Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
+
I
I
!
1
UMRÆÐAN
Umbætur í
menntamálum
EIN mesta auðlind okkar er
ungt fólk. Um 33% þjóðarinnar er
undir tvítugu en það er hærra hlut-
fall en í nokkru öðru landi í V-
Evi-ópu. Miklu skiptir
að þessir vormenn Is-
lands fái tækifæri til
þess að menntast. En
því miður bendir
margt til þess að nú-
verandi menntakerfi
sé óþjált og henti illa
þörfum æskufólks.
Samkvæmt upplýsing-
um frá menntamála-
ráðuneytinu hættir
rúmlega helmingur
þeirra sem innritast í
framhaldsskóla í námi
án þess að ljúka prófi,
en 10-20 % hefja ekki
framhaldsskólanám.
Þetta eru ógnvekjandi
tölur. Hingað til hefur
umræða um menntamál snúist um
peninga, laun og fjárveitingar en
slíkir hlutir eru aðeins efniviður í
gott menntakerfi. Ef stór hluti
út í starfsmenntun hlýtur að skila
töluverðum þjóðhagslegum ábata.
Framtíðarhagvöxtur byggir á
auknu almennu menntunarstigi
þjóðarinnar og hún
hefur hreinlega ekki
efni á því að ýta til
hliðar nær helmingi af
æsku landsins þegar
kemur að menntun.
Frá sjónarhóli ungl-
inganna sjálfra er
ljóst að aukin þekking
skapar bæði fjölhæfni
og hærri framtíðar-
tekjur. Störfum fyrir
ófaglærða mun fækka
frekar en fjölga á
næstu árum og auk
þess þarf fólk að flytja
sig á milli starfa og
starfsgreina í mun rík-
ari mæli en áður hefur
þekkst. Aukin almenn
menntun er mjög góð fjárfesting
fyrir þá einstaklinga sem hér um
ræðir sem og þjóðfélagið í heild.
Að ná tökum á lífinu
Jón
Bjarnason
Menntamál
Menntakerfíð verður að
fylgja þróun þjóðfélags-
ins í stað þess að binda
sig í formfestu, segir
Jón Bjarnason, stórar
stofnanir og einsleitni
þar sem ætlunin er að
steypa alla í sama mót.
ungs fólks fer ekki í framhalds-
skóla eða hrökklast frá námi er
eitthvað alvarlegt að. Þá hlýtur að
vera þörf á kerfisbreytingum.
Aukin
grunnmenntun
Umbætur á menntakerfinu verða
að tryggja að sem flestir geti notið
samfelldrar skólagöngu, allt fram
til 18 ára aldurs. Auðvitað er ekki
hægt að leggja til lengri skóla-
skyldu en sjálfræðisaldurinn hefur
verið hækkaður upp í 18 ár og því
má álíta að hið opinbera hafi aukn-
um fræðsluskyldum að gegna. Þess
vegna er nauðsynlegt að gera nám-
ið mun sveigjanlegra, þannig að
nemen’dur séu ekki bundnir því að
taka fullt fjögurra ára framhalds-
nám sem lýkur annaðhvort með
brottfalli á námstímanum eða stúd-
entsprófi. í stað þess komi samfelld
skólaganga sem lýkur með náms-
gráðu við 18 ára aldur, þ.e. núver-
andi grunnskólanám að viðbættu
tveggja ára námi. í framhaldi af
þessu endurskipulagða samfellda
grunnámi kæmi lengra eða
skemmra starfsnám, tækninám og
annað sérnám, auk frekari undir-
búnings fyrir almennt háskólanám
sem gæti hafist fyrr en nú er. Með
því yrði almenn grunnmenntun
aukin, jafnframt því sem nemendur
yrðu hvattir áfram til dáða.
