Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 49

Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ósanngirni í dagvistar- málum MIG langar að bi-egða mér í stutta ferð aftur í tímann. Ekki nema sex ár eða svo. Þegar klukkan sló tólf á venjulegum vinnudegi, þustu nokk- ur hundruð foreldrar út á götur borgarinnar, keyrðu í hendingskasti til þess að flytja börn sín frá dagmömmu í leikskóla eða úr leik- skóla til dagmömmu. Þessir foreldrar slitu götum borgarinnar, eyddu bensíni og slitu bifreiðum sínum, auk þess sem þessu fylgdi mikið stress og armæða. Gott ef ein- hver var ekki líka búinn að reikna út framleiðnitap íslensks samfélags af öllum þessum þeytingi. Hvers vegna var þetta ástand? Borgai'yfirvöld þessa tíma höfðu annað þai'fara við fjármuni borgar- búa að gera, en að þyggja leikskóla. Leikskólamál Reykj avíkurlistinn verður auðvitað að búa við það, segir Hafliði Helgason, að til hans séu gerðar ríkari kröf- ur, en þeirra flokka sem láta sig fjölskyldumál litlu varða. Þar á bæ voru menn uppteknir við stærri og merkilegri byggingar og sjóðir borgarbúa nýttust betur við slík minnismerki, en ómerkilega leikskóla sem væru til þess fallnir að létta byrðum af fjölskyldufólki og auka heill og hamingju barna. Þessu er fólk búið að gleyma, eða að minnsta kosti hefur engan áhuga á að muna. Öðruvísi get ég ekki túlk- að það offors sem ríkir í viðbrögðum foreldra við 13% hækkun leikskóla- gjalda sem borgaryfirvöld hafa boð- að. Hækkun sem er þátttaka í því að bæta kjör starsfólksins sem af ósér- hlífni sinnir börnunum meðan við sinnum upphefð okkar. Það er póli- tísk ólykt og ósanngirni í þeim yfir- lýsingum sem fullrúar foreldra hafa látið frá sér fara í fjölmiðlum. Þegar Reykjavíkurlistinn komst til valda blöstu gríðarleg verkefni við í dagvistarmálum eftir margra ára vanrækslu. Nýkjörin yfirvöld borg- arinnar hófust þegar handa við að fjölga plássum á leikskólum. Margir þeirra foreldra sem nú hrópa hæst vegna hækkunar sem kannski nemur verði einnar pitsu, væru enn með börn sín á biðlist- um eftir heilsdags- plássi, ef stefnu fyrri borgaryfirvalda hefði verið fylgt. Þeir hefðu varla orku í að mót- mæla eftir þeytinginn í hádeginu. Með þessu er ég ekki að segja að foreldrar leikskólabarna eigi ekki að gagnrýna borgaryfirvöld. Þvert á móti held ég að þeim sé hollt að taka við gagnrýni og umræða um þessi mál er nauðsynleg. Mér hefur líka sýnst að borgarstjóri taki meira tillit til skoðana almennings, en kollegar hennar í ríkisstjórninni. Fólk á að sýna sanngirni í slíkri gagnrýni og láta yfirvöld njóta sannmælis. Ég lýsi líka eftir heildstæðri umræðu um fjölskyldupólitík. Ríkisstjórnin rekur ákaflega fjandsamlega skattapólitík, þegar fjölskyldan er annars vegar. Barna- bætur eru tekjutengdar sem hvergi þekkist í þeim löndum sem við ber- um okkur saman við, auk þess sem þær eru lægri. Ríkið veltir verkefn- um yfir á sveitarfélögin, án þess að þeim fylgi nægjanlegir fjármunir. Reykjavíkurlistinn verður auðvit- að að búa við það að til hans séu gerðar ríkari kröfur, en þeiira flokka sem láta sig fjölskyldumál litlu varða. Með ósanngjarnri og of- stopafullri gagm-ýni, málsóknarhót- unum og pólitískum loddaraleik verðum við bara vopn í höndum þeirra sem til eru í að nota okkur til að ná völdum, en hafa engan áhuga á málefnum okkar þess á milli. Höfundur er blaðamaður og foreldri leikskólabarns. <§> mbUs _ALLTA/= eiTTHVAÐ HfTT Fyrirtækið ÚTGÁFA Á ÍSLENSKU telur að bókaverð sé of hátt www.tunga.is Hafliði Helgason MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 4ÍÞ í tilefni ársins 2000 gefur Morgunblaðið út veglega sérútgáfu mánudaginn 3. janúar. Þessi sérútgáfa veiðui fyista blað Morgunblaðsins á áiinu 2000 og í henni verður birt margvíslegt efni úr blaðinu frá upphafi. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 föstudaginn 10. desember. Vinsamlegast pantið tímanlega! Allar náaari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111. AUGLYSINGADEILD Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is LÚÐ - LÓÐASETT - MAGAÞJÁLFAR - ÆFINGATEYGJUR - SIPPUBOND - ÞREKPALLAR BEKKIii OQ ÆFINQATÆKI gyiBSTA ÚRYAL LAND8INS AF ALLSKYN8 ÞRBK- 08 ÆPINQATÆKJUM. ADiiNS TMBRKI. Pro 335 ÆFINGA- BEKKUR Fjölnota æfingabekkur, með mörgum æfinga- möguleikum. Fyrirferðarlítill og þægilegur í notkun. AB-SHAPER MAGAÞJÁLFI Frábær magaþjálfi sem styrkir maga- vöðvana og gefur skjótan árangur. ÖRNINN0* STOFNAÐ1925 - ÞREKTÆKJADEILD Skeifan 11, sími 588 9890 GÚMMÍVARIN HANDLOÐ - HANDGRIP - PULSMÆLAR - OKKLAÞYNGINGAR - CURLSTANGIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.