Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 45
Auglýsing
um staðfestingu á legu Fljótsdalslxnu I, vestaii hluti frá Akureyri að
Veggjafelli
Samlcvæmt skipulagslögum nr. 19/1964 hefur ráðuneynð
þaim 20. apríl 1994 staðfest legu Fljótsdalslínu I &á Akureyri að
Veggjafelli.
Uppdráttur fyrir legu háspermulínunnar hefur hlotið þá meðferð,
sem skipulagslög nr. 19, 21. maí 1964 mæla fyrir um. Uppdráttinn hefur
skipulagsstjóm ríkisins afgreitt til staðfestingar ráðherra-
Umhverfisráðuneytið, 20. apríl 1994.
's& 0w
• •
Dr. Ossur
og mr. Skarp-
héðinsson
ÖSSUR Skarphéð-
insson hefur unnið
einstakt afrek þetta
haust. Honum hefur
nánast tekist að koma
fram fyrir þjóð og
þing og sannfæra
hváru tveggju um ein-
lægni sína og áhuga á
verndun svæðisins við
Eyjabakka. Ræður
hans um þetta og
greinar hafa ein-
kennst um margt af
þeirri mælsku og inn-
blæstri sem oftar en
ekki er aðal hugsjóna-
mannsins. Og ekki
dreg ég eitt augnablik í efa að Oss-
ur er mikill umhverfissinni og læt-
ur sér umrætt svæði mjög fyrir
brjósti brenna.
Afrek hans er hins vegar fólgið í
því að ekki eru nema fimm ár síðan
þessi sami Össur tók þá ákvörðun í
skjóli valds síns sem umhverfisráð-
herra að veita Landsvirkjun leyfi
fyrir Fljótsdalslínu 1.
Ossur staðfesti
Fljótsdalsvirkjun!
Ráðherrann Össur skrifaði undir
bréf hinn 20. apríl 1994 þar sem
Landsvirkjun er formlega veitt
leyfi fyrir lagningu Fljótsdalslínu 1
frá Héraði norður í land. Og hvers
vegna gefur hann út bréfið þennan
dag? Svarið felst nefnilega í því að
1. maí sama ár hefði runnið út
bráðabirgðaákvæði laga um um-
hverfismat ef ekki lægi fyrir form-
legt leyfi Landsvirkjunar fyrir
þessari línu. Þess vegna gaf ráð-
herrann Össur út leyfið hinn 20.
apríl og staðfesti með þeim gjörn-
ingi sínum leyfið fyrir Fljótsdalsv-
irkjun án frekara umhverfismats.
Það sem meira er: Dagsetningin
miðast við að sneiða hjá lögform-
legu umhverfismati. Þá skynjaði
umhverfisráðherrann Össur að
leyfi fyrir Fljótsdalsvirkjun var til
staðar. Þá gerði ráðherrann heldur
engar tilraunir til að spá í frekara
mat á umhverfinu vegna virkjunar.
Fljótsdalslína 1 átti væntanlega að
gegna því hlutverki að flytja raf-
magn frá þeim stað sem nafn henn-
ar er kennt við. Ráðherrann Össur
virtist sum sé hafa nægan tíma til
að vega og meta Fljótsdalsvirkjun
og beita ráðherravaldi sínu sam-
kvæmt þeirri sannfæringu til að
festa virkjunina í
sessi. Þess ber vott
meðfylgjandi bréf.
Dr. Ossur
í tímahraki.
Ræður þingmann-
sins Össurar og
greinaskrif að undan-
förnu benda ekki til
þess að hann kannist
við gjörðir fyrrverandi
umhverfisráðherra,
Össurar Skarphéðins-
sonar. Eru þó ekki
nema um fimm ár síð-
an hann drottnaði í
ráðuneyti sínu. Meg-
ininntak í málflutningi hans eru
ábendingar um verðmæti náttúruf-
ars við Eyjabakka og tímaskortur
við mat á þeim. Óneitanlega hlýtur
þessi framganga að vekja athygli
og laða fram margar spurningar.
Hálendið
Ráðherrann Össur
gaf út leyfið 20. apríl,
segir Hjálmar Arnason,
og staðfesti með þeim
gjörningi sínum
leyfíð fyrir Fljótsdals-
virkjun án frekara um-
hverfismats.
