Morgunblaðið - 08.12.1999, Síða 74
j74 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
MORGUNBLADIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
, Gaman að leika
vonda karlinn
/
I Myrkrahöfðingja Hrafns Gunnlaugssonar ber á mörgum
óþekktum og skemmtilegum leikurum. Meðal þeirra eru Kjartan
Gunnarsson í hlutverki biskupsins og Guðrún Kristín Magnúsdótt-
ir sem leikur prestsfrúna.
GUÐRÚN Kristín, eða Gauja
eins og hún er oftast kölluð,
er hugverktaki, goði og kona
sem situr sjaldan með tvær hendur
tómar. Um þessar mundir er hún að
skrifa barnabækur og fræðsluefni
um heiðni. En hún hefur víða komið
við á lífsleiðinni og eftir leiklistar-
námskeið hjá Helga Skúlasyni og í
Bretlandi hefur hún leikið í þónokkr-
um kvikmyndum, í sjónvarpsmynd-
um og í leikhúsi.
„Eg hef verið í einhverju auka-
hlutverki í flestum kvikmyndunum
hans Hrafns eða verið að aðstoða við
upptökurnar. Ég byrjaði sem grið-
kona Gísla Súrssonar í Útlaganum
hans Ágústs Guðmundssonar, og lék
líka frú í Agnesi. Ég var með mjög
sítt hár og áratugum saman var ég
notuð í kvikmyndir sem gerast fyrr á
tímum,“ segir Gauja.
- Er prestsmaddaman stærsta
hlutverkið þitt?
„Já, það er eitt aðalhlutverk í
Myrkrahöfðingjanum, svo eru fimm
stór aukahlutverk og prestsfrúin er
eitt af þeim.“
- En það skemmtiiegasta?
„Ég veit það ekki. Hvert hlutverk
hefur sinn sjarma. Það er voðalega
gaman að leika vonda karlinn. Það er
ekkert gaman að vera alltaf í barbí-
dúkkuleik, eins og í tískusýningun-
um á unglingsárunum. Það er voða
gaman að gera sig ljóta og ég fékk
aldeilis útrás fyrir það í Myrkrahöfð-
ingjanum."
- Ut frá hverju vannstu þína pers-
ónu?
„Fólki í nútímanum. Prestsfrú í
nútímanum sem elskai’ embættis-
mannakaupið. Launsögnin í þessari
mynd er hér og nú. Búninganna og
sviðsmyndarinnar vegna heldur
maður að þetta sé að gerast einhvers
staðar langt í burtu, fyrir löngu en
þetta er ekki svo einfalt. Þetta er um
Gjafabréf fyrir áskrift að Morgunbiaðinu er líklega
ekki það fyrsta sem þér dettur ( hug að gefa í
jólagjöf, en fyrir vikið er hún
óvenjuleg og kemur skemmtilega
á óvart.
Gjafabréf með áskrift að
Morgunblaðinu er tilvalin gjöf
fyrir unga fólkið sem er að hefja
búskap eða er búsett erlendis,
en einnig getur áskrift að Morgunblaðinu komið
að góðum notum fyrir pabba og mömmu, afa og
ömmu eða frændur og frænkur í útlöndum.
Áskriftin getur verið í 1 mánuð eða lengur, allt
eftir óskum hvers og eins. Hafðu samband eða
komdu í Morgunblaðshúsið, Kringlunni 1 og fáðu
allar nánari upplýsingar um gjafabréf fyrir áskrift
að Morgunblaðinu.
ÁSKRIFTARDEILD
Sími: 569 1122/800 6122 • Bréfsími: 569 1155» NeHang: askrift@mbl.is
Guðrún Kristín Magnúsdóttir sem prestfrúin í Myrkrahöfðingjanum.
mannlegar tilfínningar á öllum tím-
um og þessa siðblindu í þjóðfélaginu
sem við temjum okkur því við græð-
um á henni.“
- Nú ert þú goði. Hvernig fer hon-
um aðleikaprestsfrú?
„Bara vel því þetta fjallar um
tvískinnunginn í okkur, yfirborðs-
mennskuna. Þannig að þú getur
ímyndað þér hvort þessi mynd höfð-
ar til mín.“
- Anægð með myndina ?
„Mér fínnst hún alveg ofsalega fal-
leg, með fallegum litum og yndislega
vel gerð.“
- Og ert þú ánægð með sjálfa þig í
henni?
„Nei! Færustu sminkur Svíþjóðar
voru að reyna að gera mig ljóta! Svo
spyrð þú hvort ég sé ánægð! Ha, ha!“
- En reynshm var ánægjuleg?