Þjóðhagslegnr ábati
Þetta er mjög mikilvægt hags-
munamál. Hér er skortur á verk-
menntuðu fólki og breytt náms-
skipan sem fjölgar þeim sem leggja
En lífið snýst ekki aðeins um
krónur og aura. A aldrinum 15-18
ára taka unglingar út mikinn
þroska. Þá eru teknar ákvarðanir
sem skipta oft sköpum fyrir fram-
tíðargengi í námi og starfi. Miklu
skiptir að ungt fólk fái sem mestan
stuðning, hvatningu og aðhald á
þessu lífsskeiði. Aðalábyrgðin hvílir
vitaskuld á heimilunum sem hefur
verð áréttað með hækkun sjálfræð-
isaldurs í 18 ár, en uppeldisstarfið
yrði auðveldað með tveggja ára
lengingu grunnnámsins. Unglingar
myndu jafnframt ljúka ákveðinni
gráðu og eru betur búnir til frekara
náms hvort sem það er starfstengt
eða „akademískt.“ Brottfall úr
námi hefur afar neikvæð áhrif á
einstaklinga, sem tapa sjálfstrausti
og gefa frekari menntun upp á bát-
inn. Þetta á við um bæði kynin en
þó sérstaklega pilta. Skv. upplýs-
ingum frá menntamálaráðuneytinu
höfðu aðeins 39% drengja fæddum
á árunum 1975-78 útskrifast úr
framhaldsskóla árið 1998. Sama
hlutfall meðal stúlkna var 47%.
Menntun fyrir alla
f svari menntamálaráðherra við
fyrirspurn á Alþingi nú í vetur kom
fram að mikill meirihluti lands-
byggðarunglinga fer nú á mis við
framhaldsmenntun. Af 479 ung-
mennum á Vestfjörðum sem fædd-
ust á árunum 1975-78 og hófu fram-
haldsnám, höfðu aðeins 32% lokið
fjögurra ára framhaldsskóla árið
1998. Sama hlutfall á Norðurlandi
vestra var rúm 35%. Við þetta bæt-
ist að mun hærra hlutfall unglinga
á landsbyggðinni fer aldrei í fram-
haldsskóla. Mikill kostnaður fylgir
því að sækja nám fjarri heima-
byggð ef búseta er fjarri skólasetr-
um og gæti það verið ein skýringin
á misræmi í menntun á milli lands-
hluta. Þess vegna er mikilvægt að
auka námsframboð í öllum byggða-
lögum landsins þannig að sem flest-
ir nemendur geti sótt nám daglega
heimanað. Að sjálfsögðu munu nú-
verandi framhaldsskólar bera hit-
ann og þungann af tveggja ára
lengingu grunnnáms. En þar sem
þeir eru ekki fyrir hendi er nauð-
synlegt að byggja ofan á þá grunn-
skólamenntun sem er til staðar og
nýta möguleika fjarnáms. Aukið
■. —~ ÞITT FE
Maestro HVAR SEM
ÞÚ ERT
námsframboð .um allt land er þó
ekki aðeins spurning um jafnrétti
til náms. Þjóðfélagið hefur hrein-
lega ekki efni á því að láta búsetu
verða til þess að sumir unglingar
komist ekki til mennta.
Niðurstöður
Mikið brottfall úr framhalds-
skóla er hvort tveggja í senn, fé-
lagslegt og hagfræðilegt vandamál
sem skapar mikinn ójöfnuð í lífs-
kjörum þegar fram í sækir.
Menntakerfið verður að fylgja þró-
un þjóðfélagsins í stað þess að
binda sig í formfestu, stórar stofn-
anir og einsleitni þar sem ætlunin
er að steypa alla í sama mót. Ljóst
er að meiri hluti ungs fólks á ekki
samleið með núverandi skipan
menntunar í landinu og við því þarf
að bregðast á réttan hátt.
Lausnin hlýtur að felast í aukn-
um sveigjanleika námsins, stytt-
ingu hins eiginlega framhaldsskóla
og lengra samfelldu námi sem lýk-
ur með skilgreindri námsgráðu við
18 ára aldur. Jafnframt verður að
endurskoða skipulag, háskóla-,
tækni-, og sérnáms með tilliti til
þessara breytinga, efla starfs-
menntun og auka bæði framboð og
fjölbreytni í námi um allt land.
Þetta eru allt umbætur sem þurfa
ekki að kosta mikla fjármuni en
munu skila stórkostlegum þjóð-
hagslegum ábata verði menntun al-
mennari.
Höfundur er alþingismaður
Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs.
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 6Í3l
SIEMENS
Vörulistar
sem eiga heima hjá þér!
Sm'rth & Norland hefur gefið úttvo glæsilega
myndlista sem sýna þau heimílístæki frá
Siemens sem fyrirtækið býður ásamt
umboðsmönnum sínum víða um landið.
Komdu í heimsókn og fáðu lista eða hringdu
og láttu senda þér hann í pósti.
SIEMENS
Innbyggð heimilistæki 2000
Já, þau svíkja engan heimilis-
tækin frá Siemens!
Umboðsmenn um land allt.
SMITH &
NORLAND Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Dilbert á Netinu
v'g>mbl.is