Morgunblaðið - 31.07.1999, Síða 86
86 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Nýlega fóru fram tökur
á kvikmyndinni 101
Reykjavík á Snæfells-
nesi. Þorlákur Einars-
-----------------n----
son og Friðrik Orn
fylgdust með.
. HITINN var sumum ofviða og
^ leituðu þeir svölunar í Búða-
höfn.
Ljósmyndir/Friðrik Örn
ÞYRLAN steypir sér fram af hengiflugi Snæfeilsjökuls,
Svaðilför á
Snæfellsifik”!
ÞEGAR leikmannsaugað
horfir á kvikmynd er það frek-
ar grunlaust um allt það um-
stang sem fylgir einni „ein-
faldri“ kvikmyndatöku. Blaða-
maður fékk á dögunum að
kynnast öllu umstanginu er
liann slóst í för með tökufólki
kvikmyndarinnar 101 Reykja-
vík á Snæfellsjökul.
Ráfar um Snæfellsjökul
Snæfellsjökull er býsna langt
frá sögusviði kvikmyndarinnar
sem gerist að mestu, eins og tit-
illinn gefur til kynna, innan
marka póstnúmersins.
_ Atriðið sem tekið var á Snæ-
fellsjökli er hvort tveggja í senn
upphafs- og lokaatriði myndar-
innar. Enga hliðstæðu þessa er
að finna í skáldsögunni sjálfri
eftir Hallgrím Helgason heldur
er þetta skáldleg viðbót við
hana í kvikmyndahandritinu.
Svo engri hulu sé svipt af inni-
haldi myndarinnar skal segja
sem fæst um atriðið. Það skal
þó sagt að í því ráfar aðalper-
sónan Hlynur Björn, sem leik-
inn er af Hilmi Snæ Guðnasyni,
um Snæfellsjökul og hugsar
sinn gang.
Blautur og hrakinn
- V Myndatökufólkið var ferjað
upp á jökultopp á snjósleðum og
kom upp búðum þar. Það mátti
þó bíða daglangt meðan verið
var að taka atriði úr lofti. Hilmir
Snær fékk það kalda hlutskipti
að ferðast í þyrlu og vera hent
út hingað og þangað um jökul-
inn til þess að ganga á honum í
jakkafötum og blankskóm. Leik-
listin er ekkert sældarlíf og tek-
ur sinn toll því að þegar Ioks
kom að nærmyndatökum á jök-
ultoppnum var aðalleikarinn
JMautur og hrakinn eftir erfíði
^ðagsins, veikur og vökvi lak úr
eyrum hans.
Erfíðið var þá rétt hafið því
að hann þurfti sökum myndar-
innar að leggjast aftur og aftur
á ískaldan jökulinn og láta
gervirigningu og manngerða
snjóhríð dynja á sér. Þessu var
Svo framhaldið til sólarlags en
DANSKIR ferðalangar áðu við
rætur Snæfellsjökuls grunlaus-
um allt það umstang sem
fram fór á tindinum.
UMFANGSMIKILL tækjabúnaður þakti jökultoppinn.
REBEKKA Austmann Ingimundardóttir hlúir að andlitsfarða aðal-
Ieikarans, Hilmis Snæs Guðnasonar.
VEÐRIÐ lék við fbúa Snæfellsness, unga sem aldna, daginn sem tökur
fóru fram og notuðu margir tækifærið og léku sér á ströndinni á Búðum.
þá var kvikmyndafólkinu veitt
stutt hvíld þar til sól risi á ný og
hægt væri að halda tökum
áfram.
Þor og þróttur
Dugurinn keyrði þó þreytt
fólkið áfram og hélt það aftur á
jökulinn eldsnemma morguns
enda þýðir ekkert droll í kvik-
myndagerð enda er í þeim geira
tími peningar með réttu. Blaða-
maður dáðist að dug, þor og
þrótti kvikmyndamannanna og
LEIKSTJÓRINN Baltasar Kor- gerir ráð fyrir að hvfld þeirra sé
mákur stígur um borð í þyrlu ljúf eftir erfiða tökudaga á ann-
til að sljórna myndatöku. an mánuð.-