Morgunblaðið - 02.11.1999, Blaðsíða 64
< 64 ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
Fyrirlestur í sagnfræði
r Umheimurinn ásælist
Islandsverslun
ANNA Agnarsdóttir, dósent við
sagnfræðiskor Háskóla Islands,
flytur fyrirlestur í dag, þriðjudag,
sem hún nefnir: „Umheimurinn
ásælist Islandsverslunina". Fund-
urinn verður haldinn í Þjóðarbók-
hlöðu á 2. hæð í hádeginu
(12:05-13:00) og er, eins og aðrir
fyrirlestrar á þessu misseri, hluti
af fyrirlestraröð Sagnfræðingafé-
lags íslands sem nefnd hefur verið:
Hvað er hagsaga?
Anna Agnarsdóttir hefur meðal
annars fengist við rannsóknir á
verslunarsögu um árabil og hefur
einbeitt sér aðallega að samskipt-
um íslendinga og Breta, einkum á
átjándu og nítjándu öld. Áhugamál
Önnu hafa einnig beinst að póli-
tiskum málum á þessu tímabili og
nýlega birti hún grein í Sögu sem
ber heitið „Var gerð bylting á Is-
landi sumarið 1809?“ Sagn-
fræðiskor hvetur alla áhugamenn
um sögu til að koma á fundinn og
taka þátt í umræðum um efnið.
Aðgerðarannsóknir
í verslun
AÐGERÐARANNSÓKNAFÉLAG
Islands heldur fund um aðgerða-
rannsóknir í verslun miðvikudaginn
3. nóvember kl. 16-17.30 í nýju vöru-
húsi Aðfanga (Baugs) í Skútuvogi 7.
Kl. 16 verður kaffi og spjall og að
því loknu verður skoðunarferð um
- húsið. Þá verður flutt erindi og að
því loknu verður rabb og hugbúnað-
ur skoðaður.
Að lokinni skoðunarferð flytur Jón
Sch. Thorsteinsson erindi um notkun
aðgerðarannsókna hjá Baugi (og víð-
ar í verslun). Hann mun m.a. koma
inn á skipulag og uppbyggingu
dreifikerfís, hermun við greiningu á
biðröðum í verslunum, notkun að-
ferðar Winters við hálfsjálfvirkar
pantanir og notkun gámaraðara til
að velja í gáma með kvikri bestun.
Valdís Eyjólfsdóttir, B.Sc. frá
Samvinnuháskólanum í Bifröst, segir
frá skipulagningu mannahalds með
hjálp línulegrar bestunar. Loks sýn-
ir Þór Arnar Curtis, verkefnisstjóri
hjá Hagkaupi, rýmisráðstöfunarfor-
rit sem notað er við birgða- og sölu-
stýringu í verslunum Hagkaups.
%vif/^(V\V Brúðhjón
Allur borðbúndður - Glæsileo gjafavara - Briiðhjónalislar
^l/AyC\\V\V . yersluNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
\
Nýtt 00 eiquteqt
mamammyndir, kítu/erskir Uasar,
finqurbjarqaskápar, skeiðaskápar
Kitja
Miðbæ, Háaleitisbraut 58—60
Sími 553 5230.
f
Veloursloppar
Frottésloppar með hettu
Náttkjólar, stuttir og síðir
iÆeyjamai% < á/A/u/'oe/'r,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Einelti gegn
samkyn-
hneigðum
ÉG vil taka undir með Al-
bert Jensen í grein hans á
bls. 63, föstudaginn 29.
október, þar sem hann
gagnrýnir endalausar
árásir á samkynheigða.
