Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 18

Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI * Landsbanki Islands kynnir nýtt stjórnskipulag og tekur upp árangursstjórnunarkerfí Brynjólfur Helgason staðgengill bankastjóra LANDSBANKI íslands hf. hefur ákveðið að taka upp árangursstjóm- unarkerfi sem ætlað er að sjá til þess að markmið í gæða- og starfsmanna- málum verði jafnsett markaðs- og fjárhagslegum markmiðum bankans. Verkefnið hefur hlotið yfirskriftina „Betri banki“ og er það hluti af víð- tæku samstarfi sem hófst síðastliðið sumar milli fjármálaráðgjafar Landsbankans og viðskiptaráðgjafar Royal Bank of Scotland. Sá banki þykir einn best rekni banki heims, að því er segir í fréttatilkynningu frá Landsbanka íslands. Samstarf við Royal Bank of Scotland Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segir í samtali við Morgunblaðið að hinu nýja árang- ursstjómunarkerfi Landsbankans sé ætlað að bæta heildarþjónustuna sem veitt er í bankanum. „Við töldum að þetta kerfi, sem er aðlagað að starfsemi viðskiptabanka af Royal Bank of Scotland, væri eitt það skilvirkasta sem bankinn gæti tekið upp. Við sömdum þess vegna við Royal Bank nú í júní um aðstoð þeirra við að innleiða þetta kerfis hjá Lands- bankanum. Við höfum nú þegar sett árangursmarkmið fyrir öll svið bank- ans, og verður eftir þeim unnið frá 1. janúar árið 2000,“ segir Halldór. Kerfið felur í sér altæka árangurs- mælingu og -stjómun, sem á ensku er nefnd „balanced scorecard". Kerfið er byggt á aðferðarfræði sem Robert S. Kaplan, prófessor við Harvai’d háskóla í Bandaríkjun- um, setti formlega fram árið 1992, þar sem markmiðið var að þróa jafnvægi milli áherslu á langtíma velgengnis- þætti fyrirtækja, eins og gæða- og starfs- mannamála, og skamm- tíma fjárhagsmar- kmiða, í rekstri fyrirtækja. I kerfinu verða sett einfold og mælanleg markmið fyrir öll meg- insvið bankans, úti- búanet hans og deildir. Markmiðin em á sviði fjárhags, gæða- og verk- ferla, á sviði tengsla við viðskiptavini og á starfsmannatengdum sviðum. Viðskiptabankasvid i stað markaðssviðs Bankaráð Landsbanka Islands hef- ur einnig samþykkt breytingar á stjómskipulagi Landsþankasam- stæðunnar, í tengslum við verkefnið „Betri banki“. „Skipulagið er aðlagað að nýjum af- komueiningum, með það að markmiði að leggja gmnn að árangursstjómun- arkerfi. Pað em ekki miklar breyting- ai' á stjórnskipulagi bankans, en þó er verkaskipting milli alþjóða- og fjár- máiasviðs annars vegar og fyrir- tækjasviðs hins vegar endm-skilgreind nokk- uð. Við veitum stómm viðskiptavinum fjár- málaþjónustu frá þeim sviðum báðum í við- skiptastofu á Laugavegi 77. Þetta verður von- andi til þess að við get- um gert þjónustu okkar við stórfyrirtæki ásamt sérhæfðri fjármálaþjón- ustu enn skilvirkari,“s- egir Halldór. Hann segir að í breyt- ingunum felist einnig að verið sé að skerpa áherslur í rekstri úti- búanna með nákvæmari samrekstri þeirra á nýju sviði, viðskiptabanka- sviði. „Við reynum að ná fram enn frekara hagræði með því að tryggja hagkvæmni í verkaskiptingu milli miðlægi’ar starfsemi og reyna svo að einbeita starfsemi útibúanna að beinni þjónustu við einstaklinga, en önnur miðlæg þjónusta verði færð í sérstakar starfseiningar." Samkvæmt hinu nýja