Morgunblaðið - 23.05.1998, Side 75

Morgunblaðið - 23.05.1998, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 73 v Píanótónleikar á Ísafírði HESTAR Fram- kvæmt * fyrir Is- landsmót UNDIRBÚNINGUR fyrir ís- landsmótið í hestaíþróttum er að komast í fullan gang að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu Dreyra á Akranesi og nágrenni. Mótið verð- ur sem kunnugt er haldið 24. til 26. júlí nk. Nú standa yfir fram- kvæmdir við nýjan fjölnota völl sem staðsettur er sjávarmegin við hesthúsahverfið á Æðarodda en einnig er unnið við endurlagningu skeiðvallar í landi félagsins í Barðanesi rétt innan við Æðar- odda. Formaður félagsins, Ragn- heiður Þorgrímsdóttir, telur að hitasóttin muni ekki hafa nein áhrif á þátttöku í mótinu og minnt er á að Hvalfjarðargöngin verði komin í notkun þegar mótið fer fram. ----------- Hugað að vali landsliðs fyrir NM ‘98 SIGURÐUR Sæmundsson hefur verið ráðinn landsliðseinvaldur í hestaíþróttum fyrir Norðurlanda- meistaramótið sem haldið verður á Hedeland á Sjálandi í Danmörku 5. til 9. ágúst nk. Mun Sigurður al- farið sjá um val á landsliðinu fyrir mótið. Valið fer fram með þeim hætti að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til þátttöku á mótinu setja sig í samband við skrifstofu LH og mun Sigurður velja úr þeim hópi. Síð- asti frestur til að skrá sig er 5. júm' nk. Einnig verður sent lið ungmenna á mótið og mun unglinganefnd LH. sjá um val á þeirri sveit. ÞORSTEINN Gauti Sigurðsson heldur píanótónleika í tónleikasal Grunnskólans á Ísafirði í dag, laug- ardag, kl. 17. A efnisski'ánni eru nokkrar perl- ur píanóbókmenntanna. Fyrir hlé eru eingöngu verk eftir Chopin, m.a. valsar, Fantaisie-Impromptu og pólónesan í As-dúr. Eftir hlé eru þekkt lög eftir Prokofieff, Debussy, Rachmaninoff og Franz Liszt. Þorsteinn Gauti Sigurðsson lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík árið 1979 og stundaði framhaldsnám við Juilli- ard-tónlistarskólann í New York og Róm á Ítalíu. Þosteinn Gauti hefur komið víða fram á tónleikum, bæði hér heima og erlendis. Arið 1993 sigraði hann í Tónvakanum, tónlist- arkeppni Ríkisútvarpsins. Arið 1996 kom út hljómplata með leik Þor- steins Gauta. Hann kennir nú við Tónlistarskólann 1 Reykjavík. Tónleikarnir í kvöld eru haldnir á vegum Tónlistarfélags Isafjarðar. Aðgangsmiðar eru seldir við inn- ganginn og kosta kr. 1.200, en að- gangur er ókeypis fyrir nemendur Akvarðanatöku seinkað vegna ósættis MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd: „I tilefni af frétt í Ríkisútvarpinu þann 19. maí sl. vill Þorsteinn Njáls- son, heilsugæslulæknir, og oddviti B- lista Framsóknai-flokks í Hafnarfirði að eftirfarandi komi fram: Stjórn Heilsugæslustöðvarinnar í Hafnai-firði sér ástæðu til að senda út fréttatilkynningu vegna ummæla frambjóðenda Framsóknarflokksins varðandi Heilsugæsluna að Sólvangi á framboðsfundi í Ríkissjónvarpinu 17. maí síðastliðinn. Stjórn stöðvar- innar hreykir sér af því að hún sé ekki flokkspólitísk. Annað verður þó lesið úr fréttatilkynningu hennar. Fé er veitt á fjárlögum ár hvert fyrir framkvæmdum næsta árs. Þannig vai' fé veitt í innréttingar fyr- ir viðbótarhúsnæði fyrir heilsugæslu í Hafnarfirði á fjárlögum 1998. Það Tónlistarskólans 20 ára og yngri. 60. skólaslit og lokahátíð Tónlist- arskóla Isafjarðar verða í sal Grunnskólans á ísafirði sunnudag- inn 24. maí kl. 17. Flutt verða ávörp, skírteini afhent og verðlaun fyrir góðan árangur í vetur. Hljómsveit skólans flytur Barnasinfóníu eftir Josef Haydn, harmoníkusveit og lúðrasveit leika, barnakórinn syng- ur nokkur lög í tilefni vorkomunnar, kammersveit leikur foma dansa á gömul hljóðfæri, leikið verður fjór- hent á píanó og fiutt nýtt sönglag eftir Jónas Tómasson tónskáld, sem hann samdi í tilefni af drottningar- heimsókn nú nýverið. í vor lýkur 50. starfsári skólans og hafa tónleikar og viðburðir tengdir afmælinu verið á dag- skránni í vetur. Lokahátíðin á sunnudag er síðasti liðurinn í af- mælishaldinu í bili. Björn