Morgunblaðið - 08.12.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 08.12.1999, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ i Drengjasveit Melaskóla. Frá vinstri: Dagnr Arngrímsson, Hilmar Þorsteinsson, Viðar Berndsen, Víkingur Fjalar Eiríksson og Arn- grímur Gunnhallsson, fyrirliði. Tvöfaldur sig- ur Melaskóla Stúlknasveit Melaskóla. Frá vinstri: Arngrímur Gunnhallsson, fyrirliði, Ragnheiður Bárðardóttir, Klara Kristjánsdóttir, Mar- grét Hlín Snorradóttir og Hlín Onnudóttir. SKAK R e y k j a v í k JÓLAMÓTGRUNN- SKÓLAí REYKJAVÍK 5. - 7. des. 1999 MELASKÓLI sigraði tvöfalt í yngri flokki á hinu árlega jóla- skákmóti grunnskóla Reykjavík- ur, sem haldið var um síðustu helgi. Skólinn sigraði bæði í drengja- og stúlknaílokki. Kepp- endur voru úr 1.-7. bekk. Úrslit urðu sem hér segir: 1. Melaskóli A 22 v. af 24 2. Rimaskóli A 17 v. (82 st.) 3. Ölduselsskóli 17 v. (76 st.) 4. Ártúnsskóli A 14 v. 5. Rimaskóli B 14 v. 6. Hlíðaskóli 14 v. 7. Ártúnsskóli B 13 v. 8. Laugarnesskóli, stúlkur 13 v. 9. Rimaskóli C 13 v. 10. Breiðagerðisskóli 12 v. 11. Breiðholtsskóli A 12 v. 12. Melaskóli B 12 v. 13. Melaskóli C 10 v. 14. Melaskóli, stúlkur 10 v. 15. Vogaskóli 10 v. 16. Breiðholtsskóli B 9 v. 17. Húsaskóli 9 v. 18. Árbæjarskóli 8 v. 19. Rimaskóli, stúlkur 7 v. 20. Skottuskóli 0 v. Eins og sést á þessu hafði Melaskóli mikla yfirburði á mót- inu. Þá er ekki síður ánægjulegt að sjá að Melaskóli mætti með fjórar sveitir til leiks. Eins og hef- ur margsýnt sig þarf ekki nema einn áhugasaman mann til þess að drífa upp skáklífíð í skólunum. I tilfelli Melaskóla er það fyrirlið- inn farsæli, Arngrímur Gunn- hallsson, sem hefur með áhuga sínum gert Melaskóla að stórveldi meðal grunnskóla. Árangur Rimaskóla kemur skemmtilega á óvart. A-sveitin nær nú silfrinu, en lenti í fjórða sæti í fyrra. Rimaskóli mætir einnig með fjórar sveitir, þar af eina stúlknasveit eins og Mela- skóli. Það er greinilegt að haldið er vel utan um skákmálin í Rima- skóla því að B-sveitin nær fimmta sætinu á mótinu. Athyglisvert er að tekist hafi að byggja upp þenn- an mikla skákáhuga í einu nýjasta hverfi Reykjavíkur. Það sýnir, að skákáhugi barna er ekkert að minnka. Ölduselsskóli varð jafn Rima- skóla að vinningum, en lægri á stigum og hlaut því bronsið á mót- inu. Ölduselsskóli hefur öflugu liði á að skipa og náði öðru sæti á mótinu í fyrra. Þrátt fyrir margt jákvætt er það nokkurt áfall að sjá gömlu stórveldin Seljaskóla, Hóla- brekkuskóla og Isaksskóla vanta í þátttakendalistann. Hvað skyldi valda því? Þá var heldur ekkert lið frá Grandaskóla, sem stóð sig vel í fyrra og náði sjötta sæti á mótinu. Sveit Melaskóla A skipuðu: 1. Dagur Arngrímsson 6 v. 2. Hilmar Þorsteinsson 5 v. 3. Viðar Berndsen 6 v. 4. Víkingur Fjalar Eiríkss. 5 v. Sveit Rimaskóla A var þannig skipuð: 1. Garðar Sveinbjörnsson 3 v. 2. Birgir Örn Lárusson 4 v. 3. Haukur Lárusson 4 v. 4. Alfreð Ellertsson 5 v. í sveit Ölduselsskóla voru: 1. Hjörtur Jóhannsson 3 v. 2. Benedikt Örn Bjarnason 5 v. 3. Hafliði Hafliðason 4 v. af 5 4. Vilhjálmur Atlason 2 v. af 4 lv. Stefán Már Möller 1 v. af 2 2v. Arnþór Sigurðsson 1 v. af 1 I stúlknasveit Laugarnesskóla tefldu tveir drengir á 4. borði og telst árangur þeirra ekki með í keppni stúlknasveitanna. Þeir fengu alls 3 vinninga. Sveit Laug- arnesskóla og Melaskóla urðu því jafnar að vinningum, en Melaskóli sigraði á stigum. Sveit Melaskóla skipuðu: 1. Hlín Önnudóttir 1 v. 2. Ragnheiður Bárðardóttir 2 v. 3. Klara Kristjánsdóttir 3 v. 4. Margrét Hlín Snorrad. 