skipulagi veðra svið bankans fimm eins og áður. Sviðin verða Alþjóða- og fjármálasvið, fyrirtækjasvið og sjóðasvið/Lands- bréf hf. Upplýsinga- og rekstrarsvið kemur í stað rekstrarsvið áður, og svonefnt viðskiptabankasvið leysir af hólmi markaðssvið. Gunnar Þ. Andersen verður fram- kvæmdastjóri alþjóða- og fjármála- sviðs. Brynjólfur Helgason verður framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, Bjöm Líndal verður framkvæmda- stjóri viðskiptabankasviðs, Sigurður AtU Jónsson verður framkvæmda- stjóri sjóðasviðs en hann er jafnframt forstjóri Landsbréfa, og Þór Þorláks- son verður framkvæmdastjóri upp- lýsinga- og rekstrarsviðs. Ráðnir upplýsíngaf ulltrúar inn á öll tekjusvið Halldór segir að starfsemi upplýs- ingavinnslu verði styrkt enn frekar hjá upplýsinga- og rekstrarsviði. „í því felst einnig að við munum ráða upplýsingafulltrúa inn á öll tekjusvið bankans til að styrkja upplýsinga- vinnslu þeirra, og er þar sérstaklega miðað við þarfir rafrænna viðskipta og að auka hlut bankans í þeim,“ segir Halldór. I tilkynningunni segir einnig að Brynjólfur Helgason hafi verið ráðinn staðgengill bankastjóra Landsban- kans. „Það er gert ráð fyrir því í banka- lögum að ráðinn sé staðgengill bank- astjóra. Það hefur hins vegar ekki verið gengið frá því formlega fyrr en nú frá því ég hóf störf. Brynjólfur hef- ur starfað lengi við bankann, og felur þetta í sér að hann mun starfa enn nánar með mér að yfirstjóm bankans ásamt því að stýra fyrirtækjasviðinu," segir Halldór J. Kristjánsson að lok- um. Bryiyólfur Helgason Microsoft námstefna Islenskað Windows 98 kynnt NÁMSTEFNAN „Þetta er Microsoft“ var haldin í fjórða sinn, í Tónlistarhúsi Kópa- vogs, nýverið. Námstefnan er í boði Microsoft og stendur yfir í tvo daga í hvert skipti. Fyrri daginn sækja hana samstarfs- og endursöluaðilar Microsoft og seinni daginn fagaðilar, s.s. stjórnendur og rekstraraðilar tölvukerfa. Fjöldi tölvuáhugamanna sótti námstefnuna í þetta sinnið, alls um 400 manns. Það sem bar hæst að þessu sinni var sýning á frumútgáfu hins íslenskaða Windows 98 stýrikerfis. íslenska notenda- umhverfið var sýnt og síðan fjallað um helstu nýjungar sem verða í 2. útgáfu Wind- ows 98. Einnig var sýnt og kynnt Windows 2000 stýri- kerfið, sem er bæði fyrir vinnustöðvar og netþjóna. Sýnt var hvernig stjórna má Windows 2000 til að lækka rekstrarkostnað á tölvukerfum. Þá var sýnt hvernig flytja má ljósmyndir frá myndavél yfir í tölvu bara með því að setja myndavélina við hliðina á tölvunni. Ætlun- in er að halda fleiri slíkar námstefnur á næstu misser- um og verður efnið tengt því sem efst er á baugi hverju sinni. . uppKaup Samkomulag íslensku símafyrirtækj- anna um númeraflutninga Uppkaup ríldsverðbréfa með tUboðsfyrirkomulagi 8. desember 1999 Lánasýsla ríkisins óskar eftir að kaupa óverðtiyggð ríkisbréf í framangreindum flokki með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt að gera sölutilboð að því tilskildu að lágmarks- fjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 10 milljónir króna að söluverði. Heildarfjárhæð útboðsins er áætluð á bilinu 3oo - 1.500 milljónirkrónaað söluvirði. Sölutilboð þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14:00 í dag, miðvikudaginn 8. desember. