Morgunblaðið - 18.09.1999, Qupperneq 78
78 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Sumarlína SVO-merkisins mynduð af franska ljósmyndaranum Camille
Ljósmyndir/Camille Vivier
Vivier.
Golfar-
inn
Jordan
►MICHAEL Jordan er ekki
alveg jafn lunkinn í golfinu
og i körfuboltanum forðum
_ daga en samt hefur honum
^ tekist að ná ágætis árangri í
íþróttinni. Hann keppti sem
áhugamaður á opnu móti at-
vinnumanna LaSalIe-bankans
í Chicago og var það fyrsta
atvinnumannamótið sem
hann tekur þátt I. Eins og sjá
má á myndinni var hann ekki
í sáttur við að missa marks í
sjöttu holu.
Quarashi gefur út smáskífu á mbi.is
List og
tíska
saman
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Quarashi-meðlimir og borgarstjóri voru samtaka í útgáfu „Stick’em Up“ í gær.
QUARASHI ásamt Morgunblaðinu á
Netinu, mbl.is, og Japis gaf út smá-
skífu sveitarinnar á Netinu í gær og
fór atburðurinn formlega fram á Hard
Rock Café. Lagið Stick’em Up er gef-
ið út á MP3-sniði, sem er vinælasta
dreifmgarform tónlistar á Netinu í
dag. Gestir mbl.is geta því endur-
gjaldslaust sótt sér lagið, spilað á eig-
in tölvu og jafnvel brennt á disk með
geisladiskabrennara. Líka er hægt að
sækja umslag smáskífimnai-, prenta
út og setja í geisladiskahylki. Þetta er
í fyrsta sinn sem útgáfu geisladisks er
þannig háttað hér á landi.
Merkileg tækni sem hjálpar
Ingibjörg Sólrún varð sú fyrsta
til að sækja lagið. Hún óskaði frum-
kvöðlunum í Quarashi til hamingju
með þetta framtak, „þessa nýju hlið
á mjög merkilegri tækni sem á eftir
að hjálpa grasrótarhljómsveitum að
koma sér á framfæri án milliliða, og
gefa fólki beinni aðgang að tónlist
en verið hefur hingað til.“
Stefán Ingólfsson, samstarfsaðili
Nýjung- í
tónlistar-
útgáfu
Quarashi, segir þá félaga hafa lang-
að til að gefa út smáskífu, en þær
beri sig ekki kostnaðarlega lengur.
Að gefa út eitt lag á Netinu sé leið-
in til að gefa þeim sem síðar kaupi
plötuna ókeypis sýnishorn.
„Þessi miðill er einstakt tækifæri
fyrir hljómsveitir sem vilja koma
sér á framfæri á erlendum og inn-
lendum markaði. Við völdum mbl.is
því við vildum hefja þetta með
traustum aðila, í samráði við hags-
munasamtök tónlistarmanna og
hafa þetta mjög jákvætt frá upp-
hafi. Það er nauðsynlegt að gefa
þessari útgáfu góða ímynd vegna
sjóræningjaútgáfunnar."
Formaður Félags tónskálda og
textahöfunda, Magnús Kjartans-
son, segir að hingað til hafí menn
gefíð fólki kost á að heyra búta úr
lögum á heimasíðum. „Þetta er hins
vegar í fyrsta skipti að lag er hrein-
lega gefið út opinberlega með þess-
um hætti. Og ég fagna að það sé
gert með jafn stórum og ábyggileg-
um aðila eins og Morgunblaðinu.
Þetta mun ugglaust verða miklu
meira og það verður forvitnilegt að
fylgjast með hvernig málum vindur
fram.“
- Verða heilu diskarnir seldir á
þennan hátt á Netinu í framtíðinni?
„Tónlist, bókmenntir og fleiri
listir sem henta Netinu verða þar
til fyrir þá sem vilja. En aftur á
móti er langt í það að fólk vilji
sleppa þeirri skemmtun að fara í
búðir. Þetta verður viðbót, og það
er von okkar að á næstu árum verði
þetta mest gert til kynningar og
þannig kjörið tækifæri fyrir lista-
menn að koma sér að, því milliliða-
SÍÐASTI dagur tískuvikunnar í
New York er í dag og þá verður
kynnt sumarlína SVO, hönnuð af
Lindu Björg Amadóttur sem ís-
lenska tískufyrirtækið Crylab
framleiðir.
Sýningin verður haldin í 5.000
fermetra húsnæði Fantastic Planet
og skipulögð í samvinnu við Steven
Allen, umboðsaðiia SVO í Banda-
ríkjunum og Japan. Fleiri merki
sýna sumarlinu sem allar eiga það
sameiginlegt að hönnuðir þeirra
eru ungir, ferskir og vinna á gráa
svæðinu milli listar og tísku, þótt
þeir séu ólíkir þegar kemur að
hugmynda- og fagurfræði. Við sýn-
ingamar verða því tónlist, sögur,
ljósmyndir, myndband og fleiri
form listarinnar notuð til að koma
fatnaðinum á framfæri.
Uppsetning SVO-sýningarinnar
er unnin í samvinnu við Gus Gus
og verður sýningarstúlkunum sem
ganga á hlaupabretti varpað upp á
sýningartjald þar sem íslenskt um-
hverfí og landslag verður bak-
grunnurinn. Frægir plötusnúðar
sjá um tónlistina og þannig verður
list, tisku og dansmenningu gerð
skil í þessari sórstöku sýningu.
SVO hefur þegar fengið góðar
viðtökur á Bandaríkjamarkaði og
búist er við sterkum viðbrögðum
kaupenda úr tískuheiminum. „Þeir
kaupendur sem hafa verið að
koma inn í tiskuvikunni hafa
bmgðist mjög sterkt við h'nunni og
fínnst hún alveg frábær,“ segir
Sólveig Guðmundsdóttir hjá
Crylab. „Og eiginlega búumst við
við sölusprengju í kjölfar sýning-
vélin er stór, þung og fjárþurfí."
iiijif IBI iTjBÉ
Sumarlína SVO
kynnt í New York