Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
FOSTUDAGUR 9. JUNI 2000
FERMINGAR
Hafnarfjarðarkirkja
Safnaðarstarf
Aðalhátíð
Rangárvalla-
prófastsdæmis í
tilefni 1000 ára
kristnitöku
AÐALHÁTÍÐ verður haldin að
Odda og Hellu á hvítasunnudag, 11.
júní.
Hátíðin hefst kl.13.30 með útihá-
tíðarmessu að Odda á Rangárvöllum,
þar sem sóknarprestur þjónar fyrir
altari, vígslubiskup, sr. Sigurður Sig-
urðarson, prédikar og sameinaðir
kirkjukórar Oddaprestakalls syngja.
I tilefni dagsins var smíðað altari
úr rekaviði sem fenginn var úr Odda-
fjöru fyrir landi Ytri-Hóls í V-Land-
eyjum og í stað kertastjaka á altarinu
eru stuðlabergssteinar frá Akbraut í
Holtum.
Þá verður hátíðardagskrá og kaffi-
samsæti í hinu nýja og glæsilega
íþróttahúsi á Hellu. Þar mun forseti
Islands, hr. Ólafur Ragnar Gríms-
son, halda hátíðarávai’p.
Á dagskránni er erindi sr. Sváfnis
Sveinbjarnarsonar fyrrv. prófasts
um kristni og kirkju í Rangárþingi,
Eyrún Jónasdóttir og Gísli Stefáns-
son syngja einsöng og dúett, stúlkna-
kór Þykkvabæjar syngur sem og
sameinaðir kirkjukórar prófasts-
dæmisins. Þá verður flutt bamaleik-
rit í umsjón Margrétar Óskarsdóttur.
Þessi hátíð er sú síðasta í röð
þriggja hátíða sem Rangárvalla-
prófastsdæmi hefur staðið fyrir í til-
efni 1000 ára kristnitöku, en áður
voru hátíðir haldnar að Breiðabóls-
stað í Fljótshlíð og á Hvolsvelli 6. júní
á síðasta ári og í Þykkvabæ og að
Laugalandi á siðbótardaginn, 31. okt.
sl.
Fleiri atburðir eru í prófastsdæm-
inu í tilefni þessara miklu tímamóta
kristni í landinu, og má nefna að í
tengslum við töðugjaldahátíð Rang-
æinga verður sungin messa á afar
sérstökum stað, nánar tiltekið í hell-
unum á Hellum í Landsveit laugar-
daginn 19. ágúst en þar mun biskup
íslands, hr. Karl Sigurbjömsson,
halda prédikun.
Messuferð til
Krýsuvíkur -
upphenging
altaristöfiu
Hvítasunnudag, 11. júní, nú á
kristnihátíðarári verður boðið til
messuferðar á vegum Hafnarfjarðar-
kirkju og Hafnarfjarðarbæjar til
Krýsuvíkur í upphafi árþúsunda-
verkefnis bæjarfélagsins sem nefn-
ist: „Krýsuvík - samspil manns og
náttúru“. Messa í Krýsuvíkurkirkju
hefst kl. 11.00 með því að altaristafla
kirkjunnar eftir Svein Björnsson list-
málara verður sett upp fyrir sumarið
en hún hefur haft vetursetu í Hafnar-
fjarðarkirkju.
Séra Gunnþór Ingason sóknar-
prestur messar. Eyjólfur Eyjólfsson
leikur á flautu og félagar úr Kór
Hafnarfjarðarkirkju leiða söng. Eftir
messuna verður léttur hádegisverð-
ur framreiddur í Kiýsuvíkurskóla og
kl.13.00 verður sýning opnuð í
Sveinshúsi á verkum hins látna list-
málara sem þar vann að list sinni og
mótaðist mjög af náttúra og sögu
Krýsuvíkur og setti sitt mark á hana.
Lagt verður af stað með rútu frá
Upplýsingamiðstöðinni í Hafnarfirði,
Vesturgötu 8, kl. 10.30, en ekki frá
Hafnarfjarðarkirkju að þessu sinni
eins og áður er safnaðarferð hefur
verið farin á vegum hennar til Krýsu-
víkur. Rúta fer til baka bæði kl. 12.45
og einnig kl. 13.30. Rútuferð ásamt
korti af gönguleiðum og hádegisverði
kostar kr. 800.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði í
Krýsuvík fram eftir hvítasunnudegi í
tilefni þessa upphafs árþúsundaverk-
efnis Hafnarfjarðarbæjar. Þessi
safnaðarferð til Krýsuvíkui- kemur í
stað árdegisguðsþjónustu í Hafnar-
fjarðarkirkju en tvær aðrar guðs-
þjónustur fara fram á þessum helga
degi á vegum Hafnarfjarðarkirkju.
Guðsþjónusta hefst á Sólvangi kl.
15.30 og um kvöldið kl. 20.00 hefst
guðsþjónusta í Hafnarfjarðarkirkju
með Líknarfélaginu Byrginu.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin
til bænagjörðar í hádeginu. Kyrrðar-
og fyrirbænastund kl. 12-12.30.
Orgelleikur og sálmasöngur. Eftir
kyrrðarstundina er létt máltíð í boði í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45-7.05. Mömmumorgunn kl. 10.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun
fyrir böm.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna. Trú
og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar-
stund.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
KI. 16-18 æfing hjá Litlum læri-
sveinum á prestssetrinu, Hólagötu
42.
Ffladelfi'a. Unglingasamkoma ki.
20.30. Mikill og hress söngur. Ræðu-
maður Richard Lundgren frá Nor-
egi. Allir hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan, Hlíðai-smára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11.
