Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
(JMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 71 *L
Lettar leita aðstoðar ungra
íslendinga við heilsueflingu '
og Seyðisfjarðar. Það væri athugandi
fyrir okkur öryrkjana að stilla okkur
upp við landgöngur skipanna, í Flug-
stöðinni, við ráðherrabústaðinn og
hvar sem við vitum af ferðafólki eða
tignarfólki frá útlöndum sem kemur
til að sjá sæluríkið ísland og eru þá í
fylgd einhverra til að sjá og heyra
hvað ríkisstjómin gerir fyrir lands-
menn og ekki síst þá fyrirgreiðslu
sem öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá.
Þeir segja ósatt um að við öryrkjar
séum best settir, sé miðað við Norð-
urlöndin.
Vinna okka felst í því að sýna í
verki okkur sjálf og kröfuspjöld okk-
ar um betri kjör og aðbúnað fyrir þá
sem hann vantar. Asamt kröfuspjöld-
unum höfum við að sjálfsögðu uppi
myndir af öllum sem eru í ríkisstjóm
hverju sinni og texta kröfuspjald-
anna á því tungumáli sem gestimir
skilja. Við getum verið þess fullviss
að það verða margir til að hjálpa okk-
ur að komast á þá staði sem við þurf-
um hverju sinni.
Þar að auki em öryrkjar um allt
land þannig að hver og einn getur
unnið í sinni heimabyggð. Eins og
getið var í upphafi hafa samningar og
loforð verið svikin á ýmsan hátt allar
götur síðan 1974 þegar lofað var að
grunnlífeyrir væri 90% af launum
verkamanns.
Nú er hlutfall þessa grunnlífeyris
fallið niður í um 12%. Við getum ekki
unað þessu lengur. Látum verkin
tala. Kröfuspjöldin á loft í hvert
skipti sem útlendingar heimsælga
ríkisstofnanir í fylgd ráðherra.
Þeir verða að fá að vita sannleik-
ann um að hér á íslandi, í landi sæ-
greifanna og stéttaskiptingar, lifa
alltof margir undir fátæktarmörkum.
Höfundur er öryrki.
HEILSUEFLING og Heilsuefl-
ing í skólum í Lettlandi buðu þrem-
ur nemendum frá Menntaskólanum
í Kópavogi ásamt verkefnisstjóra
Heilsueflingar í skólum á íslandi til
ráðstefnu fyrir ungt fólk í Lettlandi.
Ráðstefnan bar yfirskriftina Youth
Health Congress (ráðstefna um
heilsu ungs fólks). Á ráðstefnuna
var Svíum, Finnum og Hollending-
um einnig boðið.
Lettar hafa átt í vandræðum með
stefnumörkun í heilsueflingu fyrir
ungt fólk.
27% drengja og 9% stúlkna
reykja og nota áfengi reglulega og
fjöldi unglinga sem smitast af kyn-
sjúkdómum hefur aukist. Einnig
hefur fjöldi stúlkna sem hafa orðið
þungaðar aukist og í framhaldi af
því hefur fjöldi fóstureyðinga einnig
aukist. í Lettlandi eru 1.200 börn á
skólaaldri sem fara ekki í skóla og
um það bil 30% barna í Lettlandi
eiga við líkamlega og andlega erfið-
leika að stríða. Aðeins eru um 60%
af skólum í Lettlandi með kennslu í
heilsufræðum.
Ráðstefnan er sú fyrsta sinnar
tegundar og var haldin í Riga í
framhaldi af sérstakri Heilsuviku
Lettlands. Rúmlega 400 nemendum
frá Lettlandi á aldrinum 14 til 18 ára
var boðið á ráðstefnuna. Ráðstefnan
hófst á ávörpum æðstu manna úr
mennta- og heilsugeiranum. Því
næst tók verkefnisstjóri Heilsuefl-
ingar í skólum til máls og sagði frá
því hverju verkefnið hefur áorkað
síðan það hófst. Eftir það var hópa-
vinna þar sem hver hópur vann með
ákveðið þema.
• Kennsla í heilsufræðum
• Heilsuvernd og heilsuefling í
skólum
• Skólaumhverfi
• Fjölskylda og heilsa
• Heilsustefna landsins
• Fjölskyldulæknirinn minn
• Heilsusamlegur frítími
fólginn í framtaki einstaklingsins. Hann birtist ekki síst í því að sýn okkar verður víðari og gleggri ef við njótum sjónarmiða
Anna Lea
Björnsdóttir
Heilsuefling
Markmið ráðstefn-
unnar, segir Anna Lea
Björnsddttir, var að fá
ungt fólk til að marka
stefnu landsins í
heilsueflingu.
Anna Lea Bjömsdóttir, verkefn-
isstjóri Heilsueflingar í skólum á ís-
landi, skýrði frá heilsueflingu á ís-
landi og Gunnar Örn Ingólfsson
nemi flutti erindi um vímuvarnir,
þar sem hann skýrði frá því hvernig
vímuvörnum væri háttað í Mennta-
skólanum í Kópavogi. Hópurinn frá
íslandi var beðinn um að vera í um-
ræðuhópnum um heilsuvernd og
heilsueflingu í skólum. Þar var mik-
ið spurt um hvernig málum væri
háttað á íslandi. Anna Regína
Björnsdóttir nemi var ritari íslend-
inganna og Ivar Þór Axelsson nemi
myndasmiður.
Markmið ráðstefnunnar var að fá
ungt fólk til að marka stefnu lands-
ins í heilsueflingu og koma með til-
lögur um úrbætur til heilbrigðis-
ráðuneytis, menntamálaráðuneytis
og allra ráðherra Lettlands.
Ráðstefnunni var stjórnað af
ungu fólki, sem stóð sig í alla staði
vel, hún var mjög vel skipulögð og
var með ólíkindum hve unga fólkið
var ófeimið við að segja skoðanir
sínar.
og þekkingar fleiri. Við erum frumkvöðlar að framþróun og mikilvægustu samlegðaráhrifin koma fram í auknum krafti
okkar til rannsóknar- og þróunarstarfs.
Árangursríkt vísindasamstarf AstraZeneca við íslenskar heilbrigðisstéttir hefur vakið athygli að undanförnu. Ljóst er að
þessi þátttaka íslendinga í fjölþjóðlegum rannsóknum skilar íslensku samfélagi ávinningi í formi fjármagns, atvinnu,
þekkingar og ekki síst betri heilsu og betra lífi í framtíðinni.
AstraZeneca
annt um líf og líðan
Urnboðsaðill: Pharmaco hf. * Hörgatúni 2, 210 Garðabæ • Sími 535 7000 • Fax 565 6485 • Fax pantanamóttökli 565 5628 • pharmaco@pharmac
Höfundur er verkefnisstjóri
Heilsueflingar í skólum.