Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 36

Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Með gleðiraust og helgum hljóm TOIVLIST Geisladiskar JÓL, JÓL, SKÍNANDI SKÆR Karlakór Reykjavikur. Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson. Einsöngv- arar: Björk Jónsdóttir (sópran), Signý Sæmundsdóttir (sópran), Óskar Pétursson (tenór). Orgelleikari: Hörður Áskelsson. Trompetleikarar: Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson. Hljóðupptaka: Stúdíó Stemma/ Hljóðmeistari: Sigurður Rúnar Jónsson. 1998. Skífan ehf. MEÐ gleðiraust og helgum hljóm, fallegu og gömlu íslensku þjóðlagi - einraddað og án und- irleiks - hefst þessi ágæti hljómdiskur með jólalögum og lofsöngvum. Falleg byrjun á ágætlega velheppnaðri jóla- söngskrá. Karlakór Reykjavík- ur sýnir hér enn og aftur að hann er jafn góður í mildum og fáguðum söng sem þróttmiklum, gott jafnvægi milli radda - með fallegum bassa, heildarhljómur- inn oft líkur mögnuðu hljóðfæri. Það er athyglisvert að tveir bestu karlakórar landsins, Karlakór Reykjavíkur og Fóst- bræður, hafa báðir valið sér unga og vel menntaða stjóm- endur sem greinilega vinna mjög gott starf, ekki aðeins hvað snertir lagaval og sam- setningu söngskrár, heldur einnig það sem meira varðar, mjög fallegan og sterkt mótaðan söng. Karlakór Reykjavíkur hefur ekki oft sungið með jafn miklum og öguðum karakter og allra síðustu árin undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. A þessum hljómdiski eru 17 lög, þekkt og góð - og ágætlega niður raðað, sem fyrr segir. Signý Sæmundsdóttir syngur hér einsöng í Ave Maríu Schuberts (nr. 6) gullfallega; einnig í Friði á jörðu eftir Árna Thorsteinsson (nr. 11). Björk Jónsdótth' á hér mjög fínan ein- söng í La Vergine degli Angeli úr Valdi örlaganna (Verdi - nr. 7) og Ave Maríu Sigvalda Kaldalóns (nr. 10). Það er full ástæða til að vekja sérstaka at- hygli á þessari hlédrægu en frá- bæru söngkonu. Oskar Péturs- son er einsöngvari í Allsherjar Drottinn (Panis Angelicus eftir Cesar Franck - nr. 15) og 0, helga nótt (Adams - nr. 16). Oskar syngur fallega og með góðri tilfínningu. Og Hörður Askelsson leikur fallega á orgel (nema hvað!); og í síðasta lag- inu, Nú gjaldi Guði þökk, bæt- ast trompetleikaramir Asgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Orn Pálsson í hópinn, og munar um minna! Hljóðmeistarinn Sigurður Rúnar Jónsson (Stúdíó Stemma) hefur einnig unnið hér vel, allt vel hljómandi. Eindreg- ið mælt með þessum jólaglaðn- ingi! Oddur Björnsson Dauði og líf takast á BÆKUR Harnabók LJÓNIÐ, NORNIN OG SKÁPURINN Höfundur: C.S. Lewis. Þýðing: Krist- ín R. Thorlacius. Myndir: Pauline Baynes. Prentvinnsla: Oddi hf. Útgef- andi: Muninn bókaútgáfa. íslendinga- sagnaútgáfan 1998. 142 síður. SVO vinsæl er þessi bók, meðal íslenzkra unglinga, að frá 1984 er þetta fjórða sinn sem hún er rétt fram, og spá mín er, að enn þurfí prentvélar að snúast, því fá muni færri en vilja. Svo er um sögur, þá skáldfákurinn er tekinn til kost- anna, og Lewis kann þá list, svo Pegasus slær þann takt, með spori sínu, að hjörtu taka að slá hraðar af fögnuði. Hér segir frá fjórum bömum: Pétri, Súsönnu, Játvarði og Lúsíu, sem send eru frá Lundúnum á sveitasetur prófessors