Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 80
~30 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Kryddaður
hátíðarlax
Matur og matgerð
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna, segir
Kristín Gestsdóttir, er þetta enginn
hversdagsréttur enda kryddaður með
mörgum tegundum.
>
4
EITT aðalkryddið er ferskur
engifer, sem fæst nú alltaf. Hann
er mun mildari og ljúffengari en
það engiferduft sem allir þekkja
og er notað í kökur og kex. Engi-
fer er ekki bara krydd í mínum
huga heldur besta sælgæti sem ég
get hugsað mér. í enskum ljúf-
metisbúðum er hægt að kaupa
súkkulaðihúðaðan engifer
namm, namm, það er það besta
sem ég veit. Ég hefi prófað að
borða sykraðan engifer og stinga
súkkulaðimola upp í mig um leið,
en það er ekki hið sama. Fyrir all-
mörgum árum þegar Silli og Valdi
voru með matvöruverslun í Aðal-
stræti, seldu þeir stundum öskjur
með súkkulaðihúðuðum engifer,
þá komst ég á bragðið.
Þótt engifer sé upprunninn í
rökustu hitabeltisfrumskógum
Suðaustur-Asíu er nú algengt að
rækta hann í görðum í hitabeltinu,
en hann þarf skugga og hitabeltis-
loftslag. Hann var notaður í Indl-
andi og Kína til forna, en þurrkað-
ur engifer var fluttur til
Mið-Austurlanda og Suður-
Evrópu fyrir tíma Rómaveldis og
var álitið að hann kæmi frá araba-
löndum. Evrópubúar nota engi-
ferduft mikið í kex og kökur eins
og við íslendingar, en hin síðari ár
þegar ferskur engifer fæst alltaf,
er fólk farið að krydda sósur og
kjötrétti með engiferi og fer vel á
að krydda hinn feita eldislax með
engiferi eins og hér er gert. En
fleira en ferskur engifer er í rétt-
inum t.d. ferskur hvítlaukur, heil-
ar kardimommur og kúmenkorn.
Engiferrótina reif ég á rifjámi,
marði hvítlauksgeirana í pressu,
kardomommukornin og kúmen-
kornin steytti ég í morteli. Þessar
græjur eru þó ekki til á öllum
heimilum þó víðast sé til rifjárn.
Hvítlauksgeirana má setja á
bretti, leggja breitt hnífsblað yfir
og slá síðan þétt á með hnúanum.
Kardimommu- og kúmenkornin
má setja í stykki og slá nokkrum
sinnum á með hamri. Stundum er
hægt að fá malað kúmen og
kardimommuduft en notið ekki
dropa. Chili-duftið sem ég notaði
er blanda af kryddi með chilipip-
ar, rauðum og svörtum pipar,
kúmeni, oregano og hvítlauk,
þetta er ekki sterk blanda, en
rugiið henni ekki saman við chili-
pipar, sem er logandi sterkur.
Best er að geyma ferska engifer-
rót í frysti, en hana má rífa niður
frosna.
Kryddaður lax í
fógúrtsósu
1 Vi kg laxaflak
_________2 -3 tsk, salt______
________1 Vi tsk. kúmen______
3 tsk. chili-duft (powder)
1 tsk. nýmalaður svartur pipar
________'/2 dl matarolíg_____
u.þ.b 3 sm biti fersk engiferrót
3 stórir hvíHauksgeirar
_______1 dós hrein jógúrt____
__________V2 peli rjómi______
10 heilar kardimommur eða 1 tsk.
_______duft (ekki dropar)____
fersk korianderlauf eða steinselja
Roðdragið flakið, strjúkið
fingrinum niður eftir miðju flaks-
ins og fjarlægið bein. Skerið í bita.
Stráið salti jafnt á flakið.
Blandið saman kúmeni, chili-dufti
og svörtum pipar og stráið jafnt
yfir.
3. Afhýðið engiferrótina og ríf-
ið, afhýðið hvítlaukinn og merjið.
Setjið olíu á pönnu og sjóðið engi-
ferrót og hvítlauk við vægan hita í
henni í 3 mínútur.
4. Hafið meðalhita og sjóðið
fiskinn í kryddaðri feitinni við
meðalhita
4-5 mínútur á hvorri hlið. Takið
af pönnunni og haldið heitum á
fati.
5. Steytið kardimommurnar.
Blandið saman jógúrt og rjóma,
setjið kardimommur út í og hitið
vel í gegn. Hellið yfir fiskinn á fat-
inu. Klippið koriander eða stein-
selju yfir og berið fram.
Meðlæti: Snittubrauð eða ann-
að brauð.
