Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Högni
Meðal þess sem keppt var í á sjómannadaginn
var marhnútakeppni.
Mesta hátíðin
á eftir j ólunum
Flateyri. Morgunblaðið.
„SJOMENN hafa staðið saman um að gera þennan dag að hátíðis-
degi sínum í meira en 60 ár, enda hefur verið sagt að sjómannadag-
urinn hafi orðið mesta hátíð ársins í sjávarplássum á eftir jólum.
Þannig komst séra Agnes Sigurðardóttir að orði í predikun dagsins.
Mikil og góð þátttaka var í hátiðarhöldunum á Flateyri þar sem
bæjarbúar kepptu með sér í ýmsum sjótengdum íþróttum svo sem
kappbeitningu, marhnútakeppni, kappróðri, koddaslag og tunnu-
hlaupi.
Hátíðarhöld í góðu veðri
í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
SJÓMANNADAGURINN, eða öllu
heldur sjómannadagshelgin, fór
fram á hefðbundinn hátt í Vest-
mannaeyjum um síðustu helgi. Það
er orðin viðtekin venja að áhafnir
byrji helgina í fótboltakeppni sín á
milli og fór keppnin fram á föstu-
dagseftirmiðdegi og var mikil þátt-
taka, með tilheyrandi pústrum,
tæklingum og hefðbundnu röfli út í
dómarana. Ekki er þó kunnugt um
stórslys að þessu sinni. Annars er
mikil gleði sem fylgir þessum þætti
sjómannadagsins, enda sjómenn
upp til hópa áhugamenn um knatt-
spyrnu.
Á laugardag fór fram hefðbundin
róðrarkeppni í Friðarhöfn, auk
hefðbundinna atriða á sjómanna-
degi, auk kraftakeppni og tilheyr-
andi stemmningar hjá Bylgjulest-
inni. Töluverður mannfjöldi fylgdist
með þessum hluta dagskrárinnar.
Á sunnudag var sjómannamessa í
Landakirkju. Að lokinni messu
flutti Snom Óskarsson safnaðar-
hirðir minningu um þá sem farist
hafa við skyldustörf á árinu. Þá
hófst dagskrá á Stakkagerðistúni.
Ræðumaður dagsins var Guðmund-
ur Árni Stefánsson alþingismaður.
Snorri Óskarsson heiðraði sjómenn
og þá sem höfðu bjargað úr hættum
eða fá drukknun. Þeir Guðni Páls-
son matsveinn, Guðmundur Ólafs-
son vélstjóri, Bergþór Guðjónsson,
skipstjóri og útgerðarmaður, og
Sveinn Valdimarsson, skipstjóri og
útgerðarmaður, voru heiðraðir fyrir
áratugastörf við sjómennsku. Þá
var Magnús Bragason heiðraður
fyrir björgunarafrek sem nýlega
var greint frá í Morgunblaðinu og
Eggert Björgvinsson fyrir björgun
frá drukknun 1. júlí á síðasta ári.
Fjölmargir gestir voru mættir á
Stakkagerðistún í blíðskaparveðri
sem var alla sjómannadagshelgina í
Eyjum og skemmtu sér vel, auk
þess sem allir sem vettlingi gátu
valdið mættu í kaffi hjá Eykyndil-
konum í Alþýðuhúsinu og var það
fullt allan daginn. Þá var Árni
Johnsen alþingismaður með ljós-
myndasýningu sem vakti athygli
fjölmargra gesta sem sáu skemmti-
lega sýningu á mannamyndum.
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Guðni Pálsson matsveinn, Guðmundur Ólafsson vélsljóri, Bergþór Guðjónsson, skipstjóri og útgerðarmaður og
Sveinn Valdimarsson, skipstjóri og útgerðarmaður, voru heiðraðir fyrir áratugastörf við sjómennsku.
Fulltrúi Hampiðjunnar og verðlaunahafar á golfmóti Hampiðjunnar og Nets í Vestmannaeyjum. Örn Þorláks-
son, Hampiðjunni, Einar Ólafsson, Guðjón Grétarsson, Eyþór Harðarson, Sigmar Pálmason, Aðalsteinn
Ingvarsson, Gísli Steinar Jónsson, Ágúst Einarsson og Haraldur Óskarsson, Neti hf.
Golfmót Hampiðjunnar og Nets hf. í Vestmannaeyjum
Jöfn keppni og bráðabani
Sjómannadagurinn á Skagaströnd
Bíósýningar
hafnar að nýju
Skagaströnd. Morgunblaðið.
