Morgunblaðið - 08.12.1999, Side 4

Morgunblaðið - 08.12.1999, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Aukin skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli Hættumat og séráætlun fyrir nágrannasvcitir VEGNA aukinnar skjálftavirkni í Eyjafjallajökli undanfarna mánuði hefur verið ákveðið að gert verði hættumat og vinna hafin við sér- áætlun fyrir sveitirnar undir Eyja- fjöllum, Fljótshlíð og Landeyjar vegna hugsanlegra eldsumbrota undir jöklinum. „Þetta aukna landris kom í ljós í síðustu viku þegar vísindamenn voru búnir að fara yfir mælingar sem gerðar voru í október,“ sagði Anna Birna Þráinsdóttir, settur sýslumaður í Rangárvallasýslu. „Landris hafði átt sér stað á stuttum tíma sunnan í jöklinum frá mælipunkti sem færst hafði út við Seljavelli undir Eyjafjallajökli." Samvinna almannavarna- nefnda Sagði Anna Birna að í framhaldi hafi verið ákveðið að gera sjónrænt hættumat og hefja vinnu við sér- áætlun fyrir sveitirnar sunnan við Eyjafjallajökul, Fljótshlíð og Landeyjar. Áætlunin verður unnin af almannavarnanefnd Rangár- vallasýslu í samvinnu við almanna- varnir ríkisins og almannavarna- nefnd Mýrdalshrepps. „Ef gýs sunnanvert í jöklinum er hætta á skyndilegum vatnsflóðum sunnan til og yfir bæina sem þar eru á sléttunni en vísindamenn segja að kviku- innskot, sem virðist vera að ryðjast fram sunnan í jöklinum gæti komið fram annars staðar,“ sagði hún. „Meðal annars í toppgígnum og þá er hætta á hlaupi undan Gígjökli í jöklinum norðanverðum og flóði í Markarfljóti. Þá gætu varnargarðar við Markarfljót brostið og flætt yfir Fljótshlíðina, bæina á Markarfljótsaurum og í Landeyjum.“ Borgarafundur Ráðgert er að halda borgarafund nk. þriðjudag 14. desember, þar sem séráætlunin verður kynnt íbú- um nærsveitanna. „Fundurinn er haldinn til þess að íbúar verði við- búnir en vel að merkja, vísinda- menn segja að gjóskutapinn gæti allt eins stöðvast eins og að koma upp," sagði Anna Birna. Morgunblaðið/Julíus Meiddist á fingri í rúllustiga BETUR fór en á horfðist í gær þegar ung stúlka festi fingur í rúilustiga í Kringlunni. Foreldrar telpunnar voru með í för en að sögn öryggis- varðar var ekki ljóst hvernig óhappið varð. Hann sagði að stúlkan hefði fest fingur hægri handar á hliðinni í stiganum, ekki í tönnunum sjálfum sem leggjast síðan saman þegar tvö þrej) verða að einu. Ohappið varð síðari hluta dags og var sjúkrabíll kallaður til og farið með stúlkuna á slysadeild. Utanríkisráðherra um kæru vegna forstjdrastöðu í Leifsstöð Umboðsmaður fær upplýsingarnar Hækkun útgjalda frá fjárlögum gagnrýnd við aðra um- ræðu um frumvarp til fjáraukalaga 80 breytingatillögur og 2,4 milljarða hækkun „ÞAÐ er ekkert nýmæli að aðili í þjóðfélaginu leiti til umboðsmanns um mál,“ sagði Halldór Ásgríms- Gjöld net- veitna lækka LANDSSÍMINN hefur ákveðið að bjóða svonefndum netveitum í við- skiptum hjá fyrirtækinu samninga um hlutdeild í símagjöldum vegna netnotkunar. Þannig gefst netveitunum færi á að lækka mánaðargjöld sín fyrir aðgang að netinu. Gert er ráð fyrir að samningarnir geti tekið gildi innan tveggja vikna. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Landssímanum að þessar breytingar eru þáttur í „heildar- endurskoðun á verðskrám“ og jafnframt aðlögun að nýju laga- og samkeppnisumhverfi. son, þegar álits hans á beiðni um- boðsmanns Alþingis um skýringar á þeirri ákvörðun að falla frá að skipa í stöðu forstjóra Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar en framlengja þess í stað setningu setts forstjóra um eitt ár. „I framhaldi af öllum slíkum málum leitar umboðsmaður til við- komandi ráðuneytis,“ sagði Hall- dór. „Því máli verður lokið með þeim hætti, sem gert er ráð fyrir, þannig að ég sé ekki þessa miklu frétt í þessu máli. Þetta er það sem ráðuneytin eru alltaf að gera." Löngu búið mál Halldór sagði að þetta mál væri löngu búið. „Ég gerði grein fyrir því þá og það eina sem hefur gerst er að einn umsækjenda kvartar til umboðsmanns og umboðsmaður biður um upplýsingar og hann mun að sjálfsögðu fá þær. Meira er ekki um það að segja á þessu stigi,“ sagði Halldór Asgrímsson. STJÓRNARANDSTÆÐINGAR á Alþingi gagnrýndu við aðra umræðu um frumvarp til fjáraukalaga í gær þá