Morgunblaðið - 02.11.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Viðskiptaráðherra segir sjálfstæði Fjárfestingarbankans tryggt
Lagasetning um dreifða
eignaraðild óþörf
FINNUR Ingólfsson
viðskiptaráðherra er
mjög ánægður með
hvernig hefur tekist
til með söluna á Fjár-
festingarbanka at-
vinnulífsins. „Þær
hrakspár sem menn
voru með í upphafi
hafa ekki ræst. Okkur
hefur tekist að
tryggja dreifða sölu á
bankanum til sterkra
aðila sem eru starf-
andi á þessum mark-
aði. Okkur hefur
einnig tekist að
tryggja sjálfstæði
bankans til framtíðar.
Það þýðir að hann mun geta veitt
öðrum bönkum harða samkeppni
með þeim afleiðingum að vextir og
kostnaður á fjármagnsmarkaðnum
mun fara lækkandi. En það sem er
einna mikilvægast í þessu öllu
saman er að okkur hefur tekist að
fá hærra verð fyrir bankann en
nokkur þorði að vona í upphafi.
Þessi sala og sú fyrri hefur skilað
þjóðinni tæpum 15 milljörðum
króna.“
Aðspurður hvort stjórnvöld
muni setja lög til að dreifa eignar-
aðild með bréf bank-
ans á eftirmarkaði
svaraði Finnur að
hann telji að ekki
þurfi að koma til þess.
„Þegar þeir fjárfestar
sem hafa keypt í
bankanum eru skoð-
aðir sést að þeir eru
ótengdir og eru í sam-
keppni hver við annan
á öðrum sviðum.
Þetta eru fyrst og
fremst fagfjárfestar
og ég held að þeir
muni passa upp á það
sjálfir að enginn einn
fjárfestir verði ráð-
andi í bankanum.
Þegar reynslan af sambærilegri
einkavæðingu ríkisstofnana er
skoðuð í Danmörku og Sviþjóð
kemur í ljós að dreifð eignaraðild
hefur haldist á eftirmarkaði.“
Fjármagnsmarkaður
á íslandi ekki nógu þróaður
Þegar það spurðist út að ríkið
ætlaði að selja hlut sinn í bankan-
um kom upp orðrómur um að er-
lendir fjárfestar sýndu bréfunum
áhuga. Finnur telur að það hefði
getað verið spennandi kostur að fá
erlenda fjárfesta og fjármálastofn-
anir inn í bankakerfið en það að
engin formleg tilboð hafi borist í
Fjárfestingarbankann sýni fyrst
og fremst að íslenskur fjármagns-
markaður er ekki enn orðinn nógu
þróaður. „Erlendir fjárfestar sýna
okkur ekki enn nægilega mikinn
áhuga. En þróunin hér er hröð og
það mun breytast í náinni framtíð.
Það er að vísu ekki enn útséð með
það að erlendir aðilar eigi eftir að
koma inn í bankann á eftirmark-
aði. Hvað erlendar fjármálastofn-
anir varðar kjósa þær yfirleitt að
kaupa ráðandi hlut en því var ekki
að skipta núna þar sem við lögðum
megináherslu á dreifða eignarað-
ild.“
Þurfum stærri
og öflugri banka
Finnur segir að öll framgangan
við sölu Fjárfestingarbankans sé
glöggt og gott dæmi um vel
heppnaða einkavæðingu. „Næsta
skref er að leita hagræðingar-
möguleika á markaðnum. Það er
ljóst að við þurfum stærri og öfl-
ugri banka en nú er. Það sést
meðal annars á þeim vandræðum
sem Landsbankinn lenti í við að
greiða fyrir sameiningu SIF og
IS. Vegna þess hve hið sameinaða
fyrirtæki var stórt átti bankinn í
erfiðleikum með að veita því þá
þjónustu sem það þurfti vegna al-
þjóðlegra skuldbindinga um hve
bankar mega lána mikið út af eig-
in fé sínu. Það er ljóst að mörg
fyrirtæki hér á landi eru orðin það
stór að þau þurfa stærri banka til
að geta sinnt þörfum þeirra. Því
markmiði náum við með hagræð-
ingu.“
Bjarni Ármannsson
Ovissutíma-
bilinu lokið
Finnur
Ingólfsson
Forsætisráðherra um sölu FBA
Anægður með
að ná settum
markmiðum
„ÉG ER afar ánægður
því ef allt fer fram sem
horfir þá nást þau
markmið sem við sett-
um okkur, að fá fullt
verð fyrir hlut ríkisins
í bankanum,“ sagði
Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra um þá
ákvörðun fram-
kvæmdanefndar urn
einkavæðingu að taka
tilboði fjárfesta í 51%
hlut ríkisins í FBA.
