Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Finnur
Starfsmenn Alls í járnum ehf. og Þórbergs ehf. fjarlægja lýsistankinn.
Gamall lýsistank-
ur fjarlægður
Tálknafirði - Fyrir skömmu var
unnið að því að fjarlægja gamlan lýs-
istank sem var ofan við Hraðfrysti-
hús Tálknafjarðar. Unnið hefur ver-
ið að því að hluta tankinn niður og
breyta honum í fiskeldisker.
Tankurinn var settur upp fyrir
u.þ.b. 30 árum, þegar loðna var
brædd í fiskimjölsverksmiðju sem þá
var starfrækt af Hraðfrystihúsi
Tálknafjarðar. Hafði hann lokið því
hlutverki sínu fyrir mörgum árum.
Brautskráning frá
Fj ölbrautaskólanum
á Sauðárkróki
FJÖLBRAUTASKÓLA Norður-
lands vestra var slitið við hátíðlega
athöfn síðastliðinn laugardag að við-
stöddu fjölmenni. Skólameistari, Jón
F. Hjartarson, kynnti dagskrána
sem flutt var, en síðan söng kór
skólans nokkur lögu undir stjórn
Hilmars Sverrissonar. Þá tók til
máls Ársæll Guðmundsson, aðstoð-
arskólameistari, og flutti vetrarstikl-
ur skólaársins, en þar kom fram að
nemendur í skólanum voru 547, þar
af rúmlega 100 í heimavist.
Þá voru 42 nemendur skráðir í al-
mennt meistaranám á báðum önn-
um, en kennsla í þessari grein var
fjarkennsla sem fram fór með svo-
nefndum fjarfundabúnaði, en það
merkir að nemendurnir eru staddir á
hinum ýmsu stöðum í kjördæminu
og sameinuðust með hjálp hinnar
nýju tækni, sem væru allir i einni
kennslustofu.
í ræðu Ársæls kom fram að náms-
framboð skólans hafi verið með hefð-
bundnu sniði þetta skólaárið, en
hinsvegar var veturinn nýttur til að
aðlaga námsframboðið breyttum að-
stæðum um skipan námsbrauta.
Þá kom fram að á næsta skólaári
verður boðið upp á nám í grunndeild
tréiðna og er þegar hafinn undirbún-
ingur fyrir þá kennslu, en einnig
standa vonir til þess að hafin verði
kennsla í öldungadeild, námsbraut í
hestamennsku og sjúkraliðanám í
tengslum við heilbrigðisstofnanir á
svæðinu.
Einnig ræddi Ársæll félagslíf
nemenda og störf tengd þeim og
rakti merka áfanga sem náðst hefðu
á skólaárinu og þakkaði nemendum
góðan árangur bæði í starfi og leik.
Að lokinni ræðu aðstoðarskóla-
meistara léku fjórhent á flygil syst-
urnar Signý og Unnur Sigurðardæt-
ur, en þær systur eru nemendur
skólans. Guðný M. Bragadóttir,
einnig nemandi skólans, sagði frá
reynslu sinni af erlendum samskipt-
um í skólalífinu.
Guðmundur St. Ragnarsson flutti
kveðju frá tíu ára stúdentum og
ávarp nýstúdenta flutti Atli Bjöm
Eggertsson Levy, forseti nemenda-
félagsins.
Verðlaun fyrir námsárangur
Þá afhenti skólameistari viður-
kenningar til brautskráningarnema.
Viðurkenningar fyrir frábæran
námsárangur í ensku, dönsku og
frönsku auk árangurs í sérgreinum
málabrautar hlaut Ambjörg Kristín
Konráðsdóttir. Atli Bjöm Eggerts-
son Levy hlaut viðurkenningu fyrir
árangur í sérgreinum eðlisfræði-
brautar, Árni Geir Valgeirsson fyrir
árangur í sérgreinum náttúmfræði-
brautar, Birna Eiríksdóttir fyrir
árangur í efnafræði og þýsku, Efem-
ía R. Sigurbjömsdóttir fyrir árangur
í skólaíþróttum, Fríður F. Sigurðar-
dóttir fyrir námsárangur í sérgrein-
um hagfræðibrautar og í íslensku,
Guðmundur F. Matthíasson fyrir
árangur í ensku, Inga N.S. Jóhanns-
dóttir fyrir árangur í sérgreinum
viðskiptafræðibrautar, Ingvar Þ.
