Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 1
STOFNAÐ 1913
288. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Breskar og bandarískar hersveitir gera loftárásir á skotmörk í Irak
Clinton segir Iraka hafa
fyrirgert lokatækifæri sínu
Markmið árásanna að ráðast á
skotmörk tengd kjarnorku-, sýkla-
og efnavopnaframleiðslu
Bagdad, Washington, London. Reuters.
HERIR Bandaríkjanna og Bretlands hófu umfangsmiklar loftárásir á
skotmörk í Irak klukkan tíu í gærkvöldi en fyrr um daginn höfðu vopna-
eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna verið kallaðir heim þar sem þeir höfðu
ekki fengið að sinna störfum sínum óáreitth-. í sjónvarpsávarpi í
gærkvöldi sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti að markmið árásanna væri
að ráðast á skotmörk er tengdust kjarnorku-, sýkla- og efnavopnafram-
leiðslu Iraka sem og að draga úr getu þeirra til að ógna nágrannaríkjun-
um. Þegar hætt hefði verið við árásir á Irak í síðasta mánuði hefði stjórn-
völdum í Irak verið veitt tækifæri. Það tækifæri hefði ekki verið nýtt.
Tony Blair, forsætisráðhen-a
Bretlands, nefndi árásina „Aðgerð
eyðimerkurref* í ávarpi sem hann
flutti fyrir utan Downingstræti 10.
„Við höfum fullreynt allar leiðir,“
sagði Blair. Þátt Breta í árásinni
sagði hann veigamikinn og sakaði
Saddam Hussein, forseta íraks, um
„stöðugar lygar, undanbrögð og
brot á gerðum samningsákvæðum".
„Við áttum einskis annars kost en
að láta vopnin tala,“ sagði Blair.
Arásirnar væru gerðar til þess að
minnka möguleika Saddams
Husseins til að byggja upp vopna-
búr gereyðingarvopna og beita
þeim. Iraksforséti „ógnar öryggi
heimsins," sagði Blair.
Blair kallaði Saddam Hussein
„raðbrotamann orða sinna“, en hann
tók skýrt fram að Bretar ættu ekki í
neinum erjum við írösku þjóðina og
reyndu allt sem þeir gætu til að
forðast að óbreyttir borgarar yrðu
fyrir árásunum.
Blair sagði að heimildir Iraka til
að selja olíu til að fjármagna kaup á
lyfjum og matvælum hefðu átt að
duga fullkomlega til að halda hungri
og hörmungum frá íbúum landsins,
en það væri val stjórnarherranna í
Bagdad að sinna ekki þörfum
íbúanna heldur nota allt tiltækt fé til
að reyna að byggja upp herstyrk
sinn.
Árásum lokið fyrir helgi?
Tuttugu mínútur yfir níu í
gærkvöldi voru loftvarnasírenur
þeyttar í Bagdad og um hálftíma
síðar hófu loftvarnabyssur skothríð
upp í næturhimininn. í kjölfarið
heyrðust háværar sprengingar.
Heimildir sjónvarpsstöðvarinnar
CNN herma að líklegt sé að árásirn-
ar vari í 2-3 daga. Líklegt er talið að
árásunum Ijúki fyrir helgi, enda tók
Clinton fram í sjónvarpsávarpi sínu
að tímasetning árásarinnar hefði
meðal annars ráðist af því að föstu-
mánuður múslima, ramadan, hæflst
þá.
Clinton sagði einnig í ávarpinu að
tilgangur árásanna væri að verja
bandaríska þjóðarhagsmuni, sem og
hagsmuni þjóðanna í Miðaustur-
löndum og öllum heiminum. Ekki
megi leyfa Saddam Hussein að ógna
nágrannaríkjum íraks með kjarn-
orkuvopnum, eiturgasi eða sýkla-
vopnum.
Clinton sagði Saddam Hussein
hafa tilkynnt fyrir sex vikum að
hann myndi hætta öllu samstai-fl við
vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna. Hlutverk þeirra væri að
hafa eftirlit með því að Irak reyni
ekki að byggja aftur upp ger-
eyðingavopnabúr. „Alþjóðasam-
félagið var í litlum vafa þá, og er
ekki í neinum vafa í dag, að án virks
eftirlits mun Saddam Hussein nota
þessi hræðilegu vopn á ný,“ sagði
Clinton. I október hefði öryggisráð
SÞ samþykkt samhljóða fordæm-
ingu á ákvörðunum Iraksstjórnar og
krafíst þess að hún hlítti kröfum
alþjóðasamfélagsins. Atta arabískar
nágrannaþjóðir Iraka ályktuðu sam-
eiginlega að kæmi til hernaðarað-
gerða gegn Irak væri það algerlega
á ábyi'gð Iraksstjómar, sagði Clint-
on. „Ég ákvað þá að aflýsa árásinni
eftir að flugvélar okkar voru þegar
komnar á loft þar sem Saddam hafði
látið undan kröfum okkar. Ég taldi
að þá væri rétt að sýna biðlund og
gefa Saddam eitt lokatækifæri til að
sanna samstarfsvilja sinn,“ sagði
Clinton. Irakar hefðu hins vegar
fyrirgert því lokatækifæri.
