Morgunblaðið - 17.12.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 23
ÚR VERINU
Birgðir ekki
vandamál
Á MEGINLANDI Evrópu stefnir
víða í vandræðaástand vegna lítillar
sölu matvæla til Rússlands og Asíu.
Birgðageymslur hafa fyllst og
geymslurými, t.d. fyrir frystar sjáv-
arafurðir, er af mjög skornum
skammti. Hér heima segjast menn
ekki eiga við sama vanda að stríða.
,Ástæða þess að geymslur fyllast
annars staðar í Evrópu er aðallega
dræm sala allra matvæla, ekki bai'a
físks, á Rússlandsmarkað," segir
Rristján Hjaltason, framkvæmda-
stjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna. „Sem slíkt snerth' þetta ástand
okkur ekki. Salan hefur verið góð
síðustu vikur og lítur betur út en fyr-
ir tveim mánuðum.“ Vel hefur selst
af okkar afurðum til Japans í ár, en
þar hafa kaupendur aðallega haldið
að sér höndum í dýrari tegundum.
„Hvað Evrópumarkaðinn varðai- er
hann rólegur um þessar mundir og
hefur verið í haust,“ segir Kristján
og telur skýringuna vera að verð-
hækkanir undangenginna missera
hafi verið að skila sér út í verðlagið
og neytendur að meta stöðuna. Að
auki sé Bandaríkjamarkaður sterkur
og frystar afurðir SH seljist vel þar.
Pétur Isleifsson, framleiðslustjóri
hjá Islenskum sjávarafurðum hf.,
segir að mönnum sé kunnugt um
vandræði vegna skorts á geymslu-
rými á meginlandinu. Pau hafí hins
vegar engin áhrif á útflutning
fyrstra afurða frá IS. „Petta er að-
allega vegna ástandsins í Rússlandi
og á við um allan vöruinnflutning
þangað. Menn eru í vandræðum
með að taka við vörum. Við höfum
t.d. heyrt af fyrirtækjum á Ham-
borgarsvæðinu sem leitað hafa
geymslurýmis í Suður-Þýskalandi.“
---------------
Fjórir sviptir
veiðileyfi
FISKISTOFA svipti fjóra báta veiði-
leyfi tímabundið í nóvembermánuði
vegna brota á fiskveiðilöggjöfinni.
Þeh' hafa allh' fengið leyfið að nýju.
Pétur KE 47 var sviptur veiði-
leyfi í hálfan mánuð fyrir að róa
einn sóknai'dag umfram leyfilegan
fjölda slíkra daga. Far GK 147, Gaui
gamli VE 6 og Emma II SI 164
voru sömuleiðis sviptir veiðileyfi í
hálfan mánuð, þar sem ekki voru
gerð fullnægjandi skil á afladagbók-
um bátsins.
------♦♦♦-----
Afli Letta
eykst um 9%
HEILDARAFLI Letta úr sjó jókst
um 9,4% fyrstu níu mánuði þessa
árs, borið saman við sama tímabil í
fyi-ra, og var 77.000 tonn að því er
Worldfísh Report greinir frá. I Mið-
og Austur-Atlantshafi jókst aflinn
um 16% og var 18.300 tonn og á
N orðaustur-Atlantshafsmiðum
jókst hann um 9,4% og var 931 tonn.
Afli Lettlands í Eystrasalti var
57.300 tonn og jókst um 7,4% miðað
við tímabilið janúar til september í
fyrra.
Gæðavottun
ISO 9001 - ISO 9002 - ISO 14001
ð k i m a
3 mánaða Intemetáskrift
hjá Skímu
Huqbúnaður: Windows 98
Msword 97 - Ms Works 4.0
Hugbúnaður: Windows 98
Ms word 97 - Ms Works 4.0
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Skipholti 17-S. 530 1800
Þjónusta í 25 ár
Allar vélar með
Skjár 17"
Vinnsluminni 64mbSDRAM
Móðurborð Intel LX kubbasett
Harður diskur 4,3 GB Ultra DMA/33
Skjákort 8MBAGP-3D
Hljóðkort PCI-168
Hátalarar 60WFujitsu
Geisiadrif [)vd verðlaunadrif
Mótald 56,6 BPS V90 voice
Disklingadrif 3,5" 1,44mb
Annað Hljóðnemi oq ísl. lyklaborð
Atn. lyklaborð m/tlýtirofum er
aukabúnaður á mynd.
Skjár 17"
Vinnsluminni 64mbSDRAM
Móðurborð Intel BX kubbasett 100MHz
Harður diskur 4,3 GB Ultra DMA/33
Skjákort 8MBAGP-3D
Hljóðkort PCI-338-A3D
Hátalarar 60WFujitsu
Geisiadrif p\/[) verðlaunadrif
Mótald 56,6 BPS V90 voice
Disklingadrif 3,5" l,44mb
Annað Hljóðnemi og ísl. lyklaborð
Atn. lyklaborð m7rlýtirofum er
aukabúnaður á mynd.