Morgunblaðið - 02.11.1999, Page 35

Morgunblaðið - 02.11.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 35 LISTIR Nýjar bækur • SPOR, greinar um heilbrigðis- máler eftir Guðrúnu Marteinsdótt- ur. Ritstjórar útgáfunnar eru Sóley S. Bender og Marga Thome. Verkið hefur að geyma greinar sem Guð- rún, samdi á árunum 1981-1994. Þar er fjallað um margvísleg heil- brigðismál einkum heilsugæslu. Guðrún Marteins- dóttir var fædd árið 1952. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunar- fræði frá Há- skólaíslands árið 1977 og MS-prófi frá Guðrún háskólanum í Marteinsdóttir Boston í Bandaríkjunum árið 1980 með áherslu á heilsugæslu. Hún var að ljúka doktorsnámi við háskólann á Rhode Islandi í Bandaríkjunum þegar hún lést árið 1994. Guðrún kenndi við námsbraut í hjúkrunar- fræði frá 1980 og til dauðadags og markaði mikilsverð spor í þróun hjúkrunarmenntunar og hjúkrun- arfræði. Hún var farsæll kennari og var það einkar lagið að glæða áhuga nemenda á viðfangsefninu hverju sinni, segir í fréttatilkynningu. IJtgefandi er Háskólaútgáfan og Námsbraut í hjúkrunarfræði ogsér Háskólaútgáfan um dreifingu. Verð: 980 kr. Allur ágóði afsölu þessa rits rennur til minningarsjóðs Guðrún- ar Marteinsdóttur. Verk Þóru Einarsdóttur í Listahorninu á Akranesi. Málverk á horninu NÚ stendur yfir sýning á verkum Þóru Einarsdóttur í Listahominu, Kirkjubraut 3 á Akranesi. Þóra sýnir málverk sem unnin eru á silki og eru þau öll unnin á þessu ári. Þóra stundaði nám við Mynd- listaskólann í Reykjavík á árunum 1991-95 í teikningu og olíumálun. Hún hefur einnig sótt námskeið í silkimálun. Þóra hefur haldið tvær einkasýningar og einnig er hún með myndir sínar til sýnis og sölu í Gallery Hnoss, Skólavörðustíg 22 silki í Lista- áAkranesi í Reykjavík, ásamt fimm öðrum lista- og handverksmönnum. Sýningin stendur til 22. nóvem- ber og er opin virka daga frá kl. 11:00-17:00. ♦ ♦ ♦ Sungið á Suðurnesjum LEIKLIST F r u m I e i k h ií s i ö K e I' I a v í k Leikfélag Keflavíkur OLIVER Höfundur leikgerðar, söngtexta og tónlistar: Lionel Bart. Leikstjóri, leikmynd: Þröstur Guðbjartsson. Tónlistarstjóri og undirleikari: Ein- ar Örn Einarsson. Búningar: Svein- dís Valdemarsdóttir. Helstu leik- endur: Tinna Kristjánsdóttir, Jón Marinó Sigurðsson, Guðmundur Hreinsson, Halla Sverrisdóttir, Freydís Kneif Kolbeinsdóttir, Einar Lars Jónsson, Sólrún Steinarsdótt- ir, Sigurður Arnar Sigurþórsson, Anna Þóra Þórhallsdóttir. Frumsýning í Frumleikhúsinu, Kefiavík, 27. október. FYRIR áhugaleikhús á borð við Leikfélag Keflavíkur hefur söng- leikurinn Oliver þann ótvíræða kost að fjölmenni þarf til að setja hann á svið svo bragð sé að, og þar af margt ungt fólk. Hér fá mörg áhugasöm ungmenni tæki- færi til að stíga sín fyrstu skref á sviði undir leiðsögn reyndra leik- ara og leikstjóra. Þetta er hið besta mál og undirstrikar svo ekki verður um villst félagslegt mikilvægi áhugaleikhússins. Þessi sýning á veraldargengi Olivers, hnokkans úr sögu Charles Dickens, er því öðrum þræði