Bandaríkjamenn eru með 201
herflugvél, m.a. 15 sprengjuflugvél-
ar af gerðinni B-52, og 22 herskip á
Persaflóasvæðinu.
Frakkar og Kínverjar
fordæma árásina
Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna
sat á neyðarfundi til að ræða skýrslu
Richards Butlers, yftrmanns vopna-
eftirlitsnefndar SÞ, þegar fregnir af
árásinni bárust. Rússar, Frakkar og
Kínverjar, sem eiga fastafulltrúa í
ráðinu, höfðu áður krafist þess að
öryggisráðið yrði að samþykkja all-
ar aðgerðir gegn Irak. Bandaríkja-
menn og Bretar voru hins vegar
þeirrar skoðunar að þeir gætu
gripið til aðgerða á grundvelli fyrri
yfirlýsinga ráðsins.
Fjrrir fundinn hafði Nizar
Hamdoon, sendiherra Iraka hjá SÞ,
rætt við Kofí Annan, framkvæmda-
stjóra SÞ og hvatt hann til gera allt
„sem í valdi hans stæði“ til að koma
í veg fyrir aðgerðir án samþykkis
öiyggisráðsins.
Upp úr fundinum slitnaði er frétt-
ist af loftárásunum og var Annan
þungur á brún er hann gekk af
fundi. Neitaði hann að tjá sig við
Reuters
OFLUGAR sprengingar lýstu upp næturhimininn yfír Bagdad og víða mátti sjá reykbólstra stíga til himins.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti flutti ávarp í Hvíta húsinu og Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, ávarpaði fréttamenn í Downingstræti.
LIBANON
Beirút* _ ,
^Damaskus
ÍSRAEL ' ■ ■■ ■' \
Jerúsalem * * Amman ,
SÝRLAND }
V
-T. c Arbil \
Mosul® • 36°N
I R A K
Bagdaa
V
r
i,
\
Teheran *
I R A N
33N
\
Sínaí
JORDÁNIA
.V \>
Nasiriyah*
SADI-ARABIA
L
Basra
/kúVEIT
Persaflói
blaðamenn en Qin Huasen, sendi-
herra Kína, sem greinilega var mik-
ið niðri fyrir, sagði árásirnar á Irak
vera óverjandi. „Valdbeitingin hefur
alvarleg áhrif á framkvæmd álykt-
ana öryggisráðsins og ógnar sömu-
leiðis alþjóðlegu og svæðisbundnu
öryggi,“ sagði Qin.
í yfirlýsingu, sem ríkisstjórn
Frakklands sendi frá sér í
gærkvöldi, eru árásirnar fordæmdar
harðlega og því lýst yfir að þær geti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
íraskan almenning.
■ Vopnaeftirlitsmennirnir/26
Atkvæða-
greiðslu
frestað
Washington. Reuters.
TIL STÓÐ að fulltrúadeild
Bandaríkjaþings tæki í dag til
umræðu hugsanlega málshöfðun
á hendur Clinton, en dómsmála-
nefnd fulltrúadeildarinnar
samþykkti fyn- í vikunni fjögur
ákæruatriði á hendur forsetan-
um. Leiðtogar repúblikana
sögðu hins vegar að til greina
kæmi að fresta um sinn at-
kvæðagreiðslu um málshöfðun
vegna Iraksdeilunnar.
„Það væri ankannalegt að
halda atkvæðagreiðslu um máls-
höfðun á sama tíma og verið er
að gera loftárásir á Irak,“ sagði
Henry Hyde, formaður dóms-
málanefndarinnar að loknum
fundi með leiðtogum repúblik-
ana í gærkvöldi.
Bob Livingston, verðandi for-
seti fulltrúadeildarinnar, sagði á
blaðamannafundi í nótt að at-
kvæðagreiðslan „færi örugglega
fram einhvern næstu daga“.
Aðrir repúblikanai- héldu þó
áfram gagnrýni sinni á forset-
ann. „Það er vægast sagt grun-
samlegt að svona skuli gerast
samtímis og atkvæðagreiðsla
um málshöfðun vofir yfir,“ sagði
þingmaðurinn Bob Barr. Hyde
sagðist hins vegar ekki trúa því
að tímasetning árásanna hefði
ráðist af þróun af mála í þinginu.
■ Ráðaleysi/24