Morgunblaðið - 02.11.1999, Blaðsíða 48
4§ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Fj öldaútbur ður
Félagsbústaða
Á FORSÍÐU Dags
14. október er skýrt
frá því að Félagsbú-
staðir hyggist bera út
með valdi kringum 50
leigjendur sem ekki
hafa staðið í skilum
með húsaleigu. Gefinn
qt viss frestur til að
leigjendurnir geti gert
eitthvað í málum sín-
um en síðan fá þeir að
kenna á því. Sagt er að
sumir hafi ekki greitt
leigu árum saman og
skuldi miljónir (sem
þýðir auðvitað að þeir
munu aldrei geta
greitt skuldina að
fullu). Þó hefur ekki komið til út-
burðar hingað til vegna þess að áð-
ur hafi skuldir leigjenda við slíkar
aðstæður verið felldar niður og þeir
byrjað aftur á núlli. En nú þegar
leiguíbúðir Reykjavíkurborgar eru
reknar sem einkafyrirtæki, Félags-
bústaðir, sem þarf að bera sig og
helst skila hagnaði,
hefur verið tekin upp
harðari stefna gagn-
vart leigjendum. Það
fylgdi fréttinni að eng-
ar athugasemdir hafi
komið fram um út-
burðinn í Félagsþjón-
ustu Reykjavíkur-
borgar. Sú staðreynd
vitnar um það altæka
skeytingarleysi um
hag náungans sem rík-
ir í þessu góðærissam-
félagi. Það er því ekki
að undra að fréttin í
Degi hefur sama sem
engin viðbrögð vakið
og aðrir fjölmiðlar hafi
ekki tekið upp málið. Þó hringdi
einhver Sigrún í Morgunblaðið 17.
október og hafði miklar áhyggjur.
Segist hún hafa talað við borgar-
fulltrúa R-listans, sem hún nafn-
greinir því miður ekki, og hann
„vildi halda því fram að um óreglu-
fólk væri að ræða“, og að þessir
Leiga
Það er efnaminnsta
fólkið, segir Sigurður
Þór Guðjdnsson,
sem leigir hjá Félags-
bústöðum.
leigjendur hafi safnað miklu fé inn
á reikninga en borgi samt ekki
leigu. Þama er furðuleg mótsögn.
Óreglufólk safnar ekki fé inn á
bankareikninga. En víkjum nú í
aðra átt. Helgi Seljan, fram-
kvæmdastjóri Öryrkjabandalag-
sins, skrifar í Morgunblaðið 14.
október greinina „Fátækt í skugga
fimmtán milljarða“. Hann spyr:
„Er ástæða til að raupa af milljarða
tekjuafgangi þegar fátækt og allt
yfir í hreina neyð er hlutskipti alltof
margra?“ Hann bendir á að orsakir
Signrður Þór
Guðjónsson
JÓLABLAÐAUKI
Jólamatur,
gjafir og föndur
Auglýsendur athugið!
Bóklð auglýsingar í tíma þar sem uppselt hefur verið í
jólablaðauka fyrri ára.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 föstudagínn
12. nóvember.
Allar nánarl upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 5691111.
AUGLÝSINGADEILP
Sími 569 1111 • Bréfaslmi 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
fátæktar séu ýmsar en sú helsta sé
ónógar tekjur. Það gildi ekki síst
um lífeyrisþega.
Fjölmörgum spurningum er ós-
varað varðandi leigjendur Félags-
bústaða sem á að bera út. Hvað eru
heildarskuldirnar miklar? Eiga
leigjendur sem komist hafa í vand-
ræði beinlínis vegna stefnu í
greiðslupólitík sem mótast hefur á
löngu tímabili og þegjandi sam-
komulag var um að gjalda hennar
nú? Hversu margir þeirra sem á að
bera út eru öryrkjar eða ellilífeyris-
þegar? Hafa þeir raunverulega efni
á því að greiða leiguna? Er þetta
fjölskyldufólk? Hve mörg börn fara
á götuna? Eða er um að ræða að-
gerðir gegn einstæðingum? Og
þetta er tímamótaviðburður. Ekki
er verið að segja upp einstökum
leigjendum eins og gengur heldur
er í reynd um fjöldauppsagnir að
ræða hvernig sem formlega verður
að þeim staðið. Með öðrum orðum
er þetta hápólitísk aðgerð í víðum
skilningi.
Það er efnaminnsta fólkið sem
leigir hjá Félagsbústöðum. Fátækt
fólk hefur ávallt mátt þola fordóma
og auðmýkingu valdhafa og hinna
efnameiri. Það hefur verið sakað
um hvers kyns siðferðisbresti, svo
sem óreglu, lauslæti og hvinnsku.
