Morgunblaðið - 23.05.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.05.1998, Qupperneq 1
144 SÍÐUR B/C/D/E/F STOFNAÐ 1913 114. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Talið víst að samkomulag um framtíð N-Irlands hafí verið samþykkt í gær Einungís óvissa um afstöðu sambandssinna Belfast. Morgunblaðið. ÚTGÖNGUSPÁR í gærkvöldi bentu til þess að 70-75% kjósenda í sögu- legri þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð N-írlands í gær hefðu samþykkt tillöguna sem kosið var um. Metþátttaka var í kosningunum, á milli 80 og 90% kjósenda neyttu kosningaréttar síns. Einnig var kosið sunnan landamæranna og er þetta í fyrsta skipti síðan 1918 sem íbúar eyjunnar Irlands greiða atkvæði um sama efni, en eyjunni var skipt upp í tvö ríki árið 1920. Á kjörskrá á Norður-írlandi voru 1,2 milljónir manna. Kjör- stöðum var lokað kl. tíu í gærkvöld og í nótt voru kjörkassar fluttir úr kjördæmunum til Belfast þar sem þeim hefur verið safnað saman á einn stað. Hefst talning atkvæða klukkan níu í dag og er stefnt að því að úrslit verði kunn upp úr þrjú að íslenskum tíma. Mikils léttis gætti er ljóst var hve mikið fylgi er við samninginn og lýsti Paul Bew, prófessor við Queens-háskólann, að andrúmsloftið gæfí til kynna að stríðið væri búið. Á kjörstað í suðurhluta Belfast, í hverfí sem nánast eingöngu er byggt sambandssinnum, var verið að fjarlægja auglýsingu til stuðnings samningnum þegar Morgunblaðið bar þar að garði og hópur ungra bama hrópaði ókvæðisorð að flutn- ingamönnum. „Segjum nei!“ voru skilaboð þeirra, en stjórnmálaskýrendur áttu hins vegar í gærkvöld von á því að meirihluti íbúa myndi í raun segja já og að samningurinn yrði samþykkt- ur með 65-75% fylgi. Ró hafði ann- ars færst yfír Belfast í gær eftir harðvítuga kosningabaráttu undan- farinna daga. Tækifæri til að kjósa í ró og næði Kosningaþátttaka var einnig góð sunnan landamæranna, en á Irlandi kýs almenningur um það hvort rétt sé að fella úr gildi stjórnar- skrárákvæði, sem gerir kröfu til alls landsvæðis eyjunnar írlands, og við- urkenna um leið bresk yfirráð á N- írlandi. Mary McAleese, forseti Ir- lands, sem fædd er og uppalin á Norður-írlandi, var á meðal þeirra fyrstu sunnan landamæranna sem greiddu atkvæði og norður-írskir stjórnmálamenn voru einnig snemma á ferðinni. John Hume, leiðtogi stærsta flokks kaþólikka (SDLP), sagði við blaðamenn í heimaborg sinni, Derry, að atkvæðagreiðslan mark- aði söguleg tímamót fyrir íbúa eyj- unnar írlands, því að í fyrsta skipti myndu þeir lýsa einni röddu stuðn- ingi sínum við nýtt stjórnskipulag. Ian Paisley, sem stýrt hefur and- stöðu gegn samningnum, kaus í aust- urhluta Belfast og sagðist við það tækifæri ánægður með að venjulegt fólk á N-Irlandi fengi loksins tækifæri til að kjósa í ró og næði samkvæmt bestu samvisku. „Ég er sannfærður um að mikill meirihluti sambandssinna mun segja nei.“ Vonast eftir 70% fylgi við samninginn Atkvæðagreiðslan í dag snýst í rauninni ekki um það hvort samning- urinn verður samþykktur því sú nið- urstaða liggur fyrir eftir öllum sólar- merkjum að dæma. Hitt skiptir miklu máli hversu mikið fylgi samn- ingurinn fær meðal sambandssinna sem hafa verið á báðum áttum. David Trimble hefur reynt að sannfæra þá um að kostir samkomu- lagsins séu fleiri en gallarnir. Hann hefur tekið pólitíska áhættu með málflutningi sínum og það er mat stjórnmálaskýrenda að hljóti samn- ingurinn ekki um 70% fylgi sé staða Trimbles afar erfíð, enda er þá augljóst að minna en helmingur sambandssinna hefur veitt samn- ingnum stuðning sinn. Afleiðing þess yrði sú að erfítt gæti reynst að hrinda ákvæðum samningsins í framkvæmd, því andstæðingar samningsins myndu án nokkurs vafa beita sér gegn því. Kosið um/47 33 farast í jarð- skjálfta í Bólivíu La Paz. Reuters. AÐ MINNSTA kosti 33 fórust og um 100 er saknað eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir Mið-Bólivíu í gær. Ottast er