Morgunblaðið - 15.05.1999, Side 63
SBBHBhM
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 63
1
§
UMRÆÐAN
ÞAÐ ER ekki mikil
hefð fyrir því að borða
brauð á Islandi. En
það er mikil hefð fyrir
því í löndum ki-ingum
okkur að brauð séu al-
veg ómissandi með
mat og ekki er sá mat-
sölustaður til að ekki
sé brauð borið á borð.
En af hverju er þetta
gert í svona litlum
mæli inni á heimilun-
um? Sú litla menning
sem hefur verið er að-
allega ristað brauð
með gröfnum og
reyktum laxi og svo
hefur jú verið algengt
að hafa brauð með súpum. Mikil
matairnenning hefur verið að þró-
ast á íslandi síðustu 10 til 20 ár. Og
er þá alveg sama hvert er litið í
þeim málum. I dag er hægt að fá
allt það sem hugurinn girnist á
matsölustöðum, franskt, ítalskt,
vestrænt, austurlenskt og fl. ís-
Brauð
Markmið okkar bakara
er, segir Jóhannes Fel-
ixson, „Brauð í öll mál“
lenskir matreiðslumenn hafa verið
mjög duglegir að kynna nýjar
stefnur. Það er eitt sem hefur
gleymst í öllu þessu matarfári, það
er að borða brauð með mat og lík-
lega eiga bakarar einhvern þátt í
því að svo er ekki. Við höfum að-
eins staðnað í okkar ágætu morg-
unbrauðum en nú eru breyttir tím-
ar og hefur bakarastéttin tekið sig
vel á. í dag er hægt að fá brauð
sem bökuð eru á steini (hertunni)
þannig að þau verði bragðmeiri og
betri. Ekkert betra en að fá ekta
„baguette" snittubrauð, hvítlauks-
brauð, sveppa- og ostabrauð eða
brauð með góðri skorpu. Hvort
sem það er í forrétt með sólþurrk-
uðum tómótum, þistilhjörtum
og/eða góðum ostum sem passa vel
með brauðum eða með góðum mat.
Það verður margur Islendingur-
inn hissa þegar honum er boðið í
mat og í matinn er „bara“ brauð,
ostar og álegg, en þetta er algengt
í Suður-Evrópu, og þá einna helst á
virkum dögum, þegar þungur mat-
ur hefur verið um helgina. Þessi
matargerð er fyrirhafnarlítil, holl
og ódýr. Hægt að fá nánast allt
sem tilheyrir í matinn í góðu bak-
aríi. Eg hef lagt mig fram við að
koma þessari nýju menningu í
landann að undanfömu og hefur
gengið það ágætlega. Það eru ekki
margir sem þekkja
svona matargerð og
hafa kannski ekki get-
að nálgast rétta hrá-
efnið sem við á. En svo
era aðrir sem hafa
beðið lengi eftir að
geta fengið brauð sem
margir bakarar eru
farnir að bjóða í dag.
Enn ein nýjungin, sem
fylgir þessari breyttu
stefnu, er að nú er
hægt að fá fína
brauðaveislu sem inni-
heldur nokkrar teg-
undir af bragðmiklum
ítölskum brauðum og
sérvaldar ostategund-
ir, hvort sem þeir era innfluttir eða
íslenskir. Einnig er gott að hafa
með t.d sólþurrkaða tómata, þistil-
hjörtu, grillaða papriku í olíu, góða
dressingu eða hvítlauksolíu sem
gerð er í bakaríinu og hentar mjög
vel með þessum brauðum bæði sem
ídýfa og í staðinn íyrir smjör. Und-'
irbúningurinn er lítill fyrir svona
góða veislu, aðeins þarf að fara útí
bakarí og þar er hægt að fá allt
sem tilheyrir, ekki er haft mikið
fyrir uppstillingu eða framsetningu
þar sem brauðin skreyta borðið.
Um þessar mundir er Landsam-
band bakarameistara að gefa út
matarbækling með uppskriftum
eftir Sigga Hall sem era léttar og
þægilegar, í bæklingnum er mælt
með nokkram brauðum sem við
eiga í hvert sinn. Þannig getur fólk
áttað sig á því hvernig brauð er
best að borða með hverjum rétti.
Bækling þennan verður hægt að fá
í þeim bakaríum sem eru aðilar að
Landsambandi bakarameistara.
Svo er um að gera að spyrja bakar-
ana hvaða brauð henta best fyrir
hvem rétt. Það er einlæg von okk-
ar bakarameistara að fólk átti sig
nú vel á hvað bakarar hafa verið að
gera í matargerðarlist á íslandi
undanfarið og fari að njóta þeirra
lystisemda sem felast í því að
borða góð brauð. Markmið okkar
bakara er „Brauð í öll mál“.
Höfundur er bakarameistari, er f
stjóm LABAK og rekur eigið bakarí.
Tilboð
á kæli- og
frystiskápum
EG Electrolux
Sænsk gæöavnrn
Mikið úrval
af kæli- og
frystiskápum
á frábæru
tilboðsverði
HÚSASMIÐJAN
Simi 525 3000
Kanntu brauð
að borða?
Jóhannes
Felixson
^TiIboðsda
Embla
Verð áður 325,-
Nú245r
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9.00 - 21.00
Um helgar kl. 9.00 -18.00
Ulfareynir
Veröáðum 2.160,-
GRÓÐRA RS TCHJÍ.N
4J
♦1?
NÚ 1.295,-
* Plöntulistinn okkar
sTJöKHwnór ts, sím shi izsh, fax m znn auðveldar valið
Sækið surnarið til okkar
MÆ0
$9
Ölfushöllin
Ingólfshvoli, Ölfusi
Sknautlegasta
uppboð
aldarinnar
9999
uuu u u u u
Vöruuppboð og
fjölskylduhátíð
í dag,
laugardaginn
15. maí
\ \
Svnishorn af vörum sem
bodnar veröa upd í daa:
BÍLAR
HROSS Á FÆTI
SNYRTIVÖRULAGER
ÁLEGGSHNÍFAR
REIÐHJÓL
RYKSUGA
FISKIMJÖL
HEYVAGN
ÁBURÐUR
OG FÓÐUR
JÓLATRÉ
SKJALASKÁPAR
SNJÓBLÁSARI
LJÓSABÚNAÐUR
HLAUPABRAUT
SALTFISKUR
HÚSGÖGN
TRAKTORSGRAFA
HARÐFISKUR
Lúðrasveit Þorlákshafnar
Qt> Brúðubfllinn
&
Tóti trúður
Furðuverur
Lukkuleikur
Sami/iniiiiferölrLaiiilsýii, **
Sprell
Sjálfkeyrandi uppboðskall
Fjöldasöngur
Mannbjörg mætir
með Hummerinn
Kynnir verður
Raggi Bjarna
Aðgartgur ókeypis
Allir velkomnir
u
VIÐSKIPTANETIÐ HF.
Nordic Barter á íslandi
SÍÐUMÚLA 27 • 108 REYKJAVlK • SlMI 568 3870
FAX 568 3875 • vn@borter.is • http://www.barter.is