Mér fínnast þessar eilífu
ofstækisfullu árásir á sam-
kynhneigt fólk vera til há-
borinnar skammar. Ég hef
á lífsleiðinni kynnst mörgu
samkynhneigðu fólki, á
sama hátt og maður kynn-
ist gagnkynhneigðu fólki -
og skil ekki mismuninn á
þessu fólki sem manneskj-
um. Ég hef líka í gegnum
lífsleiðina eignast marga
góða vini og vinkonur sem
eru samkynhneigðir, á
sama hátt og maður eign-
ast gagnkynhneigða vini
og vinkonur. Og mér koma
kynhneigðir hvorugs hóps-
ins við.
Getur ef til vill verið að
þeir sem halda uppi þess-
um skammarlegu árásum
og einelti gagnvart sam-
kynhneigðum séu ef till vill
samkynhneigðir sjálfir og
þori ekki „að koma út úr
skápnum" - skrifa frekar
greinar til að friða eigin
sál?
Mér er bara alveg sama
hvort eða hvers vegna fólk
er gagnkynhneigt eða
samkynhneigt og skil ekki
fólk sem ekki hefur öðru
þarfara að sinna heldur en
að halda uppi ofstækisfull-
um ofsóknum á samkyn-
hneigða á síðum dagblaða.
Fordómar sem í slíkum
greinum birtast segja
meira um höfundinn og
hans andlega þroska held-
ur en um samkynhneigða.
Allar árásir gagnvart
minnihlutahópum eru ein-
elti og annað ekki og löngu
sannað mál að þeir sem
einelti stunda eru veikir á
sáhnni. Mér íinnst hins-
vegar að það mættu gjarn-
an birtast fleiri greinar til
að fordæma kynferðislega
áreitni, og þá ekki síst
slíka áreitni gegn börnum.
Þar finnst mér svo sannar-
lega vera á ferðinni um-
talsverð bilun - að ráðast
þannig á þá sem ekki fá
hönd borið fyrir höfuð sér
- og dómar í slíkum máium
skammarlega vægir.
Hvar eru nú kirkjunnar
menn og aðrir sem for-
dæma samkynhneigða?
Hvers vegna skrifar
þetta fólk ekki grein eftir
grein tii að fordæma mis-
þyrmingu af þessu tagi?
Fordómar geta tæpast
sprottið upp af skynsemi
og víðsýni heldur af skorti
á hvorutveggja. Og hvern-
ig væri þessi heimur ef all-
ir væru alveg nákvæmlega
eins, með sama húð-, hára-
og augnlit, jafn háir, jafn
þungir, notuðu sömu fata-
stærð, borðuðu alltaf allir
samskonar mat, hugsuðu
allir alveg eins, gerðu bara
eins og allir hinir og svo
má lengi telja? Er ekki ögn
skemmtilegra að lifa í
heimi sem er margbrotinn
heldur en fábrotinn?
Skyldi einhverjum koma
það við er rétt að fram
komi að ég er gagnkyn-
hneigð, en á erfitt með að
þola fordóma.
Guðrún Jóhannsdóttir,
Túngötu 20, Bessast.hr.
Sorglegt ef menn
halda að álver
bjargi öllu
MÉR finnst sorglegt ef
menn hafa það sem trú-
aratriði að álver leysi allan
vanda. Ymsir verkalýðs-
foringjar með Sigurð Ingv-
arsson, forseta Alþýðu-
sambands Austurlands í
broddi fylkingar, hafa það
að trúaratriði að álver á
Reyðarfirði leysi allan
vanda í sambandi við fólks-
flóttann af landsbyggðinni.
Mörg ungmenni segjst
ekki vera að læra til að
vinna í álveri. Þetta unga
fólk kemur ekki til með að
flytja á heimaslóðir að
námi loknu á höfuðborgar-
svæðinu. Það mun setjast
þar að, þar sem það fær
vinnu við það sem það hef-
ur lært til.
Það er alitof mikil ein-
foldun á hlutunum að
halda að álver muni snúa
við fólksflóttanum af
landsbyggðinni. Þeir sem
það halda eru steinrunnir.
Það þarf að koma eitthvað
allt annað og meira til að
snúa þessari þróun við.