Skýringar Félagsbústaða eða borg-
aryfirvalda á fjöldauppsögnum
vegna óreglu leigjenda eru mjög
h'tilsvirðandi og meiðandi fordómar
nema fram komi óyggjandi gögn
fyrir því að þær séu réttar. Það
hlýtur að vera skylda Félagsbú-
staða og borgai'yfirvalda að gera
opinberlega nákvæma grein fyi-ir
forsendum uppsagnanna án þess að
draga nöfn einstaklinga fram í
dagsljósið. Það er alls engin ástæða
til að trúa því hráu að helsta eða
eina orsök skuldanna sé óregla eða
aðrir siðferðisbrestir. Ef vel væri
að gætt er ekki ólíklegt að ástæðan
sé fyrst og fremst litlar tekjur
margra leigjenda í hinu kröfuharða
neyslusamfélagi, samanber orð
Helga Seljans. En það er sígilt
Álsuða
Ryðfrí suða
Getum bætt við okkur
verkefnum í álsuðu
og ryðfrírri suðu.
Hafið samband og
leitið tilboða
bragð að afneita slíkri neyð með
skírskotun til lélegs manngildis og
siðferðis hinna efnaminnstu í þjóð-
félaginu. Utburður vegna fátæktar
verður þá fóðraður sem útburður
vegna óreglu. Og góðærissamfélag-
ið hefur áfram engilhreina sam-
visku.
Hvað segja borgarfulltrúar um
fyrirhugaðan útburð? Eða alþingis-
menn? Og hvað gerir Öryrkja-
bandalagið? Ætlar það að horfa
upp á það þegjandi og hljóðalaust
ef margir örykjar verða bornir út á
götu með valdi af borgaryfirvöldum
á því heirans ári 2000 þegar
Reykjavik verður ein af „menning-
arborgum" Evrópu? Og hvað segir
Þjóðkirkjan á þúsund ára afmæli
kristnitökunnar?
Sannleikurinn er sá að húsaleiga
Félagsbústaða er hreinlega of há
þó hún sé reyndar það lægsta sem
er í boði á markaðnum. Hún er til
dæmis orðin einn þriðji eða jafnvel
helmingur af bótum öryrkja sem
eru í hæsta lagi 70 þúsund krónur á
mánuði. Það er því lítið sem ekkert
svigrúm til „mannsæmandi lífs“.
Enda lifa nú margir öryrkjar eins
og skepnur. Þeir éta bara og sofa.
Ekki safna þeir fé í banka! Það veit
sá sem allt veit. Leiguíbúðir borg-
arinnar eru að verða mörgu af
tekjuminnsta fólkinu, sem þær áttu
þó að þjóna og þjónuðu allvel um
árabil, gersamlega ofviða. Og ör-
yrkjar dragast æ meira aftur úr
öðrum í lífskjörum, færast lengra
og lengra út á jaðra mannlífsins. Þá
verður botnlaus fyrirlitning hlut-
skipti þeirra. Það gerist ætíð þegar
einhverjir hópar verða áberandi fá-
tækari en aðrir. Hætt verður að líta
á fólkið sem manneskjur og þá má
bjóða þeim allt. Nákvæmlega það
endurspeglast í því, að án fullnægj-
andi skýringa eigi að bera út stóran
hóp af verst settu þegnum borgar-
innar, án þess að nokkur aðili sem
vald hefur og áhrif lyfti upp litla
fingri þeim til hjálpar. Þá verða
leigjendurnir að treysta á sjálfa sig.
Það er orðin afar brýn og tafarlaus
nauðsyn að leigjendur Félagsbú-
staða stofni með sér hagsmuna-
samtök til að gæta réttar síns gagn-
vart leigusala og borgaryfirvöldum.
Mér er sem ég sjái upplitið á eig-
endum Félagsbústaða og borgaryf-
irvöldum ef allir leigjendur sem
einn neituðu til dæmis að greiða
húsaleigu fyrr en hætt verði við
skipulagðan fjöldaútburð leigjenda
og fundin önnur og mannúðlegri
lausn á vanda þeirra. Þúsund
manns yrðu aldrei bornir út en
fimmtíu fá að fjúka.
Höfundur er rithöfundur.
K. K. Blikk Smiðja ehf.
Eldshöfða 9.
sími 587 5700
Súrefnis vörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
becR^'F 10 ára
Verið velkomin 2. nóv.
Ymis tilboð
Nýtt - Arumyndavél - Nýtt
Þeir sem panta 2. nóv. fá 15% afslátt