„Ég held að það sé mat
manna að verðið sé
gott fyrir ríkið,“ sagði
hann.
„Þetta þýðir að ríkið
nær sínum markmiðum að selja
51% hlut sinn í bankanum á fullu
verði,“ sagði Davíð. „Málið hefði
getað þróast svo að í'íkið hefði verið
með verðlitla vöru í sínum bréfum. I
annan stað setti ríkið ákveðnar
reglur um lágmarks eignadreifingu
í þeim hluta, sem það seldi núna og
ef ég skil þær fréttir rétt, sem
borist hafa og menn hafa staðfest
sjálfir, þá er eignadreifingin ennþá
meiri en lágmarkskrafa ríkisins var.
Þannig að það markmið hefur líka
náðst miðað við þá stöðu sem upp
var komin. Því má segja að öll þau
markmið sem ríkið setti sér þegar
við gripum inn í málið á sínum tíma
hafi náðst og ég er afskaplega
ánægður með það.“
Þekktir og reyndir
fjárfestar
Um þær athugasemdir, að hætta
væri á að eignarhald dreifðist á
færri hendur í eftirsölu
hlutabréfa í FBA, sagði
forsætisráðherra að
rétt væri að átta sig á
því að margir fjárfest-
anna sem að kaupunum
á FBA koma hefðu víð-
tæka reynslu og væru
þekktir fjárfestar.
„Þetta höfum við séð í
Islandsbanka og víða.
Það er ekkert endilega
fyrirséð að þessir aðil-
ar muni láta frá sér
sinn hlut og að hann
muni þess vegna safn-
ast á fárra manna
hendur. Ég tel engar
líkur á því sérstaklega í
þessu dæmi en svona um almennt
framhald þá held ég að menn eigi
aðeins að huga að því og skoða það
meðal annars í þinginu hvort rétt sé
að setja reglur, sem ná megi sátt
um, sem tryggi að eignarhald verði
jafnan dreift. Ég er fylgjandi því,“
sagði Davíð. Ljóst væri að efna-
hags- og viðskiptanefnd tæki það
mál til skoðunar.
„Þetta er mesta einkavæðing
sem hefur verið farið í af hálfu rík-
isins,“ sagði Davíð. „Við munum
fylgjast með þróuninni á þessum
markaði í framtíðinni en mér sýnist
að eins og mál hafa þróast sé ólík-
legt að eignaraðild færist á fárra
hendur.“ Davíð sagðist ekki hafa
orðið var við upphlaup á Alþingi
eftir að niðurstaða um sölu bankaps
lá fyrir þrátt fyrir hrakspár. „Ég
held að menn sjái að það hefur ver-
ið staðið skynsamlega að málum,“
sagði hann.
Davíð
Oddsson
BJARNI Ármanns-
son, forstjóri FBA,
segist vera ánægður
með að sala á hlut rík-
isins skuli vera komin í
höfn og að óvissutíma-
bilinu sé lokið.
Benti hann á að rétt
tvö ár væru síðan
formlega var farið að
ganga í samruna sjóð-
anna og FBA tók síð-
an til starfa í janúar
1998. Nú væri ríkis-
stjómin, sem gagn-
rýnd var fyrir að
stofna FBA, búin að fá
í sínar hendur tæpa 15
milljarða króna og
tvær mjög vel heppnaðar einka-
væðingar. „Eftir situr sjálfstæður
aðili á fjármálamark-
aði, sem er fjárhags-
lega sterkur og burð-
ugur og þess fullbú-
inn að takast á við
frekari uppstokkun í
viðskiptalífinu," sagði
Bjarni.