Allir hjartanlega velkomnir. Á morg-
un er Steinþór Þórðarson með
prédikun og Ragnheiður Ólafsdóttir
Laufdal er með biblíufræðslu. Bama-
og unglingadeildir á laugardögum.
Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju-
skólinn í Mýrdal er með samverur á
laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Vík-
urskóla.
Frelsið, kristileg miðstöð. Bæna-
stund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld
fyrir unga fólkið, kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á ís-
landi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti:
Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta
kl. 11.15. Ræðumaður Elías Theo-
dórsson.
Safnaðarheimili aðventista,
Blikabraut 2, Keflavík: Bibh'u-
fræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður Frode Jakobsen.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla
kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Eric Guðmundsson.
Aðventkiriqan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaðm-
Halldór Ölafsson.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla að guðsþjónustu lokinni.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Ferming laugardag fyrir hvíta-
sunnu, 10. júní 2000 kl. 14:00 f Ás-
kirkju í Fellum. Prestur sr. Lára G.
Oddsdóttir. Fermd verða:
Andri Guðlaugsson,
Brekkubrún 2, Fellabæ.
Antonía Baldursdóttir,
Miðfelli 3, Fellabæ.
Elís Óttar Jónsson,
Urriðavatni II, Fellaheppi.
Elsa Gehringar Magnúsdóttir,
Brekkubrún 1, Fellabæ.
Guðlaugm- Sindri Helgason,
Lagarfelli 18a, Fellabæ.
Hjálmar Baldursson,
Lagarfelli 16,_Fellabæ.
Hjördís Marta Óskarsdóttir,
Lagarfeli 10, Fellabæ.
Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir, 'I
Fjóluhvammi 9, Fellabæ.
Oddm- Logi Reynisson,
Lagarfelli 17, Fellabæ.
Sigurlaug Jónsdóttir,
Lagarfelli 21a, Fellabæ.
Örvar Már Jónsson,
Háafelli 4a, Fellabæ.
s <' í % '<
H vu
■ ■
U4x síS i'''
AiB AIU GLYSINGAR
Tillaga að breytingu á
deiliskipulagi Hvamms og
Hvammsvíkur í Kjósar-
hreppi
Hreppsnefnd Kjósarhrepps auglýsir hér með
tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvamms
og Hvammsvíkur í Kjósarhreppi samkvæmt
1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997. Afmörkun skipulagssvæðisins
fylgir jarðamörkum að öðru leyti en því, að
sumarhúsahverfi vestast á jörðinni er utan við
skipulagssvæðið.
Tillagan tekurtil lóða fyrir þjónustuhús og frí-
stundabyggð. Afmarkaðar eru landnemaspild-
ur fyrir skógrækt, göngustígar, tjaldsvæði og
fleira. Jafnframt erfellt úrgildi deiliskipulag
að sumarhúsabyggðfrá 31. ágúst 1992 með
síðari breytingum.
Breytingin verðurtil sýnis í Félagsgarði í Kjós
frá og með föstudeginum 9. júní til og með
föstudeginum 7. júlí 2000.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugassemdir við
breytingartillöguna. Fresturtil að skila inn at-
hugasemdum rennur útföstudaginn 21 .júlí
2000. Skila skal athugasemdum á skrifstofu
Kjósarhrepps, Félagsgarði, 270 Varmá. Þeir
sem ekki gera athugasemdir fyrir tilskilinn frest
teljast samþykkir henni.
Oddviti Kjósarhrepps.
',#rSkipulags
stofnun
Reykjanesbraut við Mjódd
Tvenn mislæg gatnamót
Mat á umhverfisáhrifum - frumathugun
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 9. júnítil 14. júlí 2000
á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofum Kópa-
vogs, hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur og á
Borgarbókasafni í Gerðubergi. Einnig í Þjóðar-
bókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í Reykja-
vík. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu
Línuhönnunar hf. http://www.lh.is/deiglan.
Allir hafa rétttil að kynna sérframkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
14. júlí 2000 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi
166,150 Reykjavík. Þarfást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
DULSPEKI
Huglækningar/Heilun.
Sjálfsuppbygging.
Samhæfing líkama og sálar.
Áran.
Fræöslumiðlun.
Halla Sigurgeirsdóttir.
Andlegur læknir.
Uppl. í síma 562 2429 f.h.
Námskeið í Kriya yoga
Dagana 9.-12. júní verður haldið
námskeið í Kriya yoga tækni í
Bolholti 4, 4. hæð. Leiðbeinand-
inn Peter Van Breukelen mun
halda kynningarfyrirlestur 9. júní
kl. 20.00. Námskeiðið hefst svo
10. júní kl. 9.30 og stendur dag-
ana 10., 11., og 12. júní. Nám-
skeiðið kostar kr. 7.500 fyrir byrj-
endur, en eldri nemendur eru
einnig hjartanlega velkomnir.
Uppl. i s:863 3038 og 699 6341
FÉLAGSLÍF
Annar í hvítasunnu 12. júní
a. kl. 10.00. Innstidalur —
Hengilssvæðið. Létt jeppa- og ^
gönguferð. Fjölskylduferð. Hafið '
pylsur með (pylsugrill). Brottför
frá Esso, Ártúnshöfða. Verð 800
kr. á bíl f. félaga og 1.000 kr. f.
aðra.
b. Kl.10.30 Djúpavatn — Sog-
in — Höskuldarvellir. Um 4
klst. gönguferð. Brottför frá BSI.
Örfá sæti laus f Hvftasunnu-
ferðirnar:
a. 9,—12. júní Skaftafell.
b. 10. —12. júnf Goðaland
- Básar.
c. 10.—12. júní Fimmvördu-
háls.
Lifandi heimasíða Útivistar:
utivistás (nýjar myndir úr Básum).