Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
BÓKASALA 29. nóv.-5. des.
Rðð Var Titill/ Hðfundur/ Úlgefandi
1 1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur
2 2 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell
3 4 Einar Benediktsson-ll/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
4 - Steingrímur Hermannsson-ll/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell
5 Ólafur landlæknir/ Vilhelm G. Kristinsson/ Vaka-Helgafell
6 © Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg
7 7 Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ Islenska bókaútgáfan
8 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning
9 Kular af degi/ Kristín Marja Baldursdóttir/ Mál og menning
10 Eva og Adam-Með hjartað í buxunum/ Máns Gahrton og Johan Unenge/ Æskan
Einstakir flokkar: ÍSLENSK QG ÞÝDD SKÁLPVERK
1 1 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell
2 3-4 Kular af degi/ Kristín Marja Baldursdóttir/ Mál og menning
3-5 1 Hlaðhamar/ Björn Th. Björnsson/ Mál og menning
3-5 - Vetrarferðin/ Ólafur Gunnarsson/ Forlagið
3-5 - Þú ert mín/ Mary Higgins Clark/ Skjaldborg
6 - Örvænting/ Stephen King/ Fróði
7 6 Afródíta/ Isabel Allende/ Mál og menning
8 - Ramses ll-Musterið eilífa/Christian Jacq/Vaka-Helgafell
9 Minningar geisju/ Arthur S. Golden/ Forlagið
10 Símon og eikurnar/ Marianne Fredriksson/ Vaka-Helgafell
ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1 1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur
2 2 Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg
3 EvaogAdam-Meðhjartaðíbuxunum/MánsGahrtonogJohanUnenge/Æskan
4 5-6 Ástarsaga úr fjöllunum/ Guðrún Helgadóttir og Brian Pilkington/ Vaka-Helgafell
5 - Tarzan og Kala/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell
6 - Hjarta í molum/ Carsten Folke Moller/ Skjaldborg
7 - Kleinur og karrí/ Kristín Steinsdóttir og Áslaug Jónsdóttir/ Vaka-Helgafell
8 - Við enda regnbogans/ Helga Möller og Ólafur Pétursson/ Fróði
9 - Svanur og sumarið/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg
10 - Hesturinn og drengurinn hans/ C. S. Lewis/ Muninn
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 Bretarnir koma/ Þór Whitehead/ Vaka-Helgafell
2 Já, ráðherra-Gamansögur af íslenskum alþingismönnum
/ Ritstj. Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason/ Hólar
3 2 Almanak Háskólans-Árið 2000/ / Háskóli íslands
4 Kokkteilar/ David Biggs/ Muninn
5 íslenskur fuglavísir/ Jóhann Óli Hilmarsson/ Iðunn
6 Ljósið yfir landinu/ Ómar Ragnarsson/ Fróði
7 3-10 í róti hugans/ Kay Redfield Jamison/ Mál og menning
8 - íslenska leiðin/ Stefán Ólafsson/ Tryggingastofnun ríkisins og Háskólaútgáfan
9 Samskipti foreldra og bama/ Dr. Thomas Gordon/ Æskan
10 - Öld öfganna-Saga heimsins á 20. öld/Eric Hobsbawm/Mál og menning
ÆVISÖGUR OG ENDURMINNINGAR
1 2 Einar Benediktsson-ll/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
2 4 Steingrímur Hermannsson-ll/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell
3 ÓLAFUR LANDLÆKNIR/Vilhelm G. Kristinsson/ Vaka-Helgafell
4 1 Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ islenska bókaútgáfan
5 1 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning
6 - Glott í golukaldann/ Hákon Aðalsteinsson/ Hörpuútgáfan
7 3 Sviptingar á sjávarslóð/ Höskuldur Skarphéðinsson/ Mál og menning
8 - Á lífsins leið-ll/ Þjóðþekktar konur og menn segja frá/ Stoð og styrkur
9 5 Jón Leifs-Tónskáld í mótbyr/ Carl Gunnar Áhlen/ Mál og menning
10 - Dagbók Anne Frank/ Þýð. Ólafur Rafn Jónsson/ Hólar
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegl
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bókabúðin Hlemmi
Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta, Hringbraut
Bónus, Holtagörðum
Bónus, Laugavegi
Eymundsson, Kringlunni
Griffill, Skeífunni
Hagkaup, Kringlunni
Hagkaup, Skeifunni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka 29. nóv.-5. des. 1999 Unnið fyrlr Morgunbíaö-
blaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með
þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabilí, né kennslubækur
Penninn, Kringlunni
Bókabúðin, Hamraborg
Bónus, Kópavogi
Hagkaup, Smáratorgi
Penninn, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavlkur, Keflavík
Bókval, Akureyri
Hagkaup, Akureyri
Hagkaup, Njarðvík
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstbðum
KÁ, Selfossi
Ljósmynd/Haukur Snorrason
Hreindýr á öræfum Austurlands
Þau mistök urðu við birtingu um- um ljósmyndabókina Land birtunn- Austurlands í ljósmynd eftir Hauk
sagnar Einars Fals Ingólfssonar í ar, að röng mynd birtist. Hér birtist Snorrason.