Fréttir á Netinu v-i> mbl.is
AL.LTAf= E/TTHVAG NÝT~i
viivAkwm
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hatur
á dýrum
VEGNA skrifa í Velvak-
anda þriðjudaginn 6. júní
sl. um kattahald í Reykja-
vík langar mig að tjá mig
um málið. Það er alveg
furðulegt hversu margt
gamalt fólk þarf að amast
við þessum litlu, sætu,
mannelsku dýrum.
Kannski er það bara ellin
sem veldur þessu. Það er
hægt að setja hálsól með
bjöllu um háls kattanna
svo þeir veiði ekki fugla,
enda hafa saddir heimilis-
kettir bara engan áhuga á
slíkum veiðum. Eldri
borgari talar líka um of-
næmi fyrir köttum og að
margir þoli þá ekki. Ég
hugsa að það sé frekar að
fólk þoli ekki ketti, frekar
en að það sé með ofnæmi,
þó að kattarofnæmi sé
vissulega til. Þessi eldri
borgari vill trúa því að
Ingibjörg Sólrún borgar-
stjóri sé manna líklegust
til þess að standa fyrir
reglugerð, en Palli er nú
bara ekki einn í heiminum.
Við erum líka mörg sem
viljum, engu að síður en
eldri borgari, sjá betri
borg og leyfa dýrunum að
vera í friði. Börn hafa gott
af því að kynnast dýrunum
og veit ég ekkert yndis-
legra en að sjá börn og
litlu sætu kisurnar að leika
sér saman. Borgin verður
bara mannlegri og ég veit
ekki betur en að Ingibjörg
Sólrún eigi kött og muni
skilja dýravini.
Sigrún.
Tónleikahald með
stórstjörnum
MÉR finnst frábært að
tónleikahaldarar hafi tekið
svo stóra áhættu, til þess
að koma svo stórum nöfn-
um eins og David Bowié,
Sting og Elton John til
litla Islands. Ég veit, að ef
það verður framhald á
svoleiðis tónleikum er það
víst að tónleikahaldarar
hafa lært af reynslu sinni.
Ég held að eini árangurinn
sem hefur orðið er að það
verða ekki haldnir fleiri
svona tónleikar með svona
stórstjörnum. Persónu-
lega vil ég þakka þeim fyr-
ir frábæra tónleika.
Helga.
Þroskaheftir
eða fatlaðir
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi benda
á það að það eru þroska-
heftir sem stendur til að
fari til Hríseyjar en ekki
fatlaðir. Það er Þroska-
hjálp sem stendur að
þroskaheftum en Sjálfs-
björg er landssamtök lam-
aðra og fatlaðra. Af hverju
er alltaf talað um að fatlaðir
fari til Hríseyjar? Henni
finnst aðstandendur
Þroskahjálpar vera að af-
neita sínu fólki með því að
tala um fatlaða í stað
þroskahefta.
Ómenning í
umferðinni
HVAR er lögreglan þegar
bflar leggja uppi á gang-
stéttum, gönguljósin eru
alltof stutt svo að maður
kemst ekki yfir og það ligg-
ur við að það sé keyrt á
mann? Rútur fullar af fólki
uppi á gangstétt fyrir fram-
an Þjóðleikhúsið og treðst
svo út þegar hurðin opnast.
Það er hrikaleg ómenning í
umferðinni okkar. Það
þyrfti til dæmis að bæta við
löggæsluna í borginni og
lengja gangbrautarljósin
fyrir gangandi vegfarend-
ur. Það er mikill hávaði af
mótorhjólum og yfir sum
gatnamótin er nánast ekki
hægt að komast.
Göngugarpur.
Keflavík eða Ásabær
VALDIMAR hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi hann koma því á fram-
færi að Keflavíkurbær hefði
í raun átt að heita Asabær
og vísar til þess að orðið
kefli þýði ás. T.d. tilheyri
Njarðvík Ásum nyrðri. Seg-
ir hann að nafnið Reykja-
nesbær sé ágætt en hitt sé
upprunalega nafnið.
Tapað/fundid
Jakki gleymdist á
portsölu
MAÐUR kom í portsölu að
Bergstaðastræti 36 og
gleymdi jakkanum sínum
þar. Hann getur komið og
vitjað hans þar.
Morgunblaðið/Ásdís
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI dagsins lætur stund-
um fara í taugarnar á sér það
sem honum finnst vera slæleg þjón-
usta í svonefndum þjónustufyrir-
tækjum á íslandi, til dæmis i stór-
verslunum á borð við Hagkaup.
Þangað lá nýlega leið Víkverja í þeim
erindagjörðum að fá flík skipt í ann-
að númer. Taldi Víkverji þetta
mundu verða einfalt mál og vék sér
með erindi sitt að afgreiðslufólki í
fatadeild Hagkaups í Kringlunni og
spurði hvort hann mætti ekki skipta
og fá samskonar vöru en bara í öðru
númeri. Nei, það var ekki hægt.