fé- lagsleg uppákoma ekki síður en leiklistarleg og ber að skoða hana sem slíka. Búningar og gervi voru góð og setja hæfilega framandleg- an blæ á sýninguna, og leikmynd leikstjórans hentaði margvísleg- um kröfum verksins nokkuð vel. Tónlistarstjórinn, Einar Örn Ein- arsson, spilaði næmlega undir. Af unga fólkinu mæddi hvað mest á Tinnu Kristjánsdóttur, Einari Lars Jónssyni, Sigurði A. Sigur- þórssyni og Sólrúnu Steinarsdótt- ur, og stóðu þau sig öll vel í hlut- verkum sínum og Einar Lars afbragðsvel sem hr. Sowerberry. Guðmundur Hreinsson og Halla Sverrisdóttir áttu góða spretti sem Bumble og frú Corney, enda sviðsvön bæði. Þó er það stjarna þeirra Keflvíkinga, Jón Marinó Sigurðsson, sem vinnur hug og hjörtu áhorfenda sem Fagin. Jón Marinó er bæði skemmtilegur og flinkur leikari, og taktar hans og tilburðir eru eitt af því sem gerir þessa sýningu vel þess virði að sækja hana. Gleymið bara ekki að taka unga fólkið með! Guðbrandur Gíslason Hestar í Galleríi Lundi ANNA Sigga og Hadda opna sýn- ingu í Galleríi Lundi, Varmahlíð annað kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20. Þema sýningarinnar eru hestar og verkin eru ísaumaður vefnaður úr hör, rakuleir, steinleir og mál- verk. Sýningin er opin virka daga frá kl. 11-18, nema miðvikudaga, frá kl. 11-22 og stendur til föstudags- ins 19. nóvember. Fyrirsjáan- legt mannát KVIKMYNDIR Bfóhöllin, KringIu- b f ó, Stjörnubfó, Bnrgarbfó Akureyri, IV'.v j a bíó Kcflavfk THE RUNAWAY BRIDE ★ ★Vfe Leikstjóri Garry Marshall. Hand- ritshöfundar Josann McGibbon og Sarah Parriott. Kvikmyndatökust- jóri Stuart Dryburgh. Tónskáld Ja- mes Newton Howard. Aðal- leikendur Julia Roberts, Richard Gere, Joan Cusack, Hector Elizon- do, Paul Dooley, Rita Wilson, Christopher Meloni. 110 mín. Bandarísk.Paramount, 1999. FÁTT hefur breyst síðan á dög- um Pretty Woman, (’90), annað en að nú er Julia Roberts ofar Richerd Gere á kreditlistanum (at- riði sem varðar bæði laun og metn- að í kvikmyndaheiminum); mellan hennar orðin mannætan Maggí og iðnjöfurinn hans Gere, blaðamað- urinn Ike. Strokubrúðurinni er greinilega ætlað að hagnast á vin- sældum forvera síns og þó afrakst- urinn sé ekki uppá marga fiska þá sleppur hann fyrir horn. Roberts er orðinn geysivinsæl rómantísk gamanmyndaleikkona, frauðið á vel við hana og það sem bjargar Strokubrúðurinni frá að sökkva uppfyrir haus í Hollívúddklisjur, er neistinn sem skapast á milli þess- ara viðkunnanlegu stjama. I síð- asta léttmeti leikkonurnnar, Nott- ing Hill, lék hún hinsvegar á móti Hugh Grant, sem illmögulegt er að taka í fullri alvöru og aukaleikar- arnir björguðu því sem bjargað varð. Pétur Gunn- arsson verð- launaður í Caen PÉTUR Gunnarsson hlýtur bókmennta- verðlaun norrænu bókmenntahátíðar- innar í Caen í Nonn- andí sem kennd er við Norðurljós, Les Boréales de Nor- mandie. Verðlaunin hlýtur hann fyrir bók sína Punktur punktur komma strik, sem kom út í Frakklandi í vor í þýðingu Régis Boyer. Er þetta í þriðja sinn sem verð- launin eru veitt en þau