Morgunblaðið - 02.11.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 27
ERLENT
j Reuters
Ottast að þúsundir hafi látist
INDVERSK kona situr fyrir
framan rústir heimilis síns í
þorpinu Khandadhar í Orissa-
fylki á austurströnd Indlands í
gær.
Skaðræðisfellibylur gekk yfir
héraðið á föstudag og laugar-
dag og greindu talsmenn stjórn-
valda frá því í gær að tala lát-
inna af völdum veðurhamsins
gæti náð þúsundum og um tvær
milljónir manna hefðu misst
heimili sín.
Fjölmiðlar sögðu allt að þijú
þúsund manns hafa farizt, en op-
inber staðfesting á tölu látinna er
erfið þar sem vega- og símasam-
bandslaust var við svæðin sem
verst urðu úti.
I yfirlýsingu frá indversku rík-
isstjórninni segir að tvær milljón-
ir manna í að minnsta kosti 2.000
þorpum og bæjum hafí orðið fyr-
ir skaða af völdum óveðursins.
Skip sjóhersins með matvæli,
kerti, föt og annan neyðarhjálp-
arvarning voru í gær á leið til
hafnarbæjarins Paradip í Orissa-
fylki. Lestir hlaðnar hjáipargóssi
voru líka á leiðinni, eftir að gert
hafði verið við teinana á leiðinni
frá Nýju-Delhí og Kalkútta til
hamfarasvæðisins.
Auðkýfíng’ur fyrir rétt
Peking. Reuters.
MOU Qizhing, sem fyrir fáeinum
árum var talinn einn af auðugustu
mönnum í Kína, var dreginn íyrir
rétt í gær í borginni Wuhan, sakað-
ur um gjaldeyrissvik.
Mou var handtekinn í janúar og
gæti hann hlotið lífstíðardóm.
Fjórir af samverkamönnum hans
voru einnig handteknir en ekki er
vitað hvernig rannsókn í málum
þeh-ra miðar.
Mou er 58 ára gamall. Hann er
sakaður um að hafa falsað skýrslur
um inn- og útflutning til að fá
gjaldeyrislán í ríkisbanka. Námu
þau 75 milljónum dollara, yfir
fimm milljörðum króna, árið 1995.
Lánsheimildirnar hafði Mou fengið
hjá ríkisfyrirtæki gegn ofurvöxt-
um, sagði í ákærunni. Tókst hon-
um ekki að greiða af skuldinni í
tæka tíð.
Lýst sem viðskiptasnillingi
Mou var á sínum tíma lýst sem
viðskiptasnillingi er meðal annars
keypti flugvélar af Rússum með
vöruskiptum og var veltan milljón-
ir dollara. Aðrir sögðu að hann
væri fyrst og fremst glanni sem
þar að auki hagræddi lögum og
reglum eftir eigin höfði, hann hefði
tvisvar áður lent í fangelsi.
Starfsmenn Mous sögðu að í
reynd væri um að ræða viðskipta-
deilu milli Mous og áðumefnds rík-
isfyrirtækis en verjandi hans neit-
aði að skýra frá því í liðinni viku
hverju vörnin myndi byggjast á.
Þótt nokkuð hafi verið slakað á
hömlum á gjaldeyrislánum til
einkafyrirtækja er að sögn kaup-
sýslumanna í landinu enn mikið um
viðskipti af því tagi sem Mou átti
við ríkisfyrirtækið.
^ Reuter
Vinstrimenn fagna í Urúgvæ
STUÐNINGSMENN frambjóð-
anda vinstrimanna í forsetakosn-
ingunum í tírúgvæ, Tabaré
Vazquez, fagna honum ákaft í
höfuðborginni Montevideo í gær.
Vazquez hlaut flest atkvæði í
kosningunum, eða um 38%, en sá
sem kom næst á eftir, frambjóð-
andi stjórnarflokksins, Jorge
Batlle, fékk rúmlega 31% at-
kvæða. Kosið verður milli
Vazquezar og Batlles í seinni um-
ferð kosninjganna í lok þessa
mánaðar. tírslit kosninganna í
tírúgvæ eru af mörgum talin
nýjasta dæmið um aukinn með-
byr vinstrimanna í löndum Suð-
ur-Ameríku. Vinstrisinnaðir
frambjóðendur hafa nýlega unn-
ið sigra í kosningum í Chile og
Argentínu.
Reykjavfk • Skeifunni 17 • Sfmi 550 4000
Akureyri • Furuvöllum 5 • Sfmi 461 5000
Umboðsmenn um land allt
Ergo Pro
Verð frá aðeins kr. 116.700 m/vsk.
TREYSTU fl
TÖLVUNfl ÞINfl
Það sem skiptir einna mestu máli í rekstri fyrirtækja
er að geta treyst á tölvubúnað sinn. Á einungis
tveimur árum hafa Fujitsu tölvurnar rækilega
sannað sig sem afkastamiklar og öruggar tölvur
sem sameina ekki aðeins áreiðanleika og mjög
lága bilanatíðni heldur einnig fallega hönnun og
ótrúlegt verð.
Fujitsu er einn af þremur stærstu framleiðendum
PC tölva, fartölva og netþjóna í heiminum.
Njóttu þess að geta treyst tölvunni þinni.
Ergo Pro
Tæknival
FUJITSU
- óbeislað afl
• 400 MHz Intel Celeron örgjörvi
• 128Mb vinnsluminni
• 4,3GB harður diskur
• 17" skjár
• 10/100 netkort
• Hljóðkort
• Geisladrif
• Hátalarar
• 3 ára ábyrgð
TAKMARKAÐ MAGN
Verð frá kr. 116.700 m/vsk.