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittarhjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í sima 563 4070. LÁNASÝSLA RÍKISINS Hverfisgata 6, 2. hæð • Síml: S62 4070 • Fax: 562 6068 Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is Samkeppnishöml- um rutt úr vegi PÓST- OG FJARSKIPTASTOFN- UN og rekstrarlevfishafarnir Landssími íslands hf., Íslandssími hf. og Tal hf . hafa komist að sam- komulagi um flutning símanúmera stærri notenda á milli leyfishafanna þriggja. Með stærri notendum er átt við þá sem hafa fengið stofnteng- ingu, þ.e. 2 Mb/s heimtaug og 100 númera röð eða meira. Að auki geta þeir tekið með sér símanúmer sem byrja á 800 og 901-908. Að sögn Gústavs Arnar, forstöðu- manns stofnunarinnar, er með þessu reynt að koma í veg fyrir ákveðnar samkeppnishömlur á þessum mark- aði. „Þegar fleiri en eitt símafyrirtæki eru farin að bjóða þjónustu sína get- ur kostnaður af númerabreytingu komið í veg fyrir að menn skipti um símafyrirtæki og leiti þangað sem þjónustan er betri eða ódýrari. Sér- staklega getur fyrirtækjum reynst dýrt að skipta um símanúmer. Það kostar jú breytingar á bréfsefnum og alls kyns gögnum, auk þess sem það kostar auglýsingar o.s.frv. Þessi kostnaður við að skipta um símafyr- irtæki er því þröskuldur fyrir mörg fyrirtæki. En í framtíðinni eiga not- endur að geta flutt sín númer á milli símafyrirtækja að vild“, segir Gúst- av. Tilskipanir ESBogEFTA Hann segir að bakgrunninn að þessu samkomulagi megi rekja til til- skipunar ESB um slíkan númera- flutning en þar er gert ráð fyrir að hann verði innleiddur í síðasta lagi 1. janúar árið 2000 í aðildarríkjunum. „Þessi sama tilskipun er að taka gildi núna í EFTA-löndunum en þar sem þetta er svolítið seinna á ferð- inni en í ESB-löndunum lítur ekki út fyrir að við getum innleitt hana að fullu núna um áramótin," segir Gúst- av. í lok ágúst síðastliðins fól sam- gönguráðherra Póst- og fjarskipt- astofnun að setja reglur um númera- flutning eins skjótt og það væri tæknilega öruggt og mögulegt. I kjölfarið óskaði Póst- og símamálast- ofnun eftir því við íslensku símafyr- irtækin þrjú, Landssímann, íslan- dssíma og Tal, að þau tækju þátt í vinnuhópi til þess að skoða mögu- leika á númeraflutningi í símakerf- um fyrirtækjanna og komst hópur- inn að niðurstöðu um bráðabirgðafyrirkomulag eins og að framan er lýst. Einstaklingar næsta skref og þar næst afnám svæðaskiptingar „Þetta kallar á ákveðnar breyting- ar í símstöðvunum sem kosta sitt og taka að auki tíma í undirbúningi. Því höfum við lagt á það áherslu að fyrir- tæki sem eru með tiltölulega stórar heimtaugar, eins og 2 Mb/s heim- taug, það sem við köllum stofnteng- ingai’, fái þessa þjónustu sem fyrst og það er það sem þetta bráðab- irgðasamkomulag gengur út á. Þetta er fyrsta skrefið en strax eftir áramót á að halda áfram þessari vinnu og undirbúa næsta skref, sem er að allir símnotendur eigi kost á því sama ef þeir vilja skipta um símafyr- irtæki. Við getum þó ekki sagt neitt ákveðið um það í dag hvenær þeirri vinnu verður lokið. Þriðja skrefið, sem tekið verður seinna meir, er númeraflutningur á milli svæða. Það þýðir að í framtíðinni verða ekki svæðaskipt símanúmer eins og eru í dag,“ segir Gústav.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.