miklu hækkun útgjalda frá fjár- lögum 1999, sem ráð er fyrir gert í frumvarpi til fjáraukaiaga fyrir árið 1999. Jón Kristjánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar Alþingis, gerði við upphaf umræðunnar í gær grein fyr- ir nefndaráliti meh-ihluta fjárlagan- efndar um fjáraukalagafrumvarpið. Nefndin hefur lagt fram 80 breyting- artillögur við frumvarpið og fela þær alls í sér rúmlega 2,4 milljarða hækkun á því. Þar af er gert ráð fyrir tæplega tveggja milljarða króna hækkun á framlögum til sjúkrastofn- ana og kemur sú fjárhæð til viðbótar tæplega tveimur milljörðum sem þegar hafa verið lagðir til í frum- varpinu. Er jafnframt lagt til að rúmar 23 milljónir renni til embættis ríkis- lögreglustjóra og lögreglunnar í Reykjavík vegna rannsókna á um- fangsmiklum fikniefnamálum. f andsvari við ræðu Jóns gerði Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, að umtalsefni ábyrgð forsvarsmanna þeirra heilbrigðis- stofnana sem farið hefðu jafn mikið fram úr áætlun, sem sett væri fram í fjárlögum 1999, og raun bæri vitni. Svaraði Jón því til að hann myndi sannarlega ekki leiða neinar líkur að því í þessari umræðu hvort einhver yrði rekinn. Össur Skarphéðinsson, þingmað- ur Samfylkingar, tók í ræðu sinni upp þráðinn þar sem frá var horfið og ræddi í alllöngu máli um ábyrgð forsvarsmanna þeirra stofnana sem fram úr áætlun færu. Gagnrýndi hann að á meðan hver einasti hag- fræðingur, sem um málið fjallaði, mælti með að stigið væri á bremsuna til að varna ofþenslu í hagkerfinu væri formaður fjái’laganefndar á sama tíma að mæla fyrir fjárauka- lagafrumvarpi sem gerði ráð fyrir 7,9 milljarða aukningu frá því sem áætlað var í fjárlögum. Vísaði Össur því næst í álit minni- hluta fjárlaganefndar við fjárauka- lagafrumvarpið þar sem lögð væri áhersla á þær reglur sem fjárreiðu- lögin frá 1997 settu um fjáraukalög. Sagði hann að stjórnvöld féllu á því prófi sem þau sjálf hefðu sett er þau beittu sér fyrir þessum nýju fjár- reiðulögum. Verið að umbuna skussum? Össur sagði agaleysi einkenna fjáraukalagafrumvarpið, þar væri verið að umbuna skussum, þ.e. þeim forsvarsmönnum stofnana sem farið hefðu fram úr áætlun, enda hlypi rík- ið til og borgaði mismuninn. Þetta gæfi ekki heillavænleg skilaboð því þau segðu forsvarsmönnum stofnana að engin ástæða væri til að fara að fjárlögum. Jón Bjarnason, þingmaður Vin- strihreyfingarinnar - græns fram- boðs, tók í sama streng og Össur og mæltist til þess að fyrir fjárlagagerð á næsta ári lægju fyrir skýrari áætl- anii' um það hvernig forsvarsmenn FLUTNINGABÍLL frá Slátur- félagi Suðurlands, sem flutt getur 400 kindur, valt við bæinn Pétursey í Mýrdal í óveðrinu á mánudag. Bflsljórinn slapp ómeiddur og bfllinn, sem var ríkisstofnana ættu að halda sig innan ramma fjárlaganna. Einar Oddur Ki-istjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, tók undir þau orð að það væri alvarleg þróun þegar svo langt væri farið fram úr fjárlögum. Sagði hann að annað hvort ýrði mönnum að takast að koma málum þannig fyrir að allir forsvarsmenn stofnana hlýttu þeim ramma sem fjárlögin settu, og þá án undantekninga, eða hverfa þyrfti aftur til mjög miðstýrðrar samninga- gerðar á vegum hins opinbera. Fleiri þingmenn gerðu ábyrgð stjórnenda stofnana að umtalsefni en Þuríður Backmann, þingmaður Vinstri grænna, velti því hins vegar fyrir sér hvort verið væri að setja hengingaról um háls forstjóra heil- brigðisstofnana að ósekju. Sagði hún vanda þeirra mikinn, þeir væru sett- ir í stöðu sem þeir gætu ekki ráðið við nema segja upp starfsfólki eða skerða þjónustu. tómur, skemmdist ótrúlega lítið. Þegar veðrinu slotaði var farið ineð öfiug tæki til að koma bfln- um á réttan kjöl en það gekk erf- iðlega þar sem hann var orðinn fullur af snjó. GUÐRUN FERA Guðrún Helgadóttir sýnir á sér nýja hlið í bókinni Handa- gúndavél og ekkert minna! Texti bókarinnar er allur í bundnu máli með skemmti- legu rími sem bömin hafa gaman af. Falleg bók, skreytt vönduðum lit- myndum eftir Freydísi Kristjánsdóttur. Fjárflutningabfll SS var á leið að HunkubökkÍífliKáfí,báiííjánStát,ii<r1)ÁiiiI) þegar hann valt vegna óveðurs og hálku. Valt í óveðri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.