Morgunblaðið - 02.11.1999, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.11.1999, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hugsanleg innherjaviðskipti með hlutabréf í ÍS könnuð VERÐBRÉFAÞING íslands hef- ur sent Fjármálaeftirlitinu grein- argerð um hugsanleg innherjavið- skipti með hlutabréf í íslenskum sjávarafurðum, í tengslum við samruna félagsins við Sölusam- band íslenskra fiskframleiðenda, SÍF. Mikil viðskipti urðu með hluta- bréf í ÍS áður en tilkynnt var um samruna félaganna og urðu þau til- efni athugunar Verðbréfaþings fs- lands í samráði við Fjármálaeftir- litið. VÞÍ óskaði eftir gögnum frá þingaðilum um öll viðskipti með hlutabréf í ÍS frá þriðja ágúst sl. Páll G. Pálsson, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, staðfesti í samtali Rannsókní höndum Fjármála- eftirlitsins við Morgunblaðið að eftirlitinu hefði borist ítarleg greinargerð frá Verðbréfaþingi, en vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti, enda væri það á viðkvæmu stigi. Stefán Halldórsson hjá Verðbréfa- þingi tók í sama streng. Hann sagði þó að rannsóknin væri að fullu komin í hendur Fjármálaeft- irlitsins. Um innherjaviðskipti er fjallað í 4. kafla laga nr. 13 1996 um verð- bréfaviðskipti, auk reglugerðar 433 frá 1999 um upplýsingaskyldu út- gefanda, kauphallaraðila og eig- enda verðbréfa sem skráð eru í kauphöll. Samkvæmt 2. mgr. 59. gr. laganna varða brot við 4. kafla sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Þar segir einnig að heimilt sé að gera upptækan með dómi beinan eða óbeinan hagnað sem hlotist hafi með broti gegn ákvæð- um 4. kafla. Eftir þvi sem Morgun- blaðið kemst næst hefur ekki reynt á þessi ákvæði í íslenskum rétti. ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 21 ESB samþykk- ir kaup New Holland á Case FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins hefur fallist á kaup vinnuvélaframleiðandans New Holland NV, sem að stærstum hluta er í eigu Fiat á Italíu, á bandarískum keppinaut sínum, Ca- se Corp. Skilyrði fyrir kaupunum er að hluti af verksmiðjum og rétt- indum fytirtækjanna vegna fram- leiðslu landbúnaðarvéla verði seld, vegna hættu á að nýja fyrirtækið nái einokunarstöðu á nokkrum mörkuðum, meðal annars á Islandi. Gunnar Viðar Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Véla og þjónustu, sem er umboðsaðili Case á Islandi, segist ekki búast við mikilli upp- stokkun í sölukerfi Case, eða ann- arra vörumerkja sem hið samein- aða fyrirtæki selur, enda setti Evr- ópusambandið það einnig sem skil- yrði að þeir sem kaupi framleiðslu- réttindin fái aðgang að sölukerfi sameinaða fyrirtækisins. Búast má við, miðað við skilyrðin sem ESB hefur sett fyrir samein- ingu fyrirtækjanna, að Case þurfi að selja dráttarvélaverksmiðju sína í Doncaster á Bretlandi, sem fram- leiðir meðal annars dráttarvélar af gerðinni CX og MXC. Gunnar segir að líklega muni framleiðslu verk- smiðjunnar áfram verða dreift um sölukerfi Case, og því sé sennileg- ast að Vélar og þjónusta muni selja hana eftir sem áður. Gunnar segir að sala á vélum sem framleiddar eru í Doncaster skili um 10% af veltu fyrirtækisins. Veltan var samtals um 1.700 millj- ónir króna í fyrra. Aðrir umboðsaðilar véla sem nýja sameinaða vinnuvélafyrirtæk- ið framleiðir eru meðal annars Vélaver, Bræðurnir Ormsson og Ingvar Helgason. ------------------ Aer Lingus hættir flugi til Stansted Dyflinni. Reuters. ÍRSKA ríkisrekna flugfélagið Aer Lingus hefur ákveðið að hætta að nota Stansted-flugvöll Lundúna í janúar og fljúga í staðinn til næst- stærsta flugvallar borgarinnar, Gatwick. Eftir yflrlýsingu Aer Lingus til- kynnti aðalkeppinauturinn, Ryanair Holdings Plc, sem er þekktur fyrir lág fargjöld, að ferðum Ryanairr til og frá Stansted yrði fjölgað um þriðjung í janúar. Um leið varaði Ryanai Aer Lingus við því að ákvörðun Aer Lingus mundi leiða til hærri farg- alda í áætlunarflugi milli Irlands og Lundúna. Aer Lingus hefur nýlega hafið flug til London City-flugvallarins og heldur einnig uppi ferðum til Heathrow. Félagið vill ná til efnaðri farþega í Gatwick og auðvelda skipulagningu framhaldsflugs með bandalagsfélögunum British Air ways Plc og American Airlines. Hfflvinnulausnir VKS HÓPVINNULAUSNIR VKS straumlínulaga starfsemi fyrirtækis þíns - gera það samkeppnishæfara með því að nýta upplýsingatækni til samhæfingar starfsfólks. Lausnirnar veita stjómendum betri yfirsýn, einfalda ákvarðanatöku, auðvelda miðlun upplýsinga og einfalda dreifingu verkefiia. HÓPVINNULAUSNIR VKS vinna í Outlook hópvinnuumhverfi frá Microsofit og birtast sem hluti af því. Notendur eiga þess vegna auðvelt með að tileinka sér lausnirnar. TMfusion SAMSKIPTASTJÓRINN styrkir stjórnun fyrirtækisins, styttir afgreiðslu og stjórnunartíma. Samskiptastjórinn leiðir til markvissari vinnubragða með fúllkominni samskiptaskráningu fyrirtækis og viðskiptavinar. PJÓNUSTUSTJÓRINN sparar tíma og peninga með skipulagi á ferli þjónustubeiðna. Hann stuðlar að mark- vissum vinnubrögðum og flýtir fyrir úrlausnum. ||| UPPLÝSINGASTJÓRINN breytir óskipulegu upplýsingaflæði í skipulegan upplýsingagrunn. Aðföng, fréttir, viðvera, þekking, fundir, verkefhi, skilaboð og vefföng eru skipulega skráð og aðgengileg. Frá stofnun, árið 1979, hefur VKS verið í fararbroddi á íslenskum hugbúnaðarmarkaði. VKS féltk fyrst íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja ISO 9001 gæðavottun árið 1995, í samræmi við stefnu fyrirtækisins um góð vinnubrögð og vandaða þjónustu. VKS B í I d s h ö t ð a 14 • 112 R e y k j a v í k VERK-OG KERFISFRÆÐISTOFAN HF RÁÐGJÖF • HUGBÚNAÐARÞRÓUN • TÖLVUKERFI V e í í a n g vv vv w. v k s. í s
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.