Það er kannski of seint í
rassinn gripið. Menn hefðu
átt að vera búnir að átta
sig á þessu mikið fyrr.
Fólk hefur verið of upp-
tekið af kapphlaupinu við
góðærið sem ekki kom við
hjá hinum almenna verka-
manni. Þessi fólksflótti er
vandi allrar þjóðarinnar,
ekki síst vandi höfuðborg-
arinnar.
Gunnar G. Bjartmarsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Afmœlisíilboð
fiUINCT
P A R I 5
í tilefni af 2 ára starfsafmceli
Snyrtistofunnar Gyðjunnar,
bjóðum við Hydradermie
(Cathiodermie) fullkomna
djúphreinsi- og rakameðferð.
Tilboðið gildir til og með 19. nóv.
Snyrtitaska að andvirði
kr. 1.500 fylgir með í
kaupbœti.
an
snyztistofa
Skiphoiti 70, sími 553 5044
Yíkverji skrifar...
EIMSKIPAFÉLAG íslands fékk
í liðinni viku viðurkenningu
Jafnréttisráðs fyrir þróun og stöðu
jafnréttismála hjá fyrirtækinu en
félagið hefur unnið markvisst að því
að auka hlut kvenna í stjómunar-
og ábyrgðarstöðum.
Kvenstjómendum hjá fyrirtæk-
inu hefur fjölgað mjög á síðustu
fimm árum í skipuriti yfirstjórnar
eða úr einni í átta. í Morgunblaðinu
á laugardag kemur fram að það hafi
verið fremur fátítt að konur væru í
stjómunarstörfum hjá flutningafyr-
irtækjum innanlands sem utan.
Það er því mjög ánægjulegt að
sjá þegar stór fyrirtæki eins og
Éimskip, þar sem hefðbundin karla-
störf eru í meirihluta, taka ákvörð-
un um að fjölga konum í stjómunar-
störfum markvisst. Mættu fleiri fyr-
irtæki fylgja fordæmi Eimskips.
xxx
UNDANFARIÐ hafa birst jóla-
auglýsingar frá Ikea í fjölmiðl-
um. Hefur þetta farið fyrir brjóstið
á ýmsum sem Víkverji hefur hitt.
Finnst fólki heldur snemmt að
horfa á jólasveina í innkaupaleið-
angri í október. Þegar Víkverji var
yngi-i var yfirleitt miðað við fyrsta
sunnudag í aðventu þegar kom að
jólaauglýsingum og útstillingum í
verslunum að Rammagerðinni und-
anskilinni. Vonandi eiga kaupmenn
eftir að hemja sig í alla vega tvær
vikur í viðbót með jólaskreytingam-
ar enda lítið orðið eftir að tilhlökk-
uninni hjá bömum sem fullorðnum
síðustu dagana fyrir jól ef auglýs-
ingar og jólaskraut hafa verið fyrir
augunum á fólki í tvo mánuði áður
en hátíðin gengur í garð.
VÍKVERJI hefur þurft að hafa
talsverð samskipti við ferða-
skrifstofuna Samvinnuferðir-Land-
sýn að undanfórnu vegna ferðar sem
framundan er til útlanda. I byrjun
fóru samskiptin aðallega fram í
gegnum síma en eftir að hafa fengið
uppgefið netfang hjá einni af þeim
sem starfa hjá ferðaskrifstofunni
hafa samskiptin aðallega farið fram í
gegnum tölvupóst. Verður Víkverji
að taka ofan fyrir viðkomandi starfs-
manni þar sem hún hefur reynst
honum mjög vel og séð alfarið um að
ganga frá öllum lausum endum hratt
og fast. A ferðaskrifstofan þakkir
skildar fyrir mjög góða þjónustu.
Síðan er bara að vona að hið sama
verði uppi á teningnum varðandi
flugið en Víkverji man ekki eftir að
hafa ferðast með Atlanta öðruvísi en
tafir hafi orðið á fluginu.