Morgunblaðið - 17.12.1998, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HEIMABIO
Nýjasta og fullkomnasta tækni á einstöku verði!
Valiö tæki ársins
1999
„What video"
Super-5 Digital Blackiine
myndlampi
6 framhátalarar
2 bassatúbur
2 bakhátalarar
Öflugur miðjuhátalari
2 Scarttengi að aftan,
Super VHS (DVD) og
myndavélatengi að framan
Glæsilegur skápur
á hjólum með innbyggðum
miðjuhátalara
TOSHIBA
heimabíósprengjan
DF 2857 kostar aðeins
Kr. 113.400 stgr.
með þessu öllu II
TOSHIBA Pro-Logic tækin
eru magverðlaunuð at
tækniblöðum í Evrópu og
langmest seldu tækin í Bretlandi!
TOSHIBA ERU FREMSTIR í TÆKNIÞRÓUN
Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins -
DVD mynddiskakerfisins og Pro-drum myndbandstækjanna
Onnur TOSHIBA 28" tæki
kosta frá kr. 66.51 Ostgr.
ÖOÍ.BY ÍIURKÖUNO
FAÐU ÞER FRAMTIÐARTÆKI HLAÐIÐ OLLU ÞVIBESTA
ÞAÐ BORGAR SIG!
Einar
Farestveit & Cohf
Borgdrtúni 28 S: S6Z 2901 og 562 2900
ERLENT
40 ríki ræða uppbyggingnna í Bosníu
Samþykkja áætl-
un til að tryggja
varanlegan frið
Madrid. Reuters.
RÚMLEGA 40 ríki, sem hafa fjár-
magnað uppbygginguna í Bosníu,
samþykktu ýtarlega áætlun um að-
gerðir til að tryggja varanlegan frið í
landinu á fundi í Madrid í gær.
Fulltrúar ríkjanna komu saman í
þriðja sinn frá lokum Bosníustríðsins
á árunum 1992-95 og samþykktu
áætlun sem miðar að því að binda
enda á deilur múslima, Serba og
Króata í landinu. Fulltrúarnir hvöttu
yfirvöld í Bosníu til að standa við
skuldbindingar sínar í Dayton-frið-
arsamkomulaginu til að greiða fyrir
því að hundruð þúsunda flóttamanna
gætu snúið aftur til fyrri heimkynna
sinna og aðstoða við að handtaka
menn sem ákærðir hafa verið fyrir
stríðsglæpi.
Hvatt til róttækra
efnahagsaðgerða
Ríkin vöruðu ennfremur við því að
uppbyggingarstarfið í Bosníu gæti
farið út um þúfur ef stjómvöld í
landinu gripu ekki til róttækra efna-
hagsaðgerða til að draga úr þörfinni
fyrir alþjóðlega aðstoð. Kostnaður
Vesturlanda af uppbyggingarstarf-
inu og tilraunum til að koma á varan-
legum friði í Bosníu er áætlaður um
9 milljarðar dala, andvirði 630 millj-
arða króna.
„Varanlegur friður í Bosníu og
Hersegóvínu er byrjaður að festa
rætur,“ sagði í lokayfirlýsingunni.
„Miklu verki er þó enn óloídð.“
Carlos Westendorp, sem hefur
stjórnað uppbyggingarstarfinu,
sagði þó að ríkin kynnu að geta
ákveðið eftir tvö ár að draga úr að-
stoðinni í áföngum ef áætlunin bæri
tilætlaðan árangur. Aður hafði Stro-
be Talbott, aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagt á fundin-
um að það væri „ótímabært, jafnvel
stórhættulegt“ að draga úr aðstoð-
inni strax.
Utanríkisráðherra Þjóðverja í Svíþjóð
Skjót stækkun
ESB ólíkleg
JOSCHKA Fischer, utanríkisráð-
herra Pýzkalands, segir að ekki einu
sinni Helmut Kohl, fyrrverandi
kanzlari, trúi því að hægt sé að
stækka Evrópusambandandið (ESB)
til austurs eins hratt og hann og
fleiri ráðamenn V-Evrópuríkja hafa
áður látið 1 veðri vaka. Þetta höfðu
sænsk dagblöð eftir Fischer í gær,
en hann kom í skyndiheimsókn til
Stokkhólms á þriðjudag.
Fischer lagði áherzlu á að þýzka
stjómin sé mjög áfjáð í að ríki Mið-
og Austur-Evrópu fái inngöngu í
ESB. „En það hefur ekkert upp á sig
að nefna í sífellu einhverjar draum-
sýnar-dagsetningar,“ sagði hann á
blaðamannafundi.
„Kanzlari vor fyrrverandi sagði að
Pólland gæti gengið í ESB árið 2000,
en enginn trúir því að það takist.
Enginn - ekki í Póllandi, ekki í
Þýzkalandi, ekki einu sinni Helmut
Kohl. Næst [þegar við nefnum
hvenær af inngöngu Mið- og Austur-
Evrópuríkja getur orðið] verður sú
dagsetning að vera raunhæf.“
Hann vísaði með þjósti á bug öllu
tali um að Þýzkaland stæði ekki heils
hugar að baki útvíkkun ESB til aust-
urs. „I umræðunni ber á efasemdum
um afstöðu okkar. Ég skil ekki hvers
vegna. Við vinnum af afli að stækk-
unarferlinu, án þess uppskæram við
óstöðugleika í Evrópu. Við viljum að
þau ríki sem eiga að fá inngöngu í
fyrstu lotu fái hana sem fyrst.“
Efst á dagskrá viðræðna Fischers
við sænska ráðamenn var það mál,
sem þýzka stjómin telur einnig að
muni skyggja á önnur á verkefnadag-
skrá ESB næsta hálfa árið, en það
em lokasamningaviðræður um lang-
tímafjárlagaramma sambandsins
(fyrir árin 2000-2006) og hvernig
fjármögnun þeirrs skuli skipt milli
aðildan-íkjanna fimmtán. Þýzkaland
og Svíþjóð era í hópi þeirra ríkja sem
vilja greiða minna í sameiginlega
sjóði ESB næsta fjárlagatímabil.
POLAR FLEECE BARNA KR. 3990
GALLAR KR. 5990
SNJÓBUXUR KR. 4990
POLAR FLEECE GALLI KR. 4490
SPAR SP0RT
TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI
NÓATÚN 17
AttilMÉHUU'
S. 511 4747
POLARTEC FLEECE NR. 6990