Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 92
Reiknaðu með
framtíðinni
Sameinaða Ifftryggingarfélagiö hf.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ&MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/RAX
Geysir sýndi mátt sinn og megin
KRÖFTUGT gos hófst í Geysi á niunda tímanum
í gærkvöldi eftir að rúmum fjörutíu kílóum af
sápu var hent í hverinn um þrjúleytið. Þúsundir
manna iögðu leið sína að Geysi til að fylgjast
með gosinu, en gosið lét þó bíða eftir sér í rúma
fimm tíma og höfðu margir haldið heim á leið
þegar Geysir lét loks til sín taka.
Gosið í hvernum brást þó ekki þeim sem enn-
þá biðu og gufu- og vatnsstrókar teygðu sig tugi
metra í loft upp þegar gosið náði hámarki. Lítill
sem enginn fyrirvari var að gosinu og brennd-
ust nokkrir áhorfenda á fótum þegar sjóðheitt
vatnið streymdi skyndilega úr hvernum.
■ Kröftugu/6
Flugmenn
og flugvirkj-
ar sömdu
SAMNINGAR tókust í kjaradeilu
Flugfélags íslands og flugmanna hjá
félaginu í fyrrinótt og var skrifað und-
ir nýjan kjarasamning í húsakynnum
ríkissáttasemjara í gærmorgun.
Samningar tókust einnig í gær milli
flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni og
samninganefndar ríkisins.
Samningur flugmanna og Flugfé-
lags Islands tekur til 25 flugmanna og
gildir hann til 15. september 2003.
Franz Ploder, formaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna, sagði að
samningurinn væri svipaður samn-
ingum Flóabandalagsins fyrr í vor og
samningum flugmanna Flugleiða.
Deilu íslandsflugs og flugmanna
félagsins hefur enn ekki verið vísað til
ríkissáttasemjara en fulltrúar við-
semjenda hittust þó í húsakynnum
hans í gær. Loks má nefna að í dag
funda hjá ríkissáttasemjara flugfreyj-
ur hjá Islandsflugi og fulltrúar flugfé-
lagsins.
Landsvirkjun kynnir matsáætlun Kárahnúkavirkjunar
Viðamesta umhverf-
ismat fram til þessa
VINNA Landsvirkjunar við mat á
umhverfisáhrifum Kárahnúkavirkj-
unar hófst formlega í gær þegar fyrir-
tækið kynnti tillögu að áætlun um
matið. Um er að ræða viðamestu
framkvæmd við mat á umhverfis-
áhrifum sem ráðist hefur verið í hér á
landi, að sögn Friðriks Sophussonar,
forstjóra Landsvirkjunar.
Forsvarsmenn Landsvirkjunar
leggja mikla áherslu á að haft verði
samráð við stofnanir, hagsmunasam-
tök, félög og almenning á meðan
matsvinnan stendur yfir og hafa einn-
ig fengið alþjóðlegan ráðgjafa að
verkinu.
Fram kemur í matsáætlun Lands-
vii-kjunar að virkjunin og fram-
kvæmdir við hana munu hafa víðtæk
umhverfisáhrif á stóru landsvæði.
Allt að 57 ferkílómetra stórt land-
svæði hverfur undir svonefnt Hálslón,
sem myndað verður með gerð stíflu
við Fremri-Kárahnúk. Fram kemur í
matsáætluninni að hluti þessa svæðis
sé friðlýstur. Þá er gróflega áætlað að
um 20 km2 lands fari undir vatn á öðr-
um lónsstæðum. Verulega mun draga
úr vatnsmagni í Jökulsá á Dal vegna
stíflugerðar en vatnsmagn mun auk-
ast í Jökulsá í Fljótsdal/Lagarfljóti.
Er fyrirhugað áð dýpka og víkka far-
veg Lagarfljóts á nokkrum stöðum
utan Egilsstaða til að auka flutnings-
getu árinnar án þess að til vatns-
borðshækkunar þurfi að koma.