nema 20.000 Upphaf þeirra kynna er í þeim dúr að Ike, blaðamaður USA Today, fréttir á ölstofu (!), eftir einni barflugunni, að í hans heima- bæ sé kvensniftin Maggí, sem hafi karlpening staðarins að háði og spotti. Teymi þá uppað altarinu og taki svo til fótanna. Þeir séu orðnir einir sex, sjö sem hafi gengið í gegnum þetta helvíti. Ike grípur söguna á lofti, hún er umsvifalaust birt, þó hann hafi ekki kynnt sér málið, kalli Maggí mannætu, ofl. miður gott. Eftirköstin vond. Maggí kærir, hún hefur aðeins teymt þá þrjá á eymnum og bendir á fjölda annarra missagna. Ike fær pokann sinn og heldur til bæjarins hennar Maggíar þar sem hann hyggst ná sér niðri á henni, hefur fregnað að hún sé vel á veg komin með að hafa enn einn sakleysingj- ann að ginningarfífli. Fólk þarf ekki að hafa doktors- gráðu til að fara nærri um endalok þessa ævintýris. Sagan er búin til í kringum stjömumar úr Pretty Woman, framleiðendurnir treyst því að eitthvað væri eftir í kusu, og hitta naglann á höfuðið. Stærsti gallinn er hversu sögufléttan er fyrirsjáanleg, þetta getur ekki endað nema á einn veg og tilraunir til að bæta úr em vandræðalegar. Samtölin eru á köflum ótrúlega slöpp, persónugerð lítilfjörleg og bærinn hennar Maggíar ekki beint af þessum heimi. Hvaða máli skipt- ir það í stjörnum prýddri róman- tískri gamanafþreyingu frá Hollí- vúdd? Gettu tvisvar. Myndin tekur að vísu fáeinar, ískyggilegar dýfur undir lokin, en sjarmi stjamanna leiðir okkur brosandi í gegnum moðsuðuna. Geri aðrir betur. Sæbjörn Valdimarsson Pétur Gunnarsson frönkum eða rúm- lega 200.000 íslensk- um krónum. Norðurljósahátíð- in hefst 16. nóvem- ber næstkomandi en á henni em kynntar norrænar bókmenn- tir. I þetta skipti verða bama- og unglingabókmenntir í brennidepli hátíð- arinnar. Verðlauna- hafi hverrar hátíðar hlýtur sérstaka at- hygli og því má vænta að Pétur muni hljóta góða kynningu á hátíðinni. Jmginti lœtur sér detta í hueoðégsémeðamuið Sérfræðingurinn, Júrn Petersen, verður til viðtals dagana 4.-7. nóvember nk. Persónuleg þjónusta í tullum trúnaði. Apollo Hdrstúdw Hringbraut 119 • 107 Reykjavík. Sími: 552 2099 • Fax: 562 2037 Alfa 156 2.0 T.S BMW 320i Audi A4 Turbo M-Benz C200 Loftpúðar 4 6 4 4 ABS hemlar Já Já Já Já Vél / hestöfl 2.0 16v /155 hö 2.0 12v/ 150 hö 1.8 20V/150 hö 2.0 16v /136 hö 4 diskahemlar Já Já Já Já Stærð LxB 4.43x1.75 4.47x1.73 4.48x1.73 4.52 x 1.72 0-100 km/klst 8.3 sek. 9.9 sek. 8.5 sek. 11.0 sek. Gelslaspilari Já Nei Nei Nei Verð í Bretlandi 2.384.000 2.596.000 2.572.000 2.624.000 Verð á íslandi 2.180.000 3.150.000 2.620.000 3.165.000 Opiö á laugardögum kl 13-17 Istraktor ?° BlLAR FYRIR ALLA SUIÐSBÚD 2 6ARÐABÆ SlMI 5 400 800 ALFA ROMEO 156 “Nýr konungur 1 milliklassa” (Autocari.ssi Þessi margverðlaunaði og frábæri bill hefur fengið frábærar viðtökur í Evrópu og á íslandi. Eigum nú nokkra bíla til afgrelðslu strax. 1.6 lítra 16 ventla vélin skilar heilum 120 hestöflum og kostar aðeins 1.790.000.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.