Morgunblaðið - 08.12.1999, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Lífeyrissjóðir á Suð-
urnesjum sameinast
LÍFEYRISSJÓÐUR verkafólks í
Grindavík (LVG) og Lífeyrissjóður
Suðurnesja (LS) hafa tekið ákvörð-
un um að sameina sjóðina undir
nafni Lífeyrissjóðs Suðurnesja og
við sameininguna munu eignir og
skuldbindingar LVG renna til LS.
Sameiningin tekur gildi 1. janúar
næstkomandi.
í fréttatilkynningu frá lífeyris-
sjóðunum kemur fram að stefnt sé
að því að réttindi félaga í LVG
muni frá þeim degi verða hin sömu
og þau réttindi sem félagar LS
njóta nú. Frá og með 1. janúar
næstkomandi yfirtekur skrifstofa
LS alla starfsemi LVG og annast
hún gi'eiðslu lífeyris og alla þjón-
ustu við félaga LVG.
Það er mat stjórnar sjóðanna að
stefna beri að því að auka mátt
sjóðsins með öllum tiltækum ráð-
um í því skyni að auka hagræðingu
og auka þjónustu við sjóðfélaga og
ekki síst að stefna að faglegri
vinnubrögðum í því skyni að auka
ávöxtun og minnka áhættuna, segir
í fréttatilkynningunni.
MORGUNVERÐARFUNDUR
á Hótel Sögu, Sunnusal
Fimmtudaginn 9. desember 1999
kl. 8:15 - 10:00
TREINUM
GÓÐÆRIÐ
Treystum samkeppnishæfni
íslensks atvinnulífs
Tekst að verja góðærið?
Þrengja opinber umsvif að
samkeppnishæfni atvinnulífsins?
Hver er reynsla grannþjóðanna
af gerð kjarasamninga?
D A G S K R A :
Kl. 8:15 - Morgunverður.
Kl. 8:30 - Finnur Geirsson.formaður SA,flytur ávarp.
Kl. 8:40 - Ingólfur Bender, hagfræðingur Sl:
„Framleiðslan flutt úr landi“.
Kl. 9:00 - Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur SA:
„Norska leiðin".
Kl. 9:20 -Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur:
„Nýr veruleiki?“
Fundarstjóri verður Ari Edwald.framkvæmdastjóri SA.
Salurinn opnar kl. 8:00. Fundargjald er kr 1.000
(morgunverður innifalinn).
Fundurinn er öllum opinn.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrirfram í síma:
511 5000, með símbréfi: 511 50 50
eða með tölvupósti: sa@sa.is
SAMTÖK ATVINNULIFSINS
Flutningsgjöld Eimskips og Samskipa
Hafa bæði
hækkað nýlega
EIMSKIPAFÉLAG íslands hf.
hækkaði gjaldskrá sína um 4,7%
þann 15. nóvember síðastliðinn, en
félagið hafði ekki hækkað gjaldskrá
sína síðan í ágústmánuði árið 1998
þegar flutningsgjöld hækkuðu um
1,9%.
Samskip hækkuðu gjaldskrá sína
um 3,5% þann 1. október síðastlið-
inn, en hafði áður hækkað hana um
3,7% þann 15. júlí árið 1998.
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Eimsk-
ips segir í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins að hér hafi verið á
ferðinni almenn hækkun, eins og
víða sjái stað í þjóðfélaginu. „Þetta
er til að mæta þeim kostnaðarhækk-
unum sem orðið hafa í þjóðfélaginu.
Verðbólgan er að sjálfsögðu einhver
nú um stundir, auk þess sem launa-
kostnaður, eldsneyti og íleira hefur
hækkað,“ segir Þorkell.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, tekur í svipaðan streng í sam-
tali við Morgunblaðið. „Það er fyrst
og fremst verðlagsþróunin í landinu
sem ræður þessari hækkun. Einnig
hefur gengisþróun verið okkur óhag-
stæð,“ segir Ólafur.
Borgarvefurinn
reykjavik.com
NYR upplýsingavefur á Netinu,
reykjavik.com verður opnaður í
byrjun febrúar á næsta ári. Að sögn
Hjálmars Blöndal framkvæmda-
stjóra verður reykjavik.com svo-
kallaður borgarvefur sem flytur
fréttir af því sem er á döfínni, m.a. í
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Oðumv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
menningar- og skemmtanalífi borg-
arinnar.
„Við erum með stóran gagna-
grunn í smíðum sem gerir fólki
kleift að leita með ýmsum skilyrð-
um, t.d. efnisatriðum, verði eða
staðsetningu,“ segir Hjálmar.