nokkurs. Það er sem sé stríð, sú brjálsemistíð, er fullorðnir eru að reyna að leysa deilumál sín með vopnaskaki. Setur prófessorsins er afskekkt, en slík gersemi, að fólk þyrpist þangað, til þess að fá að sjá lúin gólf og gamla veggi. Auk fræðaþularins eru þar í heimili ráðskona og þrjár vinnukon- ur, þið skiljið allt með hefðarbrag gærdagsins. Börnin koma auga á gamlan skáp. Hann verður þeim ekki aðeins leikfang, - felustaður, heldur slíkur töfragripur, að helzt er samlíkingar að leita í austur- lenzkum teppum í Þúsund og einni nótt. En stiklum nú gleitt. Börnin komast, með hjálp skápsins, í undraheim Jöðu drottningar, þar sem eilífur vetur ríkir. Hún ekur um á sleða sínum, nornar skömmin, heldur öllu í dauðakrumlu sinni, - ógnvekjandi flagð. Hún nær Ját- varði, elur á Tyrkjasælu, til að blekkja hann og villa dómgreind hans. En börnin kynnast fleiru, kynnast furðuverum úr hugarheimi manna, eins og vini Lúsíu fánanum Túmnusi; líka dulmögnum jarðar, og ekki skal dýrunum gleymt. Þið munið, þarna er snjór, og á slíkum stöðum er ekki furðulegt að rekast á jólasvein. Hann færir börnunum gjafír, er reynast, síðar, gulli betri, - lífgjafir. Klakaböndin, er tjóðra Narníu við illsku hinnar Hvítu drottningar, þrá hin góðu öfl að slíta, grípa land- ið í fangið og bera það út í sólskinið. Það tekst, því ljónið Aslan kemur til hjálpar. Nálægð þess vekur vor á jörðu, - réttir Narníu sumarskrúð- ann. Til þess þarf hann að gera samning við Hvítu drottninguna, - heita henni Játvarði, en fer í hans stað, tekst á við dauðadrottninguna og hefir sigur. Börnin ná heim í höll prófessorsins, og hlé verður á sögu um stund. Þetta er ekki aðeins ævintýri til skemmtunar, heldur starir sagan í augu lesandans og spyr: „Ertu herra þíns lífs eða hégómans þrælj?“ Holl lesning, hverjum sem er. Áminning um, að til sumars á jörðu þarf að vinna, fólk að velja sér vini í ljósuhlíðum tilverunnar. Þýðing ákaflega ljúf, á fögru máli. Myndir listagóðar. Prentverk vand- að. Þökk fyrir skemmtilega bók. Sig. Haukur Skegg og skalli! BÆKUR Harnabók INDJÁNINN í SKÁPNUM Höfundur: Lynne Reid Banks. Þýðing: Kristín R. Thorlacius. Myndir: Robin Jacques. Prent- vinnsla: Singapore. Útgefandi: Muninn bókaútgáfa íslendinga- sagnaútgáfan 1998. 166 síður. Robert Schumann TÖNLIST Guislaplötur FINNUR BJARNASON OG GERRIT SCHUIL Robert Schumann: 25 ljóðasöngvar: Zwölf Gedichte op. 35, Liederkreis op. 24, Fjórir söngvar við texta Heinrichs Heines. Einsöngur: Finnur Bjarnason. Píanóleikur: Gerrit Schuil. Útgáfa: Mál og menning MM 010. Lengd: 67’42. Verð: kr. 1.999 HIN árstíðabundna geislaplötu- útgáfa á klassískri tónlist á Islandi stendur með miklum blóma, bæði hvað varðar magn og gæði. Það séríslenska fyrirbæri að útgefend- ur bóka og geislaplatna taki mik- inn fjörkipp vikurnar rétt fyrir jól er að vísu mjög sérkennilegt og að mörgu leyti óheppilegt bæði fyrir útgáfufyrirtækin og flytjendur tónlistarinnar. Þannig er það eig- inlega fyrst og fremst undir að- gangshörku og skrumi auglýsinga- stofanna komið hvaða efni selst fyrir jólin og hvað ekki. Hætta er á því að margt úrvalsefni sem gefið er út nái ekki athygli neytendanna og verði hreinlega undir í sam- keppninni. Og er það miður. Ekki er úr vegi að benda útgefendum