Bjarni seldi hlut
sinn í FBA í haust af
persónulegum ástæð-
um og sagði hann að
sú sala hefði ekki ver-
ið tákn um minnkandi
traust sitt á bankan-
um. Kaup sín nú
þýddu að hann ætlaði
að taka af fullum
krafti þátt í þeirri
uppbyggingu sem framundan væri
og leggja allt sitt að veði.
Bjarni
Ármannsson
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Colt 1600.
Nýskráður 19.03.1999. Ekinn
9.000 km, 5 gíra, 16“ álfelgur,
spoiler-kit, CD, aukahátalarar.
Ásett verð kr. 1.450.000
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu í síma 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. 12-16 ,
BfLAÞING HEKLU
A/i/mc-r e-Hf 'í no-foZvm bíivirJ
Laugavegi I74,105 Reykjavík, sími 569-5500
VVVVVV.bílE.illLUG.L£ <•' VVVVVV.bLluUlLLlU.LS VVVVVV.bLlc.UlLliy.Lb'
Björk Guðmundsdóttir síðasti Bröste-verðlaunahafínn
Hefur náð til hinna yngri sem
eldri með bjartsýni og lífskrafti
BJÖRK Guðmundsdóttir tónlist-
armaður hlaut Bjartsýnisverð-
laun Bröstes á laugardag. Veitti
hún verðlaununum viðtöku í
Salnum í Tónlistarhúsi Kójpavogs
úr hendi forseta Islands, Olafs
Ragnars Grímssonar, en embætti
forseta Islands er verndari verð-
launanna.
Verðlaunin, sem eru 550 þús-
und íslenskar krónur voru veitt í
nítjánda og jafnframt síðasta
sinn á laugardag, en stofnandi
verðlaunanna, Peter Bröste
stofnaði þau árið 1981 fyrir þá ís-
lensku listamenn sem þótt hafa
framúrskarandi.
Að lokinni verðlaunaafhend-
ingunni sagði Björk Guðmunds-
dóttir í stuttu samtali við Morg-
unblaðið, að hún væri mjög
hrærð vegna viðurkenningarinn-
ar og sér hefði komið á óvart sá
heiður sem henni væri auðsýndur
með verðlaununum. Sagðist hún
ennfremur alltaf verða jafnhissa
á því þegar fólk sýndi verkum
hennar áhuga.
Unnið af einurð að list sinni
Vigdfs Finnbogadóttir, sem
sæti á í dómnefnd Bjartsýnisverð-
launa Bröstes, gerði grein fyrir
vali dómnefndarinnar og sagði þá
m.a. að enginn listamaður öðlað-
ist viðurkenningu samtíðar sinn-
ar öðruvísi en að vinna af einurð
að Iist sinni með sterka t.iltrú á
mátt hennar og megin. Hefði
Björk sýnt að henni væri gefin sú
einurð frá því hún steig kornung
fram á sviðið, jafnframt því að
Ljósmynd/Bragi Þór Jósefsson
Frá afhendingu 19. Bröste-verðlaunanna á laugardag. Frá vinstri: Pet-
er Bröste, stjórnarformaður P. Bröste a/s, Björk Guðmundsdóttir
verðlaunahafi og forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson.
búa yfir cinstakri tónlistargáfu.
Hefði Björk farið sínar eigin leið-
ir allan sinn feril og skapað sinn
eigin stíl. Hefði hún með seiðandi
tónlist sinni, bjartsýni og lifs-
krafti náð til eldri kynslóðarinn-
ar, sem hinnar yngri.
Daninn Peter Bröste hefur átt
viðskipti við íslendinga í um 30
ár. Býr hann sig nú undir að fara
á eftirlaun og hyggst, selja fyrir-
tæki sitt eða a.m.k. hluta þess og
því mun hann ekki framar leggja
til verðlaunin, sem veitt hafa ver-
ið í hans nafni ár hvert siðan árið
1981.
í tilefni þess að verðlaunin
voru veitt í siðasta skipti komu
nokkrir listamenn, sem hlotið
hafa verðlaunin á liðnum árum
og heiðruðu Peter Bröste með
sérstakri hátíðardagskrá.
Við athöfn á Bessastöðum á
laugardag sæmdi forseti íslands
Bröste stórriddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu.
Unibank
GUJMlJNDGDÖmR ífffí