3 v. Stúlknasveit Laugarnesskóla skipuðu: 1. Eydís Sigurbjörnsdóttir 5 v. 2. Valdís Gylfadóttir 2 v. 3. Thelma Logadóttir 2 v. Stúlknasveit Rimaskóla skip- uðu: 1. Fanney Hallgrímsdóttir 1 v. 2. Silvá Kjærnested 2 v. 3. Katrín Pálsdóttir 2 v. 4. Þórunn Þorgeirsdóttir 2 v. Umhugsunartími var 15 mínút- ur á skák og tefldar voru 6 um- ferðir eftir Monrad-kerfi. Teflt var í félagsheimili Taflfélags Reykjavikur. Eins og áður stóðu Taflfélag Reykjavíkur og íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur sameiginlega að mótinu. Móts- stjóri var Soffía Pálsdóttir (ÍTR). Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafs- son og Ríkharður Sveinsson. Ólafur Kristjánsson baráttumaður SA Skákfélag Akureyrar efndi nýl- ega til svokallaðs baráttuskák- móts, þar sem þrjú stig voru fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Ólafur Kristjánsson sigi'aði á mótinu, Jón Björgvinsson varð annar og í þriðja sæti varð hinn ungi og efnilegi skákmaður Ste- fán Bergsson. Tíu skákmenn tóku þátt í mótinu. Björn Jónsson sigrar á mánaðarmóti TG Fyrsta mánaðarmóti Taflfélags Garðabæjar í vetur lauk með sigri Björns Jónssonar, sem hlaut 4 vinning í 6 umferðum. Jóhann H. Ragnarsson varð í öðru sæti með 4 vinninga og Leifur I. Vilmun- darson þriðji með 3 vinninga. Mánaðarmót TG eru einhver elstu og vinsælustu mót félagsins. Kristján Eðvarðsson sigrar á Hans Petersen mótinu Kristján Eðvarðsson sigraði á Hans Petersen mótinu og hafði tryggt sér sigurinn þegar ein um- ferð var ótefld. Hann vann alla andstæðinga sína í fyrstu fjórum umferðunum, en næstu menn, Sævar Bjarnason og Stefán Kri- stjánsson höfðu þá einungis tvo vinninga. I Hans Petersen mótinu, sem er hluti af mótaröð TR, eru veitt fegurðarverðlaun og nokkrar skákir hafa vakið athygli. Þannig tókst Sævari Bjarnasyni að vinna Tómas Björnsson með einum hrók gegn biskupi og tveimur peðum og skák Sævars Bjarna- sonar og Stefáns Kristjánssonar var athyglisvert innlegg í þrætu- bókarafbrigði frönsku varnarinn- ar. Eftirtektarverðust var þó án efa skák Halldórs Pálssonar við Björgvin Víglundsson, en Halldór fórnaði drottningu fyrir mátsókn, en í miklu tímahraki kom hann ekki auga á þvingaða mátleið og féll sjálfur á tíma. Olduselsskóli sigrar í keppni grunnskóla í Breiðholti Ölduselsskóli sigraði af miklu öryggi í yngri flokki grunnskóla í Breiðholti með fullu húsi vinn- inga: 1. Ölduselsskóli 18 v. 2. Breiðholtsskóli 9 v. 3. Seljaskóli 5 v. 4. Hólabrekkuskóli 3 v. Sveit Ölduselsskóla skipuðu: 1. Hjörtur Ingvi Jóhannss. 3 v. 2. Benedikt Örn Bjarnason 3 v. 3. Hafliði Hafliðason 3 v. 4. Vilhjálmur Atlason 3 v. 5. Stefán Már Möller 3 v. 6. Arnþór Sigurðsson 3 v. Sveit Breiðholtsskóla skipuðu: 1. Kristófer Jónsson 1 v. 2. Vignir Már Lýðsson 1 v. 3. Einar Helgason 1 v. 4. Ólafur Páll Jónsson 2 v. 5. Bergþóra Rós Ólafsdóttir 2 v. 6. Hafþór Sigurðsson 2 v. Aðeins ein sveit mætti til leiks í eldri flokki. Sú sveit var frá Breiðholtsskóla og sigraði hún því örugglega í keppninni. Sveit Breiðholtsskóla skipuðu: 1. Gunnar Jóhannsson 2. Atli Rúnar Kristjánsson 3. Ivar Hlynur Ingason 4. Kristján Ulfarsson lv. Jóhann Björnsson Skákmót á næstunni 10.12. TR. Helgarskákmót 13.12. SH. Mót Guðmundar Arasonar 18.12. TR. Jólaæfing Daði Orn Jónsson ASTA HJÁLMTÝSDÓTTIR + Ásta Hjálmtýs- dóttir fæddist í Reykjavík 26. mars 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur, Landakoti, 25. nóvember síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 6. desember. Þú kvaddir um fallegan, sólríkanvetrardag þegarmjöllinbreiddi sinnhreina,hvítalit yfirallt það er svo sárt að kveðja þig en svo dýrmætt að hafa átt þig þú gafst öllum svo mikið, sem þú skilur eftir í hjörtum okkar þar verða minningarnar um þig varðveittar þar til við heilsumst á ný - og höldum saman inn í eilífðina. Elsku amma mín, þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og allt það góða sem þú gafst mér og fjölskyldu