hljómplatna á þá nokkuð augljósu staðreynd að allir þeir tónlist- arunnendur sem fá geislaplötu í jólapakkann sinn eiga líka afmæl- isdaga sem dreifast nokkuð jafnt yfír árið! Ein þeirra geislaplatna sem ég óttast að fái ekki nægilega athygli í darraðardansi jólagjafainn- kaupanna er ný Schumann-plata þeirra Finns Bjarnasonar og Ger- rits Schuil. Mig skortir eiginlega orð til að lýsa hrifningu minni og aðdáun á Finni Bjarnasyni og túlkun hans á þessum snilldarlegu sönglögum Finnur Bjarnason Roberts Schumanns. En Finnur er ekki eini flytjandinn hér. Lítið væri varið í góðan söngflutning á ljóðasöngvum Schumanns ef pí- anóleikurinn næði ekki að tjá það sem tónskáldið ætlaði sér. Og það gerir hann. Gerrit Schuil spilar glæsilega píanóröddina með mik- illi nærfærni og fáheyrðum glæsi- brag. Milli einsöngvara og með- leikara ríkir fullkomið jafnræði eins og vera ber í þessum „pí- anistísku" sönglögum - hvorugur þeirra lítur á sig sem aðalmann. En það besta við þetta allt er að báðir flytjendur víkja fyrir mesta snillingnum, tónskáldinu Robert Schumann, sem er að sjálfsögðu í aðaihlutverki á þessari plötu. Þannig fara sannir listamenn að. Óskandi væri að slíkur hugsunar- háttur ríkti almennt í tónlistar- geiranum. Söngur Finns Bjarnasonar er ákaflega sannfærandi. Hann hefur óvenju hljómþýða rödd og tækni sem að mínu áliti er mjög nærri því fullkomna. Erfitt er að taka eitt sönglag fram fyrir annað í þessu sambandi. Það nærtækasta er ef til vill að nefna lengsta lagið á plöt- unni, hið magnaða og undurfallega Stirb, Lieb’ und Freud’ úr Zwölf Ged- ichte op. 35 - (nr. 2) og Mit Myrten und Rosen (nr. 21) úr Liederkreis. Þessi tvö lög eru mér sérlega minnisstæð, og ekki síst fyrir snilldarlegt píanóspil Schuils. Sönglög Schumanns eru vægast sagt óskaplega rómantísk bæði hvað varðar tón- mál og texta. Flytj- endum er mjög hætt Gerrit við því að fara yfir Schuil strikið, sérstaklega þar sem textinn jaðrar á stundum við að vera ansi væm- inn (t.d. fyrrnefnt Stirb, Lieb’ und Freud’!). Þeim Finni og Gerrit Schuil tekst sem betur fer að lang- mestu leyti að forðast gildrur yfir- keyrðrar tilfinningasemi. Helst mætti nefna Du bist wie eine Blume (nr. 23) sem er alveg á mörkunum. En auðvitað er þetta bara tittlingaskítur gagnrýnand- ans sem er hræddur við að vera alltof jákvæður - að kunna ekki annað en að hrósa. Það sem skiptir miklu máli í ljóðasöng, og auðvitað í öllum söng, er textaframburðurinn. Framburð- ur Finns er óaðfinnanlegur, gælt er við hvert atkvæði á sama hátt og gælt er við hvem tón. Hann á sannarlega hrós skilið fyrir þennan þátt í flutningnum. Hljóðritun Hreins Valdimars- sonar er mjög fín. Endurómurinn og hljómrýmið er hæfílega mikið og jafnvægið milli flytjenda ákjós- anlegt. Það er full ástæða til að óska þeim Finni Bjarnasyni og Gerrit Schuil til hamingju með vandaða plötu. Valdemar Pálsson MÖGNUÐ ævintýi'asaga. Hversu margt barnið hefir ekki rætt við leikfang sitt, átt tal við brúðu sína, - öllum drottningum fegri, - nú, eða legginn sem bar þig um grund og dal, á hýruspori inn í undrahellinn, hellinn sem aðeins barnssál getur gert? Á slík ævintýr minnti þessi bók mig, bernskuna, þegar dægi'in voru barmafull af sól- skini, hvorki hríð né regn ... já, ekk- ert gat í neinu um breytt, - angan vorsins var með þig í fangi bæði í draumi vöku og svefns. Og þó er þetta ekki saga aftan úr grárri for- tíð, því plastið er fundið upp, þá hún gerist. Ómar, snáði í 6. bekk, á afmæli. Vinur hans Patrekur færir honum plast-indjána að gjöf. Ekki merki- leg gjöf í augum Ómars, kannske ekki heldur baðherbergisskápurinn er Gylfi, bróðir hans, færir honum. Þetta var gamall skápur, lúinn, en með ski'á, - aðeins lykilinn vantar. Hann finnst þó í gömlu skríni heim- ilisins, er móðir drengsins hafði safnað lyklum í. Skrautlegri en allir aðrir var hann, með undraskegg og rauðan skúf, enda enginn venjuleg- ur lykill, kominn til Englands frá Flórens, sérsmíð skarthirzlu snáð- ans. Er afmælisgjafírnar þöfðu verið bornar í svefnherbergi Ómars, tóku töfrar ævintýris að ske: Plast- indjáninn, lokaður inni í skap, breytist í lifandi veru. Æsist nú leikur allur, því að Litli-Boli, indjáninn, gerist heimtufrekur við „skapara“ sinn, krefst matar; hests; vopna; brekáns; efnis í langskála, og þar kemur sögu, fyrst allt var látið eftir pjakki, að hann heimtar að gerast foringi, og foringja hæfir jú að hafa konu sér við hlið. Ómar nálgast þetta undur af varfærni, gerir tilraunir, kemst að því, að seiðurinn nær aðeins til plasthluta, því líka, að hann gat ákveðið sjálf- ur, hvort hluturinn allur eða aðeins brot hans hlaut líf. Já, í fyrstu bar hann undrið, einn og óstuddur, en sú kom stund, að hann trúir Patreki fyiir leyndarmálinu. Sá heillast svo af töfrunum, að hann heimtar að eignast kúreka. Ekki eykur það friðsæld á bæ, því þó saga sé ensk, þá er hinum ameríska „sannleik" trúað, að ekki séu hafandi í sama herbergi indjáni og kúreki. Erjum fylgja sár, og Tomma sjúkraliða er þörf inn á sviðið. Töfra seiðsins magnar höfundur slíkum stílbrögðum, að þú sleppir ekki bók, fyrr en lesin er öll. Þai' kemur líka til, að þýðing Kristínar er afburðagóð, hugsunin klædd í sparibúning íslenzks máls, lestur- inn eykur því smekk fyrir tungu- taki. Myndir góðar. Prentverk allt vel unnið. Ævin- týrabók útgáfunni til sóma. Sig. Haukur Nýjar bækur Ljóð og sögur Þorsteins frá Hamri í einu bindi • RITSAFN Þor- steins frá Hamri er heildarútgáfa á öllum verkum hans. Ritsafn- ið er m.a. gefið út í til- efni af sextugsafmæli skáldsins fyrr á þessu ári, en jafnframt eru fjörutíu ár liðin frá því að Þorsteinn sendi frá sér sína fyrstu Ijóða- bók, í svörtum kufli. I kynningu segir m.a.: „Þorsteinn frá Hamri er eitt af önd- vegisskáldum þjóðar- innar og fáum hefur tekist eins vel og hon- um að fella saman forna hefð ríms og ljóðstafa og frelsi hins óbundna máls. Ljóðstíll Þorsteins er sér- stæður og persónulegur, í senn Þorsteinn frá Hamri skáldsins. Útgefandi er Iðunn. Ritsafn hógvær og þróttmikill, og mörg ljóða hans eru fáguð listasmíð sem hafa fundið samhljóm með þjóðinni. Hér eru saman komnar í einu bindi allar ljóðabækur skáldsins, þrettán að tölu, en einnig skáld- sögur hans þrjár, Him- inbjargarsaga, Haust í Skírisskógi og Mötull konungur, og sögu- þátturinn Hallgrímur smali og húsfreyjan á Bjargi." Njörður P. Njarðvík ritar formála um verk ið er 673 bls., prentað í Prisma- Prentbæ ehf. Verð: 6.980 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.