Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Kröftugu Geysisgosi fagnað
GEYSIR gaus kröftuglega á nýjan
leik á níunda tímanum í gærkvöldi
eftir að þúsundir manna höfðu beðið í
rúma fimm klukkutíma eftir gosinu.
Mai-gir höfðu þá gefist upp á biðinni
en Geysir brást ekki þeim áhorfend-
um sem þrautseigastir voni og sýndi
mátt sinn og megin með tilþrifum.
Upp úr klukkan þi-jú fleygði Þórir
Sigurðsson, veitingamaður við Geysi í
Haukadal, rúmum fjörutíu kílóum af
Sunlight sápustykkjum í hverinn, en
hann sagði að þessi enska sápa hefði
reynst best til að kalla fram gos í
hvemum. í fyrstu var reiknað með að
Geysir myndi láta á sér kræla strax á
fyrsta klukkutímanum, líkt og gerðist
haustið 1998 þegar Geysir gaus síð-
ast.
Biðin reyndist þó lengri hjá þús-
undum manna sem voru samankomn-
ir til að sjá nú orðið sjaldséð Geysis-
gos. Bílar streymdu að um þrjúleytið
en að sögn lögreglu á staðnum gekk
greiðlega að koma bílunum fyrir og
engin vandræði sköpuðust. Miðað við
bílafjölda, og það hversu margir voru
yfirleitt í hverjum bíl, taldi lögreglan
ekki óraunhæft að ætla að á sjötta
þúsund manns hafi verið við Geysi
þegar mest lét.
Hlýtt var í veðri og sólin yljaði fólki
af og til, og ríkti nokkurs konar hátíð-
arstemmning umhverfis Geysi, þar
sem áhorfendur og ljósmyndarar
biðu eftir gosinu. Af og til var hitinn
mældur í hvemum og nýjustu tölur
um hitastig vatnsins bárust manna á
milli. Geysir var þó ekkert að ílýta sér
og smám saman fór að þynnast í röð-
um áhorfenda umhverfis hverinn
þegar leið að kvöldmatartíma.
Yfirborð Geysis
hækkaði skyndilega
Klukkan tíu mínútum fyrir átta var
ákveðið að bæta meiri sápu í Geysi og
að þessu sinni var fleygt einum kassa
af mjólkur- og hunangssápunni Lux í
hverinn. Um stundarfjórðungi síðar
fann Þórir dynk sem benti til að Geys-
ir ætlaði loksins að skvetta úr sér.
Hann benti því fólki sem stóð í þéttri
línu upp við hverinn að víkja frá, fólk-
ið hörfaði en Geysir beið enn rólegur.
En nú var skammt í að gosið hæf-
ist. Búist hafði verið við nokkurra
mínútna fyrirvara að gosinu og að
fólk hefði því tíma til að færa sig í ör-
ugga fjarlægð frá hvemum, en upp-
hafið kom öllum á óvart. Þar sem
fólkið stóð og spjallaði í makindum
rétt við yfirborð hversins ákvað Geys-
ir nú loksins að tíminn væri kominn,
um stundarfjórðungyfir átta.
Yfirborð hversins hækkaði skyndi-
lega og sjóðheitt vatnið flæddi upp úr
hverskálinni og streymdi niður klett-
ana neðan hversins. Fólk þusti frá og
eldri maður, sem studdist við staf, féll
í klettunum og brennheitt vatnið
flæddi um fætur hans og bak.
Nærstaddir bragðust skjótt við og
lyftu manninum upp og bára hann frá
hvemum í öraggt skjól. Hann
Þegar vatnið hafði tæmst úr hvem-
um blés Geysir úr sér gufustrókum
með dranum og þungum hvini og lauk
þannig sýningunni með stórbrotnum
hætti, eftir að sjálft hámark gossins
hafði staðið yfir í um fimm mínútur.
Síðan dró úr kraftinum og þegar gufu-
mökkurinn hvarf blasti þurrausinn og
gapandi hverinn við, en það tekur
hann um 16 til 18 tíma að fyllast.
Morgunblaðið/RAX
Þórir Sigurðsson, sem fylgst hefur
með hvemum lengi sagði að þetta
hefði verið meðalgos, en aðdrag-
andinn verið í lengra lagi.
Gosið var ekki framkallað fyrir
áhorfendur að þessu sinni eingöngu,
heldur var gosið hluti af rannsókn
sem felur í sér athugun á áhrifum
goss í Geysi á aðra hveri í nágrenn-
inu, og sér í lagi á tíðni gosa í Strokki.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
brenndist á fótum, en tók þó ekki í
mál að björgunarsveitarmenn flyttu
hann á brott fyrr en að gosinu loknu.