minni. Guð geymi þig. Harpa. Að vera engum líkur, hrókur alls fagnaðar og að vera ómissandi dugn- aðarforkur eru orðatiltæki sem eiga við fáa eða enga, en hún Ásta okkar sem við kveðjum hinstu kveðju á morgun á þau öll með miklum sóma. Frænkufélagið sem stofnað var fyrir 10 árum hefur notið góðs af kröftum Ástu því hún var vakin og sofin yfir velferð okkar allra. Félag- ið var stofnað í þeim tilgangi að halda góðum kynnum á meðal af- komenda ömmu og afa Lueindu og Hjálmtýs. Þau voru átta systkini og við erum 25 systkinabörn sem öll höfðum gott samband við Ástu, hún vissi um alla viðburði í fjölskyldunni, brúðkaup, fæðingar, veikindi og dauða því allir töluðu við Ástu og hún kom öllu til skila til meðlima fjölskyldunnar. Hún Ásta var grínisti og eftir- herma en mátti samt ekkert aumt sjá, hún verðui- eilíf í minningu okkar sem kynntumst henni, hún verður eilíf fyrir jákvæði, hug- rekki, dugnað og gott hjartalag. Blessuð sé minning þín, elsku Ásta okkar. Frænkufélagið Túlla Hansen. Mig langar í örfáum orðum að minnast Ástu minnar sem lést eftir skamma legu. Ásta var Guðs gjöf og þakka ég að hafa fengið að kynn- ast henni, hún var ein- stök kona með stórt hjarta og létta lund. Á hugann leita bernskuminningar frá Hæðargarðinum þar sem Ásta töfraði fram girnilega rétti og Guð- mundur kenndi mér að leysa kross- gátu. AUa tíð reyndist hún mér vel og af henni lærði ég allt um matar- og kökugerð og engin veisla var full- komin nema Ásta hefði komið þar nálægt. Tilhlökkun jólanna tengdist Ástu og veislurnar í Hæðargarðinum báru vott um listfengi húsmóðurinn- ar þar sem borðin svignuðu undan kræsingum og þar sannaðist að þar sem er hjartarúm þar er húsrúm. Það var aldrei lognmolla í kringum Ástu. Hún var lífsglöð kona með hressilegt viðmót og húmorinn í lagi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt Þótt svíði sorg mitt hjarta þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margt að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Eg kveð með söknuði og votta Sig- urði, Axel og fölskyldu þeirra inni- lega samúð. Blessuð sé minning góðrar konu. Sigríður. VALGERÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR + Valgerður Sigur- jónsdóttir fædd- ist á Galtalæk í Landsveit í Rangár- vallasýslu 4. nóvem- ber 1955. Hún lést 26. nóvember síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Seljakirkju 6. desem- ber. Elsku frænka, ég get varla trúað því enn að þú sért farin frá okkur. Þú sem varst svo ákveðin í því að sigrast á veikindunum að þú leyfðir okkur aldrei að efast um það. Sagðir bara að erfiðleikarnir væru til að sigrast á þeim og að við yrðum sterkari á eftir. Og víst er að nóg var af erfiðleikum í þínu lífi, jafn víst og að þú sigraðist ætíð á þeim og varst mun sterkari persónuleiki á eftir. Ég dáðist að þér fyrir það. Ég minnist sérstaklega samtals okkar í sumar, þegar þú sagðir mér að Guð legði aldrei meira á hverja manneskju en það sem hún gæti staðið undir. Það var ætíð gott að tala við þig því þú gast alltaf séð ljósu punkt- ana í hverju máli. Sama hversu svart útlitið virtist vera. Ég mun ætíð minn- ast þín fyrir brosið, lífs- gleðina, stríðnina og þá væntumþykju sem þú sýndir fjölskyldunni. Manstu að þú varst vön að stríða mér á því að ég væri jafnvel enn skáeygðari en þú? Ég var bara stolt af því af því við áttum það sameiginlegt. Ég á eftir að sakna þín, Valgerður. Elsku arama, Sigmundur, Guð- mundur Páll, Sigga Anný, Kristján Gísli og Grétar, megi góður Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tím- um og veita ykkur huggun. Sigriður Júlíusdóttir. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekld í greinunum sjálf- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.