Morgunblaðið - 28.01.2000, Qupperneq 42
42 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000
1-------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Kvenfélagasamband
Islands 7 0 ára
KVE NFE LAGASAMBAND Is-
lands var stofnað 1. febrúar 1930 og
er sambandið stærstu samtök
kvenna á Islandi.
Hugsunin að baki stofnuninni að
sameina öll kvenfélög í eina heild
var fyrst og fremst til
að koma á skipulagðri
kennslu í heimilisfræð-
um á íslandi. Fyrsta
stjórn KI var þannig
skipuð: Ragnhildur
Pétursdóttir forseti,
Guðrún Pétursdóttir
og Guðrún J. Briem
meðstjórnendur.
I varastjórn Hall-
dóra Bjarnadóttir,
Ásta Jónsdóttir og
Marta Einarsdóttir.
Kvenfélagasamband
íslands skiptist í 21
héraðs- og svæðasam-
bönd sem í eru yfir
tvöhundruð kvenfélög
og samtals er félaga-
fjöldi KI nálægt tuttugu þúsund.
Helstu markmið Kvenfélagasam-
bands Islands eru: að standa vörð
um hag íslenskra heimila með því
að:
- Fylgjast með opinberum
ákvörðunum í uppeldis- og fræðsl-
umálum, heilbrigðismálum, trygg-
ingamálum, skattamálum og at-
vinnu- og launamálum.
- Láta sig varða jafnréttismál,
mannréttindamál og ræktunar- og
umhverfismál.
Kvenfélagasamband Islands hef-
ur stuðlað að aukinni samvinnu
kvenna, eflt félagsvitund þeirra og
unnið að þeim málum sem félags-
heildin hefur ákveðið hverju sinni,
með því að vinna að útgáfu, fundum,
ráðstefnum og námskeiðum.
Við merk tímamót er sjálfsagt að
litið sé til baka og horft yfir farinn
veg og þá er gjarnan spurt: „Höfum
við gengið til góðs götuna fram eftir
veg?“
Fyrsta kvenfélagið
Fyrsta kvenfélagið var stofnað 9.
Drífa
Hjartardóttir
júlí 1869 að Ríp í Hegranesi, en þar
komu saman flestar konur sveitar-
innar og var félagið nefnt kvenfélag
Rípurhrepps. Það setti sér merka
stefnuskrá þegar í upphafi. Fjallað
skyldi um:
1. Um hreinlæti og
hvað mest er enn
ábótavant hjá oss í því
tilliti, í baðstofu, búri,
eldhúsi, bæjardyrum
og úti fyrir þeim,
kringum bæinn og
hvernig best verði ráð-
in bót á því.
2. Um bágindin og
hvað hér er enn ónot-
að, sem hafa mætti til
manneldis og hvort
ekki mætti taka upp
hyggilegri tilhögun á
því er notað hefur ver-
ið.
Ari seinna bættist
við:
1. Að venja börn
snemma við starfsemi og sérílagi
heyvinnu frá því er þau væru 10 ára
ef kringumstæður leyfðu.
2. Að láta ekki óþvegna ull í
kaupstaðinn á haustin.
3. Að koma upp vefstólum á bæj-
um, þar sem þeir voru ekki áður, og
kenna konum fremur vefnað en
karlmönnum, svo að þeir geti sótt
sjó, svo sem áður hefur verið.
Enn var bætt við nýjum málum í
stefnuskrána 187: að kenna öllum
börnum að skrifa og reikna, sem til
þess eru fær. Að láta konur koma
upp matjurtagörðum, þar sem þá
vantar.
Aðeins er hér tæpt á nokkrum
stefnumálum félagsins.
Annað kvenfélagið var stofnað í
Svínavatnshreppi 25. nóvember
1874, þar voru einnig undirrituð af-
ar merkileg lög.
í 1. gr. laga kvenfélags Svína-
vatnshrepps segir:
„Það er tilgangur félagsins að
efla allskonar framför kvenna í
Svínavatnshreppi, með skrift,
reikningi, þrifnaði, reglusemi í hús-
stjórn, barnameðferð, allri ullar-
vinnu, vefnaði, saumaskap, mjólk-
urmeðferð og matartilbúningi
yfirhöfuð, einnig hagfræðislegri
meðferð á öllum heimilisföngum.“
Kvenfélögin í dag
Kvenfélagskonur geta með stolti
litið til baka yfir farinn veg, svo
mjög hafa þær komið að mörgum
góðum og merkilegum málefnum.
I kvenfélögunum fer fram afar
fjölbreytt félagsstarf og þau mis-
munandi eftir því hver verkefnin
eru. Það eru pólitísk kvenfélög,
kirkjukvenfélög, félög sem sinna
mannúðar- og líknarstörfum og al-
menn félög sem sinna margvísleg-
um verkefnum. Eitt er víst að hvert
það samfélag sem hefur á að skipa
dugmiklu kvenfélagi er vel sett.
