Morgunblaðið - 02.11.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landvernd efndi til ráðstefnu um umhverfísmál á 30 ára afmæli sínu
Jim Smart
Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, sagði að baráttan gegn mengun í höfunum
væri forgangsverkefni stjórnvalda í umhverfismálum. Við borðið sitja Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
og Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður.
Eigum ekki að draga
úr kjarkmiklum
umhverfistillögum
Landvernd gekkst fyrir afmælisráðstefnu um helgina undir yfír-
skriftinni Umhverfís- og náttúruvernd á Islandi í 30 ár, árangur
og staða, mistök og möguleikar. Örn Arnarson sat ráðstefnuna,
en þar kom fram að margt hefði áunnist í umhverfisvernd á síð-
ustu áratugum. Stjórnvöld voru hins vegar gagnrýnd fyrir stefnu
í málefnum hálendisins.
Góð aðsókn var á ráðstefnu Landverndar, en samtökin eru
30 ára um þessar mundir
EIN markverðasta breyting-
in sem hefur verið á stjórn-
málum á Vesturlöndum á
eftirstríðsárunum er hin aukna
áhersla á umhverfísmál. Þessi
áhersla á rót sína að rekja í gras-
rótarhreyfingum sjöunda áratug-
arins en síðan þá hefur grasrótin
vasið upp í fjöldahreyfingar sem
setja mark sitt á stjórnmálaum-
ræðu bæði innanlands og á alþjóða-
vettvangi í síauknum mæli. I þeim
erindum sem voru flutt á ráðstefnu
Landverndar kom fram mikil
áhersla á að alþjóðlegt samstarf,
hvort sem það væri í formi bind-
andi alþjóðasamninga eða lauslegri
milliríkjasamninga, hefði skilað
miklum árangri í umhverfismálum
hér á landi. En þrátt fyrir það væri
langt í land og alvarleg vandamál
blöstu við.
Ráðstefna Landverndar hófst á
ávarpi Sivjar Friðleifsdóttur um-
hverfisráðherra. Hún byrjaði á því
að óska samtökunum til hamingju
með árin þrjátíu og sagði að hið
unga umhverfisráðuneyti hlyti að
líta til samtaka eins og Landvemd-
ar vegna hinnar miklu reynslu sem
þar hefði safnast gegnum árin. Siv
sagði að samtökin hefðu aldrei ver-
ið öflugri en nú og vildi eindregið
sjá þau eiga meira samstarf við
stjórnvöld.
I máli ráðherrans kom fram að
eitt af mikilvægustu verkefnunum
um þessar mundir væri að tryggja
sjálfbæra ferðaþjónustu. Allar
spár væm um fjölgun ferðamanna
til landsins og þess vegna þyrfti að
tryggja að ágangur þeirra hefði
ekki í för með sér skemmdir á
náttúruperlum. Siv velti fyrir sér
hvort það væri ekki rétt að ferða-
þjónustan borgaði fyrir þann
kostnað sem slíkar aðgerðir hefðu
í för með sér.
Nokkur mikilvægustu framfara-
skrefín komu að utan
Tryggvi Felixson, framkvæmda-
stjóri Landverndar, sagði að
ástand umhverfísmála hér á landi
væri viðunandi þegar tölur um
mengun hér á landi væru bomar
saman við tölu frá nágrannaþjóð-
unum. En þrátt fyrir það sagði
hann að losun mengunarefna væri
að aukast hér á landi meðan aðrar
þjóðir væru að minnka við sig og
það væri áhyggjuefni, sérstaklega í
Ijósi þess að stjórnvöld hefðu ekki
skrifað undir Kyoto-bókunina.
Tryggvi taldi þetta bera vott um
skort á sjálfsgagnrýni og sagði að
stefna stjórnvalda í umhverfismál-
um á alþjóðavettvangi færi eftir því
hvort við værum þolendur eða ger-
endur en ekki væri um heildstæða
stefnu ræða. Hann sagði að mark-
miðið hlyti að vera að skapa hér
samfélag sem drægi ekki úr kjark-
miklum tillögum á alþjóðavettvangi
eins og Kyoto-bókuninni heldur
styddi þær.