ÁRLEGT golfmót Hampiðjunnar og
Nets hf. var haldið laugardaginn fyr-
ir sjómannadag á golfvellinum í
Vestmannaeyjum. Þetta er í fjórða
sinn sem þessi fyrirtæki standa sam-
an að golfmóti á þessum degi. Góð
þátttaka var í mótinu, alls skráðu 66
kylfingar sig til leiks og luku 64
keppni. Veður var afar gott til golf-
leiks, hlýr sunnanandvari lék um
völlinn.
Keppni var afar jöfn með forgjöf,
Ágúst Einarsson og Sigmar Pálma-
son komu inn á jafnmörgum höggum
en eftir útreikning reyndist Sigmar
standa uppi sem sigurvegari. í þriðja
sæti var Gísli Steinar Jónsson. Án
forgjafar var keppni ekki síður hörð.
Þar þurfti bráðabana milli Aðal-
steins Ingvarssonar og Guðjóns
Grétarssonar og sigraði Aðalsteinn.
I þriðja sæti var síðan Sigmar
Pálmason. Nándarverðlaun hlutu
Eyþór Harðarson f. 2. og 12. braut
og Einar Ólafsson f. 17. braut.
Vegleg verðlaun voru í boði og
hlutu sigurvegarar golfsett af Palm-
er gerð og næstu sæti gáfu golfkerru
og poka og vandaðir golfskór féllu
þriðja sæti í hlut.
Hampiðjan var með vörusýningu
samhliða golfmótinu í golfskálanum
og sýndi þar framleiðsluvörur sínar.
Margir sjómenn og útgerðarmenn
komu við og kynntu sér helztu nýj-
ungar frá fyrirtækinu og líkaði vel
þessi þjónusta enda eru útgerðir í
Vestmannaeyjum meðal helztu við-
skiptavina Hampiðjunnar.
AÐ venju var mikið um dýrðir á sjó-
mannadaginn á Skagaströnd. Besta
veður var þennan mesta hátíðardag
þorpsins og fjöldi manns fylgdist
með og tók þátt í viðburðum dagsins.
Að lokinni skrúðgöngu og messu
þar sem sjómannakór söng fyrir
kirkjugesti, sem troðfylltu kirkjuna,
var lagður blómsveigur að minnis-
merki um drukknaða sjómenn. Að
því loknu var öllum sem vildu boðið í
stutta skemmtisiglingu og síðan
hófst hefðbundin dagskrá með kapp-
róðri og leikjum. Við þetta tækifæri
var Gunnari Albertssyni vélstjóra
veitt heiðursmerki sjómannadags-
ins, fyrir áralöng störf sín á sjó.
Síðdegis var opnuð mynd-
listarsýning í grunnskólanum en þar
sýndu verk sín tvær listakonur frá
Ákureyri þær Halla Gunnlaugsdótt-
ir og Margrét Traustadóttir ásamt
Sverri Berndsen sem búsettur er á
Skagaströnd. Á sýningunni gátu
gestir keypt sér kaffiveitingar á veg-
um slysavarnadeildarinnar.
í tilefni af því að nú hafa kvik-
myndasýningavélar félagsheimilis-
ins verið endurnýjaðar og komið fyr-
ir nýjum bíósætum í salnum var
öllum boðið frítt í bíó þennan dag.
Nokkuð mörg ár eru síðan kvik-
myndasýningum var hætt enda
gamla sýningarvélin orðin svo gömul
og úrelt að ekki fengust í hana vara-
hlutir lengur. Áformar rekstraraðili
félagsheimilisins að hefja nú sýn-
ingahald að nýju af fullum krafti.
Að venju lauk síðan dagskrá sjó-
mannadagsins með fjölmennum
dansleik þar sem hinn landskunni
Geirmundur Valtýsson ásamt hljóm-
sveit, sá um að allir skemmtu sér
fram undir morgun.
Viður-
kenningar
Siglinga-
stofnunar
SIGLINGASTOFNUN veitir
árlega viðurkenningar á sjó-
mannadaginn til eigenda og
áhafna skipa sem taldar eru
hafa sýnt góða framkvæmd á
öryggisreglum og umhirðu á
undanförnum árum. Á sjó-
mannadeginum hafa öryggis-
mál ávallt verið ofarlega á
baugi og hefur því þótt tilhlýði-
legt að veita viðurkenninguna á
þessum degi. Hún á að vera
hvatning fyrir áhöfn og eigend-
ur skipa að halda þessum mál-
um í sem bestu horfi.
Á sjómannadaginn 4. júní sl.
fengu eftirtalin skip viðurkenn-
ingu: Antares VE, Björgvin
EA, Gissur hvíti ÍS, Kristrún
RE, Skinney, Þorsteinn GK og
ÖrvarSH.