Með störfum sínum innan kvenfé-
laganna, öðlast konur oft sína
fyrstu reynslu í félagsmálum, þær
taka að sér störf í stjórnum og
nefndum og það eru gerðar kröfur
til þeira um vönduð og öguð vinnu-
brögð.
Þessi reynsla hefur komið mörg-
um konum vel þegar þær hasla sér
völl á öðrum vettvangi.
í kvenfélögunum skapast þau
kynni sem verða að vináttu, vináttu
kvenna sem hafa lært að starfa
saman, styðja hver aðra ef á bjátar
og síðast en ekki síst að gleðjast
saman á góðum stundum.
Samtakamáttur kvenna á sér
merkilega sögu og starf kvenna í
kvenfélögum voru störf brautryðj-
enda í mörgum framfaramálum,
sem ríki og sveitarfélög tóku síðan
við.
Þau eru ennþá sá vettvangur sem
konur hafa til að koma góðum mál-
um áleiðis í líknar- og menningar-
málum því þar koma saman margar
hlýjar hendur.
Kvenfélagasamband íslands hef-
ur verið aðili að norræna hús-
mæðrasambandinu NHF frá árinu
1969. Norðurlöndin skiptast á for-
mennsku og hefur ísland tvisvar
verið í formennsku.
Kvenfélög
Kvenfélagskonur geta
með stolti litið til baka
yfír farinn veg, segir
Drffa Hjartardóttir, svo
mjög hafa þær komið að
mörgum góðum og
merkilegum málefnum.
Sigríður Thorlacius 1976-1980 og
Drífa Hjartardóttir 1996-2000.
Á stjórnarfundi í Noregi 1999 var
samþykkt að breyta nafninu í Nor-
rænu kvennasamtökin NKF (Nord-
isk kvindeforbund).
Félagsmálaráðherra Páll Péturs-
son flutti ávarp í upphafi ráðstefn-
unnar. Sumarorlof eru haldin til
skiptis í löndunum þrjú ár í röð og
hið fjórða er haldin ráðstefna. Mjög
ánægjulegt er að fylgjast með því
hve margar konur sækja bæði orlof-
in og ráðstefnurnar.
Kvenfélagasamband íslands er
einnig aðili að ACWW, sem eru aL
þjóðasamtök strjálbýliskvenna. í
þeim samtökum eru um níu milljón
konur alls staðar að úr heiminum.
Alþjóðaþing eru haldin á þriggja
ára fresti og var það síðasta haldið í
Suður-Afríku og það næsta verður
haldið í Kanada árið 2001. Þessi
samtök hafa staðið að mörgum
merkum málefnum og vinna að því
að styrkja konur í þróunarríkjun-
um.
Formenn KÍ
Ragnhildur Pétursdóttir 1930-1947
Guðrún Pétursdóttir 1947-1959
Rannveig Þorsteinsdótt-
irl959-1963
Helga Magnúsdóttir 1963-1971
Sigríður Thorlacius 1971-1979
María Pétursdóttir 1979-1987
Stefanía M. Pétursdóttir 1986-1994
Drífa Hjartardóttir 1994-2000.
Húsfreyjan
Málgagn Kvenfélagasambands
íslands er tímaritið Húsfreyjan
sem kemur út fjórum sinnum á ári
og kom fyrsta tölublaðið út árið
1950.
I blaðinu er fjallað um ýmislegt
sem tengist konum og kvenfélögum
og lögð er áhersla á að blanda sam-
an fróðleik og léttara efni. Tímaritið
Húsfreyjan á sér stóran og tryggan
áskrifendahóp.
Frá árinu 1963 hefur Kvenfélaga-
sambandið gefið út yfir tuttugu
fræðslurit um ýmis málefni. Mikil
áhersla er lögð á að þessi rit séu
vönduð og vel úr garði gerð. Hafa
nokkur þeirra verið notuð við
kennslu í skólum landsins til dæmis
í hússtjórnarskólum og Háskóla Is-
lands.
Leiðbeiningarstöð
heimilanna
Leiðbeiningarstöð heimilanna er
stór þáttur í starfi Kvenfélagasam-
bands Islands. Hún er starfrækt á
skrifstofu sambandsins. Á leiðbein-
ingarstöðinni er hægt að fá upplýs-
ingar um allt sem viðkemur heimil-
isstarfi og þar liggja frammi
erlendar gæðakannanir á heimilis-
tækjum sem mikið er spurt um. Um
sex þúsund erindi berast til Leið-
beiningarstöðvarinnar á ári og er
þjónustan veitt endurgjaldslaust
fyrir alla sem þangað leita.