Tveir til viðbótar brenndust á fótum í
sjóðandi vatninu og vora fluttir til að-
sammng um gjafsókn
London. Morgunblaðið.
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra undirritaði fyrir íslands
hönd í gær samning Evrópuráðsins
um gjafsókn milli landa. I London
stendur nú 23. ráðstefna dómsmála-
ráðherra á vegum Evrópuráðsins
og sitja hana um fjörutíu ráðherrar,
en yfirskrift ráðstefnunnar er Rétt-
læti í framkvæmd á 21. öld.
Sólveig Pétursdóttir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að þeg-
ar farið var yfir þann lista um
samninga á sviði dómsmála, sem
Evrópuráðið bað aðildarríkin að
kanna og athuga hvaða samninga
þau gætu undirritað á ráðstefnunni
í London, kom í ljós, að ísland var
búið að undirrita eða staðfesta þá
alla nema tvo. Annar var Evrópu-
ráðssamningurinn, sem fjallar um
rétt manna, sem búa í aðildarríki
Evrópuráðsins og vilja leita réttar
síns í öðra aðildarrríki, til þess að
leggja fram gjafsóknarbeiðni í bú-
seturíkinu. Skulu stjórnvöld þar þá
framsenda beiðnina til þess ríkis,
sem réttar er leitað í. Þennan
samning staðfesti dómsmálaráð-
heira í gær.
Á ráðstefnunni í London, sem
lýkur í dag, föstudag, verður fjallað
um leiðir til að mál gangi tafarlaust
fyrir dómstólunum. í skýrslu, sem
Sólveig Pétursdóttir lagði fram á
ráðstefnunni, rakti hún stöðu mála
á íslandi. „Við höfum náð góðum
Æ
Reuters
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra undirritar fyrir Is-
lands hönd samning Evrópu-
ráðsins um gjafsókn milli landa.
árangri,“ sagði ráðherrann í samtali
við Morgunblaðið. „Við búum við
kosti tveggja dómsstiga og nú tekur
rekstur einkamála að meðaltali
fimm til sex mánuði, sakamála tvo
til þrjá mánuði að meðaltali og hjá
Hæstarétti er meðaltalsmálatíminn
21 vika.“ Á ráðstefnunni í gær flutti
Sólveig Pétursdóttir ræðu um leiðir
til að hraða gangi dómsmála og um
tæknivæðingu dómstóla og sagði þá
m.a. frá sérstakri yfirheyrsluað-
stöðu fyrir börn. Björn Friðfinns-
son ráðuneytisstjóri flutti ræðu um
þriðja meginmál ráðstefnunnar,
sem er réttaraðstoð við almenning.
En ráðherrarnir munu ekki að-
eins ræða gagnsemi tölvunnar á
þessari ráðstefnu heldur og afbrot á
því sviði og sagðist Sólveig eiga von
á því, að sérstök ályktun yrði gerð
um tölvuglæpi.
Sólveig Pétursdóttir sagði ráð-
stefnuna bera talsverðan svip af
þeirri viðleitni Evrópuráðsins að fá
lönd í Suðaustur-Evrópu til sam-
starfs um réttlát og skilvirk dóms-
kerfi. Þá vilja Rússar sýna sam-
starfsvilja sinn innan Evrópu-
ráðsins í verki og hafa m.a. boðizt
til þess að halda næstu ráðstefnu
dómsmálaráðherra Evrópuráðs-
ríkjanna í september 2001.
„Evrópuráðið vill leggja áherzlu
á aðstoð við ríki til að koma á rétt-
látu dómskerfi,“ sagði Sólveig Pét-
ursdóttir. „Það þýðir ekkert að
setja lög nema menn séu staðráðnir
í að framfylgja þeim og virða um
leið niðurstöðu dómstóla. Almenn-
ingur verður að geta borið traust til
dómkerfisins. Það er réttur allra
manna að eiga aðgang að réttlátu
og skilvísu dómskerfi.“
hlynningar á sjúkrahúsið á Selfossi.
En Geysir var kominn af stað og
næsta stundarfjórðunginn risu
skvetturnar hver af annairí upp úr
hvemum. Um hálfníuleytið náði gosið
hámarld með tilþrifamiklum gufu- og
vatnsstrókum sem teygðu sig tugi
metra upp í loftið, og áhorfendum
fógnuðu tilkomumikilli sýningu
hversins.
STEYPU
ÞJÓNUSTA
U'
A
BMVAIIA
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050
Steypudælur
Nýjar steypudælur spara þér
tíma og peninga. Kynntu
þér öfluga steypuþjónustu á
www.bmvalla.is
www.bmvalla.is
Island undirritar