Tryggvi vitnaði í erindi sínu til
kafla í stefnuræðu forsætisráð-
herra en þar segir að stefna ís-
lenskra stjórnvalda hafi ekki ráðist
af þeirri hugmyndafræði í um-
hverfismálum sem hefur sumstað-
ar gætt á Vesturlöndum á undan-
fömum áratugum. Tryggvi sagði í
framhaldi af því að nokkur af mik-
ilvægustu framfarasporanum í
lagasetningu í umhverfismálum
hér á landi hefðu einmitt komið
gegnum alþjóða-
samninga og milli-
ríkjasamninga og
nefndi þar sérstak-
lega samninginn um
Evrópska efnahags-
svæðið.
Dr. Arni Braga-
son, framkvæmdastjóri Náttúru-
verndar n'kisins, rakti sögu nátt-
úruverndar í erindi sínu og spurði
að lokum áleitinna spurninga um
stöðu umhverfísmála hér á landi.
Hann sagði að nútímamaðurinn
hefði þekkinguna fram yfir þá sem
á undan komu en að hún virtist
ekki alltaf skila sér í aðgerðum.
Sem dæmi um það sagði Árni að
þrátt fyrir að Blöndulón hefði eyði-
lagt um 3.500 hektara af gróður-
landi væri ekki enn þá búið að
græða samsvarandi landflæmi upp.
Hann sagði að 60% allra birkiskóga
á landinu væra beittir þrátt fyrir
að þeir þektu aðeins 1% landsins
en hefðu þakið um fjórðung lands
við landnám.
Þekkingin hefur ekki
skilað sér í aðgerðum
Árni velti því fyrir sér hvort
barátta fyrir umhverfisvernd hefði
skilað einhverju hér á landi. Ef svo
væri, spurði hann fundargesti, af
hverju væri þá tal uppi um að
stækka Þjórsárver, af hverju væru
menn ennþá að vinna kísilgúr úr
Mývatni og af hverju færi engin
umræða fram um hvernig menn
ætluðu að græða upp land í stað
þess sem verður fórnað fyrir
Fljótsdalsvirkjun. Þrátt fyrir
þessa vankanta taldi Árni ýmislegt
jákvætt vera að gerast í umhverf-
isvernd á íslandi og minntist í því
samhengi á laga-
setningar sem hafa
tekið gildi á síðustu
árum og sagði þær
hafa jákvæð áhrif en
samt væri langt í
land.
Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri tók svipaðan gól
í hæðina og Ami og sagði að Is-
lendingar ættu langt í land, sér-
staklega hvað varðaði sjálfbæra
landnýtingu. I erindi hans kom
fram að landeyðing væri mesta
umhverfisvandamál Islendinga.
Hann sagði að landsmenn hefðu
nýtt landið illa. Það sæist best þeg-
ar gróður- og rofkort væru skoðuð
því þau sýndu að lítið samband
væri á milli legu landsins og veður-
fars annarsvegar og gróðurfars
hins vegar.
Árangur náðst
í landgræðslu
Sveinn sagði að mikilsverður
árangur hefði náðst á ýmsum
sviðum, sérstaklega í land-
græðslu. Samt væri verk að vinna.
Hann sagði að nauðsynlegt væri
að tryggja sjálfbæra nýtingu af-
rétta en ekki væru til staðar í dag
nothæfar leiðir í lögum til að
takast á við þau vandamál sem
fylgdu ofnýttum afréttum. En von
væri að bragarbót yrði gerð þar á
því að um þessar mundir væri
verið að endurskoða lög í því sam-
bandi í landbúnaðarráðuneytinu.
Sveinn lagði einnig áherslu á að
búvörusamningar yrðu um-
hverfistengdir, þannig að bænd-
um, sem sýndu fram á að fram-
leiðsla þeirra væri umhverfisvæn,
yrði umbunað.
í erindi Magnús-
ar Jóhannessonar,
ráðuney tisstj óra
umhverfisráðuneyt-
inu, kom fram að
barátta gegn meng-
un í hafinu væri for-
gangsverkefni íslenskra stjórn-
valda í umhverfismálum. Magnús
sagði að vandamálið væri m.a. það
að flest ríki heims settu hafmeng-
un ekki ofarlega á forgangsröð
sína í umhverfismálum og þess
vegna teldi hann hana vera van:
metnasta umhverfisvandamálið. í
máli hans kom fram að um 80%
allrar mengunar í hafi kæmu frá
landi og þar væri því rót vandans.