Þannig má varpa því fram hvort
ráðherrann Össur hafi gert sig sek-
an um fljótfærni og ráðleysi þegar
hann staðfesti framkvæmdir við
Fljótsdalsvirkjun. Einnig má
spyrja hvort þingmaðurinnn Össur
hafi ekkert samráð við fyrrverandi
ráðherra, Össur Skarphéðinsson.
Upp kemur í hugann hvort þessar
staðreyndir um stjónmálamanninn
Össur minni ekki á stúdentaleið-
togann Össur er nokkru síðar sem
ráðherra tók ákvörðun um að inn-
leiða skólagjöld á fyrrverandi fé-
laga sína í háskólanum. Er nema
von að fyrirsögn þessarar greinar
komi af sjálfu sér?
Höfundur er alþingismaður.
Hjálmar Árnason
Um hinar mörgu íslenskur
ÁRNI Björnsson
skrifaði greinarstúf í
Morgunblaðið sl. föstu-
dag undir heitinu
Hreintunga og yfir-
stétt. Mig langar að
gera nokkrar athuga-
semdii' við skrif hans.
Mér gefst ekki tími til
að fjalla ítarlega um
þetta og læt því nokkr-
ar athugasemdir
nægja.
Hreintungustefn-
an og alþýðan
Árni gerir í grein
sinni mikið úr hlut al-
þýðunnar í hreintungu-
stefnunni. Hann segir til dæmis:
„Allar götur frá því að hreintung-
ustefnan hófst á 19. öld hefur hún
ekki síst verið barátta alþýðu
manna eða fulltrúa þeirra við að fá
valdamenn til að tala það mál sem
alþýðan skildi.“ Ekki ætla ég að
vanmeta hlut alþýðu þéssa lands í
að varðveita menninguna. Ég vil
heldur ekki ofmeta hann. Hrein-
tungustefnan er að mínu viti ekki
barátta alþýðunnar. Henni var
hrundið af stað af menntamönnum
og stýrt af þeim.
Það er vissulega rétt að hún var
framsækin og beindist gegn hinni-
dönsk-íslensku yfirstétt síðustu
aldar og gegndi mikilvægu hlut-
verki í sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar.
En eftir að íslendingar öðlast
sjáifstæði beinist stefnan ekki leng-
ur gegn dansk-íslenskri yfirstétt og
þjónar ekki lengur sjálfstæðisbar-
áttunni. En gegn hverju beinist hún
þá?
Árni telur að hún beinist enn
gegn yfirstéttinni. Það tel ég rangt.
Eftir sjálfstæðið breytir hún um
eðli eins og svo margt annað og
verður fyrst og fremst tæki yfir-
valda til að stjórna málfari með því
að ákveða hvað er rétt og rangt.
Hreintungustefnan er ekki leng-
ur í höndum hópa menntamanna
eins og á síðustu öld heldur í hönd-
um yfirvalda sem senda frá sér op-
inber fyrirmæli sem fræðimenn
hafa reyndar búið til og mótað.
Opinberu fyrirmælin
Það er til opinber íslenska, ein-
hverskonar ríkismál. Það er að
segja fyrirmæli um það hvernig
málið eigi að vera. Fyrirmæli þessi
snúast einkum um beygingar og
stafsetningu. Reyndar komu fram á
6ta tugaldarinnar tillögur um sam-
ræmdan framburð en fengu engan
hljómgrunn.
Þessi fyrirmæli birtast fyrst og
fremst í námskrám í íslensku fyrir
grunn- og framhaldsskóla. Út-
færsla þessara fyrirmæla kom síð-
an fram í kennslubókum sem að
hluta til eru gefnar út af ríkinu. Þá
má nefna samræmd próf en þar er
prófað í kunnáttu sem námskrá
segir til um. Loks bendi ég á
auglýsingu um íslenska stafsetn-
ingu.
Þetta er hin opinbera íslenska.
Hún byggist á hreintungustefn-
unni, það er að halda henni hreinni
hvað svo sem það þýðir.