Fyrst þyrfti Víkverji að fara í aðra
deild, sem afgreiðslufólkið sagði
vera „þarna hinum megin“, og svo
var bent eitthvað út í loftið. Þar ætti
Víkverji að fá innleggsnótu og koma
svo aftur og fá aðra vöru. Víkverji
skildi ekki - kannski í barnaskap sín-
um, enda ekki vel að sér í verslun -
hvers vegna þetta þyrfti að vera
svona flókið. Spurði aftur hvort hann
mætti ekki bara skipta án þessara
málalenginga. „Nei, þú verður að
fara og fá innleggsnótu,“ sagði af-
greiðslufólkið með mikilli áherslu á
„verður“ og var ekki laust við valds-
mannstón. Víkverji fékk á tilfinning-
una að hann hefði gert eitthvað al-
deilis fráleitt með því að láta sér
detta í hug að skipta vörunni, enda
var engu líkara en starfsfólkið væri
með ráðum og dáð að verja fyrirtæk-
ið gegn lævíslegri tilraun viðskipta-
vinar til að klekkja á Hagkaupi.
ANNAÐ fyrirtæki, sem á íslensk-
an mælikvarða er stórfyrirtæki
og hefur oft valdið Víkverja pirringi,
er Flugleiðir. Víkverji er meðlimur í
Vildarklúbbi Flugleiða og safnar þar
punktum sem hann vonar að muni
einn daginn veita honum ókeypis
flugferð. En þótt Víkverji hafi ferð-
ast oft milli landa með Flugleiðum
undanfarin tvö ár hefur honum ekki
enn tekist að safna fleiri punktum en
svo, að hann fengi eina flugferð
(aðra leiðina) innanlands. Ástæðan
er eflaust sú, að Víkverji er ekki
sterkefnaður og ferðast alltaf á
ódýrasta fargjaldi og fær fáa punkta
fyrir. Ennfremur virðist sem þessi
nánasarháttur Víkverja í flugmiða-
kaupum komi niður á þjónustu Vild-
arklúbbsins við hann. Fyrir nokkru
varð Víkverja ljóst að hann hafði
gleymt aðgangsorðum sínum að
punktastöðunni á vefsíðu klúbbsins
og bað klúbbinn um aðstoð við að
rifja upp þessi orð. Af einhverjum
ástæðum liðu margir dagar áður en
Vildarklúbburinn sá sér fært að
verða við aðstoðarbeiðni viðskipta-
vinar síns, þótt málið væri ekki
flóknara en svo að það var leyst með
einu tölvuskeyti. Reyndar hafa sam-
skipti Víkveija við téðan Vildar-
klúbb öll verið hin stirðustu, og Vík-
verji fengið á tilfinninguna að það sé
erfitt að fá þessa fáu punkta sem
hann vinnur sér inn með nánasar-
hætti sínum. Viðmót starfsfólks hjá
Vildarklúbbnum hefur verið ekki
ósvipað viðmótinu sem Víkverji
mætti í Hagkaupi; það er, eins og
starfsfólkið líti á viðskiptavininn
sem varhugaverðan bragðaref sem
vernda þurfi fyrirtækið fyrir. Vík-
verji hefur átt þess kost að versla í
stórmörkuðum í Norður-Ameríku
og þar er jafnan komið fram við við-
skiptavininn af þjónustuvilja og al-
mennilegheitum. Ekkert mál að
skipta á vöru, jafnvel bara skila
henni og fá endurgreitt án þess að
þurfa að fara í hinn endann á búðinni
og ekkert humm og ha. Kannski er
Víkverji bara búinn að vera of mikið
í útlöndum og búinn að gleyma því
hvernig ósköp venjulegur íslenskur
ruddaskapur lýsir sér, og bara við-
kvæmni í Víkveija að taka þessu
sem ókurteisi. En hann telur sig
samt vita nákvæmlega hvað það er
sem útlendingar eiga við þegar þeir í
könnunum gefa lága einkunn fyrir
„þjónustu" í íslenskum þjónustufyr-
irtækjum.
XXX
SVO vill Víkverji eindregið hvetja
Ríkissjónvarpið til að setja
þættina um Frasier aftur á dagskrá
sem fyrst. Jafnvel þótt það yrðu
endursýningar á gömlum þáttum.
Frasier, og margir viðlíka banda-
rískir gamanþættir, eru slíkt af-
burða afþreyingarefni, að jafnvel í
endursýningu eru þeir betri en það
sem yfirleitt er boðið upp á í Sjón-
varpinu.