Kristjánsson fyrir árangur í al-
mennu meistaranámi, María Hjalta-
dóttir íyrir árangur í þýsku, Ólöf K.
Daníelsdóttir fyrir framúrskarandi
skólasókn, Sólveig Þórarinsdóttii-
fyrir árangur í sérgreinum hag-
fræðibrautar, Stefanía G. Bjama-
dóttir fyrir árangur í þýsku og
Sverrir Bergmann Magnússon fyrir
árangur í stærðfræði.
í ávarpsorðum sínum til braut-
skráðra nemenda þakkaði skóla-
meistari nemendum og kennuram
ágæta samvinnu, en hann fer nú í
ársleyfi og mun Ársæll Guðmunds-
son gegna störfum skólameistara
þann tíma.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Mjög hefur aukist að skólaböm á vorferðalögum sínum komi í heimsókn og fylgist með hefðbundnum bústörf-
um og þá ekki sfst meðan sauðburður stendur yfir.
Akranesi - Á bænum Bjarteyjar-
sandi 2 á Hvalfjarðarströnd hefur
verið rekin fjölbreytt ferðaþjónusta
undanfarin ár ásamt hefðbundnum
búskap.
IV^jög hefur aukist að skólabörn á
vorferðalögum sínum komi í heim-
sókn og fylgist með hefðbundnum
bústörfum og þá ekki sfst meðan
sauðburður stcndur yfir. Vorið
1999 komu um 800 nemendur í fjár-
húsin og fylgdust með daglegum
störfum heimafólksins.
í vor hefur verið umtalsverð
aukning gesta og hafa um 1500
manns komið í fjárhúsin. Einnig
hafa leikjanámskeiðshópar sýnt
slfkum heimsóknum áhuga og
stefnt er að því að bjóða slíkt í
auknum mæli. Allir fjölskyldu-
meðlimir á Bjarteyjarsandi 2 hafa
verið virkir þátttakendur í þessari
starfsemi en nú í vor var gerð sú
áherslubreyting að yfirumsjón með
starfseminni er í höndum Arnheið-
ar Hjörleifsdóttur sem hefur BS
próf í landafræði frá Háskóla fs-
lands ásamt kcnnslufræði. Sam-
hliða námi sfnu starfaði hún sem
landvörður f þjóðgarðinum á Þing-
Ferða-
þjónusta í
Hvalfirði
völlum og hefur m.a. tekið þar á
móti hópum skólabarna.
Arnheiður segir að með þessari
áherslubreytingu geti þau skipu-
lagt starfsemina á markvissari hátt
og mun auðveldara só að taka tillit
til sérþarfa hvers og eins. Þannig fá
skólahóparnir tækifæri til að dvelj-
ast lengur á staðnum og upplifa og
kynnast fleiru á sama tíma og aðrir
í fjölskyldunni einbeita sér að hefð-
bundnum störfum þrátt fyrir heim-
sóknirnar.
Þegar fréttaritara bar að á dög-
unum var fjölmennur hópur nem-
enda frá Háteigsskóla í Reykjavík
en heimsókn þeirra var þríþætt. I
fyrsta lagi var farin Qöruferð, þá í
fjárhúsin og að lokum enduðu þau í
gamalli hlöðu, hlýddu á sögur og
léku sér að leggjum og öðrum
gullastokksmunum.
Arnheiður segir að upphaf ferða-
þjónustu á staðnum megi rekja til
ársins 1992 þegar tveir leikskóla-
hópar komu í heimsókn. Frá árinu
1995 hefur verið rekin formleg
ferðaþjónusta sem hefur vaxið og
dafnað siðan. Þar er til útleigu vel
búinn sumarbústaður og sjö önnur
sumarhús.