Fláinæli sein stéttamál
Árni segir í grein sinni um flá-
mælið: „Þessi tiltekni framburður,
sem ekki er á neinn hátt óeðlilegur,
var ekki bundinn við samfélagsstétt
heMur landshluta."
Árni hefur engan rétt til þessarar
fullyrðingar því hann getur ekki
stutt hana neinum rökum. Hið rétta
er að engar rannsóknir voru gerðar
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Hvert er ríkasta
málsvæði heims?
www.tunga.is
áhugsanlegri fylgni
flámælis við stéttir
eða menntunarhópa.
Vegna þess er fullyrð-
ing Árna óréttmæt.
Það væri líka rangt að
fullyrða að flámæli
hafi verið stéttbundið.
Til þess skortir að
sjálfsögðu einnig rök.
Rannsóknir Björns
Guðfinnssonar sýndu
fram á landfræðilega
útbreiðslu flámælis og
að sunnan- og norðan-
lands var það algeng-
ara í dreifbýli en þétt-
býli, öfugt við það sem
reyndist á Austur-
landi.
Annað vitum við ekki um flámæli.
Málrækt er ekki það sama
og hreintungustefna
Árni talar jöfnum höndum um
hreintungustefnu og málrækt. I
mínum huga er þetta ekki það
sama.
Hreintungustefna er safn fyrir-
Tungan
Égfullyrði, segir
Eiríkur Brynjólfsson,
að til eru félagslegar
mállýskur.
mæla um hvernig „rétt“ mál sé. Ég
hef hér að ofan greint frá hvar þessi
fyrirmæli birtast.
Málrækt er í mínum huga það að
kenna hverjum og einum að hlúa að
málfari sínu, bera virðingu fyrir því
og um leið máli annarra.
Stéttamál á fslandi
Ég fullyrði að til era félagslegar
mállýskur auk hinna landfræðilegu
á Islandi. Með félagslegum
mállýskum á ég við skiptingu eftir
samfélagsstéttum, aldri. kyni,
starfsstéttum o.s.frv. Að vísu hef ég
fá haldbær rök því litlar sem engar
rannsóknir hafa verið gerðar.
Þó ber að geta rannsóknar Ástu
Svavarsdóttur frá 1983. Hún
rannsakaði þágufallssýki. Niður-
stöðurnar bar hún meðal annars
saman við námsárangur nemenda
og stéttarstöðu föður. Fylgnin var
nógu mikil til að renna stoðum und-
ir að hér væri um að ræða
mállýskumun sem færi eftir mennt-
un og stétt. Að vísu var úrtakið lítið
en það breytir ekki niðurstöðunum.
Og heldur ekki því að hér er að
mínu mati um tímamótarannsókn
að ræða.
Lítið dæmi um
óréttlæti
Hin opinbera hreintungustefna á
íslandi fyrirskipar meðal annars
„réttá' notkun fornafna með ópers-
ónulegum sögnum og persónulegu
sögninni að hlakka. Rannsókn Ástu
Svavarsdóttur birtir sem fyrr sagði
sterk rök fyrir því að þetta sé
mállýska og bundin við þjóðfélags-
stéttir og menntun.
Á samræmdu prófi í íslensku eru
hinsvegar iðuiega spurningar sem
reyna á þetta atriði. Það er augljóst
að þeir sem tala „ranga“ mállýsku
svara þessum spurningum rangt.
Þetta litla dæmi sýnir greinilega
að hreintungustefnan er tæki yfir-
valda, kúgunartæki ef við kjósum
að kalla það svo.
Höfundur er kennari.
ENS
Ný þvottavél frá Siemens.
Þvottavél eins og allir vilja
eignast!
54060
• Algjör nýjung: Sérstakt krumpuvarnarkerfi • Tekur 6 kg • Óvenjustór lúga
• 15 þvotta- og sérkerfi • 35 mínútna hraðkerfi • 1000 sn7mín. • Allar innstillingar
mjög auðveldar»Glæsileg hönnun*Vélin eralgjörlega rafeindastýrð
• Þvottavirkniflokkur A • Orkuflokkur A • Mjög þýðgeng og hljóðlát þvottavél
Hún hefur slegið í gegn!
á é SMITH &
W NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt!
Eiríkur
Brynjólfsson