Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Byggingafulltrúinn Páll S. Pálsson og Ingimundur Guðnason, formaður bygginganefndar, í hinu nýskipulagða
landi í út-Garðinum en þar munu rísa á þessu og næsta ári 10 raðhús á vegum Búmanna.
Stórauknar byggingar-
framkvæmdir í Garðinum
Garði - Fyrir nokkrum dögum var
endanlega samþykkt deiliskipulag
að þremur byggðarkjömum í Garð-
inum. Var farið í þessa framkvæmd í
framhaldi af mikilli sölu á húsnæði í
bænum, þar sem segja má að allt
húsnæði, sem til sölu var, hafi selzt
og ljóst var að aukinn áhugi var fyrir
að byggja í bænum.
Þessir staðir sem nú er verið að
undirbúa byggingarsvæði á era bæði
í út- og inn-Garðinum og efst í
byggðarkjamanum sem byggðist
upp á áranum milli 1974 og 1982. í
út-Garði hefir verið skipulagt 48
íbúða hverfi og þar munu rísa á
þessu og næsta ári 10 parhús með
bflskúr sem félagið Búmenn munu
byggja. Verður hafist handa við
skólplagnir og vegagerð næstu daga.
Era samningar á lokastigi við heima-
menn bæði um vegagerðina og bygg-
ingu húsanna.
Þá er byggingaverktakinn Bragi
Guðmundsson að byggja fjögur par-
hús við Lindartún sem hann hefir
auglýst þau til sölu en bygging
þeirra gengur mjög vel. Einnig hefir
Hjalti Guðmundsson byggingaverk-
taki fengið úthlutað lóðum undir tvö
fjögurra íbúða hús við Silfurtún en
einu fjölbýlishúsin í bænum standa
einmitt við þessa götu. Vonast er til
að Hjalti hefji byggingu þessara
húsa fljótlega. Þá má geta þess að
þessa dagana er verið að leggja götu
ofan gamla byggðarkjamans í mið-
bænum en þar er nú verið að steypa
grann undir kanadískt einbýlishús.
Fleiri íbúðarhús era komin á kopp-
inn ef svo má að orði komast og er
Ijóst að það mun fjölga í bænum á
næstu áram.
Mjög hagstætt er að byggja í
Garðinum. Byggingarleyfisgjöld eru
mjög lág og má nefna sem dæmi að
aðili sem byggir 190 fin. einbýlishús
á 900 fm. lóð greiðir 320 þúsund
krónur í byggingar- og gatnagerðar-
gjöld. Nánar verður sagt frá hinu
nýja deiliskipulagi og því sem er að
gerast í byggingarmálum Garð-
manna í Fasteignablaði Morgun-
blaðsins.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rauði krossinn gefur
hjólahjálma
Fagradal - Rauða kross deildin í Vík
í Mýrdal gaf öllum bömum sem vora
í fyrsta bekk Grannskóla Mýrdals-
hrepps síðastliðinn vetur reiðhjóla-
hjálma á skólaslitum skólans nú í vor
til að auka öryggi bama í umferð-
inni.
Á myndinni afhendir Þorgerður
Einarsdóttir 6 ára börnunum hjóla-
hjálmana.
Ljósmynda-
sýning á
Húsavík
SVIPMYNDIR úr sögu Húsavíkur
1900-2000 er yfirskrift ljósmynda-
sýningar sem opnuð verður í Safna-
húsinu á Húsavík á laugardag, 10.
júní. Sýningin er sérannin í tilefni af
50 ára kaupstaðarafmæli Húsavíkur
og verður hún opin til loka ágúst-
mánaðaðar. Sýningin er þáttur í sýn-
ingarhaldi Safnahússins í tilefni af-
mælisins. Hún verður opin alla daga
frá kl. 10 til 18.