Islendingar væra aðilar að svæð-
isbundum samþykktum varðandi
mengun fi'á landstöðvum og sam-
kvæmt þeim viðmiðunum er ástand-
ið ekki alvarlegt í hafinu við Island.
En það kæmi hins vegar á móti að
menn hefðu áhyggjur af langt að
kominni mengun, einkum mengun
af völdum geislavirkra og lífrænna
þrávirkra efna sem bærist með haf-
og loftstraumum. Magnús telur að
öryggismörk ýmissa þrávirkra
mengunarefna í matvælum muni
verða lækkuð í framtíðinni og vísaði
máli sínu til stuðnings til díoxín-um-
ræðunnar innan Evrópusambands-
ins og það gæti komið Hla niður á ís-
lenskum sjávávarútvegi. Þess vegna
væri afar mikilvægt íyrh- íslensk
stjómvöld að berjast fyrir alþjóð-
legum aðgerðum til vamar mengun
hafsins því við hefðum ekki tök á því
sjálf að koma í veg fyrir allar upp-
sprettur mengunai’.
Verndun menningar-
landslags
Umhverfisvemd nær ekki ein-
ungis til náttúrannar. í kjölfar auk-
ins áhuga mannsins á umhverfi sínu
hafa menn farið að skoða umhverfis-
vemd frá öðram sjónarhomum.
Stefán Gíslason, verkefnisstjóri
Staðardagskrár 21 á íslandi, sagði
frá verkefnum tengdum vemdun
menningarlandslags á Islandi og
rakti sögu hugtaksins. Menningar-
landslag nær til þeirra svæða sem
bera með sérstökum hætti vott um
athafnir mannsins á ýmsum tímabil-
um og beri því að vemda. í máli
Stefáns kom fram að jaðarbyggðir
gegndu lykilhlutverki við vemdun
menningarlandslagsins því þær
væra útverðir menningarinnar og
bæri því að varðveita þær. Fyrii-
marga gæti í þessu falist ný sýn á
byggðastefnu og mikilvægi hennar.
Stefán sagði að menn væru að vakna
til meðvitundar um þessi mál og
sagði í því samhengi frá merkilegu
verkefni ungmennafélagsins Hvatar
á Kirkjubólshreppi norður á Strönd-
um. En ungmennafélagið hefur
staðið fyrir skráningu á menningar-
landslagi hreppsins, en í því felst
skráning á ömefnum og öðru af því
tagi. Eftir fimm mánuði var búið að
skrásetja 15 þúsund atriði. Sagði
Stefán þetta ekki einungis bera ríkri
sögu hreppsins vitni heldur væri
ennfremur áminning um hversu
mikilvægt væri að skrásetja sögu
einstakra héraða með þessum hætti
svo að sérstaða þeirra gleymist ekki.
Steinunn Jóhannesdóttir rithöf-
undur velti fyrir sér hversu um-
hverfisvænn hinn venjulegi íslend-
ingur væri. Hún benti á að í endur-
teknum skoðanakönnunum kæmi
það fram að 70-80% íslensku þjóð-
arinnar vildu að Fljótsdalsvirkjun
færi í umhverfismat. Og á sama
tíma kæmi einnig fram í skoðana-
könnunum að ríkisstjórnin nyti
trausts. Steinunn sagði þetta vera
einkennilegan tvískinnung og hún
sakaði stjórnvöld um hugleysi í
málefnum Eyjabakka.
Möguleikar til
framfara miklir
í lok ráðstefnu tók Ólafur Örn
Haraldsson alþingismaður til máls
og reifaði þau mál sem honum
þótti standa upp úr eftir að hafa
hlýtt á erindin. Hann sagði að lesa
mætti út frá erind-
unum að Landvernd
hefði lifað mikla
breytingatíma og á
þeim tíma hefðu at-
hafnir og hugarfar
landsmanna einnig
breyst. Almenningur
ætti auðveldara að hafa áhrif í bar-
áttunni við verndun landsins. Ólaf-
ur sagði að staðan í umhverfismál-
um í dag væri ekki viðunandi en
það vegi hins vegar á móti að
möguleikarnir til framfara væru
miklir. Með menntun og aukinni
vitund almennings fyrir umhverf-
ismálum er hægt að lyfta
grettistaki.
60% birkiskóga
í landinu eru
enn beitt, en
þeir þekja um
1% landsins
Öryggismörk
þrávirkra meng
unarefna í mat-
vælum lækka
í framtíðinni