Lokaorð
Kvenfélögin hafa frá upphafi ver-
ið í forystu í uppbyggingu betra
mannlífs á Islandi. Þau hafa miklu
hlutverki að gegna í íslensku samfé-
lagi, þau vinna að framfaramálum
dagsins í dag og berjast fyrir betri
framtíð komandi kynslóða. Verk-
efnin hafa tekið breytingum í takt
við breytta tíma og aðrar forsendur
og ný vinnubrögð taka við. Sam-
stöðu og hvetjandi störf kvenfélag-
anna ber að þakka.
Megi heill og hamingja fylgja
störfum Kvenfélagasambands Is-
lands um ókomna tíð.
í tilefni 70 ára afmælis Kvenfé-
lagasambands íslands er öllum vel-
komið að gleðjast með okkur á af-
mælisdaginn 1. febrúar að
Hallveigarstöðum milli kl. 17-19.
Höfundur er alþingismaður og
forseti Kvenfélagasambands Islands.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Grundarbraut 4, Snæfellsbæ, þingl. eig. Fannar Eyfjörð Skjaldarson,
gerðarbeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs, íbúðalánasjóður og
Snæfellsbær, föstudaginn 4. febrúar 2000 kl. 14.30.
Vallholt 1, hluti, Snæfellsbæ, þingl. eig. Jóhann Jón Jónsson, gerðarb-
eiðendur (búðalánasjóður og Snæfellsbær, föstudaginn 4. febrúar
2000 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn i Stykkishólmi,
27. janúar 2000.
ÝMISLEGT
Herbalife
Siálfstæður dreifinqaraðili
Sími 864 2532
%^m——mmmmmmmmmmmmmmmmmm—mm
Aukakílóin burt!
Ný öflug vara
Náðu varanlegum árangri. Síðasta sending
seldist strax upp. Persónuleg ráðgjöf og
stuðningur. VISA/EURO.
■Hringdu strax! íris í síma 898 9995.
INTERNATIONAL HOTEL & TOURISM TRAINING INSTITUTE
Spennandi nám í Sviss
Alþjóðleg hótelstjórn
- B.A. (Hons) Alþjóðleg hótelstjórnun (3 ár)
- Dipioma í hótelstjórnun (2 1/2 ár)
- Ýmiss framhaldsmenntun (Post graduate)
Kynningarfundur í Reykjavík
Mr. K. Friok framkvæmdastjóri IHTTI verður með kynníngarfund
á HÓTEL LOFTLEI0UM, mánudaginn 31. janúar2000, kt. 18:00.
Alþjóðlegi hótel- og ferðamálaskólinn, INTERNATIONAL HOTEL
& TOURISM TRAINING INSTITUTE íSviss er vei þekktur og
viðurkenndur á sínu sviöi. Kennslan fer fram á ensku. ___
Nánari upplýsingar: Vistaskipti & Nám, Lækjargötu 4,
101 Reykjavík, síml 562 2362, netfang: visla@skima.is
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á vefnum,
www.ihtti.ch
Herbalife
Viltu vita meira?
Allar upplýsingar hjá alþjóðlegum dreifingaraðil-
um, Sigurbjörg, World Team, og Böðvar, Super-
visor. Símar 564 1734, og 698 1734 milli kl.
10 — 12 og 18—20. Netfang: numerl @visir.is
Sendum kynningarmyndband, ef óskað er, frítt.
I.O.O.F. 1 = 1801288V2 = 9.0 0*
Sálarrannsókna-
félag Suðurnesja
Skyggnilýsingarfundur
María Sigurðardóttir, miðill,
verður með skyggnilýsingarfund
í húsi félagsins, Víkurbraut 13, í
Keflavík, sunnudaginn 30. janúar
kl. 20.30. Húsið verður opnað
kl. 20.00. Allir velkomnir.
Stjórnin.
KENNSLA
BrIAN TrACY ry Inti-rnattonal
PHOENIX-námskeiðin
www.sigur.is
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 = 1801288V2 - 9.0.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ipgólfsstraeti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
í kvöld kl. 21 heldur Guðfinna S.
Svavarsdóttir erindi: „Hugljóm-
un sjálfsþekkingar" í húsi félags-
ins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Jens Guðjóns-
sonar sem ræðir um íþróttir and-
ans.
Á sunnudögum kl. 17—18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Áfimmtudögum kl. 16.30—18.30
er bókaþjónustan opin með miklu
úrvali andlegra bókmennta. Starf-
semi félagsins er öllum opin.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
VAKA
í kvöld kl. 20.00. Lofgjörð og fyrir-
bæn. Bænastund kl. 19.30.
Ungt fólk á öllum aldri er hvatt til
að fjölmenna.
Kristniboðssambandið.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.00 Gospelsamkoma.
Gospelkórinn frá Jelöy Lýðhá-
skóla syngur undir stjórn Tone
Ödegaard. Aðgangur ókeypis,
allir hjartanlega velkomnir.