Bókablaði Morgunblaðsins í gær rétta myndin; hreindýr á öræfum
Að búa sér til
leiksvið
VETRARFERÐIN er þriðji hluti
þrfleiks Ólafs Gunnarssonar sem
hófst með Tröllakirkju og var fram
haldið með Blóðakri. Fjalla þessar
þijár sjálfstæðu skáldsögur á tengd-
an hátt um líf Islendinga á öldinni
sem er að líða. Að þessu sinni beinir
höfundur sjónum sínum að veitinga-
konunni Sigrúnu - sem bæði veitist
allt sem hún þráir og er svipt öllu
því dýrmætasta sem hún á - og fólk-
inu í kringum hana.
Ólafur byijaði að skrifa Vetrar-
ferðina í ársbyijun 1997 og lauk við
uppkast að bókinni í nóvember
sama ár. Við það uppkast gat hann
hins vegar ekki fellt sig og samdi
bókina því upp á nýtt. Þeirri vinnu
Iauk miðsumars 1998 og vann Ólaf-
ur að hreinritun þar til bókin kom út
fyrir um mánuði.
En um hvað Ijallar Vetrarferðin?
„Þetta er saga sem ég sviðset á
hemámsárunum í Reykjavík, byija
1943 og sögunni lýkur 1950. Aðal-
söguhetjan er kona sem yfirgefur
mann sinn og lendir í Ástandinu.
Hún Iætur líka langþráðan draum
um að setja á stofh veitingastofu
rætast, kynnist nýjum mönnum og
nýju fólki - snýr í kringum sig miklu
persónugalleríi - og á hennar daga
drífur eitt og annað.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafur
skapar aðalsöguhetju sem er kven-
maður. „Ætli skýringin á því sé ekki
sú að rithöfundar eru sífellt að leita
að nýjum sjónarhornum. Mig lang-
aði að þessu sinni að prófa að
bregða mér í kvenmannsiíki - eins
og mögulegt er.“
- Hvernig lífsreynsla var það?
„Það var býsna spennandi - en ég
er samt ákaflega feginn að vera
kominn aftur.“
Ólafur kveðst fyrst og fremst nota
hemámsárin sem sögusvið í bókinni,
hún snúist ekki um hernámið sem
slíkt.
„Eg geri þetta ekki með sama
brag og maður sér oft í bókum sem
fjalia gagngert, og einvörðungu um
hernámið. Þess í stað nota ég þenn-
an tíma sem svið fyrir persónurnar,
dreg skii milli þessa hefðbundna
hernámstúna og þessa tíma sem
bakgranns fyrir skáldverk. Ef fólk
vill kynnast hemáminu sérstaklega
Ólafur
Gunnarsson
eru aðrar bækur ef-
laust bet.ur til þess
fallnar.“
Þó sögusvið sé af-
markað kveðst Ólaf-
ur gjaman leita í
ákveðið frelsi til að
geta hreyft sögu-
hetjurnar til og frá
eins og á leiksviði.