að tugir manna séu grafnir í rústum heimila sinna eft- ir skjálftann, sem varð fyrir dögun og mældist 6,8 stig á Riehter. Flestir hinna látnu bjuggu í bænum Aiquile en einnig hafa fundist lík í Totora, skammt frá. Bæirnir eru um 250 km austur af höfuðborginni La Paz. Svæðið er fremur strjálbýlt og vegir þangað lokuðust í skjálftanum. Flest hús- in í Totora og Aiquile eru hlaðin og hrundu til grunna. Hefur inn- anríkisráðherra Bólivíu lýst yfir neyðarástandi. Skjálftinn í gær var einn sá öflugasti sem mælst hefur í Bólivíu um langt skeið en hann varð í yfir- borði jarðskorpunnar og því olli hann miklu tjóni. Árið 1994 reið hins vegar yfir í Bólivíu einn öflug- asti jarðskjálfti sem mælst hefur, en hann var djúpt í iðrum jai’ðar og olli því minna tjóni, þótt hans yrði vart allt norður til Kanada. Reuters ÞESSAR glaðbeittu kaþólsku stúlkur í Belfast hvöttu landa sína til að samþykkja friðarsamkomulagið í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. Getuleysislyfíð Viagra Sex dauðs- föll í at- hugun Washington. Reuters. SEX menn hafa látist eftir að hafa tekið inn getuleysislyfið Viagi’a en ekki er þó enn ljóst hvort það olli dauða þeirra. Talsmaður bandaríska lyfja- eftirlitsins sagði í gær, að það og framleiðandinn, Pfizer, væru að kanna hvað hefði orðið mönnunum að aldurtila. Tals- maður Pfizer benti hins vegar á, að nokkuð á aðra milljón manna hefði notað lyfið og flestir væru þeir á miðjum aldri og eldri. Á umbúðum um lyfið er tekið skýrt fram, að karlmenn, sem taka inn nítróglyserín eða skyld efni vegna hjartasjúkdóma, megi ekki nota Viagra og Pfízer hefur nú ítrekað þessa viðvörun. Rannsóknin á dauða mannanna sex beinist ekki síst að því hvort um hafi verið að ræða eihhverja óæskilega lyfja- samverkun. Lítið breytt ríkisstjdrn tekur við völdum í Indónesíu Reuters NÁMSMENN sýndu friðarmerki er indónesíski herinn rak þá út úr þinghúsinu í Jakarta í nótt. Habibie heitir umbótum Jakarta. Reuters. JUSUF Habibie, nýr forseti Indó- nesíu, kynnti nýja „umbóta“-ríkis- stjóm í gær, en uppskar með því lítil viðbrögð með þjóðinni, sem er búin að fá sig fullsadda á hinni efna- hagslegu og þjóðfélagslegu óreiðu sem ríkir í landinu. Indónesíski her- inn rak fjölda námsmanna á brott úr þinghúsinu í nótt, þar sem þeir höfðu verið í á sjötta sólarhring. Ekki kom til átaka en hópar náms- manna héldu setuverkfallinu áfram fyrir framan þinghúsið. Amien Rais, helzti leiðtogi lýð- byltingarhreyfingar gegn Suharto- stjóminni, sem hafði hótað að siga milljónum manna út á göturnar fyrr í þessari viku til að flæma Suharto frá völdum, sagðist vera hlutlaus í garð nýju stjórnarinnar. Yfirmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sögðu í gær að einn aðalráðgjafi hans í málefnum Indónesíu yrði sendur þangað innan viku. Svo virtist sem baráttuandinn hefði heldur betur sljákkað í náms- mönnunum við tilkynninguna um stjórnarskiptin. Það voru fjöldamót- mæli námsmanna sem hrintu þeirri atburðarás af stað, sem í fyrradag endaði með afsögn Suhartos, eftir 32 ár á valdastóli. Mótmælum haldið áfram Talsmenn námsmannanna sögðu í gær að þeir myndu ekki hætta mót- mælaaðgerðum sínum í þinginu fyrr en Habibie færi frá og „raunveru- legar“ umbætur ættu sér stað, en Habibie var varaforseti Suhartos og er gamall samherji hans. Gagnmótmæli stuðningsmanna Habibies við þingið stefndu í að valda slagsmálum i gær, en her- menn skildu hópana að og menn héldu ró sinni. Dóttir Suhartos, sem hann hafði skipað í ríkisstjórnina fyrr á árinu eftir að hann hafði gengið frá end- urkjöri sínu til setu á forsetastóln- um fimm ár til viðbótar, var svipt ráðherraembætti sínu og tveir aðrir fjölskylduvinir einnig, en ekki var hróflað við flestum lykilmönnum stjómar Suhartos. En Habibie lýsti því yfir að hin nýja 36 manna ríkis- stjóm sín helgaði krafta sína „um- bótum og þróun“. ■ Spjótin standa/26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.