Teitsson, skólameistari og sagnfræðingur, hefur tekið saman allítarlegt ágrip af sögu skólans og Tónlistarfélags ísafjarðar í 50 ár og mun grein hans birtast í Ársriti Sögufélags ís- firðinga á þessu ári. er því rangt sem kemur fram í fréttatilkynningunni að ríkisvaldið hafi kippt að sér höndum með fé til verksins. Kjami málsins er þessi: Stjómendur stöðvarinnar hafa ekki getað komið sér saman um það með hvaða hætti hið nýja húsnæði skyldi notað. Þetta ósætti hefur leitt til þess að ákvarðanatöku hefur seinkað langt umfi-am það sem eðlilegt er. Lykilatriði hlýtur ávallt að vera það að heimamenn verði á eitt sáttir. Þess vegna getur það vart talist annað en óeðlileg yfirlýsing af hálfu stjórnar þegar hún reynir að beina athyglinni frá hinum raunvemlega vanda, þ.e. innra ósætti, og varpa ábyrgðinni yfir á ríkisvaldið. Það kallast að hengja bakara fyrir smið. Það er alvarlegur hlutur að opin- ber stofnun beiti útúrsnúningum í fréttatilkynningu sinni til að reyna að hafa áhrif á pólitískt framboð í Hafnarfirði." Virðingarfyllst, Þorsteinn Njálsson. FRÁ Islenska handverkshúsinu. Islenska hand- verkshúsið opnað VERSLUNIN íslenska handverks- húsið hefur verið opnuð í Lækj- argötu 4 í Reykjavík. Verslunin mun leggja áherslu á vandað vöraúrval og úrval af því besta í handverki, segir í fréttatil- kynningu. Ull, gler, keramik og skartgripir era dæmi um vörur sem íslenska handverkshúsið sérhæfir sig í. --------------- Billausir dagar í Hveragerði Á VEGUM verkefnis um heilsuefl- ingu var ákveðið að hafa bíllausa daga í Hveragerði í vor. Heilsuefl- ing í Hveragerði óskar eftir sam- stöðu Hvergerðinga og þátttöku í bíllausum dögum frá 25.-29. maí, þ.e. mánudegi til fóstudags að báð- um dögum meðtöldum. Kjörorð daganna verður: Göng- um inn í sumarið, hvflum bflinn eftir veturinn. „Við hvetjum alla Hvergerðinga til að takast á við þetta skemmtilega og heilsusamlega verkefni. Legðu bflnum þessa daga, gefðu þér aðeins meiri tíma til fararinnar og þú eflir heilsu þína um leið og þú gengur eða hjólar allra þinna ferða í bæn- um okkar,“ segir í frétt frá fram- kvæmdastjórn Heilsueflilngar í Hveragerði. Opið hús í Lyngási FJÖRUTÍU ár voru liðin 23. maí sl. frá stofnun Styrktarfélags vangef- inna. Eitt af fyrstu verkefnum félagsins var að stofna dagheimili fyrir vangefm börn. Upphaflega var starfsemin í leiguhúsnæði en byrjað var á byggingu Lyngássheimilisins 1960. Starfsemin hófst í húsinu 1961. Alla tíð síðan hefur Lyngás þjónað fótluðum bömum og fjölskyldum j þeirra og verið í fararbroddi hvað ; varðar nýjungar í þjálfun og umönn- un fatlaðra, segir í fréttatilkynningu. í tilefni þessara tímamóta í sögu félagsins verður „opið hús“ í Lyngási, Safamýri 5 í dag 23. maí kl. 14 og 17. Öllum vinum og velunnur- um Lyngássheimflisins er boðið að líta inn, skoða sig um og þiggja veit- ingar. ----------------- Hana-nú heimsækir flokkana Á UNDANFÖRNUM áram hefur gönguklúbbur Hana-nú sett svip t sinn á bæjarbraginn í Kópavogi að *■ morgni kosningadags með því að j heimsækja kosningaskrifstofur list- >' anna. Þessari venju verður viðhaldið í ár. Lagt verður af stað frá Gjábakka kl. 10 í dag. Það eru allir velkomnir með í för. + wmmgmm ________________i L il » ’ | ad beiiDcm Á feröalagi erlendis er mikilvægt aö geta veriö í góðu GSM sambandi. Alþjóölegir samningar Símans viö erlend símafyrirtæki tryggja aö þú ert í góöu GSM sambandi hvort sem leiöin liggur til Parísar, New York eöa Hong Kong. Vinnan og heimilið eru því aldrei nema í símtalsfjarlægö. Andorra Italía Svíþjóð Austurríki Lettland Tékkland Bandaríkin* Litháen Tyrkland Belgía Lúxemborg Tævan Bretland Malasía Ungverjaland Búlgaría Malta Þýskaiand Danmörk Noregur Eistland Portúgal Finnland Pólland Frakkland Rúmenia Gíbraltar Rússland Grikkland Slóvakía Holland Slóvenía Hong Kong Spánn írland Sviss * Nota jjart sérstaka terjund GSM farsíma scm gerðir eru fyrir 1900 Mh/ kerfi og vcrða til leírju hjá Símanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.