Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
sokkabuxur
fást í öllum helstu stórmörkuðum
Meðlagsgreiðendur
Meðlagsgreiðendur, vinsamlegast
gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað.
Innheimtustofnun sveitarfélaga,
Lágmúla 9, 108 Reykjavík,
sími 568 6099, fax 568 6299.
Skrifbord
27.400,-
Fatlaður - hvað
er nú það?
SAMKVÆMT Orða-
bók Menningai'sjóðs frá
1963 er fótluð mann-
eskja sá eða sú „sem
ber sýnileg merki sjúk-
dóms eða meiðsla“. I út-
gáfunni frá 1988 er
sama skilgreining og
síðan er bætt um betur
og tvær nýjar skilgrein-
ingar koma fram; „for-
fallaður“ og „fjölfatlað-
ur“. Sé flett upp orðinu
„fótlun" kemur í ljós að
það orð er ekki til í fyrri
útgáfunni en í þeirri síð-
ari er það sagt merkja
„að vera fatlaður"!
Sé flett í ensk-ís-
lenskri orðabók, sem
Margeir Steinar
Karlsson
ísafoldar-
prentsmiðja gaf út 1976, kemur í
ljós að orðið „handicap" er þýtt sem
„hindrun" en orðið „disabled" er
þýtt sem „óverkfær". Ensk-íslenska
orðabókin sem Örn og Örlygur gáfu
út 1984 þýðir orðið „handicap" sem
„fótlun, ágalli, líkamslýti, hindrun,
annmarki" og orðið „disable" sem
„óvinnufær, fatlaður, bæklaður“.
Astæða þess að ég byrja á því að
sýna lesendum hvernig orðabækur
skilgreina fötlun er sú að ég er
nokkuð viss um að mjög margir vita
ekki hvað þetta orð þýðir. En gefa
þessar tilvitnanir rétta mynd? Eru
t.d. allar fatlanir sýnilegar? Eru all-
HSM pappírstætarar
Leiðandi merki - Margar stærðir
Þýzk gæði - Örugg framleiðsla
HSM38G
hsmIo
m/vsk.
33.707 m/vsk.
52.544 m/vsk.
89.563 m/vsk.
Kr. 123.685 m/vsk'.
'MgL)*. nsTvniDSsoN hf.
Skipholti 33,105 Reykjavík, simi 533 3535
ir fatlaðir forfallaðir
eða óvinnufærir?
Þekkingarleysi/
fordómar?
Kannski er í þessum
tilvikum þekkingar-
leysi um að kenna? Ef
jafn virðulegar bækur
og hér hefur verið vitn-
að í nota slíkar skil-
greiningar hverju er þá
hægt að búast við af al-
menningi? Það er
endalaust hægt að
velta sér upp úr spurn-
ingum af þessu tagi.
Allir vita að þekkingar-
leysi. skapar fordóma
og jafnvel hræðslu við hið óþekkta.
Viðhorf fólks til fatlaðs einstak-
lings getur oft verið æði misjafnt
Um gífurlegt þekking-
arleysi, segir Margeir
Steinar Karlsson, og
þar af leiðandi for-
dóma gagnvart fötluðu
fólki er að ræða.
eins og gengur. Hið almenna viðhorf
stafar að mínu mati fyrst og fremst
af fordómum. Algengt er að fólk, af
öllum stærðum og gerðum, jafnt
böm sem fullorðnir, snúi sig næst-
um því úr hálsliðnum við það eitt að
horfa á eftir fótluðu fólki. Þannig
lagað gerist t.d. oft í Kringlunni.
Óvísindaleg athugun
Sumarið 1993 fór ég til Englands
í enskuskóla. Það var mjög gaman
og lærdómsríkt og kynntist ég þar
mörgu skemmtilegu og góðu fólki.
Eg var eini fatlaði nemandinn í
skólanum og af því tilefni ákvað ég
að gera smá könnun á viðhorfi fólks
í minn garð.
Fólk sem ég hitti og spjallaði við
spurði mig oft af hverju ég gengi
um á hækjum.
Sumum sagði ég sannleikann þ.e.
að ég hefði fæðst tveimur og hálfum
mánuði fyrir tímann og orðið fyrir
súrefnisskorti í fæðingu. Öðrum
svaraði ég því til að ég hefði lent í
bílslysi.
Þeir sem ég sagði sannleikann
héldu yfirleitt sína leið eða sneru
sér að öðru. Fæstir þeirra töluðu
við mig aftur. En þeir sem ég sagði
að ég hefði lent í bílslysi töluðu
flestir ef ekki allir við mig aftur og
voru góðir kunningjar mínir þann
tíma sem ég dvaldi í Englandi.
Þessa könnun hef ég einnig gert hér
á íslandi, þegar ég hef hitt nýtt
fólk, nær undantekningarlaust með
sama árangri.
Þetta þótti mér og þykir enn
þann dag í dag alveg stórmerkileg-
ar niðurstöður og hef auðvitað velt
fyrir mér viðbrögðunum. Heldur
fólk að þar sem ég hlaut þennan
skaða í fæðingu sé augljóst að hann
valdi því að ég geti ekki haldið uppi
vitrænum samræðum? Væri meira
„spennandi" ef ég hefði hlotið ör-
kuml á fótum í bílslysi? Niðurstöð-
urnar sýna að mínum dómi, svo ekki
verður um villst, að um gífurlegt
þekkingarleysi og þar af leiðandi
fordóma gagnvart fötluðu fólki er
að ræða. Er ekki kominn tími til
þess að breyta viðhorfi og hugsun-
arhætti þess fólks sem hugsar
svona? Er ég annars flokks persóna
af því fætur mínir eru ekki heil-
brigðir? Hver getur dæmt um
hvaða eiginleikar eða persónuein-
kenni eru dýrmæt? Er e.t.v. hægt
að meta manngildi eftir heilbrigði
líkamans?
Höfundur er bankastarfsmaður
og í hópi sem fjallar um fordóma
í verkefninu „Reykjanesbær á
réttu róli“.
OMEGA
OMEGA-úrin eru enn í gangi frá síðustu öld
Garðar Ólafsson úrsmiður
Lækjartorgi, s. 551 0081.
® htff[
Síðumúla 37
S. 588-2800
-108 Reykjavik
- Fax 588-2801