„Markmið með rekstri borgarvefjar
sem þessa er að hægt sé að nálgast
upplýsingar um þjónustu og afþrey-
ingu á sama stað. Jafnframt að fyr-
irtæki og þjónustuaðilar verði tengd
við gagnagrunninn okkar. Þar höf-
um við í huga verslanir, stofnanir,
veitingastaði og margt fleira.“
Stærsti eigandi fyrirtækisins
Veraldarvefjarins sem rekur
reykjavik.com er Innn ehf. Eins og
er starfa þrír hjá reykjavik.com en
nýlega var auglýst eftir starfsfólki.
Hjálmar segir íjármögnun vefjarins
að stórum hluta með auglýsingum.
„En við munum, þegar nær dregur,
kynna nýja tekjuleið sem er aðal-
lega fólgin í tengingum við vefínn
með ýmsum hætti.“
íslenski hugbúnað-
arsjóðurinn hf.
Búnaðar-
bankinn
með 10,16%
EIGNARHLUTUR Hluta-
bréfasjóðs Búnaðarbankans hf.
í íslenska hugbúnaðarsjóðnum
hf. er nú 10,16%, eða að nafn-
verði 38,86 milljónir. Eignar-
hlutur Hlutabréfasjóðs Búnað-
arbankans var 9,98%.
íslenski hugbúnaðarsjóður-
inn hefur aukið hlut sinn í Hug-
viti hf. samtals að nafnverði
515.698 kr. Eftir aukninguna
nemur eign Islenska hugbún-
aðarsjóðsins í Hugviti 1.864.588
kr. að nafnverði eða sem nemur
um 19,92% af heildarhlutafé í
félaginu, að því er fram kemur í
tilkynningu til Verðbréfaþings
Islands. Hugviti er stærsta fé-
lagið í hlutabréfasafni Islenska
hugbúnaðarsjóðsins og nemur
eignarhluturinn um 26% af
heildareignum á bókfærðu
verði. Hugvit er eitt af þeim fé-
lögum sem sjóðurinn hefur
fjárfest í frá stofnun. Hjá félag-
inu starfa nú um yfir 100 starfs-
menn í 3 löndum. Hugvit er
þátttakandi í nokkrum stórum
verkefnum sem verið er að
vinna að hérlendis og líkleg eru
til að hafa jákvæð áhrif á fyrir-
tækið á næstunni. „Árangur fé-
lagsins í markaðssetningu á er-
lendum mörkuðum hefur verið
framar vonum á þessu ári og
byggist sá árangur á sterkri
stöðu á heimamarkaði. Islenski
hugbúnaðarsjóðurinn hefur
mikla ti'ú á félaginu og hæfni
þess í að ná frekari árangii á
erlendum mörkuðum á kom-
andi árum,“ að því er fram
kemur í tilkynningu.
Ásgeir Frið-
geirsson til
Islandssíma
ÁSGEIR Friðgeirsson hefur verið
ráðinn til Íslandssíma. Hann mun
sinna stefnumótun fyrirtækisins á
sviði netmála og stýi-a tengdum
verkefnum.
Ásgeir hefur
verið ritstjóri
Vísis.is frá stofn-
un hans í'apríl á
síðasta ári. Hann
var áður for-
stöðumaður ným-
iðlunar hjá
Frjálsri fjölmið-
lunhf.
Á árunum
1989-1996 var
hann ritstjóri hjá
útgáfufyrirtækinu Iceland Review
og frá árinu 1984 fréttaritari RÚV í
Lundúnum.
Ásgeir hefur MA-próf í fjölmið-
lun frá Manchester University í
Englandi. Eiginkona Ásgeirs er
Natasa Babic-Friðgeirsson og á
hún einn son.
Ásgeir
Friðgeirsson
Bókhaldskerfi
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Samruni Krossaness
og ísfélags Vestmanna-
eyja samþykktur
STJÓRN Krossaness hf. hefur á Stjórn ísfélags Vestmannaeyja hf.
fundi sínum samþykkt samrunaáætl-
un um sameiningu Krossaness hf. og
ísfélags Vestmannaeyja hf. undir
nafni Isfélags Vestmannaeyja hf.
Samkvæmt samrunaáætluninni fá
hluthafar í Krossanesi hf. 15,5 %
eignarhlut í hinu sameinaða félagi.
Sameiningin skal miðuð við 31. ágúst
1999.
mun fjalla um samrunaáætlunina á
fundi í næstu viku. Samrunaáætlun
er fyrirliggjandi hjá Verðbréfaþingi
og kemur þar fram að aðilar ei’u
sammála um að Isfélag Vestmanna-
eyja hf. leiti eftir skráningu á Verð-
bréfaþing íslands svo fljótt sem auð-
ið er.