■ Áhersla/46
Nýtt fjárfestingar-
félag með 3,5 millj-
arða stofnfé
Nöfn fjár-
festa ekki
gefín upp
strax
STOFNUN fjárfestingarfé-
lagsins Gilding var kynnt í
gær. Stofnhlutafé félagsins er
50 milljónir evra eða um 3,5
milljarðar íslenskra króna.
Ekki er gefið upp hvaða fjár-
festar standa að félaginu en
nöfn helstu hluthafa verða
birt innan nokkurra vikna
þegar félagið hefur starfsemi
og eignarhald í því verður
fullmótað.
Starfandi stjórnarformaður
Gildingar er Þórður Magn-
ússon, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Eimskips. Aðrir starfsmenn
Gildingar eru Andri Sveins-
son, fyrrverandi forstöðumað-
ur fyrirtækjaráðgjafar Bún-
aðarbankans Verðbréfa, Árni
Oddur Þórðarson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri markaða-
& fyrirtækjaráðgjafar Búnað-
arbankans Verðbréfa, Bjarni
Þórður Bjarnason af verð-
bréfasviði Kaupþings og
Magnús Magnússon af fyrir-
tækjaviðskiptasviði Búnaðar-
bankans.
Að sögn Þórðar verða
starfsmenn félagsins um 8-10
talsins þegar það hefur starf-
semi en það verður til húsa
að Borgartúni 24.
Fjárfest í skráðum og
óskráðum félögum
Fjárfest verður bæði í
skráðum og óskráðum félög-
um innan lands sem utan í
nánu samstarfi við banka og
verðbréfafyrirtæki. Fjárfest-
ingarstefna félagsins verður
sú að innlendar fjárfestingar
nemi 40-60% og svipað hlut-
fall verður á fjárfestingum
annars staðar í Evrópu.
Akvörðun um að stofna félag-
ið var tekin fyrir þremur vik-
um og er hlutafjársöfnun
ólokið.
■ Stofnhlutafé/24
Norsk-islenska sfldin í lögsögu Jan Mayen
Nokkrir bátar á land
leið með fullfermi
NOKKRIR íslenskir sfldarbátar
eru á landleið með fullfermi eftir
ágæta veiði á litlu svæði í lögsögu
Jan Mayen í fyrradag en eftir því
sem skipum fjölgaði á miðunum dró
úr veiðinni í gær.
Óli í Sandgerði AK var átta tíma á
miðunum og fékk rúmlega 1.000
tonn í þremur köstum á miðvikudag.
„Við fengum frá 250 upp í 600 tonn í
kasti,“ segir Marteinn Einarsson
skipstjóri sem áætlar að vera á
Akranesi í kvöld eftir um 700 mflna
siglingu. Að sögn Marteins eru Guð-
mundur, Guðmundur Ólafur, Birt-
ingur, Oddeyrin og Júpiter einnig á
landleið með fullfermi en hann segir
að þessi skip hafi verið komin á und-
an sér á miðin. „Við vorum þarna
um 11—leytið og fórum um 7-leytið
um kvöldið."
Marteinn segir að torfurnar hafi
ekki verið stórar og lítið að sjá en
síldin væri þokkaleg. Norðmenn og
Færeyingar hefðu verið um 170 mfl-
ur í norðaustur frá íslensku skipun-
um sem fengu síldina vestar en áður
eða um fjórum gráðum vestan við
70. breiddargráðuna.
Minna af sfld
Viðar Karlsson, skipstjóri á Vík-
ingi AK, kom á miðin um klukkan
fjögur á miðvikudag og fékk um 900
tonn þann daginn en hafði engu
bætt við í gær. „Fyrstu bátarnir
fengu smákropp en núna er ekkert
um að vera, svæðið lítið og komnir
um 20 bátar á smáblett, þannig að
þetta er ekki mjög efnilegt."
Viðar segir að miklu minna sé að
sjá af síld nú en undanfarin ár. Aður
hefði alltaf verið hægt að finna nýja
bletti en veiðin yrði aldrei mikil þeg-
ar allir væru á sama svæðinu. „Það
sem er hérna minnkar stöðugt,"
segir Viðar. Hann gerði ráð fyrir að
vera að til fjögur eða fimm í nótt
sem leið og þá yrði haldið áleiðis til
Akraness, hver svo sem staðan