Sungið í
veðurblíð-
unni
Fáskrúðsfirði - Árshátíð og
útskrift barnanna í leikskól-
anum Kærabæ á Fáskrúðs-
firði fór fram nýlega. Gott
veður var og sungu börnin
fyrir viðstadda í veðurblíð-
unni.
Foreldrafélagið sá um að
grilla fyrir krakkana og gesti
en einnig voru til sýnis mynd-
ir og munir sem börnin höfðu
gert í vetur.
Morgunblaðið/Hafdís
Nýjung hjá félaginu er rekstur knattspymuskóla á Eiðum fyrir 5. og 6. flokk og tóku þessir hressu strákar þátt
í einu af þeim námskeiðum sem haldin eru.
Framkvæmdir við íþrótta-
mannvirki á Egilsstöðum
Egilsstöðum - Framkvæmdir era í
gangi við íþróttamannvirkin á Egils-
stöðum og má þar nefna að við Knatt-
spymuvöll við Skógarlönd fara fram
miklar framkvæmdir en Landsmót
UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum
árið 2001. Langþráðum framkvæmd-
um við íþróttahús mun ljúka nú í
sumar og má segja að það skipti
sköpum fyrir íþróttastarfið á Egils-
stöðum, en íþróttahúsið rúmar orðið
engan veginn það starf sem því er
ætlað að þjóna.
Eins og fram kom mun Landsmót
UMFÍ verða haldið á Egilsstöðum
árið 2001. Er það eðlilega mikil lyfti-
stöng fyrir annars gott starf íþrótta-
félagsins Hattar. Nýjung hjá félaginu
er rekstur knattspymuskóla á Eiðum
fyrir 5. og 6. flokk. Hófst sú starfsemi
sl. sumar og þótti takast mjög vel.
Var skólinn vel sóttur af bömum al-
staðar að. Munu næstu námskeið
hefjast í byrjun júní og er skólinn op-
inn öllum og er hann rekinn í sumar-
búðaformi. Það er Dragi Pavlov sem
sem kemur frá Makedoníu sem hefur
yfiramsjón með starfinu. Dragi var
um árabil atvinnumaður í knatt-
spymu í efstu deildum í Frakklandi
og Júgóslavíu, þar til hann flutti sig
og er nú knattspymuþjálfari hjá
íþróttafélaginu Hetti á Egilsstöðum.
Bjóða handverk til
sölu í sumar
Stykkishólmi - íslenskt handverk
hefur eflst mjög á síðustu áram.
Fólk sinnir margs konar handavinnu
heima hjá sér og býr til fallega muni.
Á mörgum stöðum hefur handverks-
fólk bundist samtökum til að koma
framleiðslu sinni á framfæri. Svo er í
Stykkishólmi. Þar rekur handverks-
fólk verslun sem heitir Gallery-
Lundi og starfar yfir sumarmánuð-
ina. Hópurinn hefur aðstöðu í
Freyjulundi sem er í eigu Kvenfé-
lagsins Hringsins og er húsið í kven-
félagsgarðinum við Aðalgötu. Það
era á milli 15 og 20 einstaklingar sem
eiga muni sem era til sölu. Til sölu er
afrakstur vetrarstarfsins og kennir
þar margra grasa, sem ferðafólk hef-
ur gaman af að skoða þegar það
heimsækir Stykkishólm.
Gallery-Lundi er opið kl. 14-16 frá
fimmtudegi til sunnudags til að byija
með, en þegar kemur fram á sumar
verður opið daglega.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
Hluti hópsins sem stendur að Gallery-Lundi í Stykkishólmi. Verið var að
Ijúka við að stilla upp munum sem einstaklingar hafa verið duna sér við
búa til á köldum vetrarkvöldum. Myndin gefur það vel til kynna að ár-
angurinn hefur verið góður
REYKjAVÍK-EGILSSTAÐIR-REYKIAVÍK
Þrisvar sinnu
Bókaðu í síma 5703030 og 4711210
...fljúgðu frekar
vefðfrá9.7jokr . með flu^vallarsköttutn
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is