Jafnframt eru til leigu lóðir fyrir
sumarbústaði. Þá er góð aðstaða
fyrir aðra hópa, svo sem starfs-
mannafélög, ættarmót og erlenda
ferðamenn. Ágæt inniaðstaða er
fyrir hópana og eins er tjaldstæði
til staðar. í sumar verður boðið upp
á gönguferðir undir leiðsögn, enda
ágætar gönguleiðir og útsýni fög-
ur.
Bjarteyjarsandur er jörð við inn-
anverðan Hvalfjörð. Jörðin hefur
verið í ábúð sömu ættar sfðan 1887
en núverandi ábúendur eru hjónin
Sigurjón Guðmundsson og Kolbrún
Eiríksdóttir og hófu þau búskap ár-
ið 1973. Á Bjarteyjarsandi er stund-
aður sauðfjárbúskapur og eru um
500 Qár á fóðrum.
Höttur á Egilsstöðum
með knattspyrnuskóla
Egilsstöðum - íþróttafélagið Höttur
á Egilsstöðum heldur Knattspyrnu-
skóla Hattar í annað sinn nú í sumar.
Skólinn hefur aðsetur í Grannskól-
anum á Eiðum. Knattspyrnuskólinn
er bæði fyrir stelpur og stráka sem
spila í 5. og 6. flokki og tekur um 5
daga fyrii' hvorn flokk.
Markmið með skólanum er að
bæta tækni og leikskilning þátttak-
enda og veita þeim gott veganesti í
knattspymu inn í sumarið. Á milli
boltaæfinga verður farið í sund,
göngutúra, veiðiferðir o.fl.
Þjálfari skólans er Dragi Pavlov,
sem hefur verið þjálfari hjá Hetti
undanfarin misseri. Dragi hefur há-
skólagráðu í fjótboltaþjálfun frá há-
skólanum í Belgrad og mikla reynslu
sem leikmaður en hann spilaði með
efstu deildum fyrrverandi Júgóslav-
íu og í Frakklandi. Hann hefur leikið
6 landsleiki fyrir ólympíulandslið
fyrrum Júgóslavíu.
Hvatningarganga
á Egilsstöðum
Egilsstöðum - Nemendur í 3ju
bekkjum í Egilsstaða- og Eiðaskóla
gengu hvatningargöngu um Egils-
staðabæ. Tilefnið var að hvetja bæj-
arbúa til betri umgengni við náttúr-
una og að sýna dýrum umhyggju.
Börnin höfðu útbúið spjöld eða
skilti með ýmsum áletrunum í
hvatningarskyni, s.s.: „Skiljum bíl-
inn eftir heima“, „Notum minni
pappír“, og „Verum góð við dýrin“.
Eftir langa göngu um Egilsstaðabæ
var stefnan tekin á bæjarskrifstof-
urnar þar sem Birni Hafþóri Guð-
mundssyni bæjarstjóra og Þórhalli
Pálssyni, forstöðumanni umhverfis-
sviðs, vora afhent hvatningar-
spjöldin.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Sævar Jónsson frá Nökkva afhendir Sævari Guðjónssyni og Jóni Inga
Kristjánssyni í björgunarsveitinni Gerpi gjöfina.
Nökkvi gaf Gerpi til
bátakaupa
Neskaupstað - Nýlega gáfu félagar í
smábátafélaginu Nökkva í Neskaup-
stað björgunarsveitinni Gerpi tvær
og hálfa milljón króna, sem varið
skal til bátakaupa fyrir sveitina.
Upphæðin er andvirði sumarhúss
sem Nökkvi átti í Hellisfirði. Sigur-
jón Sighvatsson kvikmyndagerðar-
maður keypti nýlega stóran hluta
Hellisfjarðar og sumarhús þeirra
Nökkvamanna með. Gjöfin var form-
lega afhent á sjómannadaginn.