„Þetta er alltaf óskaplega gaman.
Bæði er svo gaman að vinna með
Hrafni og svo myndast sérstök ver-
öld á tökustað, lítill heimur sem virk-
ar á meðan tökurnar standa. Ég held
ég hafi aldrei, hvorki í sjónvarpi né á
leiksviði né í bíói, lent með jafn sam-
stilltum hópi og í Myrkrahöfðingjan-
um. Það var alveg sama á hverju
gekk, allir héldu ró sinni. Þó er ég nú
komin á sjötugsaldur og búin að
reyna ýmislegt," segir Gauja að lok-
um.
Leiklist ólík
stjórnmálum
„HVERTþóí
heitasta," segir
Brynjólfur biskup
í lok myiidarinn-
ar Myrkrahöfð-
ingans og sést á
þessum tigna
manni að honum
er nokkuð brugð-
ið. Ekki að furða
að atburðir sög-
unnar hræri við
samtímamanni
píslarvottsins síra
Jóns þegar þeir
rata á hvíta tjaldið nokkrum öldum
síðar. Þá haga örlögin því þannig að
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, skrýðist
hempu biskups. Hvenær var það
sem Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri
bað hann um að setja sig í spor
Brynjólfs?
„Það var áður en tökur hófust.
Ætli það sé ekki eitt og hálft ár síð-
an,“ svarar Kjartan.
Hvernig tókstu þessu boði
Hrafns?
„Hann bauð mér ekki hlutverkið
heldur bað mig um að leika það,“
leiðréttir Kjartan. „Ég hafði ekki
sóst sérstaklega eftir því. Ég brást
þannig við að ég fékk handritið lán-
að tii aflestrar. Svo las ég mér til um
þennan tíma og þá sögupersónu sem
helst er horft til og varð Hrafni inn-
blástur að því að gera myndina. Eft-
ir það ákvað ég að vera með.“
Hvaðgerði iítslagið?
„Ég held að það hafí helst verið að
fá tækifæri til að fylgjast með frá
fyrstu hendi þegar kvikmynd yrði
til. Það var að minnsta kosti fremur
það heldur en brennandi áhugi minn
á því að leika í kvikmynd."
Bókaverð er of hátt
3 bækur
4.460 krónur
5.606 eintök
75 milliónir króna handa
Degi og Steingrími og öðrum
www.tunga.is
Hefurðu
kannski hugá því
að snúa þér alfar-
ið að leiklist?
„Nei, ég hef
ekki gert neinar
áætlanir uni það.“
Varþetta
strembið?
„Þetta var
(ivanalegt, og frá-
brugðið því sem
ég hafði fengist
við fram að þessu.
Ég var í litlu hlut-
verki í myndinni og kem ekki fram í
margar mínútur. Það tók ekki lang-
an tíma að ganga frá þeim atriðum
hvað mfna þátttöku varðar þannig
að ég get ekki sagt að það liafi verið
strembið."
Er eitthvað líkt með leiklist og
pólitík?
„Það er áreiðanlega ágætur hæfi-
leiki fyrir stjómmálamenn að hafa
eitthvað inngrip í leiklist. En leiklist
er af svo mörgum toga. Stundum er
verið að Ieika og sviðsetja atburði
sem hafa gerst; túlka sögupersónu
sem hefur verið uppi. Þegar reynt
er að líkja saman leiklist og stjórn-
málum með því hugarfari að sljórn-
málin séu leikur þar sem menn séu
fyrst og fremst að leika tilbúinn
texta og tilbúna atburðarás, þau séu
sem sagt gervimennska, þá finnst
mér ekkert líkt með stjórnmálum og
leiklist. Það er auðvitað margt líkt,
með óheiðarlegum og óvönduðum
stjórmálamönnum og lélegum leik-
urum. Þeim tekst sjaldnast að koma
hlutverkum smurn til skila með þeim
hætti að trúverðugt sé.“
Hefðir þú veitt s/ra Jóni syndaaf-
lausn?
„Grunnboðskapur kristninnar er
fyrirgefningin og Guð einn er fær
um að fyrirgefa hveijum sem er
hvað sem er. Ég held nú að mennirn-
ir geti ekki tekið að sér það hlutverk
fyrir hans hönd en að því marki sem
þeir hafa tekið að sér að gera það
með svona sinum hætti, sem þætti í
trúariðkan manna, þá hugsa ég að
ég hefði veitt honum aflausn eftir
hæfilega yfirbót. Og vissulega kem-
ur fram í sögunni að hann iðrast."
Kjartan Gunnarsson í hlutverki
biskups í Myrkrahöfðingjanum.