Hann gæti þess þó
að ekki verði úr
hrópandi ósamræmi
miðað við viðkom-
andi tíma sem
margir þekkja. „Eg
gerði mína heim-
ildavinnu, skoðaði
verð á varningi,
hvað var flutt inn og hvað ekki, hvar
baggahverfin stóðu og annað í þeim
dúr. En ef ég þurfti að færa til hús
gerði ég það. Ætli sé ekki best að
lýsa þessu þannig að ég hafí verið að
búa mér til ieiksvið en ekki sinna
sagnfræði."
Með Vetrarferðinni lýkur fyrr-
nefndum þríleik Ólafs. Hvernig líð-
ur honum á þessum tímamótum?
„Mér líður ágætlega. Það er gott
að hafa komist í gegnum þetta. Þeg-
ar ég er að skrifa bók trúi ég því
nefnilega varla að mér muni takast
að kiára hana, að minnsta kosti á
fyrstu stigum hennar. Bókbandið og
kápan em fjarhegur draumur. Á
þetta ekki síst við um viðamikið
verk eins og þennan þrfleik. Ég var
ellefu ár að þessu, þótt ég gripi í
annað inn á milli, og það komu svo
sannariega þeir tímar að ég sá ekki
fram á að geta lokið þessu. Það
tókst nú samt.“
- Líkast til fylgirþessu líka ein-
hversöknuður?
„Það er alveg rétt. Eins og gefur
að skilja hefur þetta viðfangsefni
verið snar þáttur í lífi mínu um
langt skeið og nú þarf ég að snúa
mér að einhverju öðm. Ég finn því
vissulega fyrir söknuði."
Titill bókarinnar, Vetrarferðin,
er sóttur í samnefndan ljóðaflokk
eftir einn af risum tónbókmennt-
anna, Franz Schubert. „Ljóðabálk-
urinn, sem Schubert semur lög sín
við, hefur ekki verið þýddur á ís-
lensku en var þýddur lausiega fyrir
mig fyrir nokkrum árum.
Þar kemur fram að skáld-
ið, Wilhelm Miiller, lítur á
lífið sem einskonar ferð í
gegnum vetur. Mér
fannst nafnið henta bók-
inni ágætlega, auk þess
sem mér þykir mjög vænt
um þessa tónlist."
S‘
igurgestur Guð-
mundsson rotaði
Ameríkanana þrjá
á tæpum tveimur mínút-
um á malarplaninu úti fyr-
ir veitingastaðnum Fjall-
konunni við Suðurlands-
braut eitt sumarkvöld í
júnímánuði 1943. Bardaginn stóð
skemur en venjuleg lota. Áður en
slagsmálin hófust hafði Sigurgestur
skipað konu sinni að læsa sig og
drengina þeirra tvo til öryggis inni í
bflnum en þegar hermennimir lágu í
mölinni allir þrír og hann varð aftur
var við umhverfi sitt stóð hún efst í
tröppunum við innganginn á veit-
ingahúsinu með synina sinn til hvorr-
ar handar og þjónustustúlkuna á bak
við sig í gættinni og horfði til hans.
- Eg hélt ég hefði sagt þér, Sigrún,
að fara inn í bflinn með strákana og
læsa að þér, sagði hann með hægð og
teygði sig eftir derhúfunni og dustaði
af henni rykið. Honum fannst hann
ekki hljóta það hrós úr augnaráðinu
sem hann átti skilið.
- Eg vildi koma þér til hjálpar ef þú
tapaðir, sagði hún snögg upp á lagið.
- Við bræðurnir vorum reiðubúnir
að beijast líka, pabbi, sagði yngri
sonurinn. Sigurgestur leit til hans og
ljós hártoppurinn laust föðurinn
hamingju í hjartastað. Sá eldri, sem
var á fimmtánda ári, hélt sig þétt upp
við móður sína.
- Þið eruð svei mér samheldin fjöl-
skylda, sagði þjónustustúlkan sem
var orsök illindanna. Hún var í upp-
námi og skimaði í kringum sig með
tilbúinni glaðværð. Báðir drengirnir
samsinntu stoltir og móðir þeirra tók
um axlir þeirra beggja og leit til sona
sinna á víxl og brosti.
Úr Vetrarferðinni.