Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 82
82 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiliti kt. 20.00
KOMDU NÆR — Patrick Marber.
I kvöld fös. 9/6 síðasta sýning. Sýningin er hvorki við hæfi barna né viðkvæmra.
GLANNI GLÆPUR í LATABÆ
Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Sun. 18/6 kl. 14 nokkur sæti laus. Síðasta sýning leikársins.
LANDKRABBINN — Ragnar Arnalds.
Mið. 14/6 síðasta sýning.
DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT eftir William Shakespeare.
Fim. 15/6 nokkur sæti laus. Síðustu sýningar leikársins.
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric-Emmanuei Schmitt.
Aukasýning fös. 16/6. Allra síðasta sýning.
Litta sóitiiti kl. 20.30;
HÆGAN, ELEKTRA — Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir.
Aukasýningar fös. 9/6 uppselt, mið. 14/6 og fös. 16/6. Allra síðasta sýning.
Miðasalan er opin mánud.—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200.
thorev@theatre.is — www.ieikhusid.is
IÐNAÐARHURÐIR
FELLIHURÐIR LYFTIHURÐIR
GÖNGUHURÐIR ELDVARNARHURÐIR
í SVAL-ííORGaX Erlr.
J. iOF DABAKKA 9. 112 REYKJAVIK
SIMI 58'/' 8/50 FAX 58/ 8/51
LADDl
2009
Siðasta sýning
fyrii sumarfri.
Föstudaginn
9. iúní
kl. 20
Pöntunarsimi: 551-1384
IEIKFÉLAG ÍSLANDS
'thMWU 55z 3000
Sjeikspír eins og hann leggur sig
fim 15/6 kl. 20 laus sæti
lau. 24/6 kl. 20
fös. 30/6 kl. 20
Panódíl fyrir tvo
fös 16/6 kl. 20.30 laus sæti
Síðustu sýningar í sumar
530 3O3O
Stjörnur á morgunhimni
sun 18/6 kl. 20 laus sæti
fim 22/6 kl. 20 laus sæti
Síðustu sýningar í sumar
Hádegisleikhús: LEIKIR
fös 16/6 kl. 12
Síðasta sýning
Miðasalan er opin frá kl. 12—18 alla virka <tega,
kl. 14-18 laugardaga og fram að sýningu sýningar-
daga. Miðar óskast sóttir I viðkomandi leikhús
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
Nœturqadnn
simi 587 6080
Dúndrandi dansleikur
með hljómsveitinni
Sín.
Enginn aðgangseyrir
til kl. 23.30. ■
^kemmtistaðurinn Bohem
Opið alla daga vikunnar frá kl. 20.
BOHElN
Grensásveg 7 • Símor: 5S3 3311 / 896 3662
Erótískur skemmtistaður
Nú einnig opið á mánudagskvöldum.
Enginn aðgangseyrir.
FÓLK í FRÉTTUM
Garðsláttuvél eða
rafmagnsgítar?
Trans Am
You can always get what you want
Thrill Jockey
ERU dagar rafmagnsgítarsins
taldir? Hljómsveitin Trans Am
segir að gítarmagnararnir yrðu
það fyrsta til að fjúka ef þeir félag-
arnir legðust í tiltekt í hljóðveri
sínu, The Bridge, í Washington
DC.
Þegar þeir Sebastian trommari
og Philip og Nathan gítar- og
bassaleikarar voru ungir mennta-
skóladrengir í kringum árið
19921éku þeir einfalt fyllibytturokk
í anda Boston og Yes. Reyndar er
sjaldnast talað um þá án þess að
minnast á Tortoise og aðrar hetjur
síðrokksins og ekki að ósekju því
John McEntire Tortoisegæi fram-
leiddi þeirra fyrstu plötu. Síðan þá
hefur margt vatn runnið til sjávar
og margir strengir slitnað. I kring-
um 1997 upplifðu Trans Am nefni-
lega svokallaða sköpunarstíflu og
gátu bókstaflega ekki stunið upp
hálfu lagi. Það varð þeim til happs
að lítill frændi hafði skilið forláta
Casio leikfangahljómborð eftir í
hljóðveri þeirra einn sunnudaginn.
Aður en Trans Am menn vissu af
sér höfðu ein tíu lög orðið til með
hjálp litla undursins. Þetta varð til
þess að opna hugi þeirra fyrir ást-
kærri rafrænunni og í kjölfarið
fylgdu ótal ódýrir en hressandi
hljóðgervlar, trommuheilar og auð-
vitað fleiri meðlimir Mini-Casio
fjölskyldunnar. Gítararnir hafa þó
ekki hímt með hangandi háls í
skammarkróknum frá því hljóm-
sveitin frelsaðist og fá enn heilmik-
ið að þruma með rafrænunni eins
og glöggt heyrist á nýjustu plötu
þeiiTa, You Can Always Get What
You Want. í fylgd rafhljóðanna
leikur slagverk Sebastian Thomp-
son einnig stórt hlutverk. Slag-
veisluna skipa jafnt hefðbundnar
trommur sem rafrænar, trommu-
heilar storma með og innbyggðir
taktar litlu Casio dverganna eru
enn óþrjótandi uppspretta inn-
blásturs.
„Við erum bara gítarhljómsveit
að fiflast með önnur hljóðfæri."
-Philip Manley.
Trans Am koma víða við á til-
finningaskalanum á nýju plötunni
sinni, enda við því að búast á safni
smáskífa eins og þessu sem á að
vera þverskurður þess besta sem
komið hefur frá bandinu frá upp-
hafi. Sama hvað á dynur eru Trans
Am þó ávallt svalir. Kannski einum
of svalir í fyrri hluta plötunnar.
Laglínunum og nálægð laganna við
hjörtu þeirra sem sköpuðu hana er
svolítið ábótavant í sumum lögum
eins og til dæmis Illegal Ass. Þó
það sé smart þá vantar taugarnar í
það.
Níunda lag plötunnar, Security
Breach, er óvæntur glaðningur.
Það byrjar á mínímalískri taktlúpu
sem þróast út í fallega hátíðnileiki
með viðkomu í Kraftwerk-legum
töktum og gott ef mér þótti ég
ekki heyra í garðsláttuvél þegar
best lét. Eða var það rafmagnsgít-
ar? Þetta lag er einmitt hljóðritað
eftir að hin sögufræga sköpunar-
stífla Trans Am brast árið 1997.
Ekki er sagan öll eftir Kraft-
werkþreifingarnar og slátturokkið
um miðbik plötunnar, því enn eru
eftir engilblíðar orgelstemmningar
(Monica’s Story), stálslegið
rafþungarokk (Am Rhein) og víða
má greina áhrif frá böndum eins
og Add N to X (Night Dancing) og
Can - án spunapælinganna.
Það hefur verið sagt þúsund
sinnum um hinar og þessar plötur
að á þeim sé eitthvað sem allir
ættu að geta fundið sig í. I
hreinskilni sagt er You Can Al-
ways Get What You Want þannig
plata vegna þess hversu víða Trans
Am leita fanga. Platan er sömu-
leiðis ágætisyfirlit yfir feril þeirra
félaga og gefur tilefni til vona og
væntinga eftir næstu breiðskífu
sem á að koma út undir lok ársins.
Kristín Björk Kristjánsdótir
Kölkuð Klamedía X
Ur hljóðverinu
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hljómsveitin Kalk dvelur í hljóðveri þessa dagana og hyggst gefa út
plötu í haust.
MEÐLIMIR hljómsveitarinnar
Kalk fá ekki lengur furðulegar
augngotur og hneyklissvip er þeir
kynna sig. Ekki það að þau séu
eitthvað furðulega útlítandi, þvert
á móti er þetta huggulegasta fólk
en sú var eitt sinn tíðin að þegar
Þráinn, Áslaug, Bragi, Ölli, Jón
Geir eða Snorri sögðu forvitnum
viðmælendum hvað hljómsveit
þeirra héti máttu þau búast við at-
hugasemdum. Þau voru nefnilega
áður í hljómsveitinni Klamedíu X
en sveitin sú hefur nú skipt um
nafn, heitir Kalk og gefur út plötu
með haustinu undir því nafni.
Að semja og velja
Fyrir ári síðan gaf Kalk (þá
Klamedía X) út sína fyrstu breið-
skífu. Sú hét Pilsner fyrir kónginn
og rann hún ljúflega ofan í margan
tónlistarunnandann. En skyldi
tónlistin hafa breyst með nafninu?
Þeir meðlimir hljómsveitarinnar
sem sitja fyrir svörum blaðamanns
eru Þráinn, Bragi og Áslaug og
hugsa þau sig vandlega um áður
en þau svara. „Þetta er kannski
eitthvað minna rokkað,“ segir Þrá-
inn en Áslaug er því ekki alveg
sammála. „Við erum að semja al-
veg ógrynni af efni þessa dagana
sem við ætlum síðan að velja úr,“
segir Bragi. „Við setjum okkur
enga fast skorðaða stefnu í tónlist-
inni. Við ætlum t..d ekki að spila
BARA á túbu á þessari plötu.“
„En það má búast við að hún
verði heildstæðari en síðasta
plata,“ útskýrir Áslaug.
„Við ætlum að hafa fá lög á þess-
ari plötu,“ segir Þráinn, „svona um
níu.“ Bragi bætir við: „Já, bara
svona tuttugu mínútna plata og lít-
il saga á eftir," segir hann í gríni.
„Svo er í vinnslu stærra verkefni
í kringum þessa plötu, sem við
megum ekki tala um,“ segir Ás-
laug og gjóar dularfullum augum á
Þráinn og Braga sem bætir við:
„Það er bara af því að við vitum
ekkert um það sjálf. Ja, eða það er
allt á huldu."
Finnska rokksveitin Klamedía
Blaðamaður er nú farinn að iða í
skinninu að fá svar við þeirri
spurningu sem helst brennur á
honum: Af hverju voruð þið að
skipta um nafn?
„Vegna þrýstings frá eldri borg-
urum,“ segir Bragi og hlær. „Nei,
nei. Það er hægt að horfa á það
þannig að við séum ekki lengur 17
ára pönkarar sem vilja fá athygli,"
segir Þráinn.
En Áslaug blæs á þessar út-
skýringar og minnir piltana á
finnsku rokksveitina sem heitir
einmitt Klamedía (reyndar stafsett
eitthvað öðruvísi). „Okkur var gef-
inn þrefaldur safndiskur með þess-
ari finnsku rokksveit sem hefur
verið starfandi mun lengur en
við,“ útskýrir Bragi. „Þannig að
við létum undan Finnunum.“
Plötunnar með Kalk má vænta
með haustinu og stendur Þráinn
fastar á því en fótunum að út-
gáfudagurinn eigi að vera 22. sept-
ember. Áslaug og Bragi hvá. „Af
því að þann dag eru allar góðar
plötu gefnar út,“ svarar hann al-
varlegur. „Eins og Metallica og
Kiss,“ bætir hann glottandi við í
flýti.
En tónlistaráhugamenn þurfa þó
ekki að bíða til haustsins með að
heyra eitthvað frá hinni fersku
Kalk, eitt lag verður gefið út í
sumar. „Við gefum út lag sem er
um sjónvarpið, þegar ekkert sjón-
varp var á fimmtudögum," segir
Bragi og bætir við að þetta sé
nokkurs konar popplag. Er Kalk
þá engin rokkhljómsveit?
„Við drekkum hreinan spíra og
erum enn algjörir rokkarar," segir
Þráinn í gríni. „En í alvöru talað,
þá eru nokkur popplög en þetta er
rokk, íslenskt rokk.“
Kalk mun spila í tjaldinu á laug-
ardeginum á Tónlistarhátíðinni í
Reykjavík og má vænta þess að
nýtt og ferskt efni verði flutt í
bland við eldra.