóknarprestur í Hvera-
gerði, prédikar. Sr. Hjalti Guð-
mundsson þjónar fyrir altari.
Signý Sæmundsdóttir óperu-
söngkona syngur einsöng.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Bjarni Jónatansson. Eftir messu
er kirkjugestum boðið til kaffi-
drykkju á Hótel Borg, þar sem
Signý Sæmundsdóttir syngur
fyrir gesti.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
14. Prestursr. HalldórS. Grönd-
al. Sóknarnefnd býður veitingar
í safnaðarheimilinu eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11 á degi aldraðra. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Ferð með öldr-
uðum eftir messu.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 14.
Kvöldvökukórin syngur undir
stjórn Jónu Kristínar Bjarnadótt-
ur. Organisti Pavel Manasek.
Veitingar í safnaðarheimilinu
eftir messu. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 14. Athugið breyttan
messutíma. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. OrganistiJón
Stefánsson. Eldri borgarar flytja
hugvekju, syngja einsöng og
leiða almennan söng. Kaffi í
boði Kvenfélagsins eftir messu
fyrir aldraða í sókninni og Bæjar-
leiðabílstjóra.
LAUGARNESKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Eldri þorgurum
sérstaklega boðið. Kór Laugar-
neskirkju syngur. Organisti
Gunnar Gunnarsson. Kirkjukaffi
að lokinni guðsþjónustu. Kór
Laugarneskirkju lýkur vetrar-
starfi sínu með tónleikum í kirkj-
unni kl. 16. Á tónleikunum koma
fram auk kórsins, einsöngvar-
arnir Þorvaldur Halldórsson, Jó-
hanna Linnet og Bára Kjartans-
dóttir. í gospellögunum leikur
djasskvartett undir stjórn Gunn-
ars sem leikur á píanó en aðrir
meðlimir hans eru Sigurður
Flosason á saxófón, Tómas R.
Einarsson á kontrabassa og
Matthías M.D. Hemstock sem
leikur á trommur. Aðgangur er
ókeypis. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Frank M. Halldórs-
son. Djákni Kristín Bogeskov.
Litli kórinn syngur. Stjórnandi
Inga J. Backman. Organisti
Reynir Jónasson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 14. Klemens Jónsson
leikari prédikar. Organisti Vera
Manasek. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Eftir
messu verður veislukaffi í
safnaðarheimilinu. Börn úrTón-
listarskóla Seltjarnarness leika á
hljóðfæri og leikið á harmoníku
undir almennum söng.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Páll Gíslason læknir
flytur stólræðu, en prestar Ár-
bæjarsafnaðar þjóna fyrir altari.
Organleikari Kristín G. Jónsdótt-
ir. Barnakór Árbæjarkirkju syng-
ur auk kirkjukórsins, stjórnandi
Margrét Dannheim. Halla Jónas-
dóttir og Fríður Sigurðardóttir
syngja tvísöng. Samvera eldra
fólks í safnaðarheimilinu eftir
Dagnr
aldraðra
guðsþjónustuna. Dagskrá og
kaffiveitingar í þoði Soroptomis-
félags Árbæjar. Sýning á handa-
vinnu sem eldra fólk hefur unnið
í Opnu húsi í vetur.
DIGRANESKIRKJA: Sameigin-
leg guðsþjónusta Digranes- og
Hjallasafnaðar kl. 14. (ath.
breyttan messutíma). Sr. Gunn-
ar Sigurjónsson, sr. Kristján Ein-
ar Þorvarðarson, sr. íris Kristj-
ánsdóttir og sr. Magnús Guð-
jónsson þjóna. Söngvinir syngja.
Kaffi eftir guðsþjónustuna.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Lárus
Halldórsson prédikar. Guðlaug
Ragnarsdóttir les ritningar-
lestra. Sr. Hreinn Hjartarson og
sr. Guðmundur Karl Ágústsson
þjóna fyrir altari. Gerðuberg-
skórinn syngur undir stjórn Kára
Friðrikssonar. Organisti Lenka
Mátéová. Einsöngur: Ragnheið-
ur Guðmundsdóttir. Kaffiveit-
ingar í lok guðsþjónustunnar.
GRAFARVOGSKIRKJA: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14. Ræðumað-
urdr. Sigurbjörn Einarsson bisk-
up. Kór Grafarvogskirkju syngur
undir stjórn Harðar Bragasonar
organista. Unglingakór kirkjunn-
ar syngur undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur. Kaffisamsæti
eftir guðsþjónustu í boði safnað-
arfélagsins og sóknarnefndar.
Kórarnir flytja dagskrá.
HJALLAKIRKJA: Sameiginleg
guðsþjónusta Hjalla- og Digra-
nessafnaðar verður í Digranes-
kirkju kl. 14. Prestar safnaðanna
þjóna ásamt sr. Magnúsi Guð-
jónssyni. Kaffi í safnaðarheimili
Digraneskirkju eftir guðsþjón-
ustuna.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Elín Jónsdóttir og
Valdimar Lárusson lesa ritn-
ingarlestra. Sr. Stefán Lárusson
þjónar fyrir altari ásamt sóknar-
presti. Kirkjukór Kópavogskirkju
syngur. Organisti Örn Falkner.
Kaffi í safnaðarheimilinu Borg-
um eftir guðsþjónustuna í boði
Vinafélags Kópavogskirkju.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Árni Pálsson, fyrrverandi
sóknarprestur, prédikar. Kirkju-
kaffi eftir guðsþjónustuna.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Messa kl.
14. Fermd verða: Borgný Har-
aldsdóttir, Smárarima 14 og
Helga Dagbjört Kristjánsdóttir,
Kleppsvegi 66. Organisti Pavel
Smid. Sr. Bryndís Malla Elídóttir
þjónar í forföllum safnaðar-
prests.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur í dag kl. 10.30 og kl. 14.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa í dag kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87:
Messa í dag kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa í dag 10.30.
KARMELKLAUSTUR, Hafnar-
firði: Messa í dag kl. 8.30.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu
7: Messa í dag kl. 10.
KLETTURINN: Kristið samfélag,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði.
Samkoma sunnudag kl. 16.30.
Jón Þór Eyjólfsson prédikar.
Barnastarf á meðan á samkomu
stendur. Allir velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauð-
arárstíg 26, Reykjavík. Guðs-
þjónusta í kvöld kl. 20. Prestur
sr. Guðmundur Örn Ragnars-
son.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8.
Almenn samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ásmundur Magnússon.
Fyrirbænaþjónusta/bænaklútar.
Allir hjartanlega velkomnir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Finnskur stúlknakór
syngur við guðsþjónustuna.
Aldraðir sérstaklega boðnir vel-
komnir. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14. Öldruðum
sérstaklega boðið í kirkju og til
kaffisamsætis í Gaflinum. Prest-
ur sr. Þórhildur Ólafs. Organisti
Natalía Chow. Veislustjóri í Gafl-
inum: Sveinn Guðbjartsson.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sigurður Ragnars-
son, guðfræðinemi prédikar.
Kór eldri borgara „Vorboðamir"
koma í heimsókn og syngja
nokkur lög undir stjórn Páls
Helgasonar. Jón Þorsteinsson.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Félags
aldraðra á Suðurnesjum syngur
undir stjórn Agotu Joó. Kleinur
og kaffisopi í safnaðarheimilinu
að athöfn lokinni. Aldraðir sér-
staklega boðnir velkomnir. Bald-
ur Rafn Sigurðsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Hátíðar-
messa kl. 14. Altarisganga.
Helgistund á Garðvangi kl.
15.30. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISPRESTAKALL:
Guðsþjónusta kl. 11 á Heilsu-
stofnun NLFÍ. Susuki nemendur
Tónskóla Sigursveins leika í at-
höfninni. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 14.
Eldriborgarar í Garðabæ koma
í heimsókn. Kaffiveitingar að lok-
inni messu. Sóknarprestur.
ODDAPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Oddakirkju kl. 14 á
vegum ellimálanefndar Rangár-
vallaprófastsdæmis. Séra
Sváfnir Sveinbjarnarson pró-
fastur prédikar. Eldri borgarar í
prófastsdæminu sérstaklega
boðnir velkomnir. Að guðsþjón-
ustu lokinni býður héraðsnefnd
Rangárvallaprófastsdæmis
kirkjugestum til kaffidrykkju og
skemmtidagskrár í Hellubíói.
Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestm.eyjum:
Guðsþjónusta kl. 14. Eldri borg-
arar lesa texta og bænir en ung-
menni úr Tónlistarskóla Vest-
mannaeyja leika á hljóðfæri. Að
messu lokinni býður Kvenfélag
Landakirkju eldri borgurum í
messukaffi í safnaðarheimilinu.
Boðið upp á akstur frá Hraun-
búðum.
HVAMMSTANGAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Eldri borg-
arar aðstoða við helgihaldið
með upplestri úr Ritningunni.
Kirkjukór Hvammstanga syngur
undir stjórn Helga S. Olafsonar,
organista. Guðsþjónusta á
Sjúkrahúsinu kl. 15.15. Sr. Ág-
úst Sigurðsson messar. Söng-
fólk úr kór Víðidalstungukirkju
syngur undir stjórn Guðmundar
St. Sigurðssonar, organista.
Kristján Björnsson.
TJARNARKIRKJA: Almenn
guðsþjónusta kl. 17. Sameigin-
leg með Vesturhópshóla- og
Breiðabólsstaðarsóknum. Sér-
staklega beðið fyrir vorkomunni.
Kristján Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukaffi
í safnaðarheimili eftir messu.
Aldraðir sérstaklega boðnir vel-
komnir. Björn Jónsson.
Ferming
8. maí
Ferming í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. Prestur sr. Bryndís Malla
Elídóttir. Fermdar verða:
Borgný Haraldsdóttir,
Smárarima 14.
Helga Dagbjört Kristjánsdóttir,
Kleppsvegi 66.
Ferming í Torfastaðakirkju i
Skálholtsprestakalli kl. 11. Prest-
ur sr. Guðmundur Óli Ólafsson
Fermdur verður:
Rúnar Bjarnason,
Brautarhóli, Biskupstungum.
Eru bæði stærðfræði-
kennarar og prófsemj-